Morgunblaðið - 07.04.1999, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999 35
LISTIR
Emil Thomsen ræðst í heildarútgáfu færeysku danskvæðánna
„Dansurin er sprell-
lifandi í Færeyjum“
Fyrstu fímm bindin í heildarútgáfu Bóka-
garðs í Þórshöfn á færeysku danskvæðun-
um, Föroya kvæði, komu út fyrir skömmu
en bækurnar voru prentaðar í Prentsmiðj-
unni Odda. Margrét Sveinbjörnsdóttir sló
á þráðinn til útgefandans Emils Thomsen,
sem er kominn á níræðisaldur en aldeilis
ekki af baki dottinn í bókaútgáfunni.
í FYRSTU þremur
bindunum eru kvæðin
um Sigurð Fáfnisbana,
Sjúrðarkvæðini, eins
og þau nefnast á fær-
eysku, og þá taka við
kvæði um aðra kappa
og hetjur úr fornum
sögum og ævintýrum.
Alls gerir Emil Thom-
sen ráð fyrir að verkið
fylli 40 bindi og eru tíu
bindi til viðbótar nú
þegar tilbúin til prent-
unar.
„Eg byrjaði á þessu
1984, en svo kom
kreppan í Færeyjum
og hún sló allt til jarð-
ar. Svo tók ég aftur upp þráðinn
og nú eru fyrstu fimm bindin kom-
in út,“ segir útgefandinn. Hann
segir það munu velta á undirtekt-
um og sölu, hve geyst hann geti
farið í útgáfuna, því hún verði jú
að bera sig.
Kvæðin tengjast færeyska
dansinuni órofa böndum
Mikill fjöldi danskvæða er varð-
veittur í Færeyjum. Sama og ekk-
ert var skrifað á færeysku fyrr en
á átjándu öld og fram að því höfðu
kvæðin varðveist í munnlegri
geymd mann fram af manni, öld
eftir öld. Kvæðin
tengjast færeyska
dansinum órofa bönd-
um og er talið að það
hafi verið vegna teng-
ingarinnar við dansinn
að kvæðin varðveittust
jafn vel og raun bar
vitni. Sá sem fyrstur
hóf að safna kvæðun-
um var færeyski
fræðimaðurinn og
orðabókarhöfundurinn
Jens Christian Svabo,
sem skrifaði upp fjölda
kvæða áárunum upp
úr 1770. Á nítjándu öld
komst nokkur skriður
á uppskriftir kvæð-
anna og hefur kvæðasöfnun raunar
verið haldið áfram allt fram á síð-
ustu áratugi þessarar aldar.
títgáfa ætluð
almenningi
I lok síðustu aldar var tekið sam-
an mikið kvæðasafn í Kaupmanna-
höfn, 0011303 Carminum Færoensi-
um, þar sem endurritaðar voni all-
ar uppskriftir færeyskra dans-
kvæða sem þá var vitað um, alls 18
handskrifuð bindi. Það safn var
prentað í sex bindum í Kaup-
mannahöfn um miðbik þessarar
aldar en nýlega kom út sjöunda
Emil
Thomsen
bindið með skrám og öðru ítarefni.
Þessi útgáfa er vísindaleg, með ít-
arlegum skýringum.
Útgáfa Bókagarðs, sem nú er að
líta dagsins ljós er ekki vísindaleg,
heldur „fólkaútgáfa", að sögn út-
gefandans. Með því á hann við að
hún sé ætluð almenningi. í henni
eni endurprentuð öll sömu kvæða-
afbrigði og í Corpus Carminum
Færoensium, en á undan hverju
kvæði er stuttur efnisútdráttur.
Auk þess er í fyrsta bindinu ritgerð
um kvæðin eftir Dánjal Niclasen
sem bjó kvæðin til prentunar.
