Morgunblaðið - 07.04.1999, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Golli
MEÐALGÓÐ aðsókn var að skíðasvæðum Reykvíkinga á laugardag
og meðal viðburða um páskahelgina var snjóbrettamót í
Skálafelli á laugardag.
Morgunblaðið/Þórhallur Jónsson
BLÍÐSKAPARVEÐUR var á Akureyri og víða norðanlands um páska-
helgina og var metaðsókn í Ulfðarfjall á föstudaginn langa þegar ríflega
5 þúsund manns voru þar, en alls komu um 17 þúsund manns í íjallið frá
skírdegi til annars (páskum að mati forstöðumanns Skíðastaða.
Metaðsókn að helstu skíða-
svæðum landsins um páskana
MIKILL fjöldi ferðamanna ferðað-
ist innanlands um páskahelgina,
enda var veður hagstætt víðast hvar
á landinu. Metaðsókn var í Bláfjöll
og Hlíðarfjall á föstudaginn langa
og víða annars staðar nutu lands-
menn útivistar í óbyggðum.
Mest flugumferð fyrir helgina var
til Akureyrar, ísafjarðar og Egils-
staða.
Gekk flug frá Egilsstöðum mjög
vel eftir páskahelgina og fluttu
Flugfélag Islands og Islandsflug
alla sína farþega til og frá Egils-
stöðum án nokkurra tafa vegna veð-
urs.
Á vegum íslandsflugs fóru þrjár
fullar vélar annan í páskum og tvær
í gær, með um 230 farþega. Sex vél-
ar fóru á vegum Flugfélags íslands
til Reykjavíkur annan i páskum
með 350 farþega og um 200 farþeg-
ar voru fiuttir á laugardag.
Þoka tafði flugumferð
á Akureyri
Sömu sögu var hins vegar ekki að
segja frá Akureyri þar sem þoka olli
talsverðri röskun á flugi um Akur-
eyrarflugvöll á mánudag. Flugfélagi
íslands tókst þó að koma einni 19
sæta Metró-flugvél frá Akureyrar-
flugvelli til Reykjavíkur klukkan
7.45 á mánudag en vegna þoku lá
síðan allt flug niðri fram til klukkan
iö.
Flugfélagi íslands tókst að flytja
alla fai-þega, um 4-500 manns, sem
áttu pantað far milli Akureyrar og
Reykjavíkur á mánudag og fór síð-
asta vél klukkan 22.15. Einnig var
unnt að fljúga til ísafjarðar og
Egilsstaða en ekki var hægt að
flytja farþega til Vopnafjarðar og
Þórshafnar vegna veðurskilyrða þar
og á Akureyrarflugvelli.
í gær, þriðjudag, áttu um 280 far-
þegar pantað flug frá Akureyri til
Reykjavíkur og var flugfært þrátt
fyrir að lágskýjað væri.
Islandsflugi tókst einnig að flytja
alla sína farþega sem áttu pantað
með félaginu á mánudag þrátt fyrir
þokuna og sendi 117 sæta Boing 727
þotu félagsins til Akureyrar eftir að
flugfært varð. Farþegar voru fluttir
til Keflavíkur og þeim síðan ekið til
Reykjavíkur. Var komin rétt áætlun
klukkan 19.15 á seinustu vél félags-
ins á Akureyrarflugvelli.
í gær, þriðjudag, var þá bókað í
þrjár fullar vélar félagsins frá
Akureyi'arflugvelli.
Aðsókn ferðamanna til Akureyr-
ar um páskahelgina var hin mesta
sem þekkst hefur, að sögn Magnús-
ar Más Þorvaldssonar, framkvæmd-
arstjóra Halló Akureyri, en um
páskana var haldin hátíðin Halló
páskar á Akureyri. Var veður afar
hagstætt fyrir útivist á Eyjafjarðar-
svæðinu og kvað Magnús Már að
það léti nærri að um milli 5 og 6
þúsund manns hefðu verið í Hlíðar-
fjalli mesta annadaginn, á föstudag-
inn langa, sem er veruleg viðbót frá
því sem var um páskana í fyrra. Að
sögn Hauks Stefánssonar, forstöðu-
manns Skíðastaða í Hlíðarfjalli, var
metaðsókn í fjallið á föstudaginn
langa og giskaði hann á að alls
hefðu um 17 þúsund manns komið í
Hlíðaríjall frá skírdegi til annars í
páskum. Að hans sögn hefur þrýst-
ingur á að fjölga lyftum í fjallinu
aukist mikið og öruggt að innan
nokkurra ára verði hafnar fram-
kvæmdir við að fjölga skíðalyftum í
fjallinu.
Fjögur leikhús voru starfandi á
Eyjafjarðarsvæðinu um páskahelg-
ina og á Dalvík voru 5-600 manns á
skíðum á föstudaginn langa.
Þá gekk annað skemmtanahald
vel fyrir sig miðað við mannfjöld-
ann, að sögn lögreglunnar á Ákur-
eyri.
Metaðsókn ferðamanna
til Isafjarðar
Á ísafirði komu einnig fleiri gest-
ir til bæjarins en þekkst hefur og
sagði Björn Helgason, íþrótta- og
æskulýðsfulltrúi ísafjarðarbæjar,
að a.m.k. 1500 manns hefðu komið
til bæjarins um páskana, en að hans
sögn er venjulegur fjöldi um 800
manns á þessum árstíma. Skíðavika
1999 á ísafirði sem stóð yfir frá 28.
mars til 4. apríl dró til sín fjölda
manns sem og Shell-skíðamót ís-
lands, enda var veður mjög gott og
einnig voru margir sem komu
vegna ferminga sem ekki hafa
tíðkast fyrr á Isafirði um páska að
sögn Bjöms.
Mj’ög vel gekk að flytja farþega
frá ísafirði eftir páskahelgina og
urðu engar tafir. Sex vélar fóru frá
Flugfélagi íslands frá ísafirði ann-
an í páskum og fimm í gær, þriðju-
dag, og ráðgert var að Ijúka flug-
umferð vegna páskaflugsins í dag.
Hjá afgreiðslustjóra Flugfélags ís-
lands á ísafirði fengust þær upplýs-
ingar að sjaldan hefði flugumferð
um páska gengið eins vel og i ár.
I Bláfjöllum átti föstudagurinn
langi sér vart hliðstæðu í aðsókn,
hvorki fyrr né síðar, en þar voru
um sjö þúsund manns í blíðskapar-
veðri, að sögn Þorsteins Hjaltason-
ar, fólkvangsvarðar í Bláfjöllum. í
Skálafelli voru um 5 þúsund manns
sama dag, sem er hið mesta frá
upphafi að sögn Þorsteins og góð
aðsókn var að Hengilssvæðinu.
Laugardagurinn 3. apríl var í
meðallagi góður, en á páskadag
datt botninn úr aðsókninni þar sem
vindur snérist til austlægrar áttar
með vætu er líða fór á daginn. Þó
var haldin árleg skíðapáskamessa í
Bláfjöllum á páskadag þar sem
séra Pálmi Matthíasson messaði en
skíðamessan var haldin í 10. skipti.
Sjúkrabifreið var kölluð til tví-
vegis vegna slysa í Bláfjöllum um
páskana, þar sem um fótbrot var að
ræða í annað skiptið og hálsmeiðsl í
hitt skiptið og að sögn Þorsteins
var almennt ekki mikið um skíða-
meiðsl miðað við allan þann mann-
fjölda sem var á skíðum um pásk-
ana á skíðasvæðum Reykvíkinga.
í þórsmörk var gott veður um
helgina og voru 20-30 manns í fjöl-
skylduferð í Skagfjörðsskála á veg-
um Ferðafélags íslands og 45
manns í fjölskylduferð í Bása á veg-
um Utivistar.
Skáli F.í. í Landmannalaugum
var fullur alla helgina en þar voru
milli 70 og 80 manns í gistingu.
Þaðan gengu 20 skíðagöngumenn á
vegum F.l. til Þórsmerkur í góðu
veði-i og sjö skíðagöngumenn fóru
sömu leið frá Útivist.
Skoðanakönnun
Markhússins
fyrir Vísi.is
Sjálfstæðis-
flokkurinn
mælist með
meirihluta
Sjálfstæðisflokkurinn mældist
með hreinan meirihluta eða
stuðning 50,1% þeirra sem af-
stöðu tóku í skoðanakönnun
sem birt var á Vísi.is hinn 1.
apríl sl. Skoðanakönnunin var
unnin af Markhúsinu fyrir
Vísi.is
Samkvæmt könnuninni nýt-
ur Samfylkingin stuðnings
25,3% og Framsóknarflokkur-
inn mældist með 15,2% stuðn-
ing meðal þeirra sem afstöðu
tóku. Vinstrihreyfingin -
grænt framboð mældist með
6,7% fylgi og Frjálslyndi ílokk-
urinn, flokkur Sverris
Hermanssonar, nýtur stuðn-
ings 2,7% þeirra sem afstöðu
tóku. 30,6% þátttakenda voru
óákveðnir.
