Morgunblaðið - 07.04.1999, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999 49
UMRÆÐAN
Þjónusta við heyrn-
arskert börn
VEGNA gi'einaskrifa í Morgun-
blaðið undanfarið þar sem fjallað
hefur verið um málefni heyrnar-
lausra og heymarskertra barna,
hefur oft verið minnst á leikskól-
ann Sólborg. Framkvæmdastjóri
Dagvistar barna, Bergur Felixson
og leikskólastjóri Sólborgar,
Jónína Konráðsdóttir vilja koma
eftirfarandi á framfæri sem von-
andi skýrir stöðu leikskólans, sem
á engan hátt tengist deilum um
menntun heyrnarlausra.
Sólborg er einn af 70 leikskólum
Dagvistar barna. Hann opnaði
sumarið 1994 og er staðsettur við
Vesturhlíð. Sérstaða Sólborgar
felst í sameiginlegu uppeldi og
námi fatlaðra og ófatlaðra barna
og byggir starfsgrundvöllurinn
hvað þetta varðar á heildtækri
skólastefnu. Frá upphafí hafa
heyrnarlaus böm dvalið í Sólborg,
fyrstu árin hálfan daginn en þá
dvöldu börnin hinn helming dags-
ins á forskóladeild Vesturhlíðar-
skóla. Vorið 1998 fór Fræðslumið-
stöð þess á leit að Dagvist barna
tæki yfir þjónustu við heyrnarlaus
og heyrnarskert börn sem til-
raunaverkefni í eitt ár og var
samningur um það gerður s.l.
haust. Bömin sem koma víðsvegar
að af landinu voru þá vistuð í Sól-
borg.
Bergur
Felixson
Á þeim árum sem Sólborg hefur
starfað, hefur gefist tækifæri til að
þróa leikskólastarfið með hliðsjón
af þörfum heyrnarlausra og heyrn-
arskertra barna. Ein deild leik-
skólans er tvítyngd, en þar eru töl-
uð tvö mál - íslenska og íslenskt
táknmál. Dagvist hefur stutt við
þessa þróun með ýmsum hætti og
má þar nefna:
Fjárframlög til táknmálsnám-
skeiða fyrir starfsfólk, en auk
góðrar táknmálskunnáttu starfs-
manna á tvítyngdu deildinni er
lögð áhersla á að allir starfsmenn
annarra deilda leikskólans hafi
lágmarks kunnáttu í
táknmáli.
Styrkir til kynnis-
og námsferða starfs-
fólks bæði til Amer-
íku og Norðurlanda,
þar sem starfsfólk
kynnti sér nám og
kennslu heyrnar-
lausra bama.
Styrkur til rann-
sókna og aðlögunar
á náms- og málum-
hverfi bamanna.
I Sólborg era
heyrandi og heyrn-
arlaus/skert börn í
sameiginlegu leik-
skólastarfi. Einnig
era í leikskólanum börn sem tengj-
ast táknmáli á einhvem hátt t.d.
börn sem eiga heyrnarlaus systk-
ini eða heyrnarlausa foreldra. Öll
börnin fá formlega og óformlega
kennslu í táknmáli. Örlítil reynsla
er einnig komin á hvernig þetta
tvítyngda umhverfi nýtist börnum
með vægari heyrnarskerðingu. Sú
reynsla sýnir að það hefur þrosk-
andi áhrif á máltöku barnanna að
gera málið sýnilegt með samhliða
Jönína
Konráðsdóttir
notkun táknmálsins. í ys og þys
leikskólaumhverfisins er margt
sem getur brenglað heym barns
þótt því nýtist heyrnartækin að
öllu jöfnu vel Þá er gott að geta
einnig meðtekið skilaboðin sjón-
rænt á táknmáli og þannig ekki
farið á mis við neitt.
Heyrnarskertir
Dagvist barna er stolt
af leikskólanum Sól-
borg, segja Bergur
Felixson og Jónína
Konráðsdóttir, og því
starfi sem þar fer fram.
Dagvist bama hyggst nýta þá
reynslu og þekkingu sem skapast
hefur í Sólborg með því að:
Foreldram heyi-nariausra og al-
varlega heyrnarskertra barna
verður boðið leikskólapláss í Sól-
borg fyrir börn sín.
Foreldram barna með vægari
heyrnarskerðingu verður í fram-
tíðinni bent á Sólborg sem æski-
legan valkost fyrir barnið.
Á Sólborg starfar leikskólasér-
kennari, Regína Rögnvaldsdóttir,
sem hefur sérhæft sig í kennslu og
menntun barna með skerta heyrn.
Regína mun í framtíðinni tengjast
Ráðgjafar og sálfræðideild Dag-
vistar, með ráðgjöf til annarra
leikskóla Dagvistar barna og for-
eldra sem eiga heyrnarskert börn í
þeim leikskólum.
Heyi'narlausum foreldram verð-
ur áfram bent á Sólborg sem val-
kost þar sem börnin upplifa tákn-
mál sem hluta af leikskólamenn-
ingunni og foreldrar geta átt sam-
skipti við starfsfólk á táknmáli.
Eins og fyrr segir þá var ákveð-
ið vegna sérhæfni leikskólans, að
taka á móti börnum víðs vegar af
landinu og greiða viðkomandi
sveitarfélög þá áfallinn rekstrar-
kostnað. Era nú 5 heyrnar-
laus/heyrnarskert börn í skólan-
um, sem ekki eiga lögheimili í
Reykjavík. Dagvist barna er stolt
af leikskólanum Sólborg og því
starfi sem þar fer fram, sem bygg-
ir á framúrskarandi starfsfólki og
mikilli fagmennsku.
Jónína er leikskólastjóri Sólborgar
og Bcrgur er framkvæmdastjóri
Dagvistar barna.
Ræktaðu þinn innri mann -
ég skal sjá um garðinn þinn
Stanislas Bohic • Landslagsarkitekt
Hringdu
332
Hrmgi
• (898 43
3- Gœðavara
Gjafavara — matar- og kaffislell.
Allir verðflokkar.
ffeimsfrægir hönnuöir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laugnvegi 52, s. 562 4244.
AÐALFUNDUR
1999
Aöalfundur Samvinnuferöa-Landsýnar hf.
veröur haldinn fimmtudaginn 15. apríl
1999 I Ársal, Hótel Sögu, Reykjavík og
hefst kl. 16.00.
DAGSKRA
1. Venjuleg aöalfundarstörf samkvæmt
samþykktum félagsins.
2. Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins
þar sem lagt er til aö heimila stjórninni aö taka
upp rafræna skráningu hlutabréfa.
3. Tillaga um heimild til kaupa á eigin
hlutabréfum.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Reikningar félagsins og
tillögur liggja frammi á
aðalskrifstofu hluthöfum
til sýnis viku fyrir aöalfund
en verða síðan afhentir
ásamt fundargögnum á
fundarstað.
Samvinnuferðir
Landsýn
w.samvlnn. Is
Flóttafólkið
frá Kosovo
þarf á
tafarlausrí
aðstoð
að halda
Hundruð þúsunda Kosovobúa hafa hrakist á flótta vegna
átakanna í Júgóslavíu að undanförnu. Fólkið þarf á brýnustu
nauösynjum á borð við mat, hreinlætisvörur og teppi að halda.
Munið söfnunarreikning okkar í SPRON, 1151-26-12
(kt. 530269-2649) og gíróseðla í bönkum og sparisjóðum.
Nánari upplýsingar í síma 570 4000
+
Rauði kross íslands