Morgunblaðið - 07.04.1999, Blaðsíða 45
14 MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999 45
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
AÐSTOÐ VIÐ
FLÓTTAMENN
RÍKISSTJÓRNIN ákvað í gærmorgun að aðstoða
flóttamenn frá Kósóvó og senda Fokker Landhelgis-
gæzlunnar þangað suður með hjálpargögn, m.a. teppi, mat-
væli og vatn. Til baka á flugvélin að taka 20 til 25 flótta-
menn, sem fá hæli hérlendis um stundarsakir vegna þeirra
ógnana sem þeir hafa þurft að sæta af hendi Serba. Ætlun
ríkisstjórnarinnar er að taka á móti til bráðabirgða allt að
100 flóttamönnum frá Kósóvó á þessu ári, ef boð um það
verður þegið.
Ofsóknir Serba gegn fólki af albönskum uppruna í Kó-
sóvó eru hrikalegar og svífst stjórnin í Belgrad greinilega
einskis við að hrekja það burt frá átthögum sínum. Heims-
byggðin stendur agndofa og fylgist með þessum ótrúlegu
atburðum, sem enginn gat látið sig dreyma um að gerðust
eftir þá hryllilegu útrýmingu, sem nazistar á dögum
Hitlers stóðu fyrir á þjóðarbrotum og minnihlutahópum í
Evrópu.
Það er rétt sem Robert Cook, utanríkisráðherra Breta,
sagði um páskahátíðina, að hér er í raun ekki um að ræða
flóttamannavandamál í skilningi þess orðs, heldur skipu-
lega nauðungarflutninga heillar þjóðar. Sú siðferðilega
skylda hvílir því á nágrönnum þessa fólks, og raunar öllum
þjóðum Evrópu, að hlaupa undir bagga með því á meðan
vandamál þess verða leidd til farsælla lykta. Það er með
öllu óhugsandi að unnt sé að semja við valdhafana í
Belgrad og því eiga þjóðir Atlantshafsbandalagsins einskis
annars úrkosti en knýja þá til algjörrar uppgjafar.
Viðtaka flóttamanna nú hlýtur að vera tímabundin á
meðan NATO-þjóðirnar vinna að því að þetta fólk geti flutt
aftur til sinna heimkynna. Þar vill það búa áfram í sátt og
samlyndi við önnur þjóðarbrot í Kósóvó, eins og það hefur
gert allt frá lokum síðustu heimsstyrjaldar. Sjónarmið
þeirra, sem dregið hafa í efa að skynsamlegt sé að flytja
fólkið á brott, þótt um takmarkaðan tíma sé að ræða, á
vissulega rétt á sér og er kannski að töluverðu leyti í sam-
ræmi við viðhorf flóttamannanna sjálfra.
Viðbrögð ríkisstjórnar íslands eru í takt við þær ráð-
stafanir sem aðrar þjóðir Evrópu eru nú að gera til þess að
leysa neyð þessa ógæfusama fólks frá Kósóvó.
OPNARIHÁSKÓLI
OFT HEFUR VERIÐ talað um mikilvægi þess að tengsl
háskólanáms og atvinnulífs væru mikil og góð. Raunhæft
skref í þá átt hefur verið tekið með fímmtán nýjum, stuttum
og hagnýtum námsleiðum við Háskóla íslands. Akveðið hefur
verið að kalla námið diplómanám en það mun taka að jafnaði
eitt og hálft ár og lýkur með sjálfstæðu prófí eða diplómu.
Með þessu móti vill Háskóli íslands koma til móts við aukna
eftirspurn eftir háskólanámi og þarfir þeirra sem eru ekki til-
búnir til að hefja langt háskólanám. Nýju námsleiðirnar eiga
einnig að auka tengsl stofnunarinnar við atvinnulífíð en sum-
ar þeirra verða að hluta fjármagnaðar af atvinnulífinu.
Tengsl Háskólans við atvinnulífíð hafa verið að aukast með
ýmsum hætti á undanförnum árum. Tengslin hafa þó kannski
fyrst og fremst verið á sviði rannsókna en einnig hefur hann
aukið ýmiss konar þjónustu við hin ýmsu svið atvinnulífsins.
