Morgunblaðið - 07.04.1999, Page 24
24 MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Verslunarráð sendir forsætisráðherra
ábendingar varðandi alþjóðavæðingu
Eignarskattur
verði afnuminn
Réttindaskrá upplýsingasamfélagsins kynnt
Verja hag neytenda
Morgunblaðið/Ásdís
STUART Goold, aðalritari CECUA (t.v.) og Karl Henry Haglund, for-
stöðumaður ISPO skrifstofu Evrópusambandsins.
VERSLUNARRÁÐ íslands telur
mikilvægt að stjómvöld hlutist til
um afnám eða lækkun eignarskatts,
sem þekkist vart hjá öðnim OECD-
ríkjum, þar sem skatturinn veiki
samkeppnisstöðu íslenskra fyrir-
tækja gagnvart erlendum keppi-
nautum og sé jafnframt bein hindr-
un fyrir erlend fyrirtæki og fjár-
festa sem áhuga hafa á þátttöku í
rekstri hér á landi. Þetta kemur
fram í bréfi sem Verslunarráð hefur
sent Davíð Oddssyni forsætisráð-
herra um þau atriði sem Verslunar-
ráð telur mikilvægt að stjórnvöld
hafi forgöngu um að hrinda í fram-
kvæmd til að greiða fyrir frekari al-
þjóðavæðingu íslenskra fyrirtækja.
I bréfi Verslunarráðs til forsætis-
ráðherra er komið á framfæri ýms-
um ábendingum um aðgerðir sem
ráðið telur brýnt að stjórnvöld hlut-
ist til um að framkvæma í tengslum
við alþjóðavæðingu atvinnulífsins,
meðal annars varðandi skatta og
gjöld. Bent er á að öll Norðurlöndin
nema Island hafi afnumið stimpil-
gjöld, en þau séu veruleg byrði á
viðskiptalífið hér á landi og veiki
samkeppnisstöðu innlendra lána-
stofnana nú þegar fjármagn flæðir
frjálst milli landa. Einnig veiti þau
stærri fyrirtækjum sem eiga auð-
veldara með að sækja á erlenda
lánamarkaði samkeppnisforskot á
smærri innlend fyrirtæki. Telur
Verslunarráð brýnt að horfið verði
frá þessari sérstöku skattheimtu
sem fyrst.
Verslunarráð leggur til að lög-
festar verði hagstæðari reglur um
skattlagningu kaupréttar á hluta-
bréfum og starfsmönnum fyrir-
tækja verði ekki gert að greiða
skatt af bréfum sem þeir eignast í
fyrirtækjunum fyrr en þau eru seld.
Þá verði tekin upp almenn heimild
fyrir fyrirtæki til að draga sölutap
vegna hlutabréfaviðskipta frá
rekstrarkostnaði. Þá telur Verslun-
arráð brýnt að hugað verði að
breytingum á reglum um skattalega
meðferð dagpeninga íslenskra
starfsmanna fyrirtækja sem skráð
eru hérlendis en eru með starfsemi
erlendis.
Mikilvægt að hraða
einkavæðingu
Meðal annarra atriða sem bent er
á í bréfi Verslunarráðs er mikilvægi
þess að hraðað verði einkavæðingu
opinberra fyrirtækja og að ríkið
selji sinn hlut í þeim ríkisfyrirtækj-
um sem breytt hefur verið eða verð-
ur breytt í hlutafélög. Lagt er til að
í samkeppnislög verði tekin ákvæði
um takmörkun ríkisstyrkja og að
numdar verði úr lögum allar tak-
markanir á fjárfestingu erlendra
aðila í sjávarútvegi og orkufram-
leiðslu á Islandi.
Loks má geta þess að Verslunar-
ráð telur að með tilkomu evrunnar
sé mikilvægt að huga að því að inn-
lendum fyrirtækjum verði gert
kleift að halda bókhald í evrum, og
að stjómvöld hugi sem fyrst að því
hvort ekki sé ástæða til að tengja ís-
Ienska hagkerfið við hagkerfi Evr-
ópuríkja ef takast eigi að viðhalda
stöðugleika í íslensku efnahagslífi.
ÞRÓUNIN í upplýsingatæknigeir-
anum er svo ör að stjórnvöld ná
ekki að fylgja henni eftir með við-
eigandi lagasetningu til að tryggja
hag neytenda, einkanlega vegna
þess hve alþjóðlegt upplýsingasam-
félagið er og vegna þess hversu
hratt það þróast. Þessvegna var
nauðsynlegt að setja saman rétt-
indaskrá, sem nefnd er „bill of
rights“ á ensku, sem ætlunin er að
kynna og gera að samþykktri við-
miðun varðandi siðferði og almenn
samskipti og viðskipti í upplýsinga-
samfélaginu.
Þetta kom fram í máli Stuart
Goold, framkvæmdastjóra Evrópu-
samtaka tölvunotenda, CECUA,
sem kynnti réttindaskrána á ráð-
stefnu sem haldin var í Reykjavík
29. mars síðastliðinn, og var það
fyrsta kynningin í Evrópu.
„Við erum rétt að byrja að kynna
þau málefni sem snerta réttinda-
skrána og upplýsingasamfélagið, og
ætlum að reyna að gera almenning
meðvitaðan um málið,“ sagði Stuart
Goold í samtali við Morgunblaðið.
Við erum að færast frá samfélögum
sem byggjast á þjóðríkinu til upp-
lýsingasamfélagsins sem nær um
allan heim, og það vekur upp mörg
álitamál fyrir almenning. Við vitum
AKVÖRÐUN um byggingu magn-
esíumverksmiðju á Reykjanesi
verður ffestað um hálft ár vegna
erfiðleika við rekstur tilraunaverk-
smiðju fyrirtækisins Australian
Magesium í Ástralíu þar sem verið
var að reyna nýjaraðferðir.
Júlíus Jónasson, forstjóri Hita-
veitu Suðurnesja, segir að gert hafi
til dæmis lítið um hvernig á að verj-
ast tölvuglæpum af ýmsum toga, og
þessi mál þarf að taka til skoðunar
án tafar og hvemig unnt er að
tryggja réttindi fólks í upplýsinga-
samfélaginu."
Réttindaskrána er hægt að skoða
á heimasíðu CECUA, sem eru Evr-
ópusamtök tölvunotenda, og er slóð-
in www.cecua.org.
Finninn Karl Henry Haglund var
einnig staddur á kynningunni, þar
sem hann flutti fyrirlestur um
ISPO, sem er verkefnisskrifstofa
verið ráð fyrir að ákvörðun um
byggingu verksmiðjunnar yrði tek-
in í Astralíu í byrjun þessa árs en að
henni verði nú ífestað. í kjölfar
hennar á að gera hagkvæmniathug-
un hér á landi sem tekur 6-12 mán-
uði og eftir það verður endanlega
ákvörðun tekin.
„Þeir byggðu tilraunaverksmiðju
um upplýsingasamfélagið og er rek-
in af tveimur ráðuneytum Evrópu-
sambandsins, og á að vinna að þró-
un upplýsingasamfélagsins sjálfs.
I samtali við Morgunblaðið sagði
Haglund að besta leiðin fyrir ís-
lenska aðila til að njóta góðs af
ISPO væri fyrst gegnum upplýs-
ingamiðlun skrifstofunnar á vefsíðu
hennar, www.ispo.cec.be. Þar fást
upplýsingar um nýjustu aðgerðir
Evrópuráðsins í þessum málaflokki,
og einnig upplýsingar fyrir hvert
land Evrópusambandsins fyrir sig.
sem átti að skila málmi fyrir ái-amót
en þeir hafa verið í vandræðum með
eitt þrepið í framleiðslunni. Þeir
telja sig þó vera að sjá fyrir endann
á því,“ segir Júlíus.
Hann segist ekki hafa fengið
neinar upplýsingar um það að dreg-
ið hafi úr líkum á því að verksmiðj-
an verði byggð hér á landi.
------------------
Námsstefna
um ATP
mælingar
SAMEY efnir til námsstefnu í ATP
mælingum í dag, miðvikudaginn 7.
apríl. Námsstefnan verður haldin að
Grand Hótel Reykjavík frá klukkan
13 til 17. Á námsstefnunni verður
fjallað um grundvöll ATP mælinga,
ávinning af ATP mælingum, ATP
mælingar í hreinlætiseftirliti, mikil-
vægi hraðvirkra mæliaðferða í virk-
um gæðakerfum, svo sem ISO,
HACCP og hvemig ATP mæling-
arnar falla að gæðakerfunum. Með-
al fyrirlesara eru Ben Lich frá
Hollandi, Birna Hjörleifsdóttir hjá
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins
og Hákon Jóhannesson hjá Mat-
vælatækni.
Með tilkomu gæðakerfa í mat-
vælafyrirtækjum er þörfin fyrir
hraðvirkar mæliaðferðir mun
brýnni en áður. Allar lífverur nota
Adenosine Tri-phosphate (ATP)
sem grunnorku og allt ATP er efna-
fræðilega greinanlegt.
Með ATP mælingum er hægt að
fá mæliniðurstöður samstundis,
grípa til viðeigandi ráðstafana og
koma í veg fyrir framleiðslutjón ef
ástandið er óviðunandi. Algengasta
notkunin á ATP mælum er í eftirliti
með þrifum og hreinlæti. ATP mæl-
ingar til hreinlætiseftirlits eru not-
aðar í flestum greinum matvælaiðn-
aðar, bæði matvælaframleiðslu, hrá-
efnisöflun og veitingarekstri. Mest-
ur ávinningur af virkara hreinlætis-
eftirliti er við framleiðslu á matvæl-
um sem eru tilbúnar til neyslu, hafa
stuttan líftíma og eru viðkvæmar
fyrir gerlamengun, svo sem í rækju-
framleiðslu, mjólkuriðnaði o.fl.
Skráning á námsstefnuna er í
síma 510 5200.
Ulstein biónusta
HÖNNUN / SMIÐI / VIÐGERÐIR / ÞJÓNUSTA
= HÉÐINNE
Stórás 6 »210 Garðabæ
sími 569 2100 • fax 569 2101
i
#
Hraðnámskeið
í tungumálum
Næstu námskeið hefjast í apríl
Enska • Danska • Sænska • Norska
Þýska • Franska • Spænska • ítalska
Rússneska • Japanska • Kínverska
Portúgalska • íslenska fyrir útlendinga
Myndlistar- og enskunámskeið
fyrir börn í júní og ágúst.
liMliMI;!
TOMSTUNDASKOLINN
Grensásvegi 16A • Sími 588 7222 • www.mimir.is
^ Plastprent hf.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Plastprents hf.
verður haldinn miðvikudaginn 14. apríl 1999
kl.: 16.00 í húsnæði félagsins að
Fosshálsi 17-25, Reykjavík.
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 18 gr.
samþykkta félagsins.
2. Breytingar á samþykktum vegna rafrænnar
skráningar hlutabréfa.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins
munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum
til sýnis, viku fyrir aðalfund.
Fundargögn verða afhent á fundarstað.
Stjórn Plastprents hf.
Tölvur og tækni á Netinu ^mbl.is
ALLTAf= eiTTH\SAÐ A/ÝT7
Akvörðun um magnesíum-
verksmiðju frestað