Morgunblaðið - 07.04.1999, Síða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999 29
ERLENT
Réttarhöld í Lockerbie-málinu að hefjast í Hollandi
Skoskt dómskerfí
undir smjásjá
Camp Zeist. Reuters. The Daily Telegraph.
LÍBÝUMENNIRNIR tveir, sem
grunaðir eru um að hafa staðið að
sprengingu í Pan Am farþegaflug-
vél sem fórst yfír Lockerbie í
Skotlandi árið 1988, voru fram-
seldir til Hollands á mánudag, þar
sem réttað verður yfír þeim sam-
kvæmt skoskum lögum. Itrekaðar
tilraunir til að komast að sam-
komulagi um það hvar og hvernig
skuli réttað yfír mönnunum tveim-
ur hafa verið gerðar frá árinu
1991, en þá var kæran lögð fram á
hendur þeim.
Mennimir tveir, Abdel Basset al-
Megrahi og AI-Amin Khalifah Fa-
hima, lentu á Valkenburg flugvell-
inum skammt frá Haag á mánudag
eftir að hafa flogið frá Líbýu í fylgd
Hans CorreE, lögfræðings á vegum
Sameinuðu þjóðanna (SÞ).
Við komuna til Hollands vom Lí-
býumennimir handteknir af yfír-
völdum þar í landi og innan fárra
mínútna barst formleg beiðni um
framsal mannanna tveggja af hálfu
skoski-a stjómvalda. Mennirnir
áttu þess kost að mótmæla fram-
salinu en gerðu það ekki og því var
gengið frá framsalsbeiðninni innan
fárra stunda.
Að þessu loknu var flogið með
mennina til Camp Zeist, gamallar
herflugstöðvar skammt frá
Utrecht, þar sem Graham Cox,
skoskur umdæmisdómari, tók á
móti þeim. Cox mun hafa yfírum-
sjón með bráðabirgðayfírheyrslum
yfír mönnunum tveimur, en endan-
leg ákvörðun um það hvort menn-
imir skuli leiddir fyrir rétt, mun
byggjast á þessum yfírheyrslum.
Víðtækar ráðstafanir
við réttarhöldin
Um hundrað ekra svæði í Camp
Zeist hefur verið girt af og því lýst
yfir sem skosku umdæmi þar til
réttarhöldunum lýkur. Miklar
framkvæmdir hafa átt sér stað á
svæðinu þar sem yfír 100 skoskir
fangelsisverðir, lögreglumenn og
lögfræðingar eru starfandi og salur
fyrir blaðamannafundi hefur verið
útbúinn auk þess sem verið er að
leggja hönd á sérstakan dómsal
fyrir réttarhöldin.
Reuters
SAKBORNINGARNIR í Lockerbie-málinu veifa til samlanda sinna
áður en haldið var af stað til Hollands í flugvél Sameinuðu þjdðanna.
Réttarhöldin eru talin munu eiga
eftir að. kosta verulegar upphæðir,
en aðeins þær undirbúningsfram-
kvæmdir sem að framan era nefnd-
ar, kosta um 90 milljónir króna,
samkvæmt skoskum heimildum.
Mennirnir tveir era sakaðir um
að hafa komið sprengju fyrir í far-
þegaflugvél frá flugfélaginu Pan
Am sem var á leið frá London til
New York í desember 1988.
Sprengjan sprakk í 31.000 feta hæð
yfír Lockerbie í Skotlandi og varð
270 manns, frá 21 landi, að bana,
en 11 létust á jörðu niðri.
Sprengjutilræðið kom í kjölfar
ERLENT
Reuters
MENNIRNIR tveir, Abdel Basset al-Megrahi
og Al-Amin Khalifa Fahima, sem taldir eru
bera ábyrgð á ódæðinu í Lockerbie, halda
fram sakleysi sínu.
hefndarhótana af hálfu
íranskra stjórnvalda og
hryðjuverkahópa í Miðaust-
urlöndum eftir að írönsk
flugvél hafði verið skotin nið-
ur af bandarísku herskipi í
júlí 1988.
Eftir að skosk yfirvöld
höfðu rannsakað Lockerbie-
slysið í um þrjú ár kom í ljós
að sprengjan hafði sprungið í
ferðatösku sem enginn af far-
þegunum hafði haft með sér í
flugið. Ferðataskan var rakin
til al-Megrahi og Fahima,
sem þá vora starfsmenn hjá
Libyan Arab flugfélaginu og
höfðu færi á að koma tösk-
unni fyrir í vélinni, sem upp-
haflega lagði af stað frá
Frankfurt.
Því hefur verið haldið fram
að mennirnir hafí starfað fyrir
leyniþjónustu Líbýu og að starf
þeirra hjá Libyan Arab flugfélag-
inu, sem er ríkisrekið, hafi verið
þáttm- í undirbúningi þeirra til að
koma sprengjunni fyrir.
ítrekað hefur verið reynt
að dæma í málinu
Kæra var lögð fram á hendur
mönnunum tveimur árið 1991 í kjöl-
far rannsóknarinnar, en Gaddafi,
leiðtogi Líbýumanna, neitaði að
framselja mennina til Skotlands
eða Bandaríkjanna, vegna ótta við
að þeir hlytu ekki sanngjöm réttar-
höld. Afleiðingar þessa urðu þær að
Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) settu
viðskiptabann á Líbýu, sem aflétt
hefur verið í grandvallaratriðum
eftir að mennirnir vora framseldir
nú á mánudag.
ítrek'aðar tilraunir hafa
verið gerðar til að leiða
mennina fyrir dóm en hvorki
hefur rekið né gengið í þeim
málum, þar til nú, tæpum tíu
áram síðar. í byrjun þessa
árs féllst Gaddafí á að menn-
irnir yi’ðu leiddir fyrir rétt í
Hollandi, hlutlausu landi, en
réttarhöldin færu fram sam-
kvæmt skoskum lögum og að
skoskir dómarar myndu
dæma í málinu.
Samkomulag þetta náðist
fyrir tilstuðlan SÞ en talið er
að viðræður Nelson Mandela,
fráfarandi forseta Suður-Af-
ríku, og Abdullah, krónprins
Saudi Arabíu, hafi haft úr-
slitaáhrif á ákvörðun Gadda-
fís.
Strangar kröfur um
sönnunarbyrði
Skoska réttarkerfið er með
þeim elstu í heiminum og er þekkt
fyrir svokallaðan „þriðja úrskurð“
sem jafngildir sýknun, liggi ekki
óvefengjanleg sönnunargögn fyr-
ir.
Robert Black, prófessor í skosk-
um lögum og sá sem átti hugmynd-
ina að því að haga réttarhöldunum
eins og nú hefur verið ákveðið,
sagði strangar kröfur skosks
dómskerfís um sönnunarbyrði nú
liggja fyrir sjónum almennings um
allan heim.
„Fólk mun sjá hversu strangar
reglurnar eru [í skosku réttar-
kerfi], til að tryggja að réttur úr-
skurður verði kveðinn upp. Til að
mynda verða öll mikilvæg sönnun-
argögn að vera studd af fleiram en
einum aðila,“ sagði Black.
Það heyrir hins vegar til undan-
tekningar að í réttarhöldunum
verður enginn kviðdómur. Sú
ákvörðun var tekin eftir að Líbýu-
mennirnir höfðu farið þess á leit,
en þeir telja harla ólíklegt að hægt
verði að fmna kviðdóm sem ekki
hefur orðið fyrir veralegum áhrif-
um af fréttaflutningi tengdum
Lockerbie-tilræðinu.
Samkvæmt skoskum lögum
verða að fara fram réttarhöld inn-
an 110 daga frá því að kæra er
lögð fram. Hins vegar þykir lík-
legt að lögfræðingar Líbýumann-
anna fari fram á seinkun á réttar-
höldunum til að geta undirbúið
málflutning sinn betur, sem verði
til þess að þau hefjist ekki fyrr en
á næsta ári.
Fari svo að mennirnir verði
Adams segir
IRA ekki
skuldbund-
inn til af-
vopnunar
GERRY Adams, leiðtogi Sinn Fein,
pólitísks arms Irska lýðveldishers-
ins (IRA), hefur lýst því yfir að IRA
sé „alls ekki skuldbundinn" til að af-
vopnast áður en fyrsta heimastjórn
Norður-írlands er mynduð.
Adams sagði í ávarpi sem hann
flutti á páskasunnudag til minningar
um páskauppreisn írskra lýðveldis-
sinna gegn brezkum yfirráðum í
Dyflinni árið 1916, að krafan um af-
vopnun IRA væri ekkert annað en
„ögrun“. Og Mitchel McLaughlin,
háttsettur fulltrúi Sinn Fein í friðar-
samningaviðræðunum, sagði friðar-
ferlið „í kreppu".
En David Trimble, forsætisráð-
herra heimastjórnarþings N-ír-
lands, boðaði allt annað um páskana;
hann spáði því að IRA myndi af-
vopnast innan fáeinna vikna.
Frestur til að mynda heimastjórn
sem gert hafði verið ráð fyrir í frið-
arsamkomulaginu, sem undirritað
var á páskum í fyrra, rann út á föstu-
dag, 2. apríl, án þess að tekizt hefði
að leysa ágreining um afvopnun
öfgamanna beggja fylkinga, en sam-
komulag um myndun heimastjómar
með þátttöku stjórnmálamanna bæði
úr röðum kaþólskra lýðveldissinna
og sambandssinnaðra mótmælenda,
strandaði á þessum óleysta ágrein-
ingi, sem tilraunir til að leysa hafa
staðið yfir mánuðum saman.
Yfírlýsing Blairs og
Aherns rædd
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, og Bertie Ahern, hinn
írski starfsbróðir hans, gáfu í síð-
ustu viku út yfírlýsingu sem ætluð
var sem samningsgrundvöllur til
lausnar afvopnunai’deilunni. Allir n-
írsku stjórnmálaflokkarnir hafa
frest fram í næstu viku til að ræða
yfirlýsinguna og taka ákvörðun um
hvort þeir fallist á hana eða ekki.
Fulltrúar flokks sambandssinna
Ulster (UUP), stærsta flokksins á n-
írska þinginu, neita að sitja við sama
borð og fulltrúar Sinn Fein, stærsta
flokks n-írskra lýðveldissinna, nema
IRA byrji að afhenda eitthvað af
vopnabúri sínu.
Arviss „göngutíð" mótmælenda á
N-írlandi, sem þeir halda í heiðri til
minningar um sigur hers brezkra
mótmælenda yfír írskum kaþólikk-
um á N-íriandi fyrir 300 árum, hófst
á mánudag með nokkur þúsund
manna skrúðgöngu í gegn um mið-
borg Belfast. Gangan fór friðsam-
lega fram.
fflflÍK'S
BALENO
TEGUND: VERÐ:
1.3 GL 3d 1.195.000 KR.
1.3 GL 4d 1.295.000 KR.
1.6 GLX 4d, ABS 1.445.000 KR.
1.6 GLX 4x4, 4d, ABS 1.575.000 KR.
1.6 GLX WAGON, ABS 1.495.000 KR.
1.6 GLX WAGON 4x4, ABS 1.675.000 KR.
Sjálfskipting kostar 100.000 KR.
Renndu við hjá okkur í dag og
reynsluaktu Suzuki Baleno.
Hann kemur þér þægilega á óvart
Rými?
Þægindi?
Gott endursöluverð?
Allan þennan staðalbúnað?
16 ventla vél með fjölinnsprautun, 85-96 hestöfl
Vökva- og veltistýri • Hæðarstillanleg kippibelti
Rafstýrðar rúður og speglar • Öryggisloftpúðar
Samlæsing • Krumpusvæði að framan og aftan
Þjófavörn • ABS hemlar • Styrktarbitar í hurðum
Upphituð framsæti • Útvarp með segulbandi
Rafstýrð hæðarstilling framljósa • Litaðar rúður
Samlitaðir stuðarar
Bíll sem er algjörlega hannaður fyrir þig.