Skólinn hefur hingað til fyrst og fremst haft í boði
akademískt, fræðilegt nám sem um leið má segja að sé frum-
skylda hans. Hinar nýju námsleiðir munu því tengja skólann
við atvinnulífíð á annan og að vissu leyti beinni hátt en áður.
Þar verða nemendur undirbúnir undir starf á ýmsum sviðum
atvinnulífsins, svo sem í rekstri sjávarútvegsfyrirtækja og
tölvukerfa, í ferðamannaiðnaði og í almennum fyrirtækja-
rekstri. Einnig verður í boði nám sem undirbýr nemendur
undir ákveðin verkefni, svo sem eins og þýðingar, upplýsinga-
stjórnun og stjórnun uppeldis- og félagsstarfs.
Ljóst má vera að Háskóli íslands er að auka breidd sína
mjög með hinum nýju námsleiðum. Hann er ekki aðeins að
opna sig meira gagnvart atvinnulífínu heldur einnig fyrir
nemendum sem annars myndu ekki eiga svo margi’a kosta völ
í menntakerfinu. Eins og fram hefur komið verður hægt að
stemma stigu við brottfalli úr námsgreinum sem tekur þrjú
ár eða lengri tíma að ljúka með þessari viðbót í námsframboði
skólans. Um leið er óhætt að segja að styrkur Háskóla ís-
lands aukist. Þessu ber að fagna mjög.
/
Akvörðun um staðsetningu Sundabrautar verður tekin á næstu vikum
•Mim?
Hvaða leið
er best yfir
Kleppsvík?
s
A næstu vikum verður tekin ákvörðun um
hvaða leið verður valin yfir Kleppsvík, en
hún er fyrsti áfangi Sundabrautar. Þessi
ákvörðun er vandasöm því hún hefur áhrif á
skipulag og umhverfí Reykjavíkurborgar.
Egill Olafsson kannaði kosti og galla til-
lagnanna og beindi sérstaklega athyglinni
að jarðgöngum undir Kleppsvík.
STEFNT er að því að í
vor liggi fyrir ákvörðun
um hvaða leið verður
farin yfír Kleppsvík, en
vegur yfír víkina er
fyrsti áfangi svokallaðr-
ar Sundabrautar. Mörg tæknileg og
skipulagsleg vandamál fylgja þver-
un Kleppsvíkur. Formaður bygg-
ingarnefndar Reykj avíkurborgar
vill láta skoða gerð jarðganga undir
Kleppsvík, en sérfræðingar sem
undirbúið hafa málið efast um að
slík lausn henti.
Ákvörðun um byggingu Sunda-
brautar á eftir að hafa mikil áhrif á
skipulag og umhverfí Reykjavíkur-
borgar. Það vekur því nokkra furðu
hvað lítil umræða á sér
stað um hvaða leið henti
best fyrir borgarbúa og
aðra þá sem aka til og
frá henni, en aðeins
nokkrar vikur eru í að
ákvörðun um leiðina
verði tekin. Stefnt er að
því að hefja framkvæmdir 2001 og
að lokið verði við fyrsta áfangann,
þverun Kleppsvíkur, árið 2003.
Sundabraut hefur áhrif á
skipulag borgarinnar
Samkvæmt skipulagi verður að-
aluppbygging Reykjavíkur á aust-
ursvæðum borgarinnar á næstu
áratugum. Fram til 2008 verður
byggt í Grafarholti, Hamrahlíðar-
löndum og á Norðlingaholti, auk
þess sem lokið verður við uppbygg-
ingu í Grafarvogshverfum. I fram-
haldi af uppbyggingu þessara
hverfa er fyrirhugað að byggja í
Geldinganesi og Álfsnesi, en bygg-
ing Sundabrautar er forsenda fyrir
uppbyggingu í þessum hverfum.
Sem kunnugt er eiga íbúar í Graf-
ai-vogi í miklum erfiðleikum með að
komast úr og í hverfið á álagstím-
um. Staðan mun batna til muna þeg-
ar lokið verður við byggingu Gullin-
brúar síðar á þessu ári. Það er þó
talið að tvöföldun Gullinbrúar dugi
aðeins í nokkur ár. Halda vei’ði
áfram uppbyggingu umferðarmann-
virkja ef þau eigi að anna umferð til
og frá austurhverfum borgarinnar.
