Morgunblaðið - 07.04.1999, Blaðsíða 56
56 MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Orri og ímynd Elliðaánna
ELLIÐAARNAR eru perla
Reykjavíkur og ber öllum saman
um að þær beri að varðveita og hlúa
að eins og unnt er. Vandinn er hins
vegar sá að árnar eru inni í miðri
borg með hundrað þúsund íbúa. Pað
er því ekkert áhlaupsverk að
vernda viðkvæmt lífríkið, á sama
tíma og borgarbúar krefjast fram-
kvæmda á ýmsum sviðum. Má þar
nefna: umferðannannvirki, ný íbúð-
arhverfí, göngu- og hjólreiðastíga í
Elliðaárdal, smábátahöfn í árósn-
um, útivistarsvæði fyrir hunda í
~ Geirsnefí og aðstöðu fyrir hesta-
menn. Allar koma þessar fram-
kvæmdir niður á „perlu Reykjavík-
ur“ sem svo er nefnd á tyllidögum.
Orkuveita Reykjavíkur, áður Raf-
magnsveitan, er sá aðili sem hefur
umsjón með ánum í umboði borgar-
yfíi-valda. Var fyrirtækinu falið
þetta verkefni strax árið 1921 þegar
rafstöðin við árnar var byggð og
hefur sinnt því af kostgæfni síðan.
Niðurstaðna að vænta
Um langan aldur hafa Elliðaárn-
ar verið með aflasælustu laxveiðiám
landsins, oftast margfalt betri en
t.d. „perla Norðurlands", Laxá í Að-
aldal, sé tekið tillit til veiddra laxa á
stöng að jafnaði. Síðustu tvö árin
hefur hins vegar hallað undan fæti
og laxveiðin verið slök samanborið
við fyrri ár og áratugi. Því er von að
menn spyrji hvað ami að og hvað sé
til úrbóta.
Undanfarin misseri hafa staðið
yfir viðamiklar rannsóknir á Elliða-
ánum og er niðurstaðna að vænta á
næstu vikum. Þær hafa beinst að:
búsvæðum laxfíska, botndýralífí,
efnum sem berast í
árnar, kísilþörungum
og laxagengd í ljósi
sögunnar. En þótt ráð-
ist hafi verið í viðamikl-
ar og dýrar rannsóknir
sem ætlað er að veita
svör við áleitnum
spurningum sem
brenna á mönnum um
þessar mundir, þá virð-
ast einstakir aðilar ekki
þurfa á svörum vísinda-
manna að halda. Þeir
hafa svör á reiðum
höndum og vitna í eigin
sérfræðinga, sem þó
eru aldrei nefndir á
nafn.
Einn þeirra sem tel-
ur ekki þörf á að bíða eftir rann-
sóknamiðurstöðunum heldur fellir
dóminn strax, er Orri Vigfússon,
„stjórnarformaður NASF“ eins og
hann titlar sig. Birtist dómsniður-
staða hans í Morgunblaðinu sunnu-
daginn 28. mars sl. og er hún studd
áliti „sérfræðinga NASF“, sem því
miður era ekki nafngreindir. Er það
skaði, því ugglaust fýsir fjölmarga
að fá frekari upplýsingar hjá hinum
ónafngreindu hæfíleikamönnum,
sem eru til þess bærir að gefa vís-
indalegt áht án undangenginnar
rannsóknar.
Undarlegar fullyrðingar
Meginniðurstaða Orra varðandi
Elliðaárnar er sú að laxastofninn sé
í útrýmingarhættu. Þetta kemur
mér spánskt fyrir sjónir í ljósi þess
að fyrir nokkrum dögum sátum við
báðir fjölmennan ársfund Veiði-
málastofnunar, þar
sem gerð var grein
fyrir rannsóknum í El-
liðaánum. Orðið „út-
rýmingarhætta" kom
aldrei fram hjá vís-
indamönnum stofnun-
arinnar. Var þó ekki
dregin fjöður yfir það
að margskyns vá steðj-
ar að Elliðaánum, eins
og mörgum öðrum lax-
veiðiám, einkum vegna
nábýlis við manninn.
