Morgunblaðið - 07.04.1999, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Aætlað að flugvél Landhelgisgæslunnar lendi með hjálpargögn í Skopje í dag
Tekið á móti
allt að 100
flóttamönnum
Fyrstu flóttamennirnir
frá Kosovo gætu komið í nótt
RÍKISSTJÓRNIN ákvað á fundi
sínum í gær að taka á móti allt að
100 flóttamönnum frá Kosovo á
þessu ári og er gert ráð fyrir að
fyrstu flóttamennirnir geti komið
til landsins með flugvél Landhelgis-
gæslunnar í nótt. Vélin fór með
hjálpargögn til flóttafólks frá
Kosovo snemma í gærmorgun.
Upphaflega átti vélin að fara til Al-
baníu, en áætlunin breyttist vegna
mikillar flugumferðar á svæðinu og
lenti vélin í Ancona á Italíu á
fímmta tímanum í gær. Gert er ráð
fyrir að hún fari til Skopje í Ma-
kedóníu fyrir hádegi í dag, afhendi
þar hjálpargögnin og taki flótta-
menn um borð áður en hún leggur
af stað heimleiðis aftur. Þá ákvað
ríkisstjómin á fundi sínum að veita
fimm milljónum króna til Flótta-
mannahjálpar Sameinuðu þjóðanna
og fímm milljónum króna til Rauða
krossins vegna flóttamannavand-
ans.
Halldór Ásgiímsson utanríkis-
ráðherra sagði eftir ríkisstjórnar-
fundinn að á fundinum hefði verið
tekin sú ákvörðun að taka á móti
allt að 100 flóttamönnum og stefnt
væri að því að flugvél Landhelgis-
gæslunnar kæmi með þá fyrstu þeg-
ar hún kæmi til baka úr ferð sinni
með hjálpargögnin. Upphaflega
hefði verið reiknað með að flugvélin
færi til Albaníu, en sennilega færi
hún til Makedóníu og afhenti hjálp-
argögnin þar og vonandi gæti hún
þá tekið um 20 flóttamenn til baka.
Aðspurðm- hvar þeim flóttamönn-
um yrði komið fyrir hér á landi
sagði Halldór að það hefði ekki ver-
ið ákveðið. „Það var gert ráð fyrir
því að næsti hópur flóttamanna færi
í Fjarðarbyggð á Austurlandi, en
við þurfum að sjálfsögðu að sjá til
með ástand þessa fólks og Rauða
krossinum verður falið að annast
móttöku þeirra ef til kemur,“ sagði
Halldór.
Hann sagði að það væru allar að-
stæður fyrir hendi hér á landi til að
taka á móti ekki stærri hópi fólks en
þessum. Engin ákvörðun hefði verið
tekin um hvort flugvélin færi aðra
ferð að ná í fleiri flóttamenn né
hvenær fleiri flóttamenn kæmu.
„Við þuifum að fara miklu betur of-
an í þetta. Það er fólk hér á landi
sem óskar eftir því að ættingjar
þeirra komi hingað til lands. Það
hefur verið talað um lista yfir
nokkra tugi manna. Ég tel mjög
æskilegt að geta tekið við ættingj-
um þessa fólks sem eru á vergangi,
því það má þá reikna með því að
ættingjarnir hér á landi muni hjálpa
þeim og annast þá með einum eða
öðram hætti,“ sagði Halldór enn-
fremur.
Hann sagði að auk þessa hefði
ríkisstjórnin ákveðið að veita fimm
milljónum króna til Flóttamanna-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna og
fimm milljónum króna til Rauða
krossins.
Morgunblaðið/Porkell
FRA fundi ríkisstjórnarinnar í gærmorgun þar sem ákvarðanir voru teknar um aðstoð
vegna ástandsins í Kosovo.
