Morgunblaðið - 16.03.1999, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LANDSFUNDUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Grasrótin knúði fram breytingar í nokkrum málum
Atök voru um stærð og
umsvif rfldsvaldsins
ÞAÐ vakti athygli í setningarræðu
Davíðs Oddssonar að hann fjallaði
ítarlega um ýmsa málaflokka sem
vinstriflokkarnir hafa ekki síst vilj-
að gera að sínum, mál eins og fjöl-
skyldumál, málefni aldraðra og mál-
efni öryrkja. Hins vegnar minntist
hann varla á ýmis hin hörðu hægri-
mál eins einkavæðingu í ríkis-
rekstri.
Þær breytingar sem eru að verða
í íslenskum stjórnmálum með til-
komu Samfylkingarinnar virðast
því ekki ætla að verða til þess að
formaður Sjálfstæðisflokksins færi
flokkinn til hægri. Þvert á móti má
túlka ræðuna á þann hátt að hann
ætli ekki að gefa miðjuna í íslensk-
um stjórnmálum eftir til annarra
Þótt góð samstaða hafí verið á landsfundi
Sjálfstæðisflokksins um flest meginmál
var tekist á um nokkur mál, m.a. um
hlutverk og fyrirferð ríkisvaldsins. Egill
Ólafsson fjallar um grasrótina í flokknum
og róttækar tillögur hennar í heilbrigðis-
málum og um málefni eldri borgara.
Bann við
ákveðnum
tegundum
auglýsinga
verði afnumið
LANDSFUNDUR Sjálfstæð-
isflokksins samþykkti ályktun
þess efnis að afnema beri bann
við ákveðnum tegundum aug-
lýsinga þegar í stað. Nokkur
ágreiningur varð reyndar um
þessa ályktun og sögðust þeir
sem henni voni mótfallnir ekki
geta fellt sig við að áfengis- og
tóbaksauglýsingar yrðu leyfð-
ai- án aih'a hindrana. Slíkar
auglýsingar yi-ðu til þess að
auka sölu og neyslu á umrædd-
um vörum.
Stuðningsmenn tillögunnar
lögðu hins vegar áherslu á að
framleiðendur og innflytjendur
löglegrar vöru í landinu ættu
rétt á því að koma upplýsing-
um um þær á framfæri við
neytendur. Þá drógu þeir í efa
þá fullyrðingu að samhengi
væri á milli almennrar neyslu
tiltekinnar vöru og auglýsingar
um hana. „Hins vegar hafa
rannsóknir víða um heim bent
til þess að auglýsingar af þessu
tagi séu sérstaklega til þess
fallnar að auka sölu á einstök-
um tegundum vörunnar," sagði
Andrés Magnússon landsfund-
aifulltrái m.a.
flokka sem nú sækja inn á miðjuna.
Þótt hin hófsömu öfl hafí haft
undirtökin á landsfundinum fór ekki
á milli mála að innan flokksins eru
átök um stefnu flokksins í ýmsum
málaflokkum. I menningarmálum,
jafnréttismálum og byggðamálum
var t.d. tekist á um hlutverk ríkis-
valdsins, hvað það ætti að vera fyr-
irferðarmikið og hvað það ætti að
ganga langt í að skerða frelsi ein-
staklingsins.
Átök um jafnréttis-
og menningarmál
Þær deilur sem urðu um fæðing-
arorlof endurspegla vel þau átök
sem eiga sér stað innan flokksins
um verksvið ríkisvaldsins, hvort það
eigi að setja foreldrum reglur um
hvernig þeir skipta fæðingarorlof-
inu á milli sín eða hvort það eigi að
láta það afskiptalaust. Átök um
þetta mál snertir einnig jafnréttis-
mál og hvað stjórnvöld eigi að
ganga langt í að jafna stöðu kynj-
anna.
Um menningarmál urðu hörð
átök á fundinum milli sjónarmiða
þeirra sem vilja auka stuðning ríkis-
ins við menningarstarfsemi og
hinna sem vilja minnka hann. At-
hyglisvert er að frjálslyndari armur
flokksins undir forystu Heimdallar
kaus að leggja einna mesta áherslu
á það á landsfundinum að draga úr
ríkisafskiptum á þessu sviði. Árang-
ur þeirra varð m.a. til þess að stuðn-
ingsmenn tónlistarhúss ákváðu að
leggja ekki fram ályktun um bygg-
ingu þess og afstýra því þannig að
kosið yi'ði um það á landsfundinum
eins og gerðist á síðasta landsfundi.
