Morgunblaðið - 17.04.1999, Side 2
2 LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
440 sjó-
mílna
sj'úkraflug
TF-LÍF, þyrla Landhelgisgæslunn-
ar, fór í eitt af iengri sjúkraflugum
sínum í gærmorgun þegar slasaður
sjómaður var sóttur um borð í Ey-
borgu EA.
Maðurinn hafði fótbrotnað við
störf sín í skipinu og var skipinu
þegar snúið tii lands. Skip og þyrla
mættust svo rétt innan við 200 sjó-
mflna mörkin suðaustur af Reykja-
nesi. Lagt var af stað í sjúkraflugið
kl. 6.28 í gærmorgun. Giftusamlega
tókst að ná manninum um borð í
þyrluna og var lent með hann við
Sjúkrahús Reykjavíkur kl. 10.27.
Alls var sjúkraflugið 440 sjómflur
en flugþol þyrlunnar er um 550 sjó-
mílur.
Ungur ökumaður slapp ómeiddur þegar flutningabfll hrapaði 30 metra í Svartárhorni
Lenti í blindhríð og sá
jörðina koma á móti sér
„ÞAÐ ER ekki spuming, beltið
bjargaði mér,“ sagði Gunnþór Krist-
jánsson bflstjóri á Akureyri sem
heldur betur komst í hann krappan í
fyrrinótt þegar vöruflutningabfll
með tengivagni sem hann ók fór út
af veginum í beygjunni skömmu áð-
ur en komið er að Húnaveri, svo-
nefndu Svartárhomi, og hrapaði
hann niður að ánni allt að 30 metra.
Gunnþór var á norðurleið, en
SJÓMAÐURINN hífður um borð í TF-LÍF rétt innan 200 sjómflna
markanna suðaustur af Reykjanesi.
óhappið varð skömmu fyrir mið-
nætti. „Eg hafði ekið í svona
þokkalegu veðri, ekki sérlega góðu,
alla leið að sunnan, en þegar ég
kem þarna keyri ég skyndilega inn
í blindstórhríð, þetta var eins og
veggur og ég sá ekki neitt. Vissi
ekkert hvar ég var og bara allt í
einu átta ég mig á því að bíllinn er
að falla út af veginum og niður að
ánni, ég sá jörðina koma á móti
mér,“ sagði Gunnþór. „Það flaug
nú ýmislegt gegnum hugann á leið-
inni niður, en ég trúði því ekki að
þetta væri mitt síðasta."
Hékk í beltinu þegar
bfllinn stöðvaðist
Gunnþór kvaðst hafa gert sér
litla grein fyrir því hvernig lend-
ingin yrði, en hann hefði haldið
dauðahaldi í stýrið. Hann var í ör-
yggisbelti og segir það eflaust hafa
skipt sköpum. „Ég hékk í beltinu
þegar bfllinn stöðvaðist, en náði að
losa mig úr því,“ sagði hann. Gunn-
þór, sem er 24 ára gamall, tók
meirapróf tvítugur og hefur ekið
vöruflutningabíl á leiðinni milli
Akureyrar og Reykjavíkur í um
eitt ár, en þar á undan greip hann í
akstur af og til. Hann segist til að
byrja með ekki endilega hafa
spennt sig í öryggisbelti áður en
hann hóf akstur, en fljótlega eftir
að hann fór að keyra flutningabíl-
inn hafi hann vanið sig á það. „Ég
fór að hugsa um að það væri betra
að vera í beltinu ef eitthvað kæmi
fyrir og vandi mig á að spenna
alltaf beltið, nú þykir mér beinlínis
óþægilegt að keyra bfl ef ég er ekki
í belti," sagði Gunnþór.
Hann var í samfloti með nokkr-
um öðram bflstjóram og náði hann
að kalla í þá sem á undan vora
strax eftir óhappið. Þeir snéra við
og aðstoðuðu hann, en Gunnþór
slapp ómeiddur, er ekki með eina
einustu skrámu.
Niðurstöður könnunar á högum og viðhorfum aldraðra kynntar
94% kváðust ánægð með
veitta heilbrigðisþjónustu
ALDRAÐIR era almennt ánægðir með lífíð,
telja sig hafa fengið góða þjónustu á sjúkrahús-
um og heilsugæslustöðvum og búa í eigin hús-
næði. Þetta er meðal niðurstaðna könnunar
Gallup á högum aldraðra sem kynnt var á fundi
heilbrigðisráðherra í gær.
Könnunin er gerð fyrir heilbrigðisráðuneytið
í mars sl. í tilefni af ári aldraðra. Markmið
rannsóknarinnar var að kanna viðhorf aldraðra,
kjör þeirra og lífsmáta. Ingibjörg Pálmadóttir
heilbrigðisráðherra sagði í gær að könnunin
væri mikilvæg fyrir stjórnvöld til þess að þau
gætu gert sér grein fyrir því hver staða aldr-
aðra væri og hvar úrbóta væri helst þörf.
Ingibjörg sagði að niðurstöður könnunarinn-
ar sýndu að brýnast væri að koma til móts við
þann hóp sem hefur frestað því að kaupa lyf eða
fara til læknis af fjárhagsástæðum, en í könn-
uninni kom fram að tæplega 5% svarenda hefðu
á síðustu fimm árum einhvern tíma frestað því
að fara til læknis af fjárhagsástæðum og næst-
um 3% svarenda hefðu á sama tímabili hætt við
að fara til læknis af sömu ástæðum. 4% sögðust
á síðustu fimm árum einhvem tíma hafa frestað
því að kaupa lyf af fjárhagsástæðum og 3%
höfðu hætt við að kaupa lyf af sömu ástæðum.
Einmanaleiki fer eftir tilfinningu-,
ekki klukkustundum
Tæplega 21% svarenda segist stundum eða
oft vera einmana. Fólk eyðir að meðaltali 4,2
klukkustundum eitt á dag og telja tæp 15%
þeirra, sem afstöðu taka, þann tíma, sem þau
eyða einsömul, vera lengri en þau kjósa. Að
sögn Þóru Asgeirsdóttur, sérfræðings hjá
Gallup, gefa þessar niðurstöður til kynna að
einmanaleiki miðist fremur við hugarástand en
þann tíma sem fólk eyðir einsamalt, og komi sú
niðurstaða töluvert á óvart.
I könnuninni kemur fram að ríflega 73%
svarenda hitta annað fólk, en þau búa með, á
hverjum degi. 74% segjast hafa aðgang að fé-
lagsstarfi eldri borgara og taka tæplega 36%
þátt í því. Elstu svarendurnir og konur virðast
taka mestan þátt í félagsstarfi eldri borgara.
Að sögn Þóra kom á óvart að hlutfallslega fleiri
á landsbyggðinni sögðust hafa aðgang að fé-
lagsstarfi en á höfuðborgarsvæðinu.
64% aðspurðra segjast hafa farið á heilsu-
gæslustöð á sl. 12 mánuðum og segjast ríflega
94% hafa fengið góða þjónustu í síðustu heim-
sókn sinni á heilsugæslustöð. Tæplega 37%
segja að heilbrigðisþjónustan hafi batnað á sl.
fimm árum en nærri 23% segja hins vegar að
hún hafi almennt versnað. Ríflega 36% að-
spurðra segja að heilbrigðisþjónustan sé ódýr
en 39% telja hana dýra.
91% svarenda býr í eigin húsnæði og hafa
svarendur búið að meðaltali í 22 ár í sama hús-
næði.
Könnunin var gerð í síma á tímabilinu 17.-26.
mars sl. Úrtakið var 1.200 manns á aldrinum
65-80 ára og var svarhlutfall tæp 74%.
Stefnt að
sameiningu
Gunnvarar
og íshúsfé-
lagsins
ÍSLANDSBANKI hf„ sem
keypti þriðjung hlutabréfa í
Gunnvöru hf. á ísafirði af
Þórði Júlíussyni og Báru
Hjaltadóttur, hefur selt bréf-
in aftur til nýstofnaðs eignar-
haldsfélags. Eigendur eignar-
haldsfélagsins era Guðni G.
Jóhannesson, Vignir Jónsson,
Kristján G. Jóhannsson og
Jón Benjamín Oddsson. Þeir
eiga jafnan hlut í Gunnvöru.
Fari ekki úr byggðarlaginu
Guðni segir að þessi kaup
hafi verið gerð fyrst og fremst
til þess að tryggja það að fyr-
irtækið eða hlutar þess fari
ekki úr byggðarlaginu. „Það
verður eflaust samrani milli
Ishúsfélags Isfirðinga og
Gunnvarar og skoðaðir verða
aðrir möguleikar samrana í
heimabyggð," sagði Guðni.
Hann sagði að samrani við
íshúsfélagið hefði verið eitt af
markmiðunum með kaupun-
um. Guðni er stjórnarformað-
ur í báðum fyrirtækjum.
Hann segir að vinna við sam-
einingu fyrirtækjanna hefjist
strax í næstu viku. Svipaðri
starfsemi verði haldið uppi en
hagræðing verði höfð að leið-
arljósi. Otímabært sé hins
vegar að fjalla um hvort
breytingar verði á starfs-
mannahaldi.
Sérblöð í dag
ÁLAUGARDÖGUM
BYGGINGA
t IMíiÆ0®©
MEÐ
Morgun-
£4 blaðinu í
dag er
dreift blaði
frá Sam-
tökum iðn-
__ aðarins:
Itj.wÁ „Bygginga-
' dagar ‘99
fyrir heim-
ilin í land-
inu“.
Kristinn vann Ole
Furuseth í svigi/B1
Meistarabarátta Aftur-
eldingar og FH/B3, B4
Körfubolti
DHL-deildin
www.mbl.is