Orri staðhæfír að
stöðvun raforkufram-
leiðslu og niðurrif Ar-
bæjarstíflu sé nægjan-
leg björgunaraðgerð
til að byrja með. Trú-
lega byggir hann það á áliti huldu-
mannanna, „sérfræðinga NASF“,
því sérfræðingar Veiðimálastofnun-
Lax
Rafstöðin, segir
Stefán Pálsson, er
ekki skaðvaldur.
ar voru ekki sama sinnis eins og
fram kom á ársfundinum. Því má
skjóta hér inn að Orri, eins og þing-
heimur allur, hlýddi á niðurstöður
vísindamannanna, en gerði hvorki
athugasemdir né bar upp fyrir-
spurnir, þrátt fyrir að málflutning-
ur Veiðimálastofnunar væri í hróp-
legu ósamræmi við álit Orra og
„sérfræðinga NASF“. Varðandi
rafstöðina, þá er það álit nafn-
greindra sérfræðinga, að hún sé
ekki sá skaðvaldur sem haldið hef-
ur verið fram. Lokun hennar myndi
ekki skipta sköpum um framtíð
laxastofns Elliðaánna.
Orri gerir að umtalsefni miklar
rennslisbreytingar Elliðaánna af
völdum virkjunarinnar og lýsir því
hvernig seiði drepast í þurrum ár-
fai-veginum þegar orkuþörf borgar-
innar krefst þess. Þetta er fráleit
fullyrðing. Rennslisbreytingar
vegna rafstöðvarinnar eru miklu
minni en náttúrulegar sveiflur
ánna. Ef laxinum og seiðum hans
væri slík hætta búin af rennslis-
breytingum af völdum rafstöðvar-
innar, þá væri náttúran sjálf búin
að fyrirkoma laxastofninum fyrir
löngu.
Þá hefur Orri þungar áhyggjur
af meintri erfðablöndun Elliðaár-
stofnsins og kennir þar um seiða-
sleppingum og flökkufiski af haf-
beitar- eða kvíauppruna. Nú verður
illa við flökkufískana ráðið, en með
miklum samdrætti í fískeldi hefur
eðlilega dregið úr slíkum heimsókn-
um. Seiði sem sleppt hefur verið í
Elliðaárnar hafa hins vegar undan-
farna áratugi verið af Elliðaárstofni
og alin upp í klakhúsi á árbakkan-
um. Hér er því ekki verið að blanda
saman stofnum af ólíkum uppruna.
Þetta ætti Orri að vita og þá ekki
síður „sérfræðingar NASF“ og skal
það enn harmað að ekki fæst upp-
lýst hverjir þeir era, svo unnt sé að
fræða þá um þetta.
Búsvæði laxfíska
Orri ræðir um missi búsvæða
laxfiska á undanförnum áratugum.
Stefán
Pálsson
Það má til sanns vegar færa að bú-
svæðin hafa minnkað og rétt er að
reyna að endurheimta sem mest af
þeim. Raunar hafa þegar verið
stigin skref í þessa átt, þannig er
farvegurinn frá Árbæjarstíflu og
niður að rafstöð nýttur til seiða-
uppeldis, en sl. haust var gripið til
sérstakra aðgerða í því skyni.
Framan af vetri var rennslið í far-
veginum u.þ.b. hálfur rúmmetri á
sekúndu og myndaðar voru fyrir-
stöður víðsvegar á svæðinu hag-
felldar seiðum.
Það er út af fyrir sig merkilegt
hvað Elliðaárnar hafa náð að ala af
sér mikinn fjölda laxaseiða á ári
hverju. Miðað við nábýlið við.borg-
ina telja vísindamenn framleiðni
þeirra vera einstaka, enda er hún
miklu meiri en flestra annarra lax-
veiðiáa. Hjálpast þar margt að;
botndýralíf er mikið og hefur farið
vaxandi og mengun er minni en
ætla mætti. Það er því ekki hægt
að kvarta yfir seiðaframleiðslu El-
liðaánna, þótt endurheimtur úr sjó
hafi verið með lakasta móti sl. tvö
ár.
ímynd Elliðaánna
Orra Vigfússyni er tíðrætt um
ímynd EUiðaánna, sem hann telur
afleita. Ugglaust era til einstakling-
ar sem deila með honum þeiiri
skoðun, en ég leyfi mér að fullyrða
að allur þorri Reykvíkinga sé á öðra
máli. Það er þó síst til að styrkja já-
kvæða ímynd ánna, þegar aðilar á
borð við Orra Vigfússon fínna hjá
sér hvöt til að sverta Elliðaárnar
með röngum fullyrðingum og draga
af þeim miklar ályktanir. Skiptir
þar engu máli þó að þeim gangi gott
eitt til.
Höfundur er forstöðumaður Minja-
safns Orkuveitu Reykjavíkur.
