Morgunblaðið - 07.04.1999, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999 53
UMRÆÐAN
Fjötrar frumkvöðla
Evr-
ÞAÐ besta sem
stjórnvöld geta gert er
að leysa fjötrana af
frumkvöðlum. Það
gera þau með því að
skapa almenn góð
starfsskilyrði, afnema
skrifræði, létta skatt-
byrði og halda sig frá
samkeppni við at-
vinnureksturinn. Það
gera þau einnig með
því að tryggja frelsi á
mörkuðum, efla
mannauð, ala á frum-
kvæði og umbera mis-
tök. Þetta er meðal
þess sem lesa má úr
viðtölum við nokkra
framsæknustu frumkvöðla
ópu.
Listi Europe’s 500
Samtökunum Europe’s 500 var
komið á fót að frumkvæði Evrópu-
sambandsins með það að markmiði
að efla starf frumkvöðla í Evi'ópu.
Tilgangurinn er sá að draga fram
reynslu þeirra sem bestum árangri
hafa náð og nýta þá reynslu til að
búa betur í haginn fyrir frum-
kvöðla framtíðarinnar.
Árlega efna samtökin til skipu-
legrar leitar og birta lista yfir þau
fimm hundruð vaxtarmestu fyrir-
tæki Evrópu, sem stækka mest og
vaxa hraðast, ásamt nöfnum þeirra
frumkvöðla sem að þeim standa.
Valið er úr milljónum fyrirtækja í
allri Evrópu eftir ströngum skil-
yrðum um vöxt og uppruna hans,
s.s. eignaraðild frumkvöðuls, sjálf-
stæði, veltuaukningu, arðsemi,
stærð og aldur fyrirtækisins.
Kreddur og kaldar
staðreyndir
Oft hefur því verið haldið fram
að frumkvöðlar séu ungir og ein-
mana sjálfmenntaðir snillingar
sem sækja í áhættu og hasla sér
völl í hátæknigreinum þar sem þeir
ná árangri strax í fyrstu tilraun. Ef
marka má frumkvöðla á nýjasta
lista Europe’s 500, sem starfsmenn
alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækisins
Boston Consulting Group ræddu
við fyrir stuttu, er ekkert af þessu
rétt.
í viðtölunum kemur fram að
frumkvöðlar eni á öllum aldri og
þeir taka áhættu þar sem þekking
þeirra fær notið sín. Frumkvöðlar
finnast í öllum greinum - ekki síst
hefðbundnum - þar sem þeir sjá
tækifæri á að skapa nýjar vörur
eða aðferðir sem virðist gerast oft
þegar höftum er aflétt. Flestir
frumk\'öðlar eru vel menntaðir og
sífellt að bæta við þann auð sinn.
Meirihluti þeirra byggir á reynslu
úr viðskiptalífmu og mistökum sem
þeir hafa áður gert. Ofáir hafa far-
ið á hausinn - orðið gjaldþrota.
Margur frumkvöðullinn stendur
ekki einn heldur sem hluti af hópi
frumkvöðla þar sem sköpunin eða
framtakið er hópsins - hjónanna ef
svo ber undir - fremur en einstak-
lingsins.
Að geta frumkvöðla
Markmiðið með því að fá frum-
kvöðlana til að segja sögu sína er
að læra hvernig þeim geti fjölgað,
hvernig auka megi umsvif þeiiTa,
almenna velmegun og atvinnu í
Evrópu. I ljósi þess sem fram kom
er mælt með eftirfarandi:
Fyrirmyndir þarf að kynna. Allir
eiga möguleika á því að ná langt
sýni þeir framkvæði og vilja til að
taka áhættu. Þetta sanna fyrir-
myndirnar af báðum kynjum á öll-
um aldri á lista Europe’s 500. Þeim
þarf að koma á framfæri, ekki síst í
skólum, og gera öllum sýnilegar.
Látum ekki kreddur leggja bönd á
vöxtinn.
Engin ein grein er mikilvægari
en önnur. Frumkvöðlar eiga að
njóta frjálsræðis og góðra starfs-
skilyrða óháð því í hvaða greinum
Ingólfur
Bender
þeir vilja hasla sér
völl. Frelsi í viðskipt-
um og almenn góð
starfsskilyrði eru lyk-
illinn að því að frum-
kvæði fái notið sín í
framþróun, hagvexti
og bættum lífskjörum.