Auk þess veldur mikil uppbygging á
hafnarsvæðinu auknu álagi á núver-
andi umferðarmannvirki, sem aftur
kallar á öflugri umferðarmannvirki
út úr borginni fyrir þungaflutninga.
Á höfuðborgarsvæðinu búa í dag
um 167 þúsund manns.
Því er spáð að íbúarnir
verði orðnir 196 þúsund
árið 2008 og 236 þúsund
árið 2027. Fjölgunin verð-
ur fyrst og fremst í aust-
urhverfunum og í sveitar-
félögunum sunnan við
Reykjavík.
Ef hins vegar væri tekin ákvörð-
un um að flytja Reykjavíkurflugvöll
og fara út í umfangsmikla uppfyll-
ingu á sundunum við Orfirisey væri
hægt að fresta uppbyggingu á Geld-
inganesi og Álfsnesi og þá er hugs-
anlega grundvöllur íyrir því að
fresta eða hætta við Sundabraut.
Ákvörðun um að fara út í byggingu
Sundabrautar hlýtur því að draga
úr líkum á að farið verði út í um-
fangsmiklar uppfyllingar við strönd
Reykjavíkur.
Mælt með leið 3
Verkfræðingar og aðrir sérfræð-
ingar í vegagerð hafa í þrjú ár skoð-
Mörg vanda-
mál fylgja
þverun
Kleppsvíkur
Andriðsey
Amarholt
Grundar-^
hverfi
KjaLapés/
Skógrækt
=5^? Mógilsá
Saltvík
Brimncs
Álfsn'es ■
Alfsaes
Sundabraut
'Vfðitíes
Gunnunes
Leiruvogur
Geldinga-
nes i
Eiðsvik /
að ítarlega ýmsar leiðir fyrir Sunda-
braut og unnið að frumhönnun á
mannvirkjum. Nýlega skilaði vinnu-
hópur, sem í sátu fulltrúar frá
Reykjavíkurborg og Vegagerðinni,
skýrslu þar sem mælt er með svo-
kallaðri leið 3 yfir Kleppsvík. Hóp-
urinn hefur nú lagt málið í hendur
stjórnmálamanna hjá ríki og borg
og falið þeim að taka pólitíska
ákvörðun um leiðina. Málið er hins
vegar að mörgu leyti flókið og því
heyrast raddir, bæði í hópi embætt-
ismanna og stjórnmálamanna, um
að ekki sé búið að undirbúa málið
nægilega vel í hendur stjórnmála-
manna. Skoða þyrfti málið betur og
skýra þá kosti sem eru fyrir hendi.
Málið er lagt þannig upp að um
tvær meginleiðir sé að ræða yfir
Kleppsvík. Þegar búið sé að velja á
milli þeirra sé hægt að ákveða hvers
konar mannvirki sé best að byggja.
Málið er hins vegar flóknara því að
kostnaður við framkvæmdir hlýtur
eðlilega að hafa áhrif á leiðarvalið.
Vilji menn t.d. byggja jarðgöng í
stað brúar kæmi leið 3 tæpast til
greina.
Sundabraut kom íyrst inn á aðal-
skipulag Reykjavíkur árið 1984 og
er gert ráð fyrir að hún liggi frá Sæ-
braut, samkvæmt leið 1, yfir í Gufu-
neshöfða, yfir Geldinganes og þaðan
yfir Leirvoginn og tengi Álfsnesið
við borgina. Þaðan er fvrirhugað að
brautin liggi yfir Kollafjörð og tengi
Álfsnesið við Kjalarnesið. Þetta er
gífurlega mikil og kostnaðarsöm
framkvæmd. Kostnaðaráætlun
hljóðar upp á 9-16 milljarða. Fyrsti
áfangi er hins vegar þverun Klepps-
víkur og er í þessari grein fyrst og
fremst fjallað um hana, en kostnað-
ur við hana er áætlaður 4-10,5 millj-
arðar eftir því hvers konar mann-
virki verður byggt.