Hjálpseini og áhugi
Islendinga
„Það er athyglisvert og raunar
alveg stórkostlegt að þessi kvæði
hafi öll varðveist í fámenninu hér í
Færeyjum," segir Emil Thomsen
og heldur áfram: „Dansurin er
sprelllifandi í Færeyjum.“ Sjálfum
finnst honum reyndar að almenn-
ingur í Færeyjum hafi ekki nógu
mikinn áhuga fyrir kvæðunum og
því sem hann er að gera. Aftur á
móti segir hann að íslendingar hafi
reynst sér stórkostlega hjálpsamir
og sýnt verkefninu mikinn áhuga.
Kvæðin eru prentuð í Odda eins og
reyndar megnið af þeim bókum
sem hann hefur gefið út á undan-
förnum árum. Þar á meðal era end-
urútgáfur sígildra færeyskra bók-
mennta og þjóðfræða. „Eg elska
Island og Islendinga - þið erað
besta þjóðin í heiminum,“ segir
hann.
Þó að Emil Thomsen sé orðinn
83 ára gamall og hafi skilað drjúgu
dagsverki er hann langt frá því að
vera sestur í helgan stein. En með
útgáfu kvæðanna er gamall og stór
draumur að rætast. Hann er stolt-
ur af því að hafa ekki gefist upp
þegar á móti blés og efnahagur
eyjanna var í rúst. Hann segir
heilsuna nokkuð góða. „En ég þoli
ekki að drekka svo mikið meir,“
segir hann og hlær hátt.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
FUGLAFJARÐAR Sangkór syngur á Flúðum.
Góðir gestir frá
Færeyjum
Hrunamannahreppi - Góðir gest-
ir komu í heimsókn frá Færeyj-
um í síðustu viku. Það var Fugla-
Qarðar Sangkór sem dvaldi hér í
uppsveitum Árnessýslu í nokkra
daga og hélt söngskemmtanir á
þrem stöðum, Flúðum, Skálholti
og Selfossi.
Félagar í Vörðukórnum tóku á
móti gestunum sem sýndu þeim
héraðið í björtu og fögru veðri.
Var m.a. farið að Gullfossi, Geysi
og í Þjórsárdal, einnig að Þing-
völlum í leiðinni til Reykjavíkur.
Gistu gestirnir hjá kórféiögum
Vörðukórsins en kórinn fór til
Færeyja í fyrravor og var nú
verið að endurgjalda góðar mót-
tökur í Fuglafirði.
Anja Niclassen, formaður kór-
stjórnar, tjáði fréttaritara að í
Fuglafirði, þar sem íbúar eru um
1.600 manns, væru starfandi þrír
kórar. Fuglafjarðar Sangkór
sem stofnaður var 1932 en hann
er í raun blandaður kirkjukór,
einnig karlakór og stúlknakór.
Ber mikið á kvenröddum í þess-
um blandaða sönghópi sem í eru
43 kórfélagar. Margar stúlkur
úr stúlknakór þeirra Fuglafirð-
inga færast í Sangkórinn gera
Iiljóminn bjartan.
Á söngskemmtun þessara
tveggja kóra, Fuglafjarðar Sang-
kór og Vörðukórsins, sem haldin
var á Flúðum miðvikudagskvöld-
ið 31. mars, var fjölbreytt laga-
val, bar þó mikið á kirkjulegri
tónlist hjá Færyingunum, var
það í tilefni dymbilvikunnar.
Kórarnir sungu saman þrjú lög á
íslensku og færeysku. Áheyrend-
ur, sem voru margir, gerðu góð-
an róm að söngnum. Eftir söng-
inn var dansað jafnt: að íslensk-
um og færeyskum sið. Stjórnandi
Fuglafjarðar Sangkór er Frits
Jóhannessen en stjórnandi
Vörðukórsins er Margrét Bóas-
dóttir.
-----------------
Sýning-in Tabula
non rasa
í HAFNARBORG, menningar- og
listastofnun Hafnarfjarðar, var opn-
uð sýning 27. mars sl. á málverkum
Björns Bimis, Hlífar Ásgrímsdótt-
ur og Ki-istínar Geirsdóttur. Sýn-
inguna nefna þau Tabula non rasa.
Þau Björn, Hlíf og Ki-istín hafa
öll sýnt áður, verið með einkasýn-
ingar og tekið þátt í samsýningum,
en þetta mun vera í fyrsta skipti
sem þremenningarnir halda sam-
eiginlega málverkasýningu.
