Morgunblaðið - 16.03.1999, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Allt fyrir
íþróttirnar
KVIKMYJVDIR
K r i n g 1 u b í ó
HAFNAKÖRFUBOLTI
„BASEKETBALL"
irk'k
Leikstjóri: David Zuker. Handrit:
Zucker og Robert LoCash. Tónlist:
Ira Newborn. Kvikmyndataka: Steve
Mason. Aðalhlutverk: Trey Parker,
Matt Stone, Yasraine Bleeth, Jenny
McCarty, Ernest Borgnine
og Robert Vaughn.
ÞEGAR þeir leiða saman hesta
sína leikstjóri skopstælingamynd-
anna Beint á ská og höfundar teikni-
myndanna „South Park“ í sjónvarp-
inu verður útkoman eitthvað eins og
Hafnakörfubolti eða „Baseketball";
fullkominn útúrsnúningur á tveimur
af vinsælustu íþróttagreinum Banda-
ríkjamanna og eðli allra göfugra
íþrótta í bland við kolsvartan húmor
þar sem mönnum er ekkert heilagt.
I Hafnarkörfubolta leikstýrh- Da-
vid Zucker þeim Trey Parker og
Matt Stone en þeir leika unga menn
að drepast úr vesaldómi sem fínna
upp nýja íþróttagi-ein. Þeir blanda
saman í forheimsku sinni og á ger-
samlega óskiljanlegan hátt hafnar-
bolta og körfubolta og leikui'inn sá
verður nýjasta æðið sem grípur
heiminn.
Nóg er af gamansemi í myndinni
sem beinist mjög að íþróttum og
íþróttamönnum. Húmorinn er sér-
staklega rætinn og margir brandar-
arnir ágætlega heppnaðir. Markmið-
ið er að ganga fram af fólki og
kannski tekst höfundunum það und-
ir merkjum gamanseminnar. Þeir
Parker og Stone eru fínir gaman-
leikarar og leika hið hálfvitalega par
eins og þeir sem vitið hafa. Fjöldi
þekktra aukaleikara skreytir kök-
una eins og Ernest Borgnine og Ro-
bert Vaughn, sem ekki hefur sést í
bíói árum saman.
Hafnarkörfubolti sameinar
heimskuhúmorsmyndirnar og skop-
stælingamyndirnar og hrærir saman
við talsverðu af „South Park“ þátt-
unum. Utkoman er nokkuð lunkin
gamanmynd, sem ætluð er ungling-
um sérstaklega.
Arnaldur Indriðason
MorgunblaðiíVSig. Fannar.
ÞURÍÐUR Sigurðardóttir með eitt verka sinna.
Fyrsta einkasýning
Þuríðar Sigurðardóttur
arnámskeið og þá aðallega
vatuslitanámskeið; m.a. hjá
Myndlistarfélagi Arnessýslu.
Hún hefur tekið þátt í nokkrum
samsýningum hjá myndlistarfé-
laginu en þetta er fyrsta einka-
sýning hennar og eru allar
myndirnar vatnslitamyndir,
flestar málaðar á þessum vetri.
Selfoss. Morgunblaðið.
NU stendur yfír sýning Þuríðar
Sigurðardóttur í Gallerí Garði á
Selfossi. Þuríður er fædd í
Reykjavík 17. maí 1935 og Iauk
stúdentsprófí frá Menntaskólan-
um í Reykjavík 1955 og seinna
kennaraprófí frá Kennarahá-
skóla íslands.
Þuríður hefur sótt myndlist-
Morgunblaðið/Aldís
í SVIÐSETNINGU í Hveragerði tekst nokkuð vel til að skapa spennu, segir m.a. í umfjölluninni.
Lúmskt gaman
skemmtilegt
LEIKLIST
Leikfélag Hverageröis
MARGTBÝRí ÞOKUNNI
Sakamálagamanleikur eftir William
Dinner og William Morum. Þýðandi:
Ásgerður Ingimarsdóttir. Leikstjóri:
Anna Jórunn Stefánsdóttir. Leikend-
ur: Svala Karlsdóttir, Sigrfður Val-
geirsdóttir, Dagbjört Almarsdóttir,
Jóhann Sigurðsson, Guðmundur Guð-
mundsson, Ylfa Lind Gylfadóttir,
Grétar Einarsson, Lilja Guðmunds-
dóttir, Eyrún Árnadóttir.
Fruinsýning í gamla hótelinu
í Hveragerði 13. mars.