Róttækar tillögur
í heilbrigðismálum
Mjög róttækar ályktanir voru
samþykktar á fundinum um heil-
brigðismál og um málefni eldri
borgara. Samþykkt var að afnema
alla tekjutengingu í lífeyrisgreiðsl-
um almannatrygginga og taka upp
eftirlaun sem verði óháð hjúskapar-
stöðu. í ályktun um heilbrigðismál
var samþykkt að taka upp sjúkra-
tryggingar í stað fjármögnunar á
fjárlögum. Ljóst er að flokkurinn er
í þessum málum að leggja til miklar
breytingar sem væntanlega munu
kosta hann talsverð pólitísk átök að
ná fram.
Segja má að báðar þessar álykt-
anir um heilbrigðismál og málefni
aldraðra séu komnar frá grasrótinni
í flokknum. Forystumenn eldri
borgara, sem sömdu tillöguna um
málefni aldraðra, fylgdu tillögunni
fast eftir og fram kom á fundinum
nokkuð hörð gagnrýni frá þeim á
forystu flokksins fyrir að hafa ekki
hlustað nægjanlega á málflutning
eldri borgara. Sömuleiðis kom
greinilega fram á fundinum að vilji
er til að gera grundvallarbreytingar
í heilbrigðismálum t.d. með því að
nýta meira kosti einkaframtaksins.
Engar deilur urðu um utanríkis-
mál á landsfundinum, en í utanríkis-
málanefd þingsins kom fram tillaga
um stuðning við að ísland sækti um
aðild að Evrópusambandinu. Henni
vai' hafnað í nefndinni og ítrekað
var að aðild að ESB kæmi ekki til
greina ef í henni fælist að Islending-
ar þyrftu að gefa eftir yfirráð yflr
flskimiðum eða öðrum auðlindum
þjóðarinnar. Jafnframt voru þau
rök færð gegn aðild að sambandið
einkenndist af „reglugerðarfargani
og öðrum opinberum afskiptum".
Morgunblaðið/Þorkell
HINIR almennu flokksmenn knúðu fram breytingar m.a. í heilbrigðisinálum og málefnum aldraðra.
Sýnishorn úr söluskrá
1. Nýstandsett efnalaug sem verið er að setja upp, á frábærlega góðum
stað í Hafnarfirði. Húsnæðið gæti einnig verið til sölu. Allt tilbúið
til þess að opna í kvöld.
2. Gömul og gróin hársnyrtistofa í gömlu og góðu hverfi. Sömu eigendur
í 15 ár. Gott verð er á stofunni. Hafið samband strax.
3. Ritfanga- og leikfangaverslun í verslunarmiðstöð sem allir þekkja.
Skemmtileg atvinna fyrir snyrtilegan aðila sem ieitar að skemmtilegu
og gefandi framfærslufyrirtæki.
4. Einstaklega falleg og nýleg blómabúð til sölu af sérstökum ástæðum.
Er staðsett í heitasta verslunar- og íbúðarhverfi landsins. Góð vinnu-
aðstaða, stór kælir. Fallegur og lifandi vinnustaður. Ein fallegasta
blómaverslun sem við höfum skoðað.
5. Heildverslun með vörur fyrir snyrtistofur. Góðar og þekktar vörur.
Góð viðbót við aðra heildverslun eða sem byrjun á öðru stærra dæmi.
Merki og vörur sem allir í faginu þekkja og viðurkenna.
6. Gistiheimili á besta stað í Reykjavík, nálægt Laugardalsvellinum.
Kjörið fyrir íþróttahópa. Pantanir hrúgast inn og allt að verða fulit
fyrir sumarið. Langur leigusamningur. 48 rúm. Góð aðstaða, eldhús,
þvottavélar, allt til alls. Laust strax.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
T
SUÐURVE R I
Sl'MAR 581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
Deilt um
sjálfstæð-
an rétt til
fæðingar-
orlofs
LANDSFUNDUR Sjálfstæðis-
flokksins samþykkti á laugardag
ályktun þess efnis að skorað yrði
á stjórnvöld að jafna rétt mæðra
og feðra til fæðingarorlofs.
Fyrirliggjandi tillaga jafn-
í'éttisnefndar Sjálfstæðisflokks-
ins um tíu mánaða fæðingarorlof
þar sem þrír mánuðir yrðu
bundnir móður, þrír mánuðir
fóður og að 4 mánuðum gætu
foreldrar ráðstafað sín á milli
náði ekki fram að ganga. Þor-
steinn Davíðsson og Orri Hauks-
son landsfundarfulltráar lögðu
það til á fundinum að fyrrgreind
tillaga um sjálfstæðan rétt
mæðra og feðra til fæðingaror-
lofs yrði felld úi' ályktuninni um
jafnréttismál og gekk það eftir í
atkvæðagi'eiðslu um málið.
