Morgunblaðið - 07.04.1999, Page 71
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999 71
Líkamsvit-
und og sjálfs-
mynd ungra
mæðra
ANNADÍS Rúdólfsdóttir, doktor í
félagssálfræði, verður með rabb á
vegum Rannsóknastofu í kvenna-
fræðum fímmtudaginn 8. apríl kl.
12-13 í stofu 201 í Odda. Rabbið
ber yfirskriftina „Pungað sjálf:
Líkamsvitund og sjálfsmynd ungra
mæðra“.
I fréttatilkynningu segir: „Þegar
konur verða þyngri tekur líkaminn
sýnilegum breytingum. í þessum
fyrirlestri er því haldið fram að
þetta líkamlega ástand sé þnmgið
þunga og merkingu fyrir sjálfs-
mynd kvenna. Hugmyndir samfé-
lagsins um líkamlegt eðli kvenna
hafa áhrif á stöðu þeirra og viðhorf
til sjálfra sín.
I fyrirlestrinum verður byggt á
gögnum sem safnað var fyrir
rannsóknina „Sjálfsmynd ungra
mæðra“, þ.m.t. fræðsluefni sem
dreift er til verðandi mæðra, viðtöl
við ungar konur meðan þær voru
barnshafandi og eftir að þær áttu
barn, og hópviðtöl við ungar mæð-
ur. Við greiningu á þessu efni var
eftirfarandi spurningum velt upp:
Hvaða máli skiptir líkaminn í því
hvernig verðandi eða nýbakaðar
mæður eru staðsettar í orðræðum
samfélagsins? Er litið á verðandi
og nýbakaðar mæður sem gerend-
ur sem geta tekið ákvarðanir fyrir
sig sjálfar? Hvers konar hug-
myndir koma fram um eð!i líkam-
ans í þessum orðræðum? Það
verður rakið hvernig ungar mæð-
ur skilgreina sig bæði í samræmi
og í andstöðu við ríkjandi hug-
myndir.
Því verður haldið fram að sjálfs-
veruna verði að skoða í líkamleik
sínum en einnig í Ijósi þess hvemig
við emm skilgreind sem sjálfsver-
ur á grandvelli líkama okkar.“
Ríkisút-
varpið opnar
kosningavef
OPNAÐUR hefur verið kosninga-
vefur á heimasíðu Ríkisútvarpsins
á vegum fréttastofu Utvarpsins og
fréttastofu Sjónvarpsins. Þar verð-
ur safnað saman ýmsum fréttum
og fróðleik vegna alþingiskosning-
anna í vor.
Slóðin að vef Ríkisútvarpsins er
www.rav.is og þar er að fínna tákn-
mynd sem vísar rétta leið að kosn-
ingavefnum. Vefurinn sjálfur hefur
slóðina www.rav.is/kosningar.
A kosningavefnum verða fréttir
úr fréttatímum Útvarpsins og
Sjónvarpsins sem tengjast kosn-
ingunum. Þar verður líka hægt að
sjá niðurstöður skoðanakannana
en Gallup vinnur margar slíkar
fyrir Ríkisútvarpið fram að kosn-
ingum.
Á heimasíðunni verða birtir allir
framboðslistar, flokkaðir eftir kjör-
FRÉTTIR
dæmum. Tenging verður við þær
heimasíður sem flokkar, framboð
og einstakir frambjóðendur hafa
komið sér upp.
Leikfími-
námskeið GÍ að
hefjast
LEIKFIMINÁMSKEIÐ byija
aftur 7. apríl í Gigtarmiðstöð GÍ,
Ánnúla 5 í Reykjavík, og era allir
velkomnir að vera með. Vorönn
stendur í 7 vikur eða til 27. aprfl
nk. í boði er fjölbreytt þjálfun í
10-14 manna hópum undir hand-
leiðslu sérhæfðs fagfólks.
Leikfimin hentar einstaklingum
sem vilja þjálfa í rólegu, vinalegu
umhverfí í lokuðum hópi, hvort
sem viðkomandi er með gigt eða
ekki, segir í fréttatilkynningu. í
boði eru hópar fyrir þá sem eru að
byrja þjálfun og einnig fyrir ein-
staklinga sem vanir era hreyf-
ingu.
I vor verða eftirfarandi hópar í
boði: Almenn leikfími, jóga, vatns-
leikfimi og sérhæfðir leikfini fyrir
einstaklinga með vefjagigt og
hryggikt. Leikfímin fer fram í hús-
næði GÍ í Armúla 5 og vatns-
þjálfunin í Sjálfsbjargarlaug í Há-
túni. Upplýsingar og skráning fer
fram á skrifstofu GÍ. og þar er
einnig hægt að fá ráðgjöf sjúkra-
þjálfara við val á leikfimi.
Fundir hjá
Grænu
framboði
FUNDIR verða í kosningamiðstöð
Vinstri hreyfingarinnar - græns
framboð á Suðurgötu 7 miðviku-
daginn 7. aprfl, fimmtudaginn 8. og
laugardaginn 10. apríl.
