Morgunblaðið - 17.04.1999, Qupperneq 28
28 LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Dan Quayle, fyrrv. varaforseti, vill verða forsetaefni republikana
Hvergi bang-
inn við skoð-
anakannanir
Washington. Reuters, The Daily Telegrapli.
DAN Quayle, fyrrverandi varafor-
seti Bandaríkjanna, tilkynnti á mið-
vikudag, að hann ætlaði að keppa
eftir útnefningu Repúblikanaflokks-
ins sem forsetaframbjóðandi á
næsta ári.
„Eg er kominn heim til að lýsa yf-
ir, að ég ætla að leita eftir og vinna
útnefninguna," sagði Quayle í
heimabæ sínum, Huntington í Indi-
ana, og sagðist hvorki hafa áhyggj-
ur af skoðanakönnunum né stóru
körlunum, keppinautunum. Quayle
heldur því fram, að árin hans í
Hvíta húsinu geri hann hæfastan til
að leiða Repúblikanaflokkinn en
skoðanakannanir sýna ekki, að
hann eigi mikla möguleika. Af 10
mönnum, sem era taldir munu taka
þátt í forkosningunum, er Quayle
langt á eftir þeim fremstu en sigur-
stranglegastur þeirra er George W.
Bush, sonur fyrrverandi forseta,
George Bush.
Bush valdi Quayle sem varafor-
setaefni sitt 1988 og talaði þá um
hann sem „vaxandi mann í flokkn-
um“. í embætti varð Quayle hins
vegar aðallega frægur fyrir alls
kyns ambögur og aldrei eins og
þegar hann heimsótti barnaskóla
og var staðinn að því að kunna ekki
að stafsetja orðið kartafla rétt á
ensku.
Stjórnmálafræðingurinn Stu Rot-
henberg segist telja, að möguleikar
Quayles á að hljóta útnefningu séu
mitt á milli þess að vera svartir og
kolsvartir. „Jafnvel vinir hans, sem
fínnst hann hafa verið úthrópaður
að ósekju, sjá ekkert vit í framboð-
inu,“ sagði hann.
Quayle hugsanlega vanmetinn
Sumir fréttaskýrendur telja
raunar, að Quayle sé vanmetinn en
til að geta gert sér einhverjar vonir
verður hann að koma á óvart og
sigra í einhverjum fyrstu forkosn-
inganna. Hefur hann vakið nokkra
athygli á sér með hörðum árásum á
Bill Clinton forseta iyrir að draga
ímynd Bandaríkjanna niður í svaðið
erlendis.
í (f^n FASTEIGNA f 1 [ 1 JrMJ MARKAÐURINN j
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 551-1540, 552-1700, FAX 562-0540 Netfang: http://habil.is/fmark/ OPIÐ í DAG FRÁ KL. 13-15
SERBYLI Kringlan - Laus strax. Mjög falleg 70 fm íbúð á miðhæð. Sérinn- gangur af svölum. Parket. Stórar suður- svalir. Laus strax. Stæði í bíiskýli. GÓÐ EIGN Á GÓÐUM STAÐ.
Melabraut - Seltj. Giæsiiegt 145 fm einbýlishús á einni hæð ásamt tvöf. bílskúr. Saml. stofur. 3-4 svefn- herb. Vandaðar innr. og gólfefni. Falleg ræktuð lóð. Hiti I stéttum.
2JA HERB.
Kleppsvegur - 2 íbúðir. io6fm einbýlishús, hæð og kjallari. Uppi eru rúmgóð stofa, 1 herb., eldhús og baðherb. i kjallara er 2ja herb. Ibúð með sérinn- gangi. Nýtt þak. Mjög stór lóð. HÆÐIR Framnesvegur - byggsj. 5,2 millj. Fín 59 fm íbúð á 1. hæð ásamt stæði í bílgeymslu. Hús nýmálað að utan. Rúmgott svefnherb. Góð stofa. Parket. Áhv. byggsj. 5,2 millj. Verð 7,5 millj.
Dvergholt - Mos. Góð 124 fm neðri sérhæð í tvíbýli. 3 svefnherb. Sérlóð. Áhv. húsbr. 5,4 millj. Verð 9,2 millj. 4RA-6 HERB.
Garðastræti - sérinng. góö einstaklingsíbúð á 1. hæð með sérinn- gangi. íbúð er öll nýtekin í gegn. Áhv. 1,8 millj. Verð 4,2 millj.
