Morgunblaðið - 07.04.1999, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999 27
Xanana Gusmao afturkallar vopnahlésyfírlýsingu
Skorar á landa sína
að grípa til vopna
Reuters
MEÐLIMIR Falentil-hreyfingarinnar, eins hóps herskárra sjálfstæðis-
sinna á A-Túnor, eru hér á vakt við höfuðstöðvar hreyfingarinnar í
frumskóginum. Talsmenn hinna ýmsu hópa sjálfstæðissinna sögðust í
gær munu hlýða kalli andspymuleiðtogans Gusmaos um að halda áfram
stríði gegn indónesískum yfirráðum.
Stefnir í alls-
herj arverkfall
í Færeyjum?
Þórshöfn. Morgunbiaðið.
Skæruliðar hlynntir
indónesískum yfir-
ráðum á A-Tímor
sagðir hafa drepið
tugi flóttamanna
Sydney. Reuters.
FJÖRUTÍU manns létu lífið á Aust-
ur-Tímor í gær, er skæruliðar
hlynntir indónesískum yfirráðum
skutu af handahófi og vörpuðu hand-
sprengjum á kirkju, þar sem um
2.000 flóttamenn höfðu fundið skjól,
að sögn portúgölsku fréttastofunnar
Lusa. Hafði fréttastofan þetta eftir
Carlos Belo biskupi og friðarverð-
launahafa Nóbels, sem hafði foringja
í indónesíska hemum á A-Tímor fyrir
fréttinni.
Xanana Gusmao, einn af leiðtogum
andspyrnuhreyfingarinnar á Austur-
Tímor, hvatti til þess í fyrradag, að
landsmenn gripu tii vopna gegn
stuðningsmönnum Indónesíustjórnar
í landinu. Talið er, að með því vilji
hann þrýsta á, að Sameinuðu þjóðirn-
ar sendi gæslulið til landsins en ótt-
ast er, að þessi herhvöt geti leitt til
enn meiri blóðbaðs og haft þveröfug
áhrif við það, sem að er stefnt.
Fréttaskýrendur telja ólíklegt, að
ákvörðun Gusmaos um að falla frá
fyrri vopnahlésyfirlýsingum muni
breyta neinu um fyrirhugaða þjóðar-
atkvæðagreiðslu á A-Tímor í júh' um
sjálfstjórn en segja hins vegar
ástæðu til að óttast, að hún geti dreg-
ið slæman dilk á eftir sér.
Gusmao hvatti landa sína til að
grípa til vopna er fréttir bárust af
því, að stuðningsmenn Indónesíu-
stjómar og indónesískir hermenn
hefðu myrt 17 óbreytta borgara í
landinu en lögfræðingur hans segir,
að hann muni lýsa aftur yfir vopna-
hléi sendi SÞ gæslulið til landsins og
Indónesíuher láti af árásum sínum.
Talsmaður SÞ sagði í síðasta mánuði,
að samtökin yrðu að senda fulltrúa
sína til A-Tímor mjög fljótlega vegna
þjóðaratkvæðagreiðslunnar en sagði
þó ekkert um eiginlegt gæslulið.
Mikil spenna í landinu
Stjómvöld í Astrah'u hafa varað við
yfirlýsingu Gusmaos, sem nú er í
stofufangelsi í Jakarta. Segja þau, að
mikið sé af vopnum á A-Tímor og
mikil spenna í landinu og því þurfi
ekki nema Mtinn neista til að hleypa
öllu í bál og brand.
Jose Ramos-Horta, útlægur and-
spymuleiðtogi og friðarverðlaunahafi
Nóbels, sagði í viðtali við breska rík-
isútvarpið, BBC, að Gusmao hefði
ekki átt annarra kosta völ en falla frá
vopnahlésyftrlýsingunni.
HVORKI gengur né rekur í vinnu-
deilu opinberra starfsmanna í
Færeyjum en verkfall þeirra hefur
nú staðið í þrjár vikur. Þá em önnur
stéttarfélög að undirbúa aðgerðir og
eins og nú horfir stefnir í allsherjar-
verkfall í landinu.
Viðræður deiluaðila hafa engan ár-
angur borið en síðasti samningafund-
urinn stóð í næstum þrjá daga sam-
fleytt og lauk á föstudaginn langa.
Krefjast opinberir starfsmenn að
minnsta kosti 5% launahækkunar á
þessu ári og benda á, að ella muni
kaupmáttur launanna minnka enn.
Felldu þeir miðlunartillögu um 2,7%
hækkun en Karsten Hansen, sem fer
með fjármálin í landsstjóminni, sam-
þykkti hana. Segir hann, að meiri
launahækkanir myndu hafa alvarleg
áhrif á efnahagslífið í landinu.
Næstum öll stéttarfélög í Færeyj-
um hafa lýst yfir stuðningi við opin-
bera starfsmenn og fyrir nokkrum
dögum sögðu formenn þeirra, að
hæfust ekki viðræður strax að páska-
hátíðinni Mðinni, myndu félögin fara
að hugsa sér til hreyfings.
Mikil vandræði
Verkfall opinberra starfsmanna
hefur að sjálfsögðu valdið miklum
vandræðum og einkanlega í nyrstu
og syðstu eyjunum. Þangað em nú
engar ferjusigMngar og næstum allar
opinberar skrifstofur em lokaðar.
Sendingar útvarps og sjónvarps em í
lágmarki og búið er að loka þvotta-
húsum sjúkrahúsanna. Hafa opinber-
ir starfsmenn í Færeyjum fengið
ýmsan stuðning frá stéttarbræðrum
sínum erlendis, meðal annars á Is-
landi en þaðan fengu þeir um eina
milljón ísl. kr.
'AGA
OUTIQtJE
TOLLFRJÁLS VERSLUN SKÝjUH OFAR
V E T U R 19 9 9
'Hvjroa cjlmile.avir
listi er ítominn út
'Htíðu þér í tintfrk. lí
fe.rðfrsk.riptvpAín e-ðfi
SvíutfLriptvpum Tlupeiðvi.
Sorption Technics
www.velaverk.is
Lofrpurrharar
s. 568 3536
Nám í Danmörku
Hjá Horsens Polytechnic bjóðum við upp
á fleiri tegundir af tæknimenntun.
Allir velkomnir
Á fiindinum munu kennaramir Ralf Jensen og Eli Ellendersen
segja ffá náminu. Jafhffamt verða til staðar íslenskir
byggingaffæðingar menntaðir í Horsens.
Þeir sem hafa áhuga geta haft samband við Ralf Jensen og Eli
Ellendersen með því að hringja til Hótel Sögu ífá 06.04 -
13.04.1999 eða leggja inn skilaboð.
Horsens Polytechnic
Slotsgade 11 • DK-8700 Horsens • Denmark
Tli. +45 7625 5001 • Fax +45 7625 5100
E-mail:horstek@horstek.dk • http://www.horstek.dk
Meðal annars:
• tækniteiknun
• landmælingartæknir
• véltæknir
• byggingaiðnlfæðingur -
byggingar- og ffamkvæmdalínu
• byggingafræðingur með fjórum brautum: enskri, byggingar-
og ffamkvæmdalínu
Komiö og fáiö nánari upplýsingar:
Kynningarfundur í Revkjavík
11. apríl kl. 15.00 á Radisson SAS, Hótcl Sögu.