Morgunblaðið - 07.04.1999, Side 3

Morgunblaðið - 07.04.1999, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999 3 Þjónustan Fasteignalífeyrír Þú nýtur arösins af lífsstarfinu með því að fá reglu- bundnar greiðslur inn á bankareikninginn þinn. Innstæðulífeyrír Eignalífeyrisbók meö háum vöxtum en samt alltaf laus. Fjármögnun vegna íbúðaskipta Skammtímafjármögnun sem brúarbilið viö íbúðaskipti. Ráðgjöf ViÖ aðstoöum viÖ aÖ finna leiÖir til aÖ bámarka ráðstöfunartekjur á hagkvæman hátt meö nýju forriti - Silfursjóönum. Sjálfkrafa aðild að Úrvalsfólki Úrvals-Útsýnar Þar eru fréttabréfog ferðir sérstaklega skipulagÖar með þarfir eldri borgara í huga. Önnur þjónusta Heimilislínan eöa Sérkjör Heimilislínunnar standa þér til boÖa. aiia ævi Eignalífeyrir eldri borgara Búnaðarbankinn kynnir nýja þjónustu fyrir 65 ára og eldri. Þessi þjónusta heitir Eignalífeyrir og með henni vill bankinn stuðla að því að eldri borgarar geti notið eigna sinna jafnt og þétt meðan heilsan leyfir. Þjónustan skiptist í Fasteignalífeyri og Innstæðulífeyri. Fasteignin er séreignalífeyrissjóður Segja má að fasteign flestra eldri borgara sé í raun séreignalífeyrissjóður þeirra. Fasteignalífeyrir gefur fólki kost á að nýta sér fasteignina sem slíka og auka ráðstöfunartekjur sínar án þess að lífeyrisgreiðslur fráTryggingastofnun skerðist. Það semur við bankann um mánaðarlegan lífeyri gegn veði í fasteigninni, í formi tryggingabréfs. Þegar fólk hættir að taka Fasteignalífeyri er tryggingabréfinu breytt í langtímalán sem þarf ekki að greiða af vexti né afborganir fyrr en við sölu eða eigendaskipti á viðkomandi fasteign. Óbundið sparifé á háum vöxtum Innstæðulífeyrir felst í því að bankinn býður nýjan sparireikning, Eignalífeyrisbók, sem ber vexti miðað við 30 mánaða binditíma en er þó til ráðstöfunar í hverjum mánuði. Með Eignalífeyrisbók getur fólk sameinað sparifé sitt á einn reikning, notið hárra vaxta, en samt haft greiðan aðgang að því. Kynntu þér nýja leið til betri lífskjara; Eignalífeyri Búnaðarbankans. Upplýsingar í útibúum bankans. Veffang Búnaðarbankans er: www.bi.is __ HEIMILISLÍNAN $) BÚNAÐARBANKINN ^ traustur banki

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.