Og þaðleynir sér ekki...
Fæst í tískulitnum í ár: aluminium silver metallic
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00
Heimasíða: www.suzukibilar.is
dæmdir í fangelsi, er talið líklegt
að þeir áfrýi dómnum og munu þau
réttarhöld einnig fara fram í
Hollandi.
Sannanir fyrir sekt þeirra
sagðar áreiðanlegar
Bandaríkjamenn og Bretar
segjast hafa óvefengjanleg sönn-
unargögn um sekt mannanna und-
ir höndum, sem Black segir geta
orðið til þess að réttarhöldin verði
mjög löng. „Hins vegar gætu þau
allt eins tekið stuttan tíma, ef
sönnunargögnin eru ekki eins
áreiðanleg að mati skoskra dóm-
stóla eins og haldið hefur verið
fram sl. átta ár.“
Ekki hefur verið ákveðið hvaða
þrír skoskir dómarar dæmi í mál-
inu, en Hardie lávarður, saksókn-
ari Skotlands, mun leiða ákæra-
valdið.
Verði mennirnir, sem haldið hafa
fram sakleysi sínu, fundnir sekir,
munu þeir afplána dóm sinn í
Skotlandi.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, fagnaði framsali Líbýu-
mannanna og sagði tíu ár vera
langan tíma fyrir aðstandendur
fórnarlambanna til að fá réttlætinu
fullnægt.
----------------
Brátt kosið
í Skotlandi
KOSNINGABARÁTTAN fyrir
fyrstu kosningarnar til skozka
heimastjómarþingsins hófst fyrir
alvöra í gær, mánuði áður en Skot-
ar ganga að kjörborðinu til að velja
hina 129 fulltrúa á þingið, sem
varður það fyrsta sem kallað verð-
ur saman í Skotlandi í 300 ár.
Hvort tveggja Skozki þjóðernis-
flokkurinn (SNP) og Frjálsir
demókratar Skotlands hrintu
sinni kosninabaráttu af stað með
fjöldafundum í gær, en hinir
flokkarnir, Verkamannaflokkur-
inn og Ihaldsflokkurinn þeirra
helztir, hyggjast blása til barátt-
unnar á næstu dögum.
Ekki er búizt við því að neinn
flokkur hljóti hreinan meirihluta á
hinu nýja þingi Skotlands, en tveir
menn munu öðrum fremur verða í
sviðsljósinu í kosningabaráttunni.
Það eru Donald Dewar, Skotlands-
málaráðherra ríkisstjórnarinnar í
Lundúnum, og Alex Salmond, leið-
togi SNP.
Skoðanakannanir benda til að
um fimmtungur kjósenda hafí enn
ekki gert upp hug sinn.
------♦-♦-♦-----
Berezovskí
segist ekki á
leið í steininn
Moskvu. Reuters.
BORIS Berezovskí, aðsópsmikill
rússneskur kaupsýslu- og stjórn-
málamaður, vísaði harðlega á bug í
gær fréttum rúss-
neskra fjölmiðla
þess efnis, að til
stæði að handtaka
hann.
Rússneskar
fréttastofur höfðu
í gær eftir heim-
ildamönnum hjá
öryggismálayfir-
völdum í Moskvu,
að ríkissaksóknari hefði samþykkt
að gefín yrði út handtökuskipun á
hendur Berezovskí á grundvelli
ákæruatriða sem tengdust við-
skiptaumsvifum hans. Ekki reynd-
ist unnt í gær að fá fréttina stað-
festa opinberlega.
„Þeir eiga ekki minnsta mögu-
leika á að ná sinu fram,“ hafði
Interfax eftir Berezovskí, stöddum
í Frakklandi. Hann sagði orðróm
um yfirvofandi handtöku sína eiga
upptök sín hjá „heimskingjum sem
svifust einskis“ og héldu að þeir
gætu skarað eld að eigin köku með
því að fella sig af stalli.
Borís
Berezovskí