Ef byggja á brú yfir Kleppsvíkina
þá leið sem gert er ráð fyrir að fara
á aðalskipulagi, þ.e. frá Sæbraut við
Holtagarða yfir í Gufuneshöfða,
þarf brúin að vera 50 metra há svo
að vöruflutningaskip geti siglt undir
hana. Einnig er hugsanlegt að
byggja lægri brú sem hægt væri að
lyfta upp að hluta fyrir skipaumferð
því nauðsynlegt er að tryggja skip-
um áfram leið að hafnarsvæðinu við
Vogabakka, Holtabakka og Ártúns-
höfða. Auk þess eru á þessu svæði
miklir möguleikar á stækkun hafn-
arinnar. Áætlað er að stækka
Sundahöfn úr 72 hekturum í 126
hektara fýrir árið 2016. Frá sjónar-
hóli borgarinnar má brú yfir
Kleppsvík ekki skerða vaxtarmögu-
leika hafnarinnar eða setja tak-
markanir á núverandi starfsemi í
Sundahöfn.
Til að uppfylla þessi skilyrði þarf
því að byggja gríðarlega stóra brú.
Hún yrði ekki aðeins mjög dýr í
byggingu, en hún myndi kosta sam-
tals 8,5-10,5 milljarða, heldur yrði
hún mjög áberandi í borgarmynd-
inni. I áfangaskýrslu vinnuhópsins
segir að ef vel tækist til við hönnun
brúarinnar gæti hún orðið borgar-
prýði. Víst má þó telja að brúin yrði
í andstöðu við þá sem vilja að sem
minnst fari fyrir umferðarmann-
virkjum í Kleppsvíkinni.
Færa verður brúarstæðið
ef lækka á kostnaðinn
Menn hafa því reynt að finna aðr-
ar leiðir sem eru ódýrari og ekki
eins áberandi. Ef reyna á að komast
af með minni og ódýrari brú er ekki
um annað að ræða en að færa brúar-
stæðið inn fyrir hafnarsvæðið. Sá
kostur sem menn hafa einkum horft
á í þessu sambandi er svokölluð leið
3. Hún gerir ráð fyrir brú eða land-
fyllingu frá Sæbraut, á móts við
Skeiðarvog, yfir í Gufuneshöfða. Sá
möguleiki hefur verið skoðaður að
fara í gegnum höfðann með jarð-
göngum. Áætlaður heildarkostnað-
ur við þessa leið er 4,5-6,5 milljarð-
ar.
Þessari leið íylgja ýmis vegtækni-
leg vandamál. Sundabraut kæmi þá
beint á Skeiðarvog, sem er gata sem
þolir ekki meiri umferð. Skoðaður
hefur verið sá möguleiki
að setja hluta Skeiðar-
vogs í stokk, en götu-
tengingar við stokkinn
eru hins vegar erfiðar.
Mestar líkur eru á að
reynt verði að leysa þetta
vandamál með því að beina umferð-
inni sem mest um Sæbraut. Þessi
leið þjónar ekki eins vel norðaustur-
hverfunum og miðbænum eins og
leið 1 gerir. Gatnamótin við Sæ-
braut yrðu betri á leið 1 en leið 3 að
mati skýrsluhöfunda. Biðtími á
gatnamótum yrði lengri á leið 3.
Stefán Hermannsson borgarverk-
fræðingur viðurkennir að ákveðin
vandamál fylgi þessari leið, en hann
telur að hægt sé að leysa þau á hag-
kvæman hátt. Hann segir að tals-
verð vinna sé eftir í að útfæra þessa
leið, en í hana verði ekki farið fyrr
en tekin hafi verið pólitísk ákvörðun
um hvaða leið verður valin.
Ef fara á leið 3 þarf að kaupa upp
land og eignir við Kleppsmýrarveg
og í nágrenni hans. Kostnaður við
þetta er áætlaður um 640 milijónir.
Á þessu svæði eru Olíufélagið hf.,
Húsasmiðjan og fleiri íyrirtæki með
starfsemi. Færa þarf hluta af þess-
ari starfsemi burt og einnig er
reiknað með að fyrirtæki verði fyrir
röskun vegna framkvæmdanna.
Kaup á einbýlishúsum eru með í
þessari tölu, en ekki er útilokað að í
deiliskipulagi verði hægt að komast
hjá því að fjariægja þau. Fyrirhug-
að er að setja Sundabraut í stokk
frá Sæbraut og austur fyrir Skútu-
vog/Súðaivog. Stokkurinn yrði um
450 metra langur. Með þessu móti
yrði Sundabrautarumferðin leidd
framhjá hafnarsvæðinu.
Áhugi á
landmótunarleið
Þriðji kosturinn, sem skoðaður
hefur verið, er svokölluð landmótun-
arleið. Hún byggist í meginatriðum
á leið 3, en gert er ráð fyrir róttæk-
um breytingum á landnotkun á Ár-
túnshöfða og miklum fyllingum við
Elliðaárósa. Flytja þyrfti í burt
starfsemi Björgunar hf. og annarra
jarðefnafyrirtækja við Ártúnshöfða.
Hins vegar yi’ði til skemmtilegt
svæði við Elliðaárósa, sem væri
hægt að nota undir íbúðabyggð.
Hætt er hins vegar við að erfiðlega
gæti gengið að fá samþykkt um-
hverfismat fyrir þennan kost m.a.
vegna þess hvað hún kall-
ar á miklar breytingar á
Elliðaárósum. Á móti má
nefna að þau jarðefnafyr-
irtæki sem eru staðsett
þarna í dag eru kannski
ekki heppilega staðsett
og það gæti verið hluti af
endurreisn Elliðaá að flytja þau í
burtu. Jafnframt má geta þess að
ósasvæðið er að breytast, en þar
hafa verið að hlaðast upp grynning-
ar. Kostnaður við landmótunarleið
er áætlaður 5,2 milljarðar.
Fjórði kosturinn er að hverfa frá
byggingu brúar yfir Kleppsvík og
sprengja þess í stað jarðgöng undir
víkina. Þessi lausn er að mörgu leyti
áhugaverð vegna þess að jarðgöng
eru ódýrari en brú. Okosturinn við
jarðgöng á þessum stað er sá að
Kleppsvík er djúp og í botni hennar
eru setlög. Fara þyrfti því með
göngin niður á 80 metra dýpi, sem
aftur þýðir að göngin yrðu nokkuð
brött. Til að draga úr brattanum er
því nauðsynlegt að setja beygjur á
göngin, en við það lengjast þau um
einn kílómetra. Stysta vegalengd
milli Sæbrautar og Gufuneshöfða er
1,5 kílómetrar, en jarðgöng yfir
Kleppsvík yrðu að vera a.m.k. 2,5
kílómetra löng.
Skiptar skoðanir á
jarðgöngnm
Dr. Ríkharður Kristjánsson,
framkvæmdastjóri Línuhönnunar
hf., aðalráðgjafa við hönnun Sunda-
brautar, segir að þessi lenging leiði
til þess, að arðsemi ganganna verði
minni því ávinningur ökumanna
verði minni ef þeir þurfi að lengja
leið sína yfir Kleppsvík
um einn kílómetra. Hann
telur því ekki hagkvæmt
að leysa málið með jarð-
göngum.
Hægt er að komast hjá
því að hafa beygjur á
göngunum með því að færa ganga-
munnann inn á landið. I því sam-
bandi hefur aðeins verið skoðað að
hafa gangamunnann við enda Kr-
inglumýrarbrautar. Göngin yrðu þá
4 km löng og kostnaður við þau 3,5-
4 milljarðar. Oskar Bergsson, for-
maður byggingarnefndar Reykja-
víkurborgar, er ekki í vafa um að
þetta sé ódýrasta og besta lausnin.
Þessi leið létti á umferð um Klepps-
veg og Sæbraut og létti á umferð
um Vogahverfi og Kleppsholt.
Styttra verði fyrir Grafarvogsbúa
að fara niður í bæ og þessi lausn
henti mjög vel Kópavogsbúum,
Garðbæingum og Hafnfirðingum.
Hann bendir einnig á að engin sér-
stök tengingarvandamál fylgi þess-
ari lausn og hægt verði að losna við
kaup á eignum og landi. Frá um-
hverfissjónarmiði sé þetta auk þess
besti kosturinn.
Björn A. Harðarson, sem var eft-
irlitsverkfræðingur með gerð Hval-
fjarðarganga og vann við Vest-
fjarðagöng og Olafsfjarðargöng, tel-
ur einnig að þessi kostur sé áhuga-
verður og að hann hefði átt að skoða
betur á undirbúningstímanum.