Sýningin stendur til 12. apríl og
er opin alla daga nema þriðjudaga
frá kl. 12 til 18.
Hannibal Lecter
snýr loks aftur
RITHÖFUNDURINN Thomas
Harris kom útgefanda sínum í opna
skjöldu fyrir páska þegar hann
skyndilega birtist með handrit
framhaldsbókar um geðlækninn og
raðmorðingjann Hannibal Lecter,
einnar aðalsöguhetju bókarinnar
„The Silence of the Lambs“, sem
kom út árið 1988, og sem kvik-
mynduð var með eftirminnilegum
árangri árið 1991.
Carole Baron, ritstjóri Harris hjá
Delacorte Press-útgáfunni, sagði í
samtali við The New York Times að
hún myndi hraða prentun bókarinn-
ar, sem ber heitið „Hannibal" og
tók höfundinn tíu ár að skrifa, og að
hún yi-ði komin á markað 8. júní
næstkomandi. Óhætt er að segja að
framhalds sögunnar um Hannibal
Lecter hafi verið beðið með eftir-
væntingu en Baron segist ekki hafa
viljað setja þrýsting á rithöfundinn.
„Þótt ég hafi rætt efni handritsins
við Tom á síðustu árum,“ segir Bar-
on, „þá var ég treg til að spyija
hann hvenær hann hygðist binda
endahnútinn á það.“
Þeir sem muna eftir geðlæknin-
um Lecter vita að hann er smekk-
maður á mat og vín en þegar les-
endur bóka Harris komust í tæri
við Lecter í „The Silence of the
Lambs“, og þar áður í „Rauða
drekanum", hafði Lecter tekið að
beita bragðlaukum sínum á all und-
arlegan hátt. I fyrrnefndu bókinni
er því t.d. lýst þegar Lecter hrifsar
í hjúkrunarkonu og borðar úr henni
tunguna án þess þó einu sinni að
hjartsláttur hans taki kipp.
Baron vildi ekki greina frá efni
nýju bókarinnar en sagði þó að
Lecter „fylgdi áhugamálum sínum
eftir“ og að lesendur myndu kynn-
ast söguhetjunni betur og þvi
hvernig Lecter varð eins og hann
varð. I bókinni mun Lecter, sem
slapp úr haldi alríkislögreglunnar
bandarísku í lok „The Silence of the
Larnbs", á ný eiga í höggi við and-
stæðing sinn, lögreglukonuna
Clarice Starling.
Fastlega má gera ráð fyrir að
kvikmyndaverin í Hollywood muni
slást um að fá að gera kvikmynd
eftir bókinni „Hannibal“. Kvik-
myndaútgáfa „The Silence of the
Lambs“ vann til fimm Óskarsverð-
launa á sínum tíma. Hún var valin
besta mynd ársins 1991, Jonathan
Demme var besti leikstjóri ársins,
þau Anthony Hopkins og Jodie
Foster fengu bæði leikaraverðlaun-
in fyrir túlkun sína á Lecter og
Starling og loks fékk Ted Talley
verðlaun fyrir handrit sitt að mynd-
inni.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Islenskra aðalverktaka hf. verður haldinn
fimmtudaginn 15. apríl 1999
í Listasafni íslands og hefst fundurinn kl. 16.00
Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins munu liggja frammi á
skrifstofum félagsins á Keflavíkurflugvelli og í Hátúni 6a, Reykjavík,
hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 14. gr. samþykkta félagsins.
2. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins:
a) Heimilt verði að gefa út híutabréf með rafrænum
________hætti í samræmi við lög nr. 131/1997._____________
b) Varamenn í stjórn verði tveir í stað fimm.
c) Heimild til handa stjórn félagsins að kaupa allt að
10% hlutaijár í félaginu sjálfu.______________
3. Onnur mál, löglega upp borin.
Aðgöngumiðar og fundargögn verða afhent
á fundarstað í fundarbyrjun.
Stjórn íslenskra adalverktaka hf.