Höfum tekið fullan þátt í
ákvörðunum NATO
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði eftir fund ríkisstjórnarinnar
að menn miðuðu sinn undirbúning
við það að flóttamenn frá Kosovo
gætu orðið allt að eitt hundrað tals-
ins og væntanlega kæmu fyrstu
flóttamennimir með flugvél Land-
helgisgæslunnar sem hefði farið út
með hjálpargögn héðan. Vonandi
kæmu þau hjálpargögn að góðum
notum. Þótt framlagið væri ekki
stórt í sniðum miðað við vandann
þá væri það stórt í sniðum miðað
við okkur og gæfi ákveðið fordæmi
og sýndi að við væram með.
„Við höfum tekið fullan þátt í
ákvörðunum Atlantshafsbandalags-
ins um aðgerðir á þessu svæði til
þess að reyna að stöðva þau hryðju-
verk sem þama hafa verið framin
og menn eru að fremja núna undir
forystu Milocevic, leiðtoga Jú-
góslavíu. Við teljum eðlilegt að þeg-
ar það ástand er komið upp sem nú
er og menn höfðu ekki gert ráð fyr-
ir í þessu stríði að þá tökum við líka
að okkar leyti þátt í því að reyna að
lina þjáningar en séum ekki bara
aðilar að ákvörðunum um loftárás-
ir,“ sagði Davíð.
Hann sagði aðspurður um undir-
búning fyrir móttöku flóttamann-
anna að utanríkisráðuneytið hefði
samráð við þær stofnanir sem færa
með þessi málefni. Landhelgisgæsl-
an sæi um flutningana og skipu-
legði þá og síðan kæmi til kasta
Rauða krossins og annarra hjálpar-
stofnana.
Aðspurður sagði Davíð að við
væram í stakk búin til þess að taka
við þessum fjölda flóttamanna. Við
hefðum ætlað okkur að taka á móti
20-25 flóttamönnum á þessu ári og
það hefði verið undirbúið.
Mikil flugumferð
Flugvél Landhelgisgæslunnar
fór hálffimm í gærmorgun hlaðin
hjálpargögnum áleiðis til Albaníu.
Flugvélin millilenti í Maastricht og
lenti í Ancona á fimmta tímanum i
gær, en ekki var hægt að halda
upphaflegri áætlun vegna mikillar
flugumferðar á svæðinu, að sögn
Hafsteins Hafsteinssonar, for-
stjóra Landhelgisgæslunnar. Þar
var vélin í nótt en áætlað var að
hún færi til Skopje í Makedóníu
snemma í morgun, afhenti þar
hjálpargögnin og tæki flóttamenn
um borð áður en hún héldi aftur til
íslands. Ef sú áætlun gengur eftir
er vonast til þess að vélin verði
komin til baka seint í kvöld, en um
tíu tíma flug er til íslands. Sjö
manns eru um borð í vélinni og
getur hún tekið 20 flóttamenn.
Hafsteinn sagði að ferðin hefði í
alla staði gengið vel, að undantek-
inni þessari breytingu sem orðið
hefði á áætluninni. Vélin væri fyrst
og fremst með teppi handa flótta-
mönnunum, auk dýna og drykkjar-
fanga.
L
Morgunblaðið/Árni Sæberg
í NÝJUM sýningarsal hjá B&L við Gijótháls í Reykjavík.
B&L í nýjum
húsakynnum
BIFREIÐAR og landbúnaðar-
vélar, sem annast innflutning á
bflum frá BMW, Hyundai, Land-
Rover og Renault, opnaði í gær
í nýjum aðalstöðvum sínum við
Grjótháls í Reykjavík. I nýjum
sýningarsal fyrirtækisins rúm-
ast nærri 40 bflar að sögn Frið-
riks Bjarnasonar, markaðs-
stjóra B&L.
