Morgunblaðið - 07.04.1999, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Lögreg’lu-
menn
ánægðir
AKUREYRI
Fólk skemmti sér vel 1 veðurblíðunni um páskana
Metaðsókn á
skíðasvæðin
Morgunblaðið/Björn Gíslason
MIKILL fjöldi fólks var saman kominn í Hlíiiarfjalli um páskana og
skemmti sér vel. Sumir höfðu sólstólana með í för og aðrir voru líka
með grillið og elduðu páskasteikina á staðnum.
METAÐSÓKN var á skíðasvæðin
á Akureyri, Dalvík og Ólafsfírði
um páskana og voru starfsmenn
þeirra sammála um að gestir hafí
skemmt sér hið besta í frábæru
veðri og að óhöpp hafí verið með
allra minnsta móti. Utanbæjar-
fólk var mjög áberandi í skíða-
brekkunum og voru margir
komnir langt að.
Haukur Stefánsson, forstöðu-
maður Skíðastaða í Hlíðarljalli,
sagði að annar eins mannfjöldi
hafi ekki sést í fjaliinu í langan
tíma. Hann sagði að rúmlega
3000 manns hefðu verið á skíðum
á skírdag og laugardag, rúmlega
5000 manns á föstudaginn langa
og rúmlega 4000 manns á páska-
dag. Heldur færri voru í fjallinu
annan í páskum, enda gestir
farnir til síns heima.
„Þetta var alveg frábær páska-
helgi og það sem mestu máli
skiptir er að helgin var stórslysa-
laus, þrátt fyrir allan þennan
mannljölda og sjúkrabíll kom
aldrei hingað,“ sagði Haukur.
„Veðrið var frábært og fólkið
sammála um það að njóta veður-
blíðunnar og skemmta sér á skíð-
um. Hér í fjallinu grillaði fólk
sínar páskasteikur í stórum stfl,
enda mikið af utanbæjarfólki á
ferðinni,“ sagði Haukur.
Fólkið til fyrirmyndar
Einar Hjörleifsson, forstöðu-
maður skíðasvæðisins í Böggvis-
staðafjalli, sagði að aldrei áður
hafi verið jafn mikið af fólki á
skíðasvæðinu og um páskahelg-
ina. Flestir voru á svæðinu á
föstudaginn langa, eða um 800
manns en á milli 500 og 600
manns hina dagana og var utan-
bæjarfólk í miklum meirihluta.
Einar sagði fólk hafa gert mikið
af því að gista á Akureyri en
koma til Dalvíkur á skíði og í
sund.
„Þetta var alveg meiriháttar
helgi og fólkið sem hingað kom
var alveg til fyrirmyndar. Það
var svo skemmtilegt og um-
gengni þess svo góð,“ sagði Ein-
ar. Helgin var að mestu áfalla-
laus en þó sagði Einar að lítil
stúlka hefði viðbeinsbrotnað á
skírdag en verið mætt galvösk í
fjallið aftur á laugardag.
Slysalaus helgi
Björgvin Hjörleifsson, skíða-
þjálfari í Ólafsfírði, sagði að mik-
iil Ijöldi fólks hefði verið á skíð-
um á skíðasvæðinu í Tindaöxl,
eða frá 100-300 manns yfir hátíð-
isdagana og auk þess liafí margir
verið á gönguskíðum á göngu-
brautum. „Heimamenn voru hér í
miklum meirihluta en þó var
töluvert af aðkomufólki á skíða-
svæðinu. Veðrið Iék við okkur og
hér var sól og blíða alla dagana.
Boðið var upp á skipulagða dag-
skrá sem gekk vel og fólk
skemmti sér greinilega mjög
vel,“ sagði Björgvin. Hann sagði
að helgin hafi jafnframt verið
nánast slysalaus, eins og annars
staðar í Eyjafirði.
LÖGREGLUMENN í Eyjafirði
eru ánægðir eftir páskahelgina og
segja að hún hafi í heild farið mjög
vel fram. Gunnar Jóhannsson,
varðstjóri á Akureyi'i, sagði að lög-
reglumenn hefðu haft í ýmsu að
snúast, enda margt fólk í bænum
en að helgin hefði verið slysalaus.
Nokkuð var um umferðarlaga-
brot og sagði Gunnar að 44 öku-
menn hefðu verið teknir fyrir of
hraðan akstur í bænum og næsta
nágrenni undanfarna sex daga, 5
voru grunaðir um ölvun við akstur
og þá urðu nokkur smávægileg
umferðaróhöpp. Fjölmennt var á
veitingahúsum bæjarins en Gunnar
sagði útköll á veitingahúsin hafa
verið sái-afá.
Allt fór vel fram
Sævar Ingason, lögreglumaður í
Dalvíkurbyggð, sagði allt hafa farið
vel fram á sínu svæði, jafnt í fjall-
inu sem í umferðinni og hann var
hinn ánægðasti með hvernig til
tókst. Guðni Aðalsteinsson, lög-
reglumaður í Ólafsfirði, tók í sama
streng og hann var því bæði kátur
og hress eftir helgina.
Kristinn
fylgist með
æfíngum
Ólafsfírði.
ÓLAFSFIRÐINGURINN og
skíðakappinn Kristinn Björnsson
dvaldi á heimaslóðum um pásk-
ana og heiðraði bæjarbúa með
nærveru sinni í stuttu fríi eftir
skíðalandsmótið á ísafírði. Hann
tók m.a. þátt í Ólafsljarðarmót-
inu í stórsvigj og fór þar með sig-
ur af hólmi. I gær var Kristinn á
skíðasvæðinu í Tindaöxl og
fylgdist með æfingum allra
flokka alpagreina og gáfu nokkr-
ir af framtíðarskíðamönnum bæj-
arins sér tíma til að sitja fyrir á
rnynd með kappanum.