Barðavogur - byggsj. 3,5 millj. Góð 95 fm íbúð i kjallara með sérinngangi. Lítið niðurgrafin. 3 svefnherb. Ný innr. i eldhúsi. Parket. Nýtt tvöf. gler. Áhv. byggsj. 3,5 millj. Verð 8,8 millj. Hávallagata - laus strax. Bjort og rúmgóð 75 fm íbúð í kjallara/ jarðhæð á þessum góða stað i vesturbænum. Sér- inngangur. Laus strax. Verð 7,0 millj. A TVINNUHÚSNÆÐI
Funalind - Kóp. Nýkominísölu mjög góð 114 fm íbúð á 3. hæð ásamt 28 fm bílskúr í góðu lyftuhúsi. Aðeins ein ibúð á hæð. Innréttingar og hurðir úr kirsuberjaviði. Góðar svalir. Áhv. húsbr. 6,2 millj. Verð 12,7 millj. Skútuvogur - TIL LEIGU. 200 fm lagerhúsnæði til leigu. Góð lofthæð. Góðar innkeyrsludyr. Uppl. á skrifstofu. Eiðistorg - Seltj. 174 fm verslun- arhúsnæði til sölu. Er í útleigu i dag. Skiptist í anddyri, stóran sal, 2 góð herb. og wc. Verð 15,0 millj.
Grænamýri - Seltj. Nýkomin í sölu 112 fm lúxusibúð á 1. hæð með sérinngangi. Innréttingar og gólfefni af vönduðustu gerð. 3 svefnherb. Verönd út af stofu. 24 fm bílskúr. Áhv. húsbr. 6,0 millj. Verð 13,5 millj.
Hverfisgata. 1.200 fm iðnaðar- og verslunar- eða þjónustuhúsnæöi sem skiptist í 3-4 einingar. Húsneeðið er allt ( útleigu í dag. Góðar leigutekjur og góð langtímalán áhvílandi. Góð bíla- stæði og viðbyggingarréttur á lóð. Teikn. og frekari uppl. á skrifstofu.
Þrastarhólar - bílskúr. Faiieg
120 fm 4ra-5 herb. íbúð á 3. hæð auk 25 fm bílskúrs. 5 íbúða hús. Áhv. byggsj./ húsbr. 4,7 millj. Kleppsvegur. 4ra hera herb. (búð á 1. hæð. Stofa og 3 svefnherb. Laus 1. júní nk. Verð 7,9 millj. Kaplaskjólsvegur - laus Strax. 4ra herb. ibúð á 1. hæð ásamt herb. í kjallara. 33 fm bílskúr. Verð 8,5 millj. 3JA HERB. Laugavegur 63 - til leigu eða SÖIU 250 fm bjart og vistlegt verslunar- eða þjónustuhúsnæði. Góð lofthæð. Góðir gluggar. Tvö bílastæði fylgja. Laust nú þegar.
Sólvaliagata 80. frábær STAÐSETNING.Húseignimar eru 1.775 fm og er hægt að nýta eignimar á margvíslegan hátt. Lóðin, sem er 2500 fm, frábærlega vel staðsett með sjá- varútsýni, býður upp á mikla möguleíka með tilliti til nýbygginga. TILVALIÐ TÆKIFÆRI FYRIR BYGG- INGAMEISTARA OG AFHAFNAMENN
Austurströnd - Seltj. Falleg 63 fm íbúð á 4. hæð í góðu lyftuhúsi. Parket. Suðvestursvalir. Þvottahús á hæð. Stæði í bílskýli. Áhv. byggsj. 1,6 millj. Verð 7,2 millj.
Reuters
QUAYLE var vel fangað í heimabæ sínum, Huntington í Indiana, er
hann tilkynnti, að hann hygðist keppa eftir útnefningu Repúblikana-
flokksins sem forsetaframbjóðandi.
í augnablikinu er það þó John
McCain, öldungadeildarþingmaður
fyrir Arizona, sem sviðsljósin beinast
að. Hann hefur krafist þess, að
Bandaríkjamenn setji saman stóran
landher til að gera út um átökin í Jú-
góslavíu og kynnir sig með því sem
leiðtoga, sem þori að taka af skarið.
Quayle er sjötti repúblikaninn,
sem ákveður framboð, en hinir era
Bob Smith; John McCain; Patrick
Buchanan; Steve Forbes og Lamar
Alexander. Búist er við, að Bush til-
kynni sitt framboð á næstunni og
einnig þau John Kasich, Gary
Bauer og Elizabeth Dole.