„Hér er hátt til lofts og vítt
til veggja og nú getum við haft
mun fleiri bfla frá hverjum
framleiðanda til sýnis innan-
dyra en unnt var í þrengslunum
á gamla staðnum,“ sagði Frið-
rik Bjarnason ennfremur. Hann
segir alla aðstöðu til sölu nýrra
bfla mun betri og það eigi líka
við um aðra þjónustu fyrirtæk-
isins, þ.e. varahlutasölu, við-
gerðaþjónustu og sölu notaðra
bfla. Flutt, var í nýja húsið um
páskana og segir Friðik nú allt
til reiðu á nýja staðnum. „Hér
er fyrirtækið mjög sýnilegt,
við erum rétt hjá Select-versl-
uninni, aðkoman er góð úr öll-
um áttum og fjölmörg bfla-
stæði.“
Bensín
hækkar hjá
Olís og
Skeljungi
OLÍUVERSLUN íslands hf. (Oh's)
og Skeljungur (Shell) hækkuðu
verðið á bensíni um 1,90 kr. frá og
með 1. apríl eins og Olíufélagið hf.
(Esso) og á díselolíu um 40 aura og
er þá sama verð á bensíni og
díselolíu hjá olíufélögunum. Verð á
bensíni og díselolíu frá Orkunni og
ÓB er nokkuð lægra og breytilegt
frá degi til dags.
Að sögn Gunnars Karls Guð-
mundssonar, framkvæmdastjóra
Skeljungs hf., hækkaði 95 oktana
bensín úr 70,20 kr. lítrinn í 72,10,
98 oktana bensín hækkaði úr 74,90
kr. lítrinn i 76,80 og díselolía hækk-
aði úr 26,30 kr. í 26,70 lítrinn.
Gunnar Skaptason, fram-
kvæmdastjóri Orkunnar, sagði að
þar væri bensínverð breytilegt
milli daga og í gær kostaði lítrinn
af 95 oktana bensíni 67,80 kr., lítr-
inn af 89 oktana bensín kostaði
72,70 og díselolía kostaði 23,60 kr.
lítrinn. „Ég legg áherslu á að reyna
að breyta verðinu eins og ég hef til-
efni til á hverjum tíma til að
tryggja ódýrasta bensínið,“ sagði
hann.
Hjá ÓB kostaði 95 oktana bensín
í gær 67,90 kr. lítrinn og díselolía
23,40 og sagði Tómas Möller, fram-
kvæmdastjóri Olís, að hægt væri
að spara þúsundir króna með því
að skipta við ódýra stöðvarnar og
það kynni fólk að meta þegar bens-
ín hækkaði í verði.
Morgunblaðið/Ing\'ar
Hlaut hálsmeiðsl
á skíðum
TÆPLEGA tvítugur piltur var
fluttur með hálsmeiðsl á Sjúkrahús
Reykjavíkur eftir skíðaslys í Blá-
fjöllum á föstudaginn langa um
klukkan 17.
Tilkynnt var að pilturinn hefði
dottið ofarlega í brekku og misst af
sér skíðin og líklega fengið annað
skíðið í höfuðið. Pilturinn missti
meðvitund við fallið en sjúkraflutn-
ingsmaður, sem var í fríi í Bláfjöll-
um sama dag, hlúði að piltinum í
upphafi. Hinn slasaði var fluttur
rneð þyrlu Landhelgisgæslunnar á
sjúkrahús og komst til meðvitundar
um hálfri annarri klukkustund eftir
slysið og liggur nú á heila- og tauga-
skurðdeild Sjúkrahúss Reylgavíkur.
Fjórir á slysadeild
eftir bílveltu
TVEIR bflar ultu á þjóðveginum við
Sandskeið um kvöldmatarleytið á
sunnudag. Fjórir voru fluttir á
slysadeild með jafnmörgum sjúkra-
bílum. Báðir bflamir voru fluttir af
vettvangi með kranabfl, en þeir
vora taldir ónýtir.
Þrír fengu að fara heim að lokinni
skoðun á slysadeild en einn var
lagður inn. Ekki fengust upplýsing-
ar um líðan hans í gær.
Tildrög slyssins eru ekki ljós, en
lögreglan í Reykjavík hafði eftir
öðrum ökumanninum að önnur bif-
reiðin hefði oltið og rekist í hinn
bílinn með þeim afleiðingum að
hann valt einnig.
Lögreglan í Reykjavík stjórnaði
umferð á staðnum í hálfa aðra
klukkustund vegna slyssins, en
umferð var mjög mikil á þessum
tíma.