MARGT býr í þokunni er saka-
málaleikrit með gamansömu ívafí
sem hentar að mörgu leyti vel
áhugamannaleikhúsinu, enda er
það sett á svið öðru hverju hér á
landi við góðar undirtektir. I þess-
ari sviðsetningu í Hveragerði tekst
nokkuð vel til að skapa spennuna
sem fylgir því að sjá aðalpersónun-
um allar bjargir bannaðar, og
einnig tekst leikkonunum þremur,
sem mest mæðir á, að lýsa spaugi-
legu hliðarnar á persónum sínum,
þremur ógæfusömum eldri konum
sem koma að auðu húsi og búa sér
þar sína jarðnesku paradís. Eins
og vera ber sópar að Svölu Karls-
dóttur í hlutverki Fríðu, en hún fer
fyrir þrenningunni, úrræðagóð og
drífandi. Þær Sigríður Valgeirs-
dóttir og Dagbjört Fjóla Almars-
dóttir ná einnig að draga fram ein-
kenni persóna sinna, annars vegar
fullkomið skeytingarleysi um eign-
arréttinn en hins vegar sú hvim-
leiða en um leið spaugilega árátta
að halda sjálfan sig ljóðskáld þrátt
fyrir að allt bendi til hins gagn-
stæða.
Þá stendur hin unga Ylfa Lind
Gylfadóttir fyiár sínu sem Dóra
Jakobs, frænka skúrksins.
Anna Jóninn Stefánsdóttir hefur
löngum verið mikil driffjöður í
Leikfélagi þeiiTa Hvergerðinga og
hér bregður hún sér farsællega í
hlutverk leikstjórans.
Sýningin er haldin í Hótel
Björk. Þar er salur þar sem á ár-
um áður voru haldnir margir seið-
andi dansleikir, en hentar nú
ágætlega fyrir menningarstarf-
semi af ýmsu tagi.
Guðbrandur Gíslason
Dixíland, Sæmi og
Austfj ar ðas veiflan
TÖNLIST
Sölvasalur Sólun
í s I a n il u s
DIXÍLANDHLJÓMSVEIT
ÁRNA ÍSLEIFSSONAR
Hljómsveitina skipa Sverrir Sveins-
son trompet, Þórarinn Óskarsson
básúnu, Guðmundur Norðdahl klar-
inett, Árni ísleifsson píanó, Örn
Egilsson gítar, Leifur Benediktsson
bassa, Guðmundur Steinsson tromm-
ur, Ragnheiður Sigjónsdóttir söngur.
Sérstakur gestur: Sæmundur Harð-
arson gítarleikari. Múlinn, sunnu-
dagskvöldið 14. mars
DIXÍLAND, hvítramanna
Chigacodjass, hafði íyrir löngu
runnið sitt blómaskeið er það upp-
hófst á Islandi þegar fyrsta alís-
lenska djasshljómsveitin hóf að
leika í Listamannaskálanum síðla
árs 1945. Það var hljómsveit
Björns R. Einarssonar og á píanóið
Árni ísleifsson. Enn er Árni að.
Hann hefur lengi búið á Egilsstöð-
um, kennt tónlist og stjórnað þar
heljar djasshátíð á hverju sumri
síðan 1987. Hann er nú kominn á
eftirlaun og fluttur suður, en það
breytir engu um djassstörf hans.
Hann mun áfram stjórna djasshá-
tíðinni á Egilsstöðum, sem haldin
er í júnílok hvert ár, og nú hefur
hann sett saman dixílandband og
leika þeir gömlu klassíkina. Þetta
er blandaður hópur atvinnu- og
áhugamanna. Fyrir utan Arna er
þar að finna annan frægan stjórn-
anda dixílandhljómsveita, Þórarin
Oskarsson básúnuleikara, sem ég
heyrði síðast með díxíhljómsveit á
djasshátíð Árna á Egilsstöðum. Þá
blés í klarinettið Bragi heitinn Ein-
arsson, einn af fáum klarinettu-
snillingum íslenskrar djasssögu.
Efnisskráln var velþekkt einsog
vænta mátti. Elst laganna var At
the Georgia Camp meeting, rag-
tæmmars frá 1897. Eg man ekki að
hafa heyrt þetta lag nema með
díxílandhljómsveit Árna Isleifs á
fímmtíuáraafmæli FIH. Annars
voru flest verkanna úr klassísku
dixíbókinni einsog At the jassband
ball, Original dixiland one steps og
Clarinade marmelade úr smiðju
strákanna úr Orginal dixiland jass
bandinu sem fyrst hljóðritaði djass
1917, Nikka LaRocca og Larry
Shields, og Tin roof blúsinn yndis-
legi sem Paul Mares samdi fyrir
New Orleans rýþmakóngana sína -
soðið uppúr óteljandi blúsum fyrri
tíðar.
