Morgunblaðið - 07.04.1999, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999 41
MENNTUN
Hver með eigin
lestraraðstöðu
Tannlæknadeild Há-
skóla Islands hefur það
hlutverk að mennta og
þjálfa tannlækna
til kandídatsprófs
í tannlækningum.
Námið tekur sex
ár. I húsakynnum
deildarinnar fer
einnig fram
kennsla í tann-
smíði við Tann-
smíðaskóla ís-
lands. Námsbraut
aðstoðarfólks tannlækna frá
Fjölbrautaskólanum í Armúla
hefur einnig aðsetur í húsa-
kynnum deildarinnar.
„Til tannlæknanáms er
krafist stúdentsprófs, seg-
ir Peter Holbrook, kenn-
ari við deildina. „í lok
fyrsta misseris taka nem-
endur samkeppnispróf og
öðlast sex efstu rétt til að
halda áfram námi við deildina.
Tannlæknadeildin leggur metnað
sinn í að nemendur njóti sín á með-
an á námi stendur, að þeir séu vel
undirbúnir fyrir atvinnulífið séu vel
upplýstir um allar nýjungar innan
greinarinnar. Hver nemandi hefur
kost á sinni eigin lestraraðstöðu og
getur haldið henni út námsferilinn.
Innan deildarinnar bjóðast nem-
endum fjölmörg tækifæri til að
kynna verkefni sín og rannsóknir.
Sem dæmi geta nemendur kynnt
verk sín í erlendum rannsóknar-
samkeppnum og átt í samskiptum
við nemendur í erlendum skólum.
Deildin býður nú upp á meistara-
og doktorsnám og hefur samhliða
því unnið markvisst að efl-
ingu rannsókria innan
hennar. Margir nemendur
deildarinnar hafa stundað
framhaldsnám á erlendri
grundu og hafa þeir til
dæmis farið til Bandaríkj-
anna í þeim tilgangi. Hef-
ur deildin margsinnis fengið stað-
festingu á því að námið sem hún
býður upp á sé sambærilegt við það
besta sem er í boði erlendis."
Peter segir félagslíf innan deild-
arinnar vera fjölbreytt. Nemend-
urnir eru félagar í Félagi íslenskra
tannlæknanema. Innan þess eru
reglulega haldin íþróttamót, farið í
vísindaferðir og haldin jólaglögg og
árshátíðir.
„Tannlæknar á íslandi hafa ávallt
búið við starfsöryggi og örugga af-
komu,“ segir Peter Holbrook að
lokum.
KIRKJUHVOLI
Viö Dómkirkjuna-sími 551 2040
—-—— ------1 — -** -r ; 7-
Falleg og gagnleg fermingargjöf
Ensk-íslensk orðabók
34.000 ensk uppflettiorð
Islensk-ensk orðabók
35.000 íslensk uppflettiorð
2.200 blaðsíður
Saman í fallegri gjafaöskju
á aðeins kr. 3.990
Gagnleg og glæsileg fermingargjöf,
sem nýtist vel í nútíð og framtíð
Fæst hjá öllum bóksölum
Orðabókaútgáfan
Síðasta skólaárið
í núverandi mynd
SKOLAARIÐ 1999-2000 verður
það síðasta í núverandi mynd hjá
Leiklistarskóla Islands, þar sem
hann mun ganga
inn í Listahá-
skóla íslands á
næstu misseram.
Að sögn Snæ-
bjargar Sigur-
geirsdóttur, kennara við
Leiklistarskólann, liggur ekki
ljóst fyrir hvernig staðið
verður að náminu í framtíð-
inni eða hversu margir nem-
endur verða teknir inn árið
2000.
Inntökupróf eru þegar
langt á veg komin fyrir skóla-
árið 1999-2000 og verður ljóst
skömmu eftir páska hvaða
átta nemendur fá inngöngu í
í skólann.
Hlutverk skólans er að þroska
leiklistarhæfileika nemenda og
þjálfa þá til leiklistarstarfa. Um er
að ræða fjögurra ára nám og er
fjórða árið starf í Nemendaleikhúsi
skólans. Hvert skólaár er 35 vikur.
Kennt er að jafnaði 45 kennslu-
stundir á viku og hafa nemendur
100% mætingaskyldu.
Um það bil helmingur kennsl-
unnar er leiktúlkun en auk þess er
lögð rík áhersla á þjálfunargreinar
sem era: Almenn líkamsþjálfun,
einstaklingsbundin líkamsþjálfun
og líkamsbeiting, fim-
^ leikar, skylmingar,
fc* hreyfingaspuni, stíl-
r^g*‘"****r hreyfmg, dans, slökun,
G* hljóðmótun, raddþjálf-
un, textameðferð,
framsögn, upplestur, ljóðalestur og
söngur.
Fræðigreinar í skólanum eru
einkum kenndar á fyiTÍ hluta náms
og eru þær: íslenska, listasaga,
innlend og erlend leiklistarsaga,
tónmennt og tónlistarsaga. A
seinni hluta náms era einnig stutt
námskeið í ýmsum greinum leik-
listar.
Námsárinu er skipt í annir og á
hverri önn er unnið að einu eða
fleiri verkefnum. í lok annar era
verkefni sem unnið hefur verið að
kynnt og nemendur fá umsagnir
kennara. Kennarafundur metur
hvort nemandi hefur staðist ein-
staka námsáfanga. A meðan á
náminu stendur, vinna nemendur
einnig sjálfstætt að verkefnum og
sýna kennuram. Að loknu 3 ára
námi starfa nemendur í nemenda-
leikhúsi og vinna að sýningum sem
þeir sýna opinberlega.
ORÐABÆKURNAR
Þýsk
islensk
íslensk
orðobók
orðsbék
Frönsk
íslensk
íslensk
orðabák
orðnbék
orðabók
íslensk
ensk
orðobók
English-Icelandic
Dittionory
Ohtionary
BERUTZ’
Seiriírgaínaf tn-ti di
karros* ii
Ódýrar og góðar orðabækur fyrir skólann,
ó skrifstofuna og í ferðalagið
ORÐABÓKAÚTGÁFAN %%%