Skapa þarf um-
hverfí þar sem auðvelt
er að sækja sér
menntun og læra af
reynslu annarra. Til
að auka kunnáttu sína
og hæfni þarf fólk að
hafa greiðan aðgang
að menntastofnunum
og tengsl þessara
stofnana við atvinnu-
lífíð þurfa að vera góð. Það á ekki
síst við um sí- og endurmenntunar-
stofnanir. Virkja þarf atvinnulífið
og frumkvöðlana í kennslunni.
Lærum að umbera mistök. Eng-
inn verður óbarinn biskup né fnim-
kvöðull án áhættu. Sjálfsagt er að
Frumkvöðlar
í viðtölum við frum-
kvöðlana, segir
Ingólfur Bender, kom
fram að ef af þeim yrði
létt fjötrum gætu
þeir skapað fleiri störf
og aukið velmegun
enn frekar.
Kringlunni
S.553 7355
11111 Itl 11
mbl.is
í öllum þessum vangaveltum er
samkennd fmmkvöðlanna mikil. I
fæstum tilvikum er til einhlít lausn
eða leið sem hentar öllum. En með
því að raða saman og byggja á
reynslu annarra má a.m.k. forðast
mistökin. Framtak á borð við
Europe’s 500 er því mikilvægt. Þar
eru ftumkvöðlar heiðraðir, gert
kleift að hittast, skiptast á skoðun-
um og læra hver af öðram. Fram-
takið ætti því að verða til þess að
efla starf frumkvöðla í álfunni.
Fjötrai' og íslenskir
frumkvöðlar
í viðtölum við framkvöðlana kom
fram að ef af þeim væri létt hluta
þeirra fjötra sem á þá era lagðir á
borð við háa skatta, reglubyrði
o.s.frv. gætu þeir skapað fleii-i störf
og aukið velmegun enn frekar.
Þetta sýna dæmin og þarf ekki að
leita út fyrir landsteinana að þeim.
Það hefur vakið eftirtekt erlendis
hversu marga íslenska framkvöðla
er að fmna á lista Europe’s 500.
Afrakstur stöðugleika, aukins
frjálsræðis, vaxandi samkeppni og
bættra almennra starfsskilyrða er
gi’einilega að skila sér.
Þetta kennii' að möguleikar okkai'
takmarkast helst af sjálfsköpuðum
fjötrum og órækt í okkar eigin garði.
Það er því vel hægt að efla starf
frumkvöðla enn frekar með því að
hætta mismunun, afnema skrifræði,
einfalda lög og reglugerðir, létta
skattbyrði og draga stjómvöld út úr
samkeppnisrekstri, tryggja irelsi á
mörkuðum, efla mannauð, ala á
frumkvæði og umbera mistök í ríkari
mæli. Það er almennings að hvetja
stjómvöld til þessa og nýta sér
möguleikana sem tækifærin skapa.
Þannig fáum við byggt á framkvæð-
inu. Þannig og einungis þannig er
velmegun og atvinna ti-yggð.
Höfundur er hagfræðingur
Sanitaka iðnaðarins.
beita aga í viðskiptalífinu en óvæg-
in refsing samfélagsins og stjórn-
valda við mistökum dregur úr
fjölda og umsvifum framkvöðla.
Aginn má ekki vera á kostnað and-
ans. I samfélögum þar sem best
hefur tekist að virkja framkvæði
einstaklinganna er tilraunin mikils
metin og mönnum fremur hampað
en refsað fyrir að láta reyna á hug-
myndir sínar í atvinnulífinu. Menn
era hvattir á fætur eftir fall svo að
fjárfestingin í reynslu þeirra nýtist
sem best.
Hver lærir af öðrum
Reynslusögur fnamkvöðlanna
kenna fleira. Ahyggjur framkv'öðl-
anna og vandamál era svipuð.
Alagið er mikið og setur mai'k sitt
á persónuleg tengsl og fjölskyldu-
líf. Þeir fá oft litla umbun fyrir
störf sín aðra en þá fjárhagslegu
þegar vel gengur. Margir þeirra
hafa áhyggjur af því hverjir eigi að
taka við af þeim og hvort þeir geri
rétt með því að blanda fjölskyld-
unni í reksturinn. Allflestir velta
því fyrir sér hvort og þá hvenær
rétt sé að losa eign sína í fyi'irtæk-
inu, dreifa henni og þar með áhætt-
unni. Flestir hafa áhyggjur af því
hvemig og hvort fyrirtækið nái að
halda vexti sínum og arðsemi. Þeir
spyrja: Er nægjanlega mikið fjár-
fest í nýsköpun og mannauði? Er
fjármögnun vaxtarins rétt?