Ragnheiður Sigjónsdóttir frá
Höfn í Homafirði söng nokkur lög
með hljómsveitinni. Hún er best í
millitempói - hröðu þó - og gamli
slagarinn AVho sorry now frá 1923
og Ain’t misbehavin sem Fats
Waller samdi 1928 hljómuðu vel.
Afturá móti fór ballaðan Cry me a
river fyrir lítið - sérí lagi þegar
meistaratúlkun Sigi-únar Jónsdótt-
ur, með Óla Gauk og Jóni bassa
flæktist fyrir í minninu.
Það var ekki bara boðið uppá díxí
þetta kvöld á Múlanum. Sæmundur
Harðarson frá Höfn var í bænum.
Hann hefur dvalið undanfarin ár í
annari höfn, sem kennd er við
kaupmenn, en nú er hann fluttur
heim - og meirað segja sestur að í
Breiðholti. Er því von til þess að fá
að heyra þennan hæfíleikaríka gít-
arista með helstu djassleikurum
landsins í framtíðinni.
Sæmundur lék ma. Soft winds
með bravúr. En það lag skrifaði
Benny Goodman fyrir sextett sinn
með Charlie Christian föður rafgít-
arsins í aðalhlutverki. Sæmi á að
vísu ættir að rekja til Christians,
en Wes Montgomery er hans mað-
ur og ef Ulf Wakenius forfallast í
einhverri íslandsheimsókn Niels
Hennings mætti alltaf leita til
Sæma. Hann hefur hæfíleikana -
nú vantar hann bara að spila, spila
og spila. Vonandi eru reykvískir
djassistar á vaktinni.
Vernharður Linnet
Söng-
leikurinn
Oliver!
í Hnífsdal
LITLI leikklúbburinn og Tón-
listai’skóli Isafjarðar frumsýna
söngleikinn Oliver! í félagsheim-
ilinu Hnífsdal, föstudagskvöldið
19. mars kl. 20.30. Söngleikurinn
er eftir Lionel Bart í þýðingu
Flosa Ólafssonai’. Alls 28 leikar-
ar og hljóðfæraleikai-ai’ taka þátt
í uppfærslunni, þai’ af 15 nem-
endur úr 8. til 10. bekk.
Hlutverk Olivers Twist leikur
Þórunn Kristjánsdóttir, skúrkinn
Faginn leikur Páll Gunnai’ Lofts-
son, Herdís Jónasdóttir leikur
vasaþjófmn Hrapp og Auður
Guðnadótth- er í hlutverki gleði-
konunnai’ Nancy. Leikstjóri er
Guðjón Ólafsson. Söngstjórn er í
höndum Margrétar Gemsdóttur
og Friðrik Lúðvíksson sér um
tónlistarstjóm.
Flesth’ leikaranna syngja með
kór Tónlistarskólans eða stunda
söngnám við skólann. Söngleik-
urinn er fyrsta samstarfsverk-
efni Litla leikklúbbsins og Tón-
listarskólans.
Söngleikurinn er settur upp
með sérstöku leyfí The South-
brook Group and Cameron
Mackintosh Ltd., segir í frétta-
tilkynningu.
Miðasala er í Edinborgarhús-
inu á ísafmði kl. 17-19 alla daga
frá og með 15. mars.
Önnur sýning verður sunnu-
daginn 21. mars og 3. sýning
þriðjudaginn 23. mai’s kl. 20.30.
Vortónleikar
Samkórs
Kópavogs
SAMKÓR Kópavogs heldur sína ár-
legu vortónleika í Salnum í Kópa-
vogi í dag, þriðjudag, kl. 20.30. Ein-
söng með kórnum syngur Svava
Kristín Ingólfsdóttir.
Á efnisskránni eru verk eftir
Tryggva Baldvinsson, Ingibjörgu
Bergþórsdóttur, Valgeir Guðjóns-
son, Pablo de Sarasate, Josef
Strauss, Johann Steurlein, F. Chop-
in, Martinu, G. Gershwin, Andrew
Lloyd-Webber, Ii-ving Berlin og
fleiri. Á meðal textahöfunda eni Da-
víð Stefánsson, Hallgrímur Péturs-
son, Jón frá Ljárskógum og Jó-
hannes úr Kötlum.
Sungin verða lög úr Porgy og
Bess, My fair lady og Cavalleria
Rusticana. Stjórnandi kórsins er
Dagrún Hjartardóttir. Undirleikari
er Claudio Rizzi.