Morgunblaðið - 07.04.1999, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999 39
Quinn dómari tekur
til sinna ráða
ERLEJVIIAR
BÆKUR
Spi;nnusaga
EKKJA ÚTFARARSTJÓRANS
„THE UNDERTAKER’S WIDOW“
eftir Phillip Margolin. Bantam Books
1999. 324 síður.
LAGATRYLLIRINN virðist
lifa ágætu lífi í spennusögum
Phillip Margolins ef eitthvað er að
marka þessa nýjustu sögu hans,
Ekkju útfararstjórans eða „The
Undertaker’s Widow“, sem kom
út í vasabroti í síðasta mánuði hjá
Bantam-útgáfunni. Þeir sem halda
að John Grisham hafi einkarétt á
lagati-yllinum ættu að kynna sér
manninn. Þeir hafa svipaðan bak-
grunn, Margolin er lögfræðingur
eins og Grisham, en hann starfaði
mun lengur í réttarsölunum en
kollegi hans eða í aldarfjórðung
áður en hann sneri sér að spennu-
sagnaskrifum. Reynsla hans sem
lögfræðings í glæpamálum leynir
sér ekki á síðum bókarinnar.
Hann skrifar eins og sá sem valdið
hefur og tekst að búa til bæði
spennandi og flókna fléttu um
dómara er lendir í bragðvondu
þegar reynt er að hafa áhrif á
hvernig hann dæmir í viðkvæmu
morðmáli.
Traust lagaþekking
Ekkja útfararstjórans er sjötta
bók höfundarins en áður hafa kom-
ið út eftir hann sögur eins og „Aft-
er Dark“ og „The Burning Man“
og „The Last Innocent Man“ og
hefur þeim verið líkt við hin ýmsu
verk allt frá „The Firm“ eftir Gris-
ham til Með köldu blóði eftir
Truman Cabote. Phillip Margolin
býr í Portland í Oregon þar sem
nýjasta sagan gerist. Þeir sem hafa
áhuga á lagatryllum sérstaklega
verða varia fyrir vonbrigðum með
Ekkju útfararstjórans. Hann fer
nokkuð nákvæmlega eftir þeirri
formúlu sem höfundar lagatrylla
hafa samið á undan honum og er
kannski ekki sérlega frumlegur en
hann kann að búa til fína afþrey-
ingu með lagaþekkingu sinni og
samsafni af persónum sem áhuga-
vert er að fylgjast með klóra sig út
úr vandræðum.
Og næg eru vandræðin. Fjöldinn
allur af persónum kemur við sögu
en ef einhvem ein aðalpersóna er í
bókinni þá heitir hún Richard Qu-
inn og er dómari, ungur og enn
með hugsjónir sem hann telur ein-
hvers virði, vel virtur og svo heið-
arlegur og samviskusamur að hann
tekur út fyrir að kveða upp dóma.
Hann fær inn á borð til sín morð-
mál sem æsifréttafjölmiðlamir
gera sér einatt mat úr. Frambjóð-
andi til bandaríska þingsins, Ellen
Crease að nafni, hefur skotið til
bana innbrotsþjóf sem myrti eigin-
mann hennar en lögreglan kemst
að því að ekki er allt sem sýnist.
Þingmannsefnið erfir gríðarlegar
eignir eftir mann sinn og ungur
sonur hins myrta og stjúpsonur
hinnar grunuðu, sem fékk nánast
ekki krónu, sakar hana um að hafa
fengið innbrotsþjófinn til verksins.
Vísbendingar í blóðslettum
Ymsar vísbendingar verða til
þess að þingmannsefnið er ákært
fyrir morðið á eiginmanni sínum og
hefst þá ansi forvitnileg barátta í
réttarsalnum en um leið tekur sag-
an æ meira að beinast að dómaran-
um Quinn. Hann verður fyrir þeirni
óþægilegu reynslu að ung kona
sem hann kynnist örstutt í ráð-
stefnuferð finnst látin, myrt á hinn
hroðalegasta hátt, og hann er sá
eini sem fær að vita það. Honum
era sýndar ljósmyndir af þeim
saman og síðan af henni myrtri og
ef hann ekki dæmir eins og honum
er sagt, muni myndirnar verða
settar í dreifingu.
