Morgunblaðið - 07.04.1999, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Háhyrningurínn keikó var í essinu sínu þegar hinar glæsilegu
Fordstúlkur sóttu hann heim í klettsvíkina á laugardag.
MIKIÐ var, ég var orðinn hundleiður á þessum dekkjum.
Frjálslyndi flokkurinn
Norðurlandi eystra
Halldór Her-
mannsson í
efsta sæti
HALLDÓR Hermannsson, skip-
stjóri á Isafirði, skipar efsta sæti á
lista Frjálslynda flokksins á Norð-
urlandi eystra í alþingiskosningun-
um 8. maí í vor. Listinn fer hér á
eftir:
1. Halldór Hermannsson, skip-
stjóri, ísafirði, 2. Hermann B. Har-
aldsson, sjómaður, Akureyri, 3.
Bára Siguróladóttir, fjárbóndi,
Framnesi, Kelduhverfi, 4. Asgeir
Yngvason, framleiðslustjóri, Akur-
eyri, 5. Jóhannes Björnsson, sjó-
maður, Raufarhöfn, 6. Helgi Sigfús-
son, búfræðingur, Hrísey, 7. Jón
Einar Haraldsson, kennari, Mý-
vatnssveit, 8. Kristinn Sig. Yngva-
son, sauðfjárbóndi, Kelduhverfi, 9.
Stefán Óskarsson, verkamaður,
Raufarhöfn, 10. Haraldur Þórarins-
son, verkstæðisformaður, Kvistási,
Kelduhverfi, 11. Þuríður Her-
mannsdóttir, húsmóðir, Húsavík, og
12. Haraldur Bessason, fyrrverandi
háskólarektor, Akureyri.
Reynir Jónsson
tryggingayfírtannlæknir
Óbreyttar for-
varmr á
„FORVARNIR meðal fatlaðra og
þroskaheftra hafa ekki breyst frá ár-
inu 1996 og það er því misskilningur
hjá Gunnari Þormar tannlækni að
skerða eigi þjónustu við böm á
Lyngási," segir Reynir Jónsson
tryggingayfirtannlæknir í viðtali við
Morgunblaðið í gær.
Fram kom í blaðinu síðastliðinn
laugardag að Gunnar Þormar hefði
tilkynnt foreldrum bama á Lyngási
að hann sé neyddur til að hætta þjón-
ustu við bömin þar vegna nýrrar
reglugerðar um þátttöku Trygginga-
stofnunar ríkisins um tannlækna-
kostnað sjúkratryggðra bama sem
skerði mjög forvamir þar.
Reynir Jónsson segir að ríkið
greiði áfram kostnað við forvarnir og
tannlækningar þroskaheftra og fatl-
aðra, barna sem annarra. Engin
breyting hafi orðið á reglum sem
snúi að þessum hópum. „Um tann-
lækningar vegna meðfæddra galla,
Lyngasi
slysa og sjúkdóma fer eftir reglum
nr. 29/1999 en ekki reglugerð
28/1999 eins og tannlæknirinn held-
ur fram,“ segir í orðsendingu frá
Reyni og segir hann þetta hafa verið
margsinnis skýrt út fyrir tannlækn-
inum og fullyrðingar hans séu því
vísvitandi rangar. Segir Reynir það
óeðlilegt hjá honum að vekja ótta að
ástæðulausu hjá foreldrum bama á
Lyngási. í orðsendingu Reynis segir
einnig:
„í reglunum eru ekki takmarkanir
á þjónustu sem almannatryggingar
taka þátt í að greiða vegna fatlaðra
barna. Eina skilyrðið sem þar er sett
er að sækja þarf um greiðsluþátt-
töku þegar kostnaður vegna einstak-
lings fer yfir 30.000 kr. á ári. Þannig
áskilur Tryggingastofnun sér rétt til
að skoða sérstaklega þá meðferð
sem einstaklingur fær ef kostnaður
vegna hennar fer yfir 30.000 kr. á
ári.“
Full búð af nýjum vörum
Tilbúnir eldhústaukappar
frá kr. 650 metrinn.
Falleg stofuefni
frá kr. 980 metrinn.
Tilbúnir felldir stofutaukappar
frá kr. 1.790 metrinn.
Z-brautir & gluggatjöld,
Faxafeni 14,
símar 533 5333/533 5334.
ísland án eiturlyfja
Þarf hugarfars-
breytingu gagn-
vart vímuefnum
Valgarður Jónsson
vegum átaksins Island
án eiturlyfja hafa verið
haldnar ráðstefnur um
land allt. Við getum betur er
yfirskrift ráðstefnu sem verð-
ur að þessu sinni haldin á
Patreksfirði á morgun,
fimmtudaginn 8. apríl. Val-
garður Jónsson er í áhuga-
mannahópi á Patreksfirði sem
stóð fyrir því að fá ráðstefn-
unaþangað.
„Astandið hjá okkur hérna
á Patreksfirði er hvorki betra
né verra en gengur og gerist á
landinu. Staðii- eins og Pat-
reksfjörður, sem liggur að sjó,
búa við að efni geta borist
með bátum. Ef slíkt hefúr
komið fyrir era efnin fljótt
komin í umferð. Þess á milli
held ég að við séum tiltölulega
laus við þessi efni og það era
þá frekar heimatilbúin vímuefni
eins og landi sem þarf að hafa
áhyggjur af.“
- Hafa verið gerðar athuganir
á því hversu útbreidd notkun
vímuefna er meðal unglinga á
Patreks&rði?