Hann segir umdeilanlegt út frá
hvaða forsendum eigi að ganga þeg-
ar gerðir eru arðsemisútreikningar
á svona framkvæmd. Hann setur
vissan fyrirvara við það að eðlilegt
sé að reikna inn í dæmið kostnað
ökumanna, sem fara um Sunda-
braut, við að aka einn viðbótar kíló-
metra í 20 ár eins og gert er í
áfangaskýrslu 1 um Sundabraut.
Kostnaður við þetta er áætlaður
4,32 milljarðar. Hann telur að menn
hafi verið of fljótir að afskrifa þenn-
an kost.
Helgi Hallgrímsson vegamála-
stjóri segir að ekki sé búið að hafna
neinum kosti, en eftir þessa fyrstu
skoðun séu jarðgöng ekki með í
myndinni. Hins vegar sé bent á þá
lausn í áfangaskýrslu 2, að gera
jarðgöng milli Kringlumýrarbrautar
og Gufuness síðar, sem þýðir vænt-
anlega eftir nokkra áratugi.
Stefán Hermannsson borgarverk-
fræðingur er sama sinnis og segir
að jarðgöng verði lengi-i
en brú og það hafi í för
með sér óhagræði fyrir
notendur. Hann viður-
kennir hins vegar að út
frá umhverfissjónarmiði
séu jarðgöng besti kost-
urinn.
Hugsanlegt er einnig að byggja
botngöng. Kostnaður við þau er hins
vegar mjög mikill, en áætlað er að
þau kosti 10,4 milljarða. Þessi kost-
ur hefur verið skoðaður talsvert að
undanförnu, en ókosturinn við hann
er fyrst og fremst kostnaðurinn.
Framundan er mikil vinna við
hönnun og skipulagningu Sunda-
brautar. Brúin þarf að fara í um-
hverfismat. Breyta þarf aðalskipu-
lagi. Semja þarf við fyrirtæki sem
þurfa að flytja starfsemi sína vegna
brúargerðarinnar. Ganga þarf frá
fjármögnun brúarinnar. Forsenda
fyrir áframhaldandi vinnu er hins
vegar pólitísk ákvörðun um leiðar-
valið.
Jarðgöng
undir Klepps
vík fjórði
kosturinn
Skeiðarvogur
er gata sem
þolir ekki
meiri umferð
Morgunblaðið/RAX
UNNIÐ að gerð snjóflóðavarnagarða á Flateyri 1996.
Skýrsla um snjóflóðið á Flateyri 1995
Viðbragðstími
langur og losara-
leg áfallahjálp
Fundið er að því, í skýrslu um snjóflóðið
á Flateyri sem unnin var fyrir almanna-
varnaráð, að viðbragðstími hafi verið
langur og skipulagsleysi einkennt áfalla-
hjálp vefflia snjóflóðsins.
GERÐAR eru athugasemdir
við stjóm björgunaraðgerða
vegna snjóflóðsins á Flat-
eyri 26. október 1995 í
skýrslu sem unnin var fyrir almanna-
vamaráð. Þar segir að í raun hafi
þrjár vettvangsstjórnir verið á Flat-
eyri í stað einnar. Einnig kemur fram
í skýrslunni að viðbragðstími hafi ver-
ið langur, skipulagsleysi hafi verið á
áfallahjálp og gerðar eru athuga-
semdir við að fórnarlömb snjóflóðsins
hafi ekki verið krufin.
74 vora búsettir í húsunum sem
urðu fyrir snjóflóðinu. Af þeim voru
54 heima þessa nótt. Tuttugu manns
létust í snjóflóðinu en fimm slösuðust.
Fyrsta tilkynning um snjóflóðið
barst kl. 4.07 um nótt. I skýrslunni
segir að mannfæð og þjálfunarleysi
sjálfboðaliða hafi háð björgunarstarfi.
