Morgunblaðið - 16.03.1999, Side 52
1
52 ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
Brúna klárhryssan sem Jenni hin finnska situr er faxprúð og freyðandi léttviljug.
Vel lukkuð tamningin ber knapanum gott vitni.
FINNSKA stúlkan Tiina Erika hlaut hæstu einkunn og er þar með fyrsti dúx Hestaskól-
ans og situr hér jarpan hest sem fer vel á brokkinu hjá henni.
- HVER önn á Hestaskólanum er tæp-
lega tveir og hálfur mánuður en ætl-
unin er að bjóða upp á fjórar annir á
ári. Komið er víða við í náminu og
kennt allt það helsta sem ber á góma í
íslenskri hestamennsku og má þar
nefna frumtamningar og almenna
reiðhestaþjálfun. Páll Stefánsson hélt
fyrirlestur um algenga kvilla í hross-
um á Islandi og Tómas Ragnai-sson
og Einar Ragnai-sson héldu fyrirlest-
ur um hestaíþróttadóma. Þá vai- boðið
upp á þriggja daga kennslu í jáming-
um og tekið próf í lokin. Kynbóta-
' dómararnir Ágúst Sigurðsson hrossa-
ræktairáðunautur og Jón Vilmundar-
son héldu námskeið í kynbótadómum
og voru nemendur prófaðir í lokin.
Aðalkennarai' voru Hafliði Halldórs-
son sem jafnframt er skóiastjóri og
Hugrún Jóhannsdóttir en auk þeirra
kenndu nokkrir gestakennarar og má
þar nefna Atla Guðmundsson, Einar
Óder Magnússon, Freyju Hilmars-
dóttir og Olil Amble. Þá var boðið upp
á nokkrar kennslustundir í íslensku
fyrir stúlkmnar þar sem kennari var
sá kunni hestamaður Gylfi Þorkels-
son. Þá taka nemendur að sjálfsögðu
virkan þátt í fóðrun og hirðingu
hrossanna og aðstoða jafnvel við jám-
ingar og ýmislegt annað sem tilheyrir
-hestahaldinu.
Samsetning sex nemenda hópsins
sem nú lauk námi var nokkuð sér-
Stórhuga
fram-
kvæmdir
ÞÓTT ekki sé aðstaðan á Ing-
ólfshvoli í Ölfusi tilbúin enn
sem komið er gekk starfsemin
við kennsluna með ágætum.
Reiðvöllurinn nýttist fullkom-
lega en sambyggð veitinga-
álma er enn í byggingu og var
því sendur matur frá Selfossi
fyrir nemendur og starfsfólk
nú á fyrstu önninni. Innan-
gengt er úr hesthúsinu sem
tekur um 50 hross í reiðhöll-
ina. Hesthúsið er mjög glæsi-
legt í alla staði með tveggja
hesta og eins hests boxum.
Hluti af veitingasalnum
verður notaður sem fundarað-
staða þar sem hægt verður að
loka af en þar verður kenndur
bóklegi þátturinn. Stefnt er að
því að taka þennan hluta
byggingarinnar í notkun um
miðjan næsta mánuð og verð-
ur þá rekin þar veitingasala
sem verður um leið mötuneyti
fyrir skólann. Er ekki annars
að vænta en þarna verði hin
glæsilegasta aðstaða þegar
framkvæmdum verður lokið.
Frumraun Hestaskólans á Ingólfshvoli
Sex nemendur út-
skrifaðir á fyrstu önn
Hestaskólinn á Ingólfshvoli í Ölfusi lauk um helgina sinni
frumraun. Sex nemendur luku prófum í nýliðinni viku og afhend-
ing einkunna og skólaslit fóru fram á laugardag. Valdimar
____Kristinsson brá sér austur í Ólfus og hitti kennara og_
nemendur í prófönnum um miðja síðustu viku.
stök. Fimm þeirra eru útlendingai-,
allt stúlkur, en eini íslenski nemand-
inn piltur. Tvær stúlknanna eru frá
Finnlandi, tvær frá Svíþjóð og ein frá
Noregi. Tvær stúlkur frá Hollandi
hættu námi á miðjum námstíma.
Haíliði skólastjóri kvaðst ánægður
með þessa frumraun skólans „Hér
voru samankomnii' nemendur með
misjafnan bakgrunn og reynslu en ég
held að ágætlega hafi tekist að upp-
fylla óskir og væntingar hvers og
eins. Breiddin var allt fi-á því að vera
frístundareiðfólk með einn hest og
upp í tamningamenn með fjölda
hrossa í þjálfun og allt þai- á milli.
Nemendur vox-u því misvel búnir und-
ir námið sem var að stórum hluta
frumtamning þeirra þriggja trippa
sem hvert þeirra fékk sem viðfangs-
efni á námstímanum. Þá fengu þau
hvert um sig einn góðan reiðhest þar
sem viðfangsefnið var að byggja hest-
inn upp og reyna að betrumbæta
hann sem reiðhest eða jafnvel sýning-
arhest. Námið hér mun alltaf draga
einhvern dám af árstíðinni hverju
sinni. Nú voru hrossin nýtekin á hús
þegar kennslan hófst í byrjun janúar
og hrossin ekki í þjálfun. Þau sem
hins vegar taka við í byrjun apríl þeg-
ar næsta önn hefst taka við hrossum í
ágætri þjálfun. Þeiiri önn lýkur um
miðjan júní og hrossin þá væntanlega
komin á grös,“ sagði Hafliði. Hann
taldi að ekki yi-ðu gerðar veigamiklar
breytingar á kennslufyrirkomulag-
inu. Þetta hefði reynst ágætlega eins
og þetta var uppsett nú en líklega
yi-ði þó aukið við framiag gestakenn-
ai-a. Álagið hefði verið mikið á hann
og Hugrúnu og vinnudagarnir langir
hjá þeim sem og nemendum. Ætlunin
hafi verið að ljúka vinnunni klukkan
sex síðdegis alla virka daga en raunin
hafi orðið sú að unnið var til sjö og
átta flesta daga auk þess sem margar
helgarnar voru undirlagðar.
Hafliði upplýsti að nokkur pláss
væru laus í næstu önn en hins vegar
væri fullt í tvær síðustu annir ársins
og biðlistai- í báðar. Hann sagði að nú
hæfist undirbúningur fyrir næstu
önn, frumtamningartrippin frá síð-
ustu önn færu til síns heima og ný
kæmu í staðinn. Þá sagði Hafliði að
líklega yrði eitthvað af reiðhestum
skólans selt og nýir keyptir í staðinn.
Sá háttui- yi’ði hafðui’ á að hestakost-
urinn yrði endumýjaður reglulega.
Þá eru öll reiðtygin alltaf til sölu í lok
hven-ar annai- og nú hefðu til dæmis
tveir nemenda tekið með sér hnakk-
ana sem þau notuðu í náminu. Með
þessum móti væri hægt að fylgjast
með þeirri þróun sem á sér stað í
gerð reiðtygja og bjóða alltaf upp á
nýleg og vel með farin reiðtygi.
„ Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
ÞRÁTT fyrir langa og erfiða törn og prófraunir framundan var létt yfir nemendum og kennurum, þeim Iiafliða Halldórssyni og Hugrúnu Jóhanns-
dóttur, sem hér standa framan við nemendur sem sitja hér trippi sem þau hafa frumtamið í vetur; frá vinstri talið: Helen,
Yngvild, Jenni, Jessica, Sigurlaugur og Tiina.