Morgunblaðið - 07.04.1999, Side 76
76 MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
í DAG
Safnaðarstarf
Áskirkja. Starf fyrir 10-12 ára böm
kl. 17.
Bústaðakirkja. Opið hús fyrir aldr-
aða kl. 13-17.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl.
12.10. Orgelleikur á undan. Léttur
málsverður á kirkjuloftinu á eftir.
Mæðrafundur kl. 14-15.30 í safnað-
arheimilinu. Starf fyrir 10-12 ára
börn kl. 17 í safnaðarheimilinu.
Grensáskirkja. Samverastund eldri
borgara kl. 14-16. Biblíulestur,
samverustund, kaffiveitingar. TTT-
starf (10-12 ára) kl. 16.30.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir for-
eldra ungi-a bama kl. 10-12. Starf
fyrir 9-10 ára kl. 16.30. Starf fyrir
7*- 11—12 ára kl. 18.
Háteigskirkja. Mömmumorgunn kl.
10-12. Kvöldbænir og fyrirbænir kl.
18.
Langholtskirkja. Starf fyrir eldri
borgara kl. 13-17.
Laugarneskirkja. „Kirkjuprakkar-
ar“ (starf fyrir 6-9 ára börn) kl.
14.30. TTT-starf (10-12 ára) kl. 16.
Fundur æskulýðsfélagsins kl. 20.
Neskirkja. Mömmumorgunn kl. 10.
Kaffi og spjall. Ungar mæður og
feður velkomin. Opið hús fyrir eldri
borgara kl. 15-17. Umsjón Kristín
Bögeskov djákni.
Seltjarnarneskirkja. Kyi’rðarstund
kl. 12. Söngur, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður í safn-
•- aðarheimilinu.
Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr-
aðra, opið hús í dag kl. 13.30-16.
Handavinna og spil. Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 16. Bænarefnum
er hægt að koma til presta safnað-
arins. TTT í Ártúnsskóla kl. 16-17.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í
dag kl. 12.10. Tónlist, altarisganga,
fyrirbænir. Léttur málsverður í
safnaðarheimilinu eftir stundina.
„Kirkjuprakkarar" starf fyrir 7-9
ára börn kl. 16. TTT starf fyrir
10-12 ára kl. 17.15. Æskulýðsstarf á
vegum KFUM og K og kirkjunnar
kl. 20.
Fella- og Hólakirkja. Helgistund í
Gerðubergi á fimmtudögum kl.
10.30.
Grafarvogskirkja. KFUK fyrir
stúlkur 9-12 ára kl. 17.30-18.30.'
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar
kl. 10-12. Sarf fyrir 10-12 ára kl.
16.30.
Kópavogskirkja. Starf með 8-9 ára
bömum í dag kl. 16.45-17.45 í safn-
aðarheimilinu Borgum. Starf á
sama stað með 10-12 ára (TTT) kl.
17.45-18.45.
Seljakirkja. Fyrirbænir og íhugun í
dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir
velkomnir. Tekið á móti fyrirbæn-
um í kirkjunni og í síma 567 0110.
Léttur kvöldverður að bænastund
lokinni. Fundur Æskulýðsfélagsins
kl. 20.
Vídalínskirkja. Foreldramorgunn
kl. 10-12.
Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir
eldri borgara kl. 14-16.30. Helgi-
stund, spil og kaffi.
Hafnaríjarðarkirkja. Kyrrðarstund
í hádegi í kirkjunni kl. 12-12.30.
Æskulýðsstarf, eldri deild kl. 20-22
í minni Hásölum. Kl. 20-21.30 íhug-
un og samræður í safnaðarheimilinu
í Hafnarfjarðarkirkju. Leiðbeinend-
ur Ragnhild Hansen og sr. Gunnþór
Ingason.
Kletturinn, kristið samfélag. Bæna-
stund kl. 20. Aliir velkomnir.
Lágafellskirkja. Kyrrðar- og bæna-
stundir alla fimmtudaga kl. 18 í vetur.
Hólaneskirkja, Skagaströnd.
Mömmumorgunn í Fellsborg kl. 10.
VELVAKAJVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Heilar 700
krónur til
öryrkja!
ÉG hef horft á ríkisstjórn-
ina koma fram í sjónvarpi
og berja sér á brjóst fyrir
það örlæti að hækka
greiðslur til öryrkja um
700 krónur á mánuði,
hvorki meira né minna. Að
þetta fólk skuli halda að
það fáist eitthvað fyrir 700
ki'ónur í dag og að þetta sé
upphæð sem fólk eigi að
muna um. Segir það ekki
alla söguna um bág kjör
öryrkja?
Þegar þingmenn þurfa
að hækka sín eigin laun þá
dugar aldrei minna en
fimm stafa tala.
Guðrún Jóhannsdóttir,
Túngata 20,
225 Bessastaðahreppur.
Akureyrarveikin
ÞEIR sem fengu Akureyr-
arveikina 1948 eða síðar
eða heilahimnubólgu, háls-
eða höfúðáverka geta haft
samband við Rósu í síma
5533437.
Tapað/fundið
Mont Blanc penni
tapaðist
SVARTUR Mont Blanc
penni tapaðist 5. mars á
höfuðborgarsvæðinu.
Penninn er merktur. Ef
einhver hefur fundið hann
þá vinsamlegast hafið sam-
band í síma 5885466.
Fundarlaun.
Lyklakippa fannst
LYKLAKIPPA með
mörgum lyklúm fannst á
gatnamótum Miklubrautar
og Snorrabrautar. Á kipp-
unni er brún leðurbót með
ki'ókódil á. Uppl. í síma
5512252.
Karrimore bakpoki
tapaðist
SVARTUR Kai'rimore
bakpoki tapaðist í kringum
20. mars. í pokanum var
myndavél, vasasegul-
bandstæki, fatnaður og
fleira. Pokinn tapaðist í
Bláfjallarútu eða í Bláfjöll-
um. Ef einhver veit um
pokann þá vinsamlegast
hringið í síma 5885466.
Fundai'laun.
Blá gleraugu
BLÁ barna eða unglinga-
gleraugu fundust fyrir
skömmu. Inn í gleraugun-
um stendur Lookers By
Polaroid. Hinum megin á
þeim stendur Ce 3605
C2.00. Ef einhver kannast
við þessa lýsingu er hægt
að fá upplýsingar í síma
5811239.
Hringur tapaðist
GULLHRINGUR, módel-
smíði frá Jens tapaðist fyr-
ir skömmu. hringurinn er
með stórum hvítum ópal-
steini. Hringurinn hefur
mikið tilfinningalegt gildi
og ef einhver hefur fundið
hann er hann vinsamlegast
beðinn um að hringja í
síma 898-8266, Jóhanna.
Hjól tapaðist
JAZZ Rocket fjallahjól
tapaðist úr Blönduhlíð.
Hjólið sem er grátt er með
tösku framan á stýrinu. Ef
einhver veit um hjóhð er
hann beðinn-um að hringja
í síma 5512252.
Dýrahald
GRÁR kettlingur
í óskilum
GRÁR kettlingur fannst í
Grafarvogi fóstudaginn 26.
mars. Hann er mjög gæf-
ur, sennilega heimiliskött-
ur. Finnandi getur fengið
upplýsingar í Kattholti.
Páfagaukur tapaðist
HUN Trítla er grænn
páfagaukur og hún tapað-
ist úr Grafarvoginum
þriðjudaginn 31. mai's. Ef
einhver hefur séð til
Trítlu, þá vinsamlegast
hringið í síma 5861202.
Morgunblaðið/Finnur
FYRIR skömmu héldu þær Sveinbjörg Ólafsdóttir og Eydís
Jóhannesdóttir á Tálknafirði tombólu. Ágóðann af
tombólunni færðu þær sr. Sveini Valgeirssyni
sóknarpresti, með þeim orðum að peningana ætti að Ieggja
í kirkjubyggingarsjóð Stóru-Laugardalssóknar. Undan-
farna mánuði hefur sóknarnefndin verið að kanna
möguleika á byggingu nýrrar kirkjti í Tálknafirði. Þá hafa
verið gefin út minningarkort með mynd af kirkjunni f
Stóra-Laugardal, til styrktar kirkjubyggingarsjóði.
HÖGNI HREKKVÍSI
Lindasmári 37
Opið hús milli kl. 14 og 17
155 fm, hæð og ris. Til sýnis í dag milli kl. 14 og 17 í þessu
fallega húsi. 6-7 herb. Ibúð á frábærum stað. íbúðin er ekki
fullbúin en vel íbúðarhæf. Möguleiki á 5 svefnherb.
Stórar suðursvalir. Ágætt útsýni. Glæsilega hönnuð eign.
Verð 11 millj.
Upplýsingar á
VALHÖLL, FASTEIGNASÖLU,
Síðumúla 27, sími 588 4477.
Við hjálpum púí
Kínverjor hofa lönpum verið þekktir fyrir longlífi og heilbrigðan lifnoðorhótt. Í gegnum órþósundir
hafo þeir þrooð mjög fulikomnar og þægilegor oðlerðir til eflingor líkamn og heilsu.
í Heilsudrekanum fætðu
streitukvillum, s.s. vöðváólgu, kkveiki, gigt, olmennum sfitðleika og fleíru.
Boðíð er upp ó kínversko leikfími sem byggist ó rólegum hreyfiæfingum og teygjum,
kínverskt nudd og kínverskt boð sem er mjög hreinsandi fyrir húðino.
Einnig eru í boðr U.C.W. Leirvafningor og Eurowove rofnudd sem hreinso og móto
ollonn líkomo þinn ón strangror megrunor eðo æfingo og gerir húðína ofor stinno og
silkimjúko. Þessar viduáenndu adlerdir eru laldar fljótvirkuslu leióimar ril grenningar.
sem hjólpo þér gegn ýmsum
io Hina
Opið
HQ8aifotiCTi!iTit
un ,)‘UU 1IIll
Vlrku duga B'OD K2'00
luugBidBao lo-on - ko-oo
SunnudBgo IK'OD III 11(1
KinversH hBÍIsulind
rnúlo 17o - Sími 553 8282
Víkverji skrifar...
AÐ UNDANFÖRNU hefur
Víkverji velt fyrir sér blaða-
mannafunda- og fjölmiðlagleði
ráðamanna þessa þjóðfélags. Það
er eins og ekki megi gefa út fjór-
blöðung á vegum nokkurs ráðu-
neytis lengur, án þess að kalia
þurfi til fulltrúa allra fjölmiðla.
Þannig tók Víkverji eftir myndar-
legri umfjöllun í máli og mynd hér í
blaðinu í liðinni viku, fyrir þær sak-
ir einar að forstöðumaður Þjóð-
menningarhússins, sem vel að
merkja verður ekki opnað fyrr en
20. apríl árið 2000, afhenti forsæt-
isráðherra íýrsta eintak kynning-
arbæklings um starfsemi hússins!
XXX
SAMA blaði var frétt og mynd af
menntamálaráðherra, af því til-
efni að ráðuneyti hans hefur gefið
út smárit um jafnrétti til menntun-
ar. Næsta dag var það félagsmála-
ráðhetTa sem gleiðbrosandi kynnti
á blaðamannafundi nýtt kennslu-
efni fyrir Pólverja sem vilja læra
íslensku. Þetta eru aðeins örfá
dæmi, valin af handahófi, sem Vík-
verji telur að hafi alls ekki risið
undir því að teljast tilefni til boðun-
ar blaðamannafundar. En allir vita
að kosningar nálgast, og þá er auð-
vitað þýðingarmikið fyrir ráða-
menn, sem sækjast eftir endur-
kjöri, að vera eins mikið í sviðsljósi
fjölmiðlanna og kostur er. Það er
svo bara við okkur fjölmiðlungana
að sakast, að við skulum hlaupa
upp til handa og fóta og mæta á
hvern einasta blaðamannafund
sem ráðamennimir boða til, og
endursegja svo fréttleysuna í fjöl-
miðlum okkar.
xxx
REYNDAR hefur Víkverji tekið
eftir öðrum fjölmiðlaglöðum
manni, sem ekki þarf að heyja
neina kosningabaráttu í bráð, en
það er forseti íslands. Það er varla
opnuð sýning nokkurs staðar eða
hafin keppni í einhverri íþrótta-
grein, að forsetinn sjálfur þurfi
ekki í eigin persónu að vera við-
staddur og ávallt að gegna lykil-
hlutverki. Meira að segja þurfti
hann að setja sjálft skíðalandsmót-
ið á ísafirði í síðustu viku. Er þetta
ekki fullmikið af því góða?!
xxx
VÍKVERJA hefur borist eftir-
farandi bréf frá Lofti R. Giss-
urarsyni, gæðastjóra Vatnsveitu
Reykjavíkur:
29.3.1999
Við viljum þakka Víkverja fyrir
ábendingarnar í Morgunblaðinu
þann 27. marz. Þar bendir hann á
fjölda bifreiða við Gvendarbrunna-
hús þegar gengið var frá samningi
Menningarborgai' og nokkurra
máttarstólpa í íslensku atvinnulífi.
Við höfum stundum þurft að beita
ákveðni við að halda bifreiðum í
skefjum, en í þessu tilviki höfðu
nokkrir einstaklingar fengið und-
anþágu (fréttamenn og aðrir sem
komu að undirbúningi móttökunn-
ar). Reglur Vatnsveitunnar varð-
andi umferð um brunnsvæðin eru
skýrar. Tæki og vélar sem erindi
eiga inn á þau svæði eiga að vera
skoðuð af starfsmönnum fyrirtæk-
isins. í þessu tilviki leit starfsmað-
ur eftir bifreiðunum og fylgdist
með þeim á staðnum. Engu að síð-
ur hefði innra eftirlit VR mátt vera
strangara, sérstaklega hvað varðar
bifreiðina sem var í gangi.
F.h. Vatnsveitu Reykjavíkur
Loftur R. Gissurarson
gæðastjóri.
Víkverji þakkar Lofti bréfið og
vonar að Vatnsveita Reykjavíkur
gefi framvegis hvergi eftir í eftirliti
með bílaumferð og útblæstri á
Gvendarbrunnasvæðinu, sama
hvort þar á í hlut máttarstólpi eða
meðal-Jón.