Verkalýðsbarátta á villigötum?
er yfirskrift fundarins 7. apríl og
hefst hann kl. 20.30. Frammæl-
endur verða Björk Vilhelmsdóttir,
formaður BHM, Guðrún Kr. Óla-
dóttir, gjaldkeri Eflingar, Heimir
B. Janusarson og Ögmundur Jón-
asson, þingmaður. Fundarstjórn
er í höndum Sigríðar Kristinsdótt-
ur.
Græn hagfræði verður á dagskrá
fimmtudaginn 8. apríl kl. 20.30. Þar
munu Geir Oddsson, auðlindafræð-
ingur, og Sigríður Ágústa Ás-
grímsdóttir, rafmagnsverkfræð-
ingur, hafa framsögu.
Laugardagsmorguninn 10. apríl
verður rætt um miðlægan gagna-
grunn á heilbrigðissviði undir leið-
sögn Birnu Þórðardóttur og fleiri.
Fundirnir eru öllum opnir.
Erindi um
Leónsriddarann
FÉLAG íslenskra fræða efnir til
fundar í Skólabæ í kvöld, miðviku-
dagskvöld 7. aprfl, með Hönnu
Steinunni Þorleifsdóttur, bók-
menntafræðingi og hefst fundurinn
kl. 20.30.
Erindi Hönnu Steinunnar nefn-
ist „Riddari á eigin vegum. Leóns-
riddarinn eða ívent Artúskappi og
saga hans“. Það mun fjalla um af-
drif fornfrönsku ljóðsögunnar um
ívent Artúskappi frá 12. öld í ís-
lenskum handritum Iventssögu.
Merkustu handrit franska verksins
eru öll frá 13. öld, aðeins örfá hand-
ritabrot eru talin litlu eldri. ívents-
saga er allvel varðveitt í tveimur
15. aldar handritum þar sem Há-
kon kóngur gamli er sagður hafa
látið snúa sögu herra Ivent úr
„franzeisku" á noraænu. Sagan er
einnig til sniðin og samantekin á
17. aldar handriti. Létt og
skemmtileg sænsk rímuð gerð af
sögunni var til á fyni hluta 14. ald-
ar, segir í fréttatilkynningu.
Hanna Steinunn Þorleifsdóttir
lauk doktorsprófi í miðaldarbók-
menntum frá Sorbonne-háskóla IV
árið 1996. Doktorsritgerð hennar
fjallaði um þýðingu Iventssögu úr
fornfrönsku. Hanna Steinunn hef-
ur búið í París um árabil og er hún
nýkomin heim.
Eftir framsögu verða almennar
umræður. Fundurinn er öllum op-
inn.
Sameinaðir
verktakar hf.
styrkja Virkið
Á AÐALFUNDIR Sameinaðra
verktaka hf. sem haldinn var mið-
vikudaginn 31. mars sl. var ákveðið
að styrkja Götusmiðjuna - Virkið
um eina milljón króna.
Götusmiðjan Virkið hefur fengið
afnot af Hlíðardalsskóla, sem er
heimavistarskóli í eigu aðventista,
og ætlar að reka þar meðferðar-
heimili fyrir ungmenni í vímuefna-
vanda.
Markáætlun
Rannsóknarráós Islands
Framlengdur umsóknarfrestur
Frestur til að skila umsóknum í markáætl-
un Rannsóknarráðs Islands um upp'
lýsingatœkni og umhverfismál hefur verið
framlengdur til mánudagsins 19. apríl nk.
RANNÍS
Stjörnuspá á Netinu
/gjmbl.is
Vantar þig ekki öruggt húsnœði?
Umsóknarfrestur til 13. apríl
2ja herb.
Skólatún 1, Álftanesi
69m2 íbúð, 203 Leiguíb. lán
Búseturéttur kr. 617.938
Búsetugjald kr. 24.832
3ja herb.
Miðholt 13, Mosfellsbæ
82m2 íbúð, 202 Almennt lán
Búseturéttur kr. 1.320.275
Búsetugjald kr. 50.563
3ja herb.
Lerkigrund 5, Akranesi
80m2 íbúð, íoi Leiguíb. lán
Búseturéttur kr. 965.290
Búsetugjald kr. 34.878
4ra herb.
Frostafold 20, Reykjavík
78m2 íbúð, 702 Leiguíb. lán
Búseturéttur kr. 1.072.634
Búsetugjald kr. 38.807
4ra herb.
Miðholt 5, Mosfellsbæ
95m2 íbúð, 303 Leiguíb.lán
Búseturéttur kr. 1.497.152
Búsetugjald kr. 40.752
Leiguíb.lán = húsaleigubætur
Almenn lán = vaxtabætur
Nánari iipplýsingur á skrifslnfu Búscta hsf. Opiö frá kl. 8.30 lil 15.30. iicnia niiövikuduga
frá 8.30-12.00. Mcö iimsókmnii um íbiiöir incö lcigiifli.lán. þurl'aö skila skatlframlöliiin síðuslti 3ja ára, cn
síöustu skattskýrslu mcö uinsóknum inn iliúöir mcö almcnnuni lánuin.
Úthlulim íliiiöunna fcr l'rain miövikudaginn 14. aprfl kl. 12.00 aö Skcifiinni 19.
Uinsækjendur verða aö inæla ug slaöfcsta lilhliitim sína.
Búseti hsf. Skeifunni 19 sími 520-5788
www.buseti.is