Morgunblaðið/Guðmundur Þór
Rafveituhúsið til
sölu á 100 m.kr.
AKUREYRARBÆR hefur svarað
kauptilboði Ako-Plastos í húsnæði
Rafveitu Akureyrar með gagntil-
boði. Ako-Plastos bauð 70 milljónir
króna í húsnæðið en gagntilboð
bæjarins hljóðar upp á 100 milljónir
ki'óna, samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins og því þarf að svara iyrir
14. apríl nkv
Daníel Ái-nason, framkvæmda-
stjóri Ako-Plastos, sagði að næstu
skref væru að fara yfir stöðuna og
ákveða svo framhaldið. Húsnæði
Rafveitunnar er samtals 1.800 fer-
metrar og skiptist í birgðahús,
tækjageymslu og skrifstofur.
Brunabótamat eignarinnar er um
136 milljónir króna.
Eftir að eigendur Ako-plast eign-
uðust rúmlega 75% hlut í Plastos
umbúðum í Garðabæ, var stefnan
sett á að flytja framleiðsluþátt fyi'ir-
tækisins frá Garðabæ til Akureyrar.
Við flutninginn myndi starfsfólki
norðan heiða fjölga um 50 og verða
um 65 talsins. Húsnæði Ako-plasts
við Tryggvabraut rúmar ekki aukin
umsvif og möguleiki til stækkunar
er ekki fyrir hendi. Því var gert til-
boð í húsnæði Raíveitunnar, þar
sem einnig er gott byggingaland
fyrir frekari stækkun.
PENTAX
Snjóþyngslin koma við pyngjuna hjá sveitarfélögunum
FERMINGARTILBOÐ
PENTAX ESPIO 738G
Aðdráttarlinsa 38-70mm
Sjálfvirkur fókus
Sjálvirkt Ijósop og hraði
Einföld filmuþræðing
Vörn gegn rauðum augum
Dagsetning
3 stk. FUJIFILM SUPERIA filmur fylgja
Verð aðeins kr.14.990
Skipholti 31, Sími 568 0450 Kaupvangsstræti 1, s. 461 2850
Háskólinn á Akureyri
Opinn fyrirlestur
HÁSKÓLINN ______ ________________________________
ÁAKUREYRI
Tengsl heilsufars og þjóöfélagsstööu
með sérstöku tilliti til barna
Fyrirlesari:
Matthías Halldórsson, aöstoöarlandlæknir.
Tími:
Fimmtudagur 8. apríl kl. 16.30.
Staður:
Háskólinn á Akureyri, Þíngvallastræti, stofa 14.
Fyrirlesturinn er öilum opinn
Snj ómoksturspen-
ingar að klárast
Morgunblaðið/Kristján
SNJÓRUÐNINGSTÆKI hafa verið keyrð á fullum afköstum í vetur
enda snjóþyngsli verið mikil.
SNJÓÞYNGSLI í Eyjafirði hafa
komið við pyngjuna hjá sveitarfé-
lögum á svæðinu og þá ekki síst í
Dalvíkurbyggð og Ólafsfirði. Kostn-
aður við snjómokstur í Dalvíkur-
byggð frá áramótum er kominn í
um sex milljónir króna en á fjár-
hagsáætlun voru áætlaðar 6,5 millj-
ónir króna í snjómokstur á árinu.
Rögnvaldur Skíði Friðbjörnsson,
bæjarstjóri í Dalvíkurbyggð, sagð-
ist lifa í þeirri von að skaparinn
myndi nú stilla sig til vors, alla vega
væri ekki þörf á meiri snjó í sveitar-
félagið. „Það er mikill snjór í bæn-
um og þótt búið sé að keyra mikinn
snjó í burtu á eftir að laga mikið
til.“ Rögnvaldur Skíði sagðist miða
snjóþungann við snúrustaurinn við
heimili sitt. Hann væri á kafi nú og
það hefði ekki gerst nema einu sinni
áður frá því hann flutti á Sunnu-
brautina árið 1992.
Kostnaður við snjómokstur er
mjög sveiflukenndur milli ára, árið
1996 var kostnaðurinn á Dalvík
tæpar tvær milljónir króna og árið
eftir var hann 3,2 milljónir króna. A
síðasta ári var kostnaðurinn hins
vegar tæpar 9 milljónir króna en
inni í þeirri tölu er einnig mokstur í
Svarfaðardal og á Árskógsströnd,
eftir sameiningu sveitarfélaganna.
Rögnvaldur Skíði sagði það líka
hafa komið fyrir að ekki væri um
neinn snjómokstur að ræða seinni
hluta ársins.
Óvenju snjóþungur vétur
Hálfdán Kristjánsson, bæjar-
stjóri í Olafsfirði, sagði að veturinn
hefði verið óvenju snjóþungur.
„Snjómoksturinn er dýrari þar sem
nú er meira um aðkeypta þjónustu
en venjulega og við höfum þurft að
tjalda öllu sem til er. Það eru miklir
snjóruðningar í bænum og því mikil
vinna framundan við keyra snjóinn í
burtu,“ sagði Hálfdán.
Á fjárhagsáætlun fara 6 milljónir
króna í snjómokstur, sem er sama
upphæð og snjómoksturinn kostaði
á síðasta ári. Hálfdán sagðist gera
ráð fyrir að klára þá fjárhæð fyrir
vorið, enda hefði kostnaðurinn
fyrstu tvo mánuði ársins numið
tæpum þremur milljónum króna.
Hann vonast því til að síðari hluti
ársins verði snjólaus.