Morgunblaðið - 07.04.1999, Qupperneq 79
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999 79
ÞEIR Sigurjón Kjartansson og
Jón Gnarr, umsjónarmenn Tví-
höfða, morgunþáttar X-ins,
mættu í dómsal í gærmorgun.
Tildrög málsins eru þau að 18.
desember síðastliðinn fór út-
sendari þeirra á þingpalla Al-
þingis og í kjölfarið voru þeir
þrír ákærðir fyrir að hafa trufl-
að friðhelgi Alþingis. í gær-
niorgun mættu þeir svo fyrir
Héraðsdóm og hafði hópur
stuðningsmanna safnast saman
fyrir utan.
„Við fengum að heyra
ákæruna enn og aftur og síðan
fer frekari málsókn fram 29.
aprfl næstkomandi,“ sagði Sigur-
jón. „Það er sem sagt ekki enn
búið að kveða upp dóminn og ég
veit ekki hvenær hann verður
kveðinn upp, það gæti orðið dá-
lítið í það.“
- Hvernig var að koma inn í
dómsal?
„Það var ósköp „kósí“, það
voru allir frekar vinalegir þarna,
dómarinn var mjög vinalegur og
saksóknarinn líka.“
- Þið hafíð þá verið fullir iðr-
unar?
„Iðrunar? Ekkert sérstaklega,
ég get ekki sagt það. En þetta
var ágætis lífsreynsla og nátt-
úrulega mjög gott útvarp því við
vorum í þættinum á meðan á
þessu stóð. Reyndar ekki meðan
við vorum í dómsalnum en þessu
var lýst af okkar mönnum á
staðnum."
- Eruð þið saklausir eða sekir?
„Hver er saklaus? Það er stóra
spurningin. Hvað er sekt og
hvað er sakleysi spyr ég á móti.
Þetta er allt afstætt.“
- Hefur mannorð ykkar beðið
einhvern hnekki?
„Vafalaust. Mannorð okkar
bíður reyndar hnekki daglega."
- Hver heldur þú að niður-
staða dómsins verði?
„Tja, það er spennandi að vita.
Þetta gseti farið á hvorn veginn
sem er. Ég vona nú samt að við
þurfum ekki að dúsa í fangelsi
eða vinna í þágu samfélagsins,
óg myndi ekki nenna því. Ég hef
persónulega aldrei komið inn í
Alþingi, þannig að þetta lfldst
•náli Charles Mansons, hann er
dæmdur fyrir morð á fólki sem
hann hefur aldrei komið ná-
lægt.“
- Gerðuð þið ykkur grein fyrir
því á sínum tíma að þið væruð að
trufla þingstörf?
„Ja, örlitla kannski. Þessi
truflun var mjög stutt og lítil
held ég og þetta er ekki í fyrsta
sinn sem þetta gerist. Þetta var
hluti af föstum lið í þættinum
FOLK I FRETTUM
TVÍHÖFÐAMENN voru flottir á því þegar þeir mættu fyrir
dómstóla í gærmorgun í glæsivagni.
Mannorð okkar bíður
hnekki daglega
sem hét „Föstudagshandtakan“
þar sem við sendum mann í
hættuför og sáum til hvort hann
var handtekinn. Við höfum tekið
upp á ýmsu en ekki áður verið
kærðir."
- Hvað verður um Föstudags-
handtökuna?
„Hún hefur legið í láginni frá
áramótum. Við vitum ekki hver
framtíð hennar verður. Við vilj-
um nú ekki gefa okkur út fyrir
að vera svona miklir glæpa-
menn, við viljum vera frægari
fyrir annað. Nú er ekkert annað
að gera en að bíða þangað til
málið verður tekið fyrir aftur.
Ætli maður geti nokkuð borðað
eða sofið fyrir kvíða,“ sagði Sig-
urjón grafalvarlegur að lokum.
DREIFtNGARADIU
I.GUÐMUNDSSON ehf.
Sími: 533-1999, Fax: 533-1995
TUVLARNIR breytast!
Hvaómeóþig?
1999
síóasta ár aldarinnar