Best að þegja
þá bara
MARGRÉT
Frímannsdóttir, „tals-
maður“ Samfylkingar-
innar hefur lýst því yfir
að utanríkismál séu
ekki á dagskrá í kosn-
ingum. Þetta var
skemmtilega tímasett
yfirlýsing hjá Mar-
gréti, daginn áður en
,NATO hóf loftárásir á
Júgóslavíu. Aðrir for-
kólfar Samfylkingar-
innar ættu að skoða
hvort ekki sé hægt að
splæsa í CNN handa
Margréti, bara svona
til að hún viti hvað sé
að gerist úti í hinum
stóra heimi.
Annars er mjög einföld ástæða
fyrir því að Margrét segir að utan-
ríkismál séu ekki á dagskrá: Sam-
fylkingin er sundrað í utanríkismál-
um. Kratarnir vilja vera í ESB og
NATO en allaballarnir vilja hvorki
vera í NATO né ESB. Á meðan get-
ur Samfylkingin ómögulega komist
v að niðurstöðu og lýsir því bara yfir
að málið sé ekki á dagskrá. Hjúkk!
Það er eins gott að það er búið að
sameina þessa flokka. Annars væru
menn með bara alls konar ólíkar
skoðanir og kæmust ekki að neinni
niðurstöðu. Þess í stað geta menn
komið sér saman um að þegja og
gera ekki neitt.
Það eina sem menn
era sammála um innan
samfylkingarinnar er
hvernig á að eyða pen-
ingum og þar er af
nógu að taka sem
menn eru sammála um.
Þess vegna er ekkert á
dagskrá hjá Samfylk-
ingunni nema að eyða
peningum. Þetta eru
einmitt tvö uppáhalds
orð Margrétar, „eyða“
og „peningum." Tvö
orð sem standa fyrir
aukna skattheimtu,
halla á ríkissjóði,
hækkandi vexti, hækk-
Stjórnmál
Það er eins gott að það
er búið að sameina
þessa flokka, segir
Viggó Orn Jónsson,
því annars væru menn
með bara alls konar
ólíkar skoðanir og
kæmust ekki að nemni
niðurstöðu.
Viggó Örn
Jónsson
andi verðbólgu og alls kyns annað
góðmeti sem hefur fylgt hverri ein-
ustu vinstri stjórn sem nokkurn
tímann hefur setið á íslandi. Fyrir
þér, ágæti kjósandi, þýðir það hærri
afborganir af lánunum sem þú ert
að borga, hærra verð á vörunum út
í búð og, að sjálfsögðu, lægri laun
þegar búið er að hækka skattana
þína. Það er líklega bara ágætt að
vinstri menn skuli ekki vera sam-
máia um fleiri hluti.
Höfundur er varaforinaður
Heimdailar.
Fjöreg’gið og framtíðin
MARGIR myndu án
efa skrifa upp á eftir-
farandi skilgi’einingu á
þeim þáttum sem mik-
ilvægast er að við
leggjum alúð við, ein-
faldlega vegna þess að
lífshamingja okkar og
framtíð byggist á þeim:
Að við ræktum
mannauðinn, stuðlum
að efnahagslegu og fé-
lagslegu réttlæti sem
er jafnframt forsenda
jafnvægis og stöðug-
leika í þjóðfélaginu,
stöndum vörð um nátt-
túru landsins og sjálf-
stæði þjóðarinnar. Allt
þetta þarf að treysta og
efla. Þetta er í reynd fjöregg þjóð-
arinnar og í sameiningu þurfum við
að varðveita það og standa um það
vörð.
Því miður höfum við á þessum
áratug ekki búið við landsstjórn
sem haldið hefur þessum gildum á
loft. Þvert á móti höfum við orðið
vitni að aukinni misskiptingu í land-
inu, virðingarleysi fyrir náttúrverð-
mætum og sofandahætti gagnvart
sjálfstæði og fullveldi þjóðarinnar.
Um alla þessa þætti mætti hafa
mörg orð en látum sitja við það eitt
að sinni að benda á að helmingur
þeirra sem þarf að leita til hjálpar-
stofnana um nauðþurftir, fæði og
klæði, eru öryrkjar og aldraðir sem
reiða sig á almannatryggingakerfíð
um kjör sín og er svo komið fyrir
þeim vegna niðurskurðar á félags-
legri þjónustu og skerðingar á kjör-
um þeirra allan þennan áratug.
Jafnvel í góðæri allra síðustu ára
hafa þeir ekki notið kjarabóta á við
aðra hópa.
Yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar
sem birtast okkur nú nær daglega í
fjölmiðlum og loforð ráðherra um
yfírbót era átakanleg á að hlýða.
Upp úr sömu mönnum og stýrt hafa
landinu undanfarin ár án þess að
nokkuð hafí á þeim hrinið stendur
nú loforðaflaumur og lofa þeir nú
án afláts upp í báðar ermar. Þetta
er hvorki vitnisburður um ábyrga
afstöðu né trúverðugleika. Vonandi
ber þjóðin gæfu til að
láta ekki glepjast af
auglýsingaskrumi af
þessu tagi.
Að rækta
garðinn sinn
Ef niðurstaða manna
er að sú stjómarstefna
sem fylgt hefur verið á
þessum áratug þurfi
róttækrar endurskoð-
unar við er eðlilegt og
nauðsynlegt að spurt
sé hver sé vænlegust
leið til að tryggja
breytingar til bóta. Eg
bið fólk um að íhuga
eftirfarandi:
I fyrsta lagi er eng-
um betur treystandi fyi-ir fjöreggi
þjóðarinnar en þjóðinni sjálfri. Ef
hún ekki gætir sín sjálf, ræktar
garðinn sinn og hlúir að sjálfstæði
sínu og sjálfsvirðingu þá er illt í
efni. Þess vegna ber að efla lýðræði
í landinu og koma í veg fyrir að okk-
ur verði gert að afsala því með inn-
göngu í Evrópusambandið. Og þótt
EES hafi vissulega fært okkur ýms-
ar félagslegar úrbætur í tilskipana-
formi þá verðum við að hafa burði
til að breyta af eigin hvötum. Sá
sem gleðst yfir því að vera barinn til
hlýðni endar sem þræll. Hvað snert-
ir sjálfstæði þjóðarinnar og fullveldi
íslands hefur Vinstrihreyfingin -
grænt framboð afdráttarlausa af-
stöðu.
I öðru lagi er það staðreynd að
ef stuðla á að jafnvægi í byggð
landsins og koma á réttlátari skipt-
ingu þjóðarauðsins þá verður að
setja fram heildstæða og yfirveg-
aða stefnu. Þetta hefur Vinstri-
hreyfingin - grænt framboð gert
varðandi efnahags- og atvinnumál,
og má í því sambandi nefna áherslu
á uppstokkun á fiskveiðistjórnkerf-
inu til að efla vistvænar smábáta-
veiðar og koma á byggðakvóta fyr-
ir ákveðnar tegundir veiða. Við
viijum efla fjölbreytni í verðmæta-
sköpun og treysta almannaþjónust-
una. Alit þetta samfara róttækum
uppskurði á almannati-yggingum
og skattkerfi mun skjóta styi’kari
stoðum undir atvinnulíf og mannlíf
í landinu.
I þriðja lagi verður að safna liði
til varnar náttúru íslands. Al-
mannasamtök hafa gengið fram fyr-
ir skjöldu á undanförnum misseram
á aðdáunai-verðan hátt. Það hafa og
margir bestu listamenn þjóðarinnar
gert. Á Alþingi verður að vera til
Stjórnmál
Hvað snertir sjálfstæði
þjóðarinnar og fullveldi
Islands, segir Ögmund-
ur Jónasson, hefur
Vinstrihreyfíngin -
grænt framboð afdrátt-
arlausa afstöðu.
staðar öflug sveit sem af þekkingu
og yfírvegun tekur á umhverfismál-
um en lætur ekki reka undan vindi í
samskiptum við heimtufreka stór-
iðjurisa.
Vinstrihreyfíngin
- grænt framboð
I komandi kosningum er mikil-
vægt að styðja þá sem byggja
stefnu sína á ígrundaðri málefna-
vinnu og bjóða fram heildstæða
stefnu sem færir þeim þjóðfélags-
hópum sem hafa verið hlunnfamir
raunverulegar kjarabætur. En
framar öllu þarf að styðja þá til
áhrifa í íslensku þjóðfélagi sem eru
traustsins verðir, beita sér fyrir
baráttumarkmiðum sínum og hug-
sjónum að loknum kosningum ekki
síður en í aðdraganda þeirra: sem
fylgja áherslum sínum eftir hvort
sem þeir standa innan ríkisstjórnar
eða era í stjórnarandstöðu. Hve
mikil áhrif Vinstrihreyfíng-
in - grænt framboð getur haft á
þróun mála mun ráðast af því braut-
argengi sem hreyfíngin fær í kom-
andi kosningum.
Höfundiir er alþingisniaður.
Ögmundur
Jónasson