„Nei, ekki hafa verið gerðar
formlegar kannanir á því. Það er
svona meira tilfinning okkar að
því miður séu það alltof ungir
krakkar sem séu að fikta við að
prófa áfengi og tóbak eða böm
niður í tólf til þrettán ára.“
Valgaður segir að margir
standi í þeirri meiningu að allt sé
miklu heilbrigðara og hreinna í
sjávarplássum úti á landi en í
höfuðborginni en hann segir að
því fari fjarri. „Við þurfum að
hafa allt eins miklar áhyggjur og
foreldrarnir á höfuðborgarsvæð-
inu.“
- Hvernig er staða ungs fólks í
Vesturbyggð?
„Hún mætti vera betri. Mér
finnst þurfa hugarfarsbreyt-
ingu gagnvart vímuefnum hér á
Patreksfirði. Mörgum foreldr-
um finnst þeir ekki geta gert
neitt við því að 14 til 15 ára
gamlir unglingar séu farnir að
bragða áfengi. Ég hef heyrt for-
eldra segja að þeir vilji frekar
kaupa áfengi fyrir börnin sín
heldur en að hætta á að þau
kaupi sér landa eða spíra. Það
er vissulega skiljanlegt að for-
eldrar hafi áhyggjur af börnun-
um sínum en ég á erfitt með að
taka undir það sjónarmið að
börnum sé frekar treystandi
með nokkra bjóra heldur en það
veganesti að þau eigi að láta
áfengi ósnert. Með því að kaupa
áfengi fyrir börnin sín eru for-
eldrar að samþykkja vímuefna-
neyslu þeirra."
Valgarður segir að unglingar á
Patreksfirði séu mjög samheldn-
ir og það þurfi ekki nema einn
ungling sem detti í
hug að prófa til að all-
ir séu komnir í sömu
spor.
- Hafíð þið verið
með öflugt forvarna-
starf á Patreksfírði?
„Því miður hefur verið allt of
lítið um forvarnastarf hjá okkur.
En við þurfum auðvitað að taka
til hjá okkur eins og aðrir og
þetta er fyrsta skrefið í þá átt, að
halda þessa ráðstefnu. Henni er
ætlað að vekja fólk til vitundar
um þessi mál og koma af stað
umræðu um vímuvarnir í Vestur-
byggð.
►Valgarður Jónsson er fæddur
á Akranesi árið 1972. Hann
lauk stúdentsprófi frá Fjöl-
brautaskóla Vesturlands árið
1992 og B.ed. prófi frá Kenn-
araháskóla íslands árið 1996.
Valgarður var kennari við
Patreksskóla á Patreksfírði frá
1996-1997 og hefur verið að-
stoðarskólastjóri þar frá árinu
1997.
Eiginkona hans er íris Guð-
rún Sigurðardóttir, leiðbein-
andi í Ieikskólakennaranámi,
og eiga þau tvö börn sem heita
Hh'n Guðný og Jón Hjörvar.
Þegar hefur ráðstefna sem
þessi verið haldin á ísafirði en
okkur fannst ekki veita af að
halda hana víðar á Vestfjörð-
um.“ Valgarður segir að áhuga-
mannahópurinn sem stóð fyrir
því að fá ráðstefnuna vestur ætli
ekki að láta staðar numið með
þessari ráðstefnu heldur halda
áfram á þessari braut. Þá segir
hann að félagsmálanefndir sveit-
arfélaga hafi verið að vakna til
vitundar og muni hvetja fólk til
að vinna í þessum málum. Val-
garður er þess fullviss að ráð-
stefnan verður vel sótt enda
snertir efnið foreldra allra
barna.
-Hverjh■ halda fyrírlestra á
ráðstefnunni?
„Ráðstefnustjóri verður séra
Sveinn Valgeirsson á Tálkna-
firði. Þá mun Jón Gunnar Stef-
ánsson, bæjarstjóri Vestur-
byggðar, ávarpa ráðstefnuna svo
og Snjólaug G. Stefánsdóttir,
verkefnisstjóri áætlunarinnar ís-
land án eiturlyfja. Sálfræðingur-
inn Einar Gylfi Jónsson flytur
erindi um vímuefnaneyslu og
áhrifaþætti í lífi unglinga. Edda
Sóley Óskarsdóttir ræðir hlut-
verk foreldra í forvörnum. Hún
er framkvæmdastjóri landssam-
takanna Heimili og
skóli.“ Að lokum mun
Valgarður hugleiða
stöðu ungs fólks í
Vesturbyggð. Hann
segir að stefna þeirra
sem að ráðstefnunni
standa sé að hafa fyrirlestrahald
í lágmarki en einblína frekar á
öfluga vinnu í vinnuhópum og
málstofum. „Við verðum með
þrjár málstofur. Sú íyrsta snýr
að forvömum í Vesturbyggð, þá
er önnur um samstarf foreldra
og skóla og sú þriðja um ung-
linga og forvarnir, þ.e. hvað sé til
ráða.“
Alltof ungir
krakkar eru að
fikta við áfengi
og tóbak