Auglýsing um úrsögn úr væntanlegum
gagnagrunni á heilbrigðissviði
Hér að neðan er birt eyðublað um úrsögn úr gagnagrunni á heilbrigðissviði. Klippa má eyðublaðið út og senda til
Landlæknisembættisins, sbr. neðst á eyðublaðinu. Athugið að hvert eyðublað er einungis ætlað einum einstak-
lingi, en einnig má senda útfyllt ljósrit. Auglýsingin er birt í öllum dagblöðunum og verður endurbirt innan
nokkurra daga. Einnig fást eyðublöð á heilsugæslustöðvum, sjúkrahúsum, apótekum, á afgreiðslu Trygginga-
stofnunar Ríkisins og hjá Landlæknisembættinu. Þá er verið að senda út upplýsingabækling í hvert hús með
algengum spurningum og svörum. Óheimilt er að setja gögn í gagnagrunninn fyrr en um miðjan júní nk. Fyrir
þann tíma verður send kvittun um móttöku útfyllts eyðublaðs.
■§x-
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu landlæknis í síma 510 1900.
Landlæknisembættið
Beiðni um úrsögn úr gagnagrunni á heilbrigðissviði
Samkvæmt lögum nr. 139/1998 um gagnagrunn á heilbrigðissviöi, 8 gr., um réttindi sjúklings, getur sjúklingur hvenær
sem er óskað eftir því að upplýsingar um hann verði ekki fluttar í gagnagrunn á heilbrigðissviði.
í lögunum segir:
...Beiðni sjúklings getur varðað allar upplýsingar sem þegar liggja fyrir um hann í sjúkraskrám eða kunna að verða
skráðar eða nánar tilteknar upplýsingar. Skylt er að verða við slíkri beiðni. Sjúkiingur skal tilkynna landlækni um ósk
sína. Landlæknir skal annast gerð eyðublaða fyrir slíkar tilkynningar og sjá til þess að þau liggi frammi á heilbrigðis-
stofnunum og hjá sjálfstætt starfandi heilbrigðismönnum. Landlæknir skal sjá til þess að dulkóðuð skrá yfir viðkom-
andi sjúklinga sé ávallt aðgengileg þeim sem annast flutning uþþlýsinga í gagnagrunn á heilbrigðissviði. Landlæknir
skal sjá til þess að upplýsingar um gagnagrunn á heilbrigðissviði og um rétt sjúklings skv. 1. mgr. séu aðgengilegar al-
menningi. Heilbrigðisstofnanir og sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmenn skulu hafa þessar upplýsingar aðgengileg-
ar sjúklingum í húsakynnum sínum.
Rétt er að taka það fram að þar til gengið hefur verið frá skilyrðum rekstrarleyfis er ekki Ijóst nákvæmlega hvaða
heilsufarsupplýsingar verða í fyrirhuguðum gagnagrunni á heilbrigðissviði. Einnig er rétt að benda á að einstaklingar
geta, hvenær sem er, skipt um skoðun og þarf þá að tilkynna það til landlæknis bréflega.
Með hliðsjón af ofangreindu óska ég undirrituð/aður eftir þvi að upplýsingar um mig verði ekki fluttar f gagnagrunn á
heilbrigðissviði. Beiðni mfn varðar (vinsamlegast merkið með X í viðeigandi reiti):
□ Allar upplýsingar um mig sem þegar liggja fyrir í sjúkraskrám
I \ Allar upplýsingar um mig sem kunna að verða skráðar í sjúkraskrá
□ Aðrar upplýsingar um mig úr sjúkraskrám nánar tiltekiö:-------------------------------
staður og dagsetning
Undirskrift (et um ólögráða barn eða einstakling er að ræða verður foreldri eöa lögráðamaður að undirrita þetta skjal).
Pessi beiðni er fyrir (vinsamlegast notið prentstafi)
nafn einstaklings
kennitala
lögheimili
póstnr. og staður
nafn lögráðamanns ef um barn eða ólögráða einstakling er að ræða
kennitala
lögheimili
póstnr. og staöur
Undirskrift
Beiðnin sendist til:
Skrifstofu Landlæknis, Gagnagrunnur á heilbrigðissviði, Laugavegur 116, 150 Reykjavík
Landlæknisembættið mars 1999