Morgunblaðið - 07.04.1999, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dorgveiði í
vorsólinni
ÞAÐ var ekki slorlegt að vera
við dorgveiði í blíðviðrinu á
föstudaginn langa. Ottó Guðjóns-
son og Thelma nutu þess á Með-
alfellsvatni í Kjós. Eitthvað ann-
að en veiðiskapurinn hefur þó
vakið athygli Thelmu á því
augnabliki sem myndin er tekin
enda kannski tilbrigðalítið að
sitja yfir vökinni ef fískurinn gef-
ur sig ekki.
Lækkun á farsíma-
þjónustu
Tal hf.
boðar verð-
lækkun
ÞÓRÓLFUR Árnason, forstjóri Tals
hf., segir að á næstu dögum verði til-
kynnt um verðlækkun á gjaldskrá
fyrirtækisins, en Landssíminn hefur
ákveðið að lækka verð á farsímaþjón-
ustu sinni frá og með 15. apríl um
10-18% á helstu áskriftarflokkum.
Þórólfur sagði að fyrirtækið hefði
frá upphafí verið leiðandi í gjald-
skrárákvörðunum auk lækkunar á
símtækjum og staðið þannig fyrir
verðlækkunum til neytenda og því
yrði haldið áfram. „Það er athyglis-
vert að þarna eru engar verðlækkan-
h- nema á því sviði sem við eigum í
samkeppni við Landssímann, sem
sannar að besta rekstrarformið er
samkeppnin," sagði hann. „Við mun-
um tilkynna verðbreytingar okkar
og lækkanir á næstu dögum því við
höfum alltaf boðið betur en Lands-
síminn og það verður engin breyting
á þvi. Við erum sá aðili sem hefur
knúið fram verðlækkanir en neyt-
endur hafa því miður ekki fengið
uppskeruhátið á 2/3 hluta hagnaðar-
ins þar sem engin samkeppni er.“
------------------
Steingrímur J. Sigfússon
Allir flokkar
vilja breyta
fískveiðistj órn-
kerfinu
FRÉTTIR
HHB
Könnun Gallups
Sjálfstæðis-
flokkurinn
fengi 45,7%
FYLGI Sjálfstæðisflokksins er
45,7% og fer vaxandi og fylgi Fram-
sóknarflokks er nú 17,5% og einnig á
uppleið, samkvæmt nýrri skoðana-
könnun Gallups.
Greint var frá niðurstöðum könn-
unarinnai- í ríkissjónvarpinu í gær-
kvöldi en þá ræddu forystumenn
stjórnmálaflokkanna, sem bjóða
fram á landsvísu, niðurstöðurnar og
kosningamálin. Samkvæmt könnun-
inni fær Samfylkingin nú 29% fylgi
en við síðustu könnun Gallups var
fylgi hennar 36,5%. Vinstrihreyfing-
in-grænt framboð fékk í könnuninni
nú 6,5% en var síðast með 4,5% og
fylgi Frjálslynda flokksins var 1,3%
sem er svipað og það mældist við síð-
ustu könnun Gallups, en hún fór
fram í mars. Samanlagt fylgi ríkis-
stjórnai’flokkanna samkvæmt könn-
un Gallups nú er rúm 63%.
Morgunblaðið/Golli
Forritunarvilla í hugbúnaði hraðbanka Landsbanka Islands
Fé ekki greitt en tilraunir
til úttektar skuldfærðar
FORRITUNARVILLA varð i hug-
búnaði fyrir hraðbankanet Lands-
bankans helgina 13. og 14. mars sl.,
sem varð þess valdandi að margir
viðskiptavinir fengu ekki fé, sem
þeir reyndu að taka út með greiðslu-
kortum, útborgað. I mörgum tilvik-
um var upphæðin hins vegar gjald-
færð á kortareikningi þeirra um
seinustu mánaðamót.
Kona sem Morgunblaðið ræddi við
hafði reynt sex sinnum að taka fé út
úr hraðbönkum í útibúum Lands-
bankans en þurfti frá að hverfa án
þess að hafa fengið greitt. Þegar hún
fékk greiðslukortareikning sinn
sendan um mánaðamót kom hins
vegar í ljós að tilraunir hennar til út-
tektar höfðu verið skuldfærðar og
hún krafín um greiðslu upp á annan
tug þúsunda. Þegar hún bar fram
kvörtun í viðskiptabanka sínum og
bar fram ósk um leiðréttingu, kom í
ljós að fleiri höfðu lent í sama vanda.
Lentu á biðreikning
Guðmundur H. Kjærnested, for-
stöðumaður tölvudeildai- Lands-
bankans, segir sér ekki kunnugt um
nákvæmlega hversu margir voru
krafðir um greiðslu vegna árangurs-
lausra peningaúttekta, en þó sé vitað
að um talsvert marga hafi verið að
ræða umrædda helgi. Hluta af þess-
um færslum hafi þó tekist að leið-
rétta áður en reikningar voru sendir
út. Alls eru hraðbankar á vegum
Landsbankans 47 á landinu öllu.