Margt verður til þess að Quinn
getur ekki snúið sér til lögreglunn-
ar og verður sjálfur að fara á stúf-
ana og eiga við sína eigin samvisku
þegar kemur að því að úrskurða í
málinu. Allt þetta byggir Margolin
upp á mjög fagmannlegan hátt og
gætir þess að missa aldrei dampinn
í frásögninni, sem verður æ flókn-
ari eftir því sem á líður. Og hann
þekkir sitt fag. Stórt atriði í öllum
málatilbúnaðinum er vísindagrein
innan glæparannsókna sem snýr
að því hvemig blóð slettist við
skotsár með tilliti til stöðu þess
sem skýtur og þess sem verður
fyrir skotinu. Eða með öðrum orð-
um: Það getur skipt máli hvernig
blóðdropinn sem lendir á sjón-
varpstækinu er í laginu þegar
ákvarða þarf sekt eða sýknu.
Arnaldur Indriðason
BMB
Hugmyndasaga
stjórnmála
VORFERÐ TIL
VÍNARBORGAR
BÆKIJR
Fræðirit
HUGSUÐIR STJÓRNMÁLA
Ritstjóri Maurice Cranston. Þýðandi
Haraldur Jóhannsson. 119 bls. Sir
James Steuart og þjóðhagsfræði hans
eftir Harald Jóhannsson. Reykjavík,
Akrafíall. 16 bls. 1998.
ÞESSI tvö litlu kver fjalla um
mikilsverð efni: áhrifamestu
stjórnmálahugsuði í
sögu vestrænnar
hugsunar og uppi-
stöður kaupauðgis-
stefnunnar í kenn-
ingum eins mikils-
verðs höfundar
hennar.
Haraldur Jó-
hannsson hefur
þýtt ritgerðasafn úr
ensku eftir vel
þekkta heimspek-
inga í hinum ensku-
mælandi heimi.
Hver ritgerð fjallar
um einn stjórn-
málahugsuð. Þeir
hugsuðir sem hér
um ræðir era Platón, Aristóteles,
heilagur Tómas frá Akvínó, Machi-
avelli, Hobbes, Locke, Rousseau,
Burke, Hegel, Marx, Mill. Fyrir þá
sem þekkja til þá er þetta mikið
mannval og þessir hugsuðir hver
öðram merkari. Ritgerðirnar era
allar stuttar og gera grein fyrir fá-
einum aðalatriðum. Nokkrir höf-
undar þeirra era í hópi merkari
heimspekinga á enska tungu á síð-
ari hluta tuttugustu aldar.
Frægastur þessara höfunda hefur
orðið Alasdair Maclntyre en á
þeim tíma sem hann skrifaði þess-
ar greinar var hann ungur há-
skólakennai-i og hafði skilað
nokkrum verkum sem vakið höfðu
athygli. En þetta greinasafn kom
út fyrir 35 áram og ber þess nokk-
ur merki.
Það era ýmsar leiðir til að gera
grein fyrir hugmyndum þessara
hugsuða í stuttu máli. Mér virðist
að höfundarnir komist yfirleitt
vel frá því enda allir sérfræðingar
í efninu sem þeir fjalla um. En
það eru samt gallar á þessu rit-
gerðasafni. í fyrsta lagi þá er það
orðið gamalt og viðhorf til þess-
ara hugsuða hafa breytzt og
áherzlur í rannsóknum era aðrar
nú en fyrir tæpum fjörutíu árum.
I öðru lagi er þýðingin ekki
hnökralaus og orðalag stundum
stirt og um of mótað af frumtext-
anum. í þriðja lagi þá skrifar
þýðandinn, Haraldur Jóhanns-
son, inngang þar sem leitazt er
við að setja þessa hugsuði í sögu-
legt samhengi en mér er til efs að
lesandi sem lítið veit um efnið
fyrir sé nokkru nær
að lestri inngangs-
ins loknum.