Leit og björgunarstarf hafi gengið
hægt þar til hjálp hafi borist frá ísa-
firði og síðar víðar að. Ástæður þessa
eru taldar vera þær að björgunar-
sveitin á Flateyri er fámenn og hluti
björgunarsveitarmanna lenti sjálfur í
snjóflóðinu. Ekki hafi verið hægt að
ná í björgunarsveitarmenn nema í
gegnum sfma og það hafi verið torvelt
m.a. vegna álags á símkerfinu
skömmu eftir atburðinn. Þá hafi ekki
verið til nægur búnaður á Flateyri til
leitar í jafn stóm flóði og þar féll og
enginn hundur þjálfaður til leitar.
Almenn þátttaka samfélagsins
I skýrslunni segir að um tíuleytið
að morgni 26. október hafi 66 manns
með þrjá hunda verið við leit og fjöldi
manna við hjálparstörf. Þegar leit,
aðhlynning og björgun verðmæta
stóð sem hæst megi áætla að um 250
manns hafi verið við þau störf á Flat-
eyri hverju sinni. Þátttaka samfé-
lagsins í björgunarstörfum hafi verið
frá fyrstu stundu almenn.
í skýrslunni segir að þegar horft
er til þess að ekki kemst fullur kraft-
ur á leitina fyrr en um klukkan níu,
vegna skorts á mannskap og búnaði,
en þá eru liðnir tæpir fimm klukku-
tímar frá því flóðið féll og að hinir
síðustu sem bjargað var lifandi úr
flóðinu finnast um hádegisbil, megi
draga þá ályktun að hugsanlega hefði
verið unnt að bjarga fleiri mannslíf-
um ef nægur mannskapur með tæki
og leitarhund/hunda hefðu verið til
staðar. „Þá er ljóst að hver mínúta
sem líður frá því vitneskja berst um
atburð á borð við þennan og þar til
leit og björgun hefst af fullum krafti
getur skipt sköpum."
„Losarabragur einkenndi
áfallahjálpina“
I skýrslunni segir að sóknarprest-
amir á Isafirði og Þingeyri hafi verið
í hópi fyrstu björgunarmanna sem
komu til Flateyrar. Þeir sinntu
áfallahjálp í neyðarstöð. Einnig var
starfrækt áfallahjálp á vegum RKÍ í
Reykjavík. Fljótlega eftir að snjóflóð-
ið féll var haft samband við héraðs-
lækni Vestfjarða úr stjórnstöð Al-
mannavarna ríkisins og farið fram á
það að hann sinnti og stjómaði lækn-
is- og áfallahjálp á Flateyri. Hann
taldi sig ekki eiga heimangengt til
þessa verks nema fá lækni til afleys-
inga fyrir sig á Bolungarvík. í fjar-
veru héraðslæknisins var yfirstjórn
áfallahjálpar á F’lateyri falin yfir-
lækni af Landspítalanum. Jafnframt
var reynt að útvega héraðslækninum
staðgengil. Héraðslæknirinn tók síð-
an formlega við stjórn áfallahjálpar-
innar að kvöldi 26. október og var
verkefni hans að sjá um áfallahjálp á
Isafirði. Hann þurfti síðan að hverfa
af vettvangi 1. nóvember vegna ferð-
ar á ráðstefnu erlendis. Á Flateyri
var stjórn áfallahjálparinnar í hönd-
um læknisins af Landspítalanum þar
til hann varð að hverfa af vettvangi. í
skýrslunni segir að svo virðist að um
stund hafi verið áhöld um það hver
var við stjórnvölinn.
„Það er ekki hægt að neita því að
nokkur losarabragur og skipulags-
leysi einkenndi áfallahjálpina á Flat-
eyri. Þar var framan af enginn
heimamaður, eða kunnugur við störf,
og stjórnandinn varð að yfirgefa
vaktina aðeins fimm dögum eftir at-
burðinn. Þá var sóknarpresturinn á
Flateyri erlendis þegar flóðið féll en
kom á staðinn eins fljótt og honum
var unnt og kvartað var undan því að
skortur hefði verið á prestum. Þá
virðist hafa verið eins konar sam-
keppni milli tveggja meginfylkinga
áfallahjálparmanna. Meðal annars
þess vegna var óheppilegt að yfir-
stjórn á staðnum var ekki höndum
manns sem kunnugur var á svæðinu
og tilheyrði engum hópi aðkominna
hjálparmanna. Margt virðist engu að
síður hafa verið vel gert og skipulega
í áfallahjálp á Flateyri," segir m.a. í
skýrslunni.