„í hraðbankakerfi okkar og ann-
arra banka er til svokallaður bið-
reikningur. Komi eitthvað upp í sam-
skiptum kerfisins við krítarkortafyi--
irtækin, fara viðkomandi færslur á
þennan biðreikning en viðskiptavin-
urinn fær ekki greiddan út pening-
inn. Slík tilvik koma ávallt upp í
ákveðnum mæli. Þessa helgi hins
vegar var sett upp ný útgáfa af hug-
búnaði fyrir hraðbanka í útibúum
Landsbankans sem innihélt villu.
Gerð voru mannleg mistök í forritun
á þeirri útgáfu og þó það sé slæmt
þegar slíkt gerist, verður að hafa
hugfast að þetta er tölvukerfi og
mannleg mistök geta átt sér stað á
þeim vettvangi sem annars staðai’,"
segir hann.
Allur hugbúnaður er keyptur af
Einari J. Skúlasyni að sögn Guð-
mundar og annast fyrirtækið forrit-
un fyrir bankann sem reynir síðan
búnaðinn. „Þessi villa slapp hins veg-
ar i gegnum prófanh- okkar með
þeim afleiðingum að margir við-
skiptavinir sem vildu taka út pen-
inga voru settir inn á þennan bið-
reikning og miklu fleiri en vanalegt
er,“ segir Guðmundur.
„Við fréttum hins vegar fljótlega
af þessari bilun og lagfærðum hana
strax að morgni mánudags. Við er-
um búnir að yfírfæra þessa daga og
bakfærslu er að mestu lokið.
Guðmundur segir að um helgina
sem þarna um ræðir hafi afgreiðsla
hraðbankanna verið mjög slæm og í
raun óviðunandi, en þar sem bæði
skýring sé komin og búið að lagfæra
bilunina verði að æskja eftir skiln-
ingi þeirra sem lentu í erfiðleikum.
„Við töldum ekki svo marga hafa
lent í vanda að ástæða væri til að til-
kynna það með opinberum hætti.
Líkurnar á að þetta endurtaki sig
eru litlar og gerðar hafa verið ráð-
stafanir til þess að fyrirbyggja að
þetta geti gerst á ný í þessum
mæli.“
STEINGRÍMUR J. Sigfússon, for-
maður Vinstrihreyfingarinnar-
græns framboðs, sagði í umræðu-
þætti vegna alþingiskosninganna í
Ríkissjónvarpinu í gærkvöld að sá
pólitíski árangur hefði orðið af um-
ræðu undangenginna mánaða um
sjávarútvegsmál að nú væri enginn
talsmaður stjórnmálaflokka í vörn
fyrir óbreytt fiskveiðistjórnkerfi.
„Það er orðinn pólitískur vilji til
þess að leita samstöðu um breyting-
ar,“ sagði Steingrímur. „Ég tek al-
veg mark á því að það séu orðin þau
skil í þessu máli að núna lýsa allir
flokkar sig viljuga til starfs sem mið-
ar að því að gera breytingar á þessu
kerfi og reyna að laga það og sníða
af því galla. Það er árangur í sjálfu
sér en menn geta svo deilt um hvort
það sé nóg,“ sagði Steingrímur.
Mikið tjón í Rúm-
fatalagerniim
MIKIÐ tjón er talið hafa orðið í
Rúmfatalagernum á Smáratorgi
vegna vatnsleka. Sigurður Ásgeirs-
son, aðstoðarverslunarstjóri, segir
að brunaslanga hafi sprungið í versl-
uninni og vatn flotið um hana alla.
Ekki er vitað hvenær slangan
sprakk en síðasti maður yfii’gaf
verslunina sl. laugardag og varð lek-
ans ekki vart fyrr en í gærmorgun
þegar verslunin var opnuð.
Sigurður sagði að giskað hefði ver-
ið á að 100 þúsund lítrar hefðu
streymt um gólf verslunarinnar.
Þegar Rúmfatalagerinn var opnaður
á Smáratorgi á síðasta ári varð tjón í
versluninni og einnig í versluninni
Elkó vegna vatnsleka.
„Það hefur verið þiýstingur á
brunaslöngunni og hún sprungið.
Það var mikill vatnsagi hér þegar við
opnuðum í morgun [gærmorgun].
Við hringdum á Slökkviliðið og allt
tiltækt starfsfólk," sagði Sigurður.
Hann telur tjónið nema nokki-um
milljónum króna.
Morgunblaðið/Golli
UNNIÐ við að þurrka upp af gólfi Rúmfatalagersins.