Haraldur Jó-
hannsson hefur
samið stuttan bæk-
ling um Sir James
Steuart sem telja
má einn af síðustu
málsvöram kaup-
auðgigstefnunnar
sem svo hefur verið
nefnd á íslenzku, á
erlendum málum
merkantílismi, en
Sir James gaf úr
árið 1767 bók sem
nefndist Rannsókn-
ir á meginreglum
stjórnmálahagfræði. Það er verð-
ugt viðfangsefni að gera sögulega
og hagfræðilega grein fyrir þess-
um fræðum sem voru undanfari
frjálshyggju eða frjálslyndis Ad-
ams Smiths en sú stefna má heita
að hafi verið forsenda hagfræði
síðan Adam Smith gaf út sína
frægu bók um auðlegð þjóðanna
árið 1776. Þessir tveir menn vora
Skotar og hluti þeirrar merkilegu
sögulegu hreyfingar sem var upp-
lýsingin í Skotlandi sem var ekki
síður glæsileg en suður á Frakk-
landi.
Kaupauðgisstefnan beindi at-
hygli sinni að margvíslegum þátt-
um efnahagsmála svo sem fólk-
fjölda, verzlun, mynt, peningum
bönkum og sköttum svo eitthvað
sé nefnt. En aðalatriði hennar
voru þau að hún var þjóðern-
issinnuð, gekk út á að hvert ríki
ætti að efla auð sinn með því að
flytja út sem mest en inn sem
minnst og mismunurinn væri pen-
ingaleg eign þjóðarinnar. Til að ná
þessu marki áttu vextir að vera
lágir og laun einnig sem hefðu í
Haraldur
Jóhannsson
för með sér að vara frá landinu
væri auðseljanlegri en vörar ann-
ars staðar frá vegna lágs verðs.
David Hume, heimspekingur og
einn merkilegasti höfundur
skozku upplýsingarinnar, sýndi
fram á í einu rita sinna að það
væri hugtakaraglingur að leggja
auð að jöfnu við peningalega eign.
Það er ein ástæða til að hafna
kaupauðgisstefnunni.
Þessara atriða sér stað í þessu
litla kveri en það er samt svo
óskýrt í framsetningu að það er
erfitt að ráða í málið. Það er að
stofni til þýðingar á stuttum köfl-
um úr riti Sir James sem höfundur
skeytir saman. Þýðingarnar era
oft og iðulega óskýrar og texti höf-
undarins bætir litlu við. En það er
verðugt viðfangsefni að segja
þessa sögu því að þau þjóðernis-
legu sjónarmið sem einkenndu
kaupauðgisstefnuna eiga enn
hljómgrann meðal almennings og
ýmissa fulltrúa hans á Islandi nú-
tímans. Saga getur verið lærdóms-
rík skuggsjá nútímans.
Guðmundur Heiðar Frímannsson
Hinn 12. maí næstkomandi býður Ferðaskrifstofa
Guðmundar Jónassonar stutta vorferð í beinu
leiguflugi til hinnar heillandi og fögru Vínarborgar.
Vínarborg er ein helsta menn-
ingarborg Evrópu og á hún ser
langa og litríka sögu. Þar var
framrás Tyrkja stöðvuð árið
1683, þar vom landamæri Evr-
ópu dregin á Vínarfundinum
1815 og þaðan era upprannin
Sacher-terta, vínarsnitsel og
vínarvalsar.
Farið verður til Vínar hinn 12.
maí og komið aftur að kvöldi
þess 15. maí.
Verð á mann er 47.900
krónur og er innifalið flug,
flugvallarskattar, akstur milli
flugvallar og hótels, gisting í
tveggja manna herbergi, morg-
unverður, skoðunarferð um
borgina og íslensk fararstjóm.
Leitið nánari upplýsinga hjá utanlandsdeild okkar
1 Fe r&atkri Mofa
GUÐMUNDAR JÖNASSONAR EHF.
Borgartúni 34, sími 511 1515
C3
jýLÍÖO í|
CrglOÁlAS|)0 Í D LnÍllíÁ
ölskyldunni
rfirði
v. ,i...
Fjölskyldan he
heimili, an þes
aðstandendur
REIKN.NR
1101-26-12000
FJARGÆSLUAÐILI: SPARISJOÐUR HAFNARFJARÐAR