Kváðust þeir Þorsteinn og Orri
ekki vera á móti því að réttur
feðra og mæðra til fæðingaror-
lofs yrði jafnaður en tóku fram
að þeir teldu eðlilegt að foreldr-
arnir réðu því hvernig orlofinu
yrði skipt á milli þeirra.
Nokkur orðaskipti urðu um
umrædda tillögu jafnréttis-
nefndar og hvatti Ásdís Halla
Bragadóttir, formaður Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna,
til stuðnings við hana. Olafur Þ.
Stephensen, landsfundarfulltrúi
og formaður karlanefndar jafn-
réttisráðs, lýsti einnig yfír ein-
dregnum stuðningi við fyrir-
liggjandi tillögu jafnréttis-
nefndar og sagði m.a. að
þriggja mánaða sjálfstæður
réttur feðra til fæðingarorlofs
gæti orðið ákveðið vopn fyrir
karla sem vildu taka sér fæð-
ingarorlof til dæmis gagnvart
vinnuveitenda sínum. „Ég full-
yi'ði að verði tillaga þem'a fé-
laga, Orra og Þorsteins sam-
þykkt, hér þá verði það alvar-
legt áfall fyrir þá viðleitni Sjálf-
stæðisflokksins að skapa sér
jafn sterka stöðu meðal beggja
kynja.“ Halldóra Vífilsdótth',
formaður jafnréttisnefndar,
skoraði sömuleiðis á fundar-
menn að fella breytingartillögu
þeirra Orra og Þorsteins. Eins
og fyiT segir féllst fundurinn
hins vegar á breytingartillögu
þeh-ra félaga og er því ekki get-
ið um sjálfstæðan rétt mæðra
og feðra til fæðingarorlofs í
ályktun landsfundar Sjálfstæð-
isflokksins um jafnréttismál.
Ekki var ályktað um tónlistarhús á landsfundi
Atök um stuðning við
menningu og listir
TALSVERÐ átök urðu um ályktun
landsfundar Sjálfstæðisflokksins um
menningai'mál. Ungh' sjálfstæðis-
menn töldu að í ályktuninni væri
gengið of langt í stuðningi hins opin-
bera við menningarstarfsemi. Eftir
umræður í menningarmálanefnd
fundarins var felldur út kafli um tón-
listarhús og á landsfundinum var
felldur út kafli um skattaívilnanir til
fyrirtækja sem styrkja lista- og
menningarstarfsemi.
Heimdellingar beittu sér mikið í
umræðum í menningai'málanefnd.
Talsverð umræða fór fram um tón-
listarhús, en í upphaflegum di'ögum
var því fagnað að bygging tónlistai’-
húss væri að verða að veruleika.
Heimdellingar og fleiri lýstu yfir and-
stöðu við að ríkið byggði tónlistarhús
og varð að samkomulagi að minnast
ekkert á tónlistarhús í ályktuninni. Á
síðasta landsfundi urðu nokkuð hai’ð-
ar umræður um tónlistai’hús og vai'
tillaga andstæðinga hússins naum-
lega felld.
Ekki minnst á skattaívilnanir
Gunnlaugur Jónsson taldi ályktun
menningarmálanefndar fela í sér of
mikinn stuðning við afskipti ríkisins af
menningarmálum. Hann sagði þetta
ganga gegn stefnu flokksins um að-
hald í ríkisútgjöldum. Gerði hann til-
lögur um að þriðjungur ályktunarinn-
ai' yrði felldm' út. Tillögur hans voru
felldar, en hins vegar var gerð tillaga
um að kaflinn þai' sem bent var á þá
leið að fyrirtækjum yrði gert kleift að
styrkja lista- og menningarstarfsemi
með skattaívilnunum yrði felldur út,
en hún var efnislega samhljóða tillögu
Gunnlaugs. Tillagan var naumlega
f'elld og vai' þá krafist skriflegrai' at-
kvæðagreiðslu. Af henni varð þó ekki
heldur náðist samkomulag um að fella
kaflann út og í staðinn var samþykkt
setning þai' sem sagði að kannaðar
yrðu nýjai' fjáröflunarleiðir til stuðn-
ings menningarstai'fsemi.
Menningarmálanefnd felldi út úr
ályktunardrögunum tillögu um þjóð-
arlottó til stuðnings listum, menningu
og vísindum. Björn Bjarnason
menntamálaráðheiTa benti á það í
umræðum á fóstudag að slíkt þjóð-
arlóttó væri til í dag og tillagan gæti
því aðeins falið í sér að skipta tekjum
af lottóinu með öðrum hætti en gert
er í dag.