Könnunin var gerð í öllum
kjördæmum landsins dagana
29. og 30 mars og var úrtakið
1.200 manns. Hlutfall þein-a
sem svöraðu var innan við
78%.
Frjálslyndi
flokkurinn
Eggert
Haukdal í
efsta sæti á
Suðurlandi
FRJÁLSLYNDI flokkurinn
hefur birt framboðslista sinn á
Suðurlandi fyrir kosningarnar
í vor. Eggert Haukdal, fyrram
alþingismaður, er í efsta sæti
listans. Framboðslistann
skipa:
1. Eggert Haukdal, fyrrver-
andi alþingismaður, Bergþórs-
hvoli, 2. Þorsteinn Árnason,
vélstjóri, Selfossi, 3. Erna
Halldórsdóttir, verslunarmað-
ur, Selfossi, 4. Sigurður Marin-
ósson, skipstjóri, Þorlákshöfn,
5. Halldór Magnússon, skrif-
stofumaður, Selfossi, og 6.
Stígur Sæland, garðyrkjumað-
ur, Biskupstungum.
ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN?
Mokveiði í Eldvatni
ÍS OG snjór komu í veg fyrir að
hægt væri að opna flestar sjóbirt-
ingsárnar, sem á annað borð má
opna 1. apríl. Þó var hægt að
veiða í Varmá við Hveragerði og
i' Eldvatni á Brunasandi og sjó-
birtingurinn lét ekki á sér standa
á þeim slóðum.
„Það var mikill fiskur á ferð-
inni, galdurinn var að kasta út í
skilin og fiskurinn tók þegar agn-
ið rak inn í tæra vatnið. Þetta
voru allt að 8 punda birtingar og
við fengum marga þeirra á flugu,
helst Flæðarmúsina," sagði Jón
Marteinsson um aflabrögðin í
Eldvatni, en hann og félagar hans
fengu yfir 40 birtinga tvo fyrstu
dagana. Þeir áttu enn fremur
veiðileyfi í Hörgsá neðan brúar,
en þar var allt „á ís“, eins og Jón
komst að orði. Veiðin í Eldvatni
var nánast öll tekin neðst í ánni
þar sem hún fellur í Hverfísfljót.
Prýðisveiði hefur verið í
Varmá, eða Þorleifslæk eins og
áin mun lieita frá þjóðvegi og nið-
ur úr. Þar hófst veiði á skírdag
og aflaðist strax vel. Leifur Þor-
láksson í Vesturröst var í ánni á
laugardaginn og sagði hann fisk
vera víða. „Við fengum nokkra
fiska, bæði ofarlega nærri fisk-
eldisstöðinni og einnnig fyrir
neðan Þurá. Þetta voru mest um
3 punda fiskar sem tóku Nobbler,
SIGMAR Rafn Jóhannesson, Örn Sveinbjörasson, Vignir Arason og
Jón Kristinn Jónsson með stórveiði úr Eldvatni á Brunasandi.
bæði appelsínugulan og svartan,“
sagði Leifur í gærdag.
Ekki gátu menn athafnað sig
við Geirlandsá, en að sögn
Gunnars Óskarssonar, nýkjörins
formanns Stangaveiðifélags
Keflavíkur, var þar fyrst vatns-
leysi á skírdag, en si'ðan bólgn-
aði áin upp í foráttuflóð. „Hún
er að ryðja sig og það gætu
komið skot á næstu dögum er
vatnið sjatnar. Það hefur verið
lítið vatn í ánni og lítil hreyfing
á vatnsbúskapnum alveg frá
áramótum. Ég trúi helst að físk-
urinn hafí setið mikið enn uppi í
gljúfri og fiskur sem hafí verið
neðar í fyrrahaust hafí fært sig
eitthvað annað. Svo hefur far-
vegurinn eitthvað breyst, en það
hefur ekki gerst í áraraðir,"
sagði Gunnar.
Is og kuldi hamlaði mjög
veiðiskap í Soginu. Þar hafa
verið skarir með öllum bökkum
og mikið frost að nóttu. Á dag-
inn hefur sólin skinið og líf
kviknað. Einhver reytingsveiði
hefur verið, t.d. í Bfldsfelli og
Alviðru, en ekki margir fiskar.