Morgunblaðið - 17.04.1999, Page 18
18 LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999
MORGUNB LAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Silli
LOFTUR Magndsson augnlæknir hefur rannsakað
augu Þingeyinga í tæp 30 ár.
Húsvíkingar
ánægðir með
heilsugæsluna
Húsavik - Heilsugæslustöðin á
Húsavík mun vera elsta heilsu-
gæslustöðin á landinu, sem veitir
nokkuð alhliða þjónustu. Þar eru
starfandi fjórir læknar og svo koma
til stöðvarinnar öðru hverju sér-
fræðingar til að veita sérfræðiþjón-
ustu og er það t.d. fastur liður í
starfseminni að þriðja hvem mánuð
er hér Eiríkur Sveinsson, háls-, nef-
og eymalæknir, og Loftur Magnús-
son augnlæknir, sem er venjulega
eina viku hvert sinn.
Þegar læknamir Gísli G. Auðuns-
son og Ingimar Hjálmarsson komu
til Húsavíkur fyrir um 30 árum
stofnsettu þeir það sem þá var
nefnd Heilbrigðismiðstöð, síðar
nefnd Læknamiðstöð, eins og víða á
landinu starfa nú undir heitinu
heilsugæslustöðvar, en það var sú
fyrsta sem tók til starfa hér á landi.
Heilsugæslustöðin er í samtengdri
byggingu við sjúkrahúsið.
Framkvæmdastjóri heilsugæslu-
stöðvarinnar og sjúkrahússins er
Friðfinnur Hermannsson.
Sögu sjúkrahússmála Húsavíkur,
sem rekja má til ársins 1912, er
Ólafur Erlendsson, íyrrverandi
sjúkrahússforstjóri, að rita og kem-
ur hún væntanlega út á þessu ári.
Morgunblaðið/Ingimundur
ÞRJU efstu liðin í firmakeppni í boccia í Borgamesi. F.v. iið
Loftorku í Borgarnesi sem hlaut fyrsta sætið, Duracell-karlar urðu í
öðm sæti og Duracell-konur í þriðja sæti.
Loftorka vann firma-
keppni í boccia
Borgarnesi - íþróttafélagið Kveld-
úlfur í Borgamesi hélt í fjórða sinn
firmakeppni í boccia fyrir skömmu.
Fyrsta keppnin fór fram 1996 og
mættu þá fjögur lið til keppni. Sig-
urvegari varð lið Sambýlisins í
Borgamesi.
Árið 1997 kepptu 12 lið og þá
vann lið Vegagerðarinnar í Borg-
arnesi. í fyrra mættu 16 lið til
leiks og starfsstúlkur leikskólans
Klettaborgar fóru með sigur af
hólmi. I ár mættu 16 lið til keppni.
Keppt var í fjórum riðlum og léku
allir við alla. Sigurvegarar í hverj-
um riðli komust í úrslitakeppni.
Mikil barátta og leikgleði ríkti í
flestum leikjunum og mörg
skemmtileg tilþrif mátti líta. Virð-
ist sívaxandi áhugi meðal fyrir-
tækja að taka þátt í þessari
keppni og styrkja þar með starf
Kveldúlfs sem er íþróttafélag fatl-
aðra.
Þrjú efstu liðin hlutu verðlauna-
peninga og efsta liðið hlaut farand-
grip til varðveislu. Gefandi hans
var Sjóvá-Almennar í Borgamesi.
Menntamálaráðherra
húsvitjar í Snæfellsbæ
Ólafsvík - Björn Bjarnason mennt-
amálaráðherra vitjaði grannskól-
anna þriggja í Snæfellsbæ í viku-
byrjun. Ráðherann skoðaði húsa-
kynni og ræddi við starfsfólk og
nemendur. I Grannskólanum í
Ólafsvík vísaði hann til þeirrar um-
fjöllunar sem verið hefur í fjölmiðl-
um að undanfómu um skólastarfið
þar og hvatti til að einskis yrði látið
ófreistað að renna styrkari stoðum
undir skólastarfið og snúa vörn í
sókn til að gera góðan skóla enn
betri.
Sveinn Þór Elínbergsson skóla-
stjóri rakti í stuttu máli upphaf
skólastarfs í Ólafsvík og kvaðst
bjartsýnn á bættan hag skólans
með auknu kennslurými og tilkomu
nýs íþróttahúss, sem senn mun rísa
í næsta nágrenni skólans.
I fylgd með ráðherranum vora
alþingismenn Sjálfstæðisflokksins
og frambjóðendur á Vesturlandi í
kosningunum í vor, en einn þeirra,
Sturla Böðvarsson, er fyrrverandi
nemandi skólans.
Morgunblaðið/Friðrik J. Hjartar
BJÖRN Bjamason menntamálaráðherra ásamt
Sveini Elínbergssyni skólastjóra.
Morgunblaðið/Egill Egilsson
Snjóflóð á Hvilftarströnd
Ekki dæmi um slíkt áður
Flateyri - Eftir síðustu óveðurshr-
inu sem reið yfir Vestfirði og víðar
kom í ljós að snjóflóð hafði fallið við
Kaldá á Hvilftarströnd. Kunnugir
segja að slíkt hafi ekki gerst áður.
Hér var um ræða frekar stórt
flóð og lokaði það veginum um tíma.
Talið er að um krapaflóð hafi verið
að ræða, þar sem flóðið féll eftir ár-
farvegi Kaldár og uppfyrir veg.
Engin hætta stafaði af flóðinu og
vora starfsmenn Vegagerðarinnar
komnir fljótt á vettvang til að ryðja
veginn.
Leirbakstrar
á handverks-
sýningu
Búðardal - Trésmiðjan Megin í
Búðardal tekur þátt í hand-
verkssýningu sem haldin verð-
ur í Laugardalshöllinni í
Reykjavík og opnuð verður 22.
aprfl. Þar verður Megin með
sýningarbás og verða til sýnis
leirbakstrar sem fyrirtækið
framleiðir. Helstu kostir við
bakstrana era að þeir eru unn-
ir úr náttúraefnum eingöngu,
henta vel við meðhöndlun gigt-
arsjúklinga og til að vinna á
vöðvabólgu. Heilsubakstrarnir
era afar mjúkir og falla vel að
líkamanum. Umbúðirnar eru
vatnsheldar og bleyta því ekki
lök eða handklæði sem sjúk-
lingarnir nota.
Rjúpur í húsagarði
Egilsstöðum -
Töluvert er
um ijúpur á
Austurlandi og
hafa þær sést
bæði nálægt
byggð og inni í
þorpum. Þess-
ar sáust í húsa-
garði á Egils-
stöðum.
AXIS
Smiójuvegi 9
Sími 554 3500