Dómstóll úrskurðar gegn
Y ellowstone-þjóðgarðinum
DÓMSTÓLL í Washington í
Bandaríkjunum kom nýlega í veg
fyrir gildistöku umdeilds samnings
milli Yellowstone-þjóðgarðsins og líf-
tæknifyrirtækis í Kaliforníu sem gef-
ið hefði stjómendum þjóðgarðsins
tækifæri til að afla sér tekna með
nýtingu á lífríki garðsins. Frá þessu
er sagt í nýjasta tölublaði tímaritsins
Nature.
í úrskurði dómara sagði að ekki
hefðu verið lögð fram fullnægjandi
gögn um áhrif samningsins á um-
hverfið. Þarf stjóm þjóðgarðanna
bandarísku nú að láta fara fram um-
hverfismat skv. úrskurðinum áður
en tekið verður fyrir að nýju hvort
leyfa skuli gildistöku samningsins.
Yellowstone náði samningum við
líftæknifyrirtækið árið 1997 og var
meiningin sú að garðurinn nyti hags
af sölu ýmissa vara sem innhéldu
genaefni úr plöntum og örverum
teknum úr garðinum. Komu þessir
samningar tO af því að þjóðgarður-
inn fékk ekki krónu af miklum gróða
sem varð við markaðssetningu tækja
sem þróuð voru af Hoffmann-La
Roche, og innhéldu m.a. Taq-ensímið
sem upphafiega kom úr heitum hver-
um Yellowstone-garðsins. Ýmsir að-
ilar töldu hins vegar að slíkur gróða-
samningur væri ekki í samræmi við
yfirlýst markmið þjóðgarða í Banda-
ríkjunum og höfðuðu mál á hendur
stjórn þjóðgarðanna í fyrra til að
koma í veg fyrir gildistöku samn-
ingsins.
DEKKARALLT
Bouteflika
næsti for-
seti Alsírs
ABDELAZIZ Bouteflika bar
sigur úr býtum í forsetakosn-
ingunum í Alsír í fyrradag og
var enda einn í kjöri. Sex fram-
bjóðendur af sjö drógu sig í hlé
nokkram dögum fyrir kjördag
til að mótmæla því, sem þeir
sögðu vera fyrirframráðin úr-
slit. Bouteflika, sem naut
stuðnings hersins, fékk rúm-
lega 74% atkvæða en kjörsókn
var lítil. Kusu aðeins 10,5 millj.
manna af 17,5 millj. á kjörskrá.
Bouteflika mun taka við af Li-
amine Zeroual sem forseti á
næstu dögum en talsmaður
frambjóðendanna, sem hættu
við, sagði, að kosningunum
yrði mótmælt um allt land.
27 Kúrdar
felldir
TYRKNESKIR hermenn
felldu 27 kúrdíska skæraliða
en misstu sjálfir sex í átökum í
Austur-Tyrklandi í gær. Sagði
talsmaður tyrkneska hersins,
að skæruliðamir hefðu setið
fyrir hermönnunum er þeir
vora á leið til búða sinna. Um
30.000 manns hafa fallið í 14
ára langri baráttu skæraliða
fyrh’ sjálfstjóm Kúrdahérað-
anna í Tyrklandi.
Gengið í
geimnum
TVEIR geimfarar um borð í
rússnesku geimstöðinni Mir,
Rússinn Víktor Afanasjev og
Frakkinn Jean-Pierre Haign-
ere, komu í gær á braut um
jörðu gervihnetti, sem franskir
útvai'psáhugamenn smíðuðu.
Voru þeir í fimm klukkustundir
utan geimfarsins en inni í því
var sá þriðji, Sergei Avdejev.
Auk þess að koma gervihnettin-
um á braut ætluðu þeir félag-
arnir að æfa viðgerð á Spektr-
einingunni en til þess vannst
ekki tími. Hefur hún verið ein-
angrað frá Mir síðan birgðaskip
rakst á hana og skemmdi 1997.
Dómi yfír
Bhutto mót-
mælt
UM eitt þúsund manns gengu
fylktu liði um götur Karachi í
gær til að mótmæla því, að
Benazir Bhutto, fyrrverandi
forsætisráðherra Pakistans,
skyldi hafa verið dæmd í fang-
elsi ásamt manni sínum fyrir
spillingu. Sögðust sumir reiðu-
búnir að fórna lífi sínu fyrir
lýðræðið og 25 manna hópur
ungra manna, sem kalla sig
„bræður Bhutto“, beruðu sig
að ofan og börðu. Bhutto er
raunar stödd í London en mað-
ur hennar er þegar kominn í
fangelsi fyrir aðrar sakir.
t: