Morgunblaðið - 17.04.1999, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999 31
ERLENT
Kosningabaráttan í Skotlandi
Salmond tekur vel
í stjórnarsamstarf
með frjálslyndum
ALEX Salmond, leiðtogi Skoska
þjóðarflokksins (SNP), tók í gær
vel í hugmyndir Frjálslynda
demókrataflokksins um stjórnar-
samstarf eftir kosningar á skoskt
heimastjómarþing sem fram fara
6. maí næstkomandi. Staðfesti
Salmond að SNP, sem berst fyrir
sjálfstæði Skotlands, myndi í
stjómarmyndunarviðræðum vera
reiðubúinn til að semja um hvenær
boðað yrði til þjóðaratkvæða-
greiðslu um aðskilnað frá Bret-
landi, en flokkurinn hefur hingað
til sagt að fengi hann til þess um-
boð kjósenda myndi hann boða til
þjóðaratkvæðagreiðslu innan fjög-
urra ára.
Wallace vill að SNP dragi úr
áherslu á þjóðaratkvæðagreiðslu
Salmond gaf til kynna að flokkur
sinn væri reiðubúinn til að fresta
þjóðartkvæðagreiðslunni þar til
undir lok fimm ára kjörtímabils
þingsins nýja, en næstum þrjú
hundmð ár era liðin síðan Skotar
höfðu síðast sitt eigið þing. Hann
sagði jafnframt að vel væri hugs-
anlegt að samstarfsflokkar í
heimastjóm yrðu hvor sínum meg-
in víglínunnar í þjóðaratkvæða-
greiðslu um sjálfstæði.
Jim Wallace, leiðtogi frjáls-
lyndra í Skotlandi, hafði í viðtah við
blaðið The Scotsman á fimmtudag
sagt að frjálslyndir og SNP gætu
vel náð saman í ýmsum þjóðþrifa-
málum eins og heilbrigðismálum,
samgöngumálum og menntamál-
um, ef aðeins SNP drægi úr
áherslu sinni á að boðað verði til
þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálf-
stæði Skotlands.
Salmond segir stuðning við
sjálfstæði verulegan
Wallace ítrekaði þá afstöðu
frjálslyndra að þeir væra ekki
hlynntir þjóðaratkvæðagreiðslu
en ummæli hans þóttu eigi að síð-
ur gefa til kynna að flokkurinn
hefði ekki útilokað samstarf við
SNP eftir kosningamar. Samstarf
Verkamannaflokksins og frjáls-
lyndra hefur hingað til þótt lang-
líklegast, nái Verkamannaflokkur-
inn ekki hreinum meirihluta í
kosningunum.
í The Scotsman í gær gerði
Salmon lítið úr niðurstöðum könn-
unar sem The Daily Telegraph
birti í fyrradag þar sem fram kom
að einungis 25% kjósenda í
Skotlandi vildu sjálfstæði. Sagði
Salmond þessa niðurstöðu í hróp-
legu ósamræmi við sambærilegar
niðurstöður annarra kannana, sem
sýndu að stuðningur við sjálfstæði
væri rúmlega 40%.
Reuters
Fjöldi sól-
kerfa á vetr-
arbrautinni?
STJÖRNUFRÆÐINGAR telja
sig nú í fyrsta sinn geta fært
sönnur á að annað sólkerfi en
það sem við lifum í sé til. Styrk-
ir þessi uppgötvun málstað
þeirra sem leita lífs á öðrum
hnöttum og skýtur rótum undir
þá kenningu að fjöldi sólkerfa
sé til á vetrarbrautinni.
Þrjár plánetur hafa nú fund-
ist umhverfis stjörnuna Upsilon
Andromedae en hún er í fjöru-
tíu og fjögurra Ijósára fjarlægð
frá jörðu. Þykir Upsilon Andro-
medae minna um margt á sól
eins og þá sem glæðir jörðina
lífí. „Þetta er í fyrsta skipti sem
knippi plánetna umhverfis
venjulega sfjörnu finnst, ef frá
eru taldar pláneturnar níu í
okkar sólkerfi,“ sagði í yfirlýs-
ingu bandarísku stjörnufræð-
inganna á fimmtudag. „Fundur-
inn gefur til kynna að sólkerfí í
líkingu við okkar eigið séu til í
hrönnum á okkar vetrarbraut,
sem hefur að geyma 200 millj-
arða stjarna."
A myndinni er Upsilon
Andromedae-stjarnan merkt
upsAnd. Lofthjúpur plánetn-
anna þriggja, sem raða sér í
kringum stjörnuna, er sagður
fullur af eitruðum lofttegund-
um, ekki ósvipað aðstæðum á
Júpíter, og því séu pláneturnar
ekki Iífvænlegar. Á hinn bóginn
sé ekki útilokað að umhverfis
pláneturnar þijár séu tungl og
að þar gæti vel verið að líf geti
dafnað.
i5*«*:' rrtsff.
-.4*. W
T Æ. K ;■ <■ \ : A ^ ^ C ' > l T \ ■ T D ý T
• \ ■ \ ; V c w D . •ní > í : Ct Ac'ALn v _
2 l r -2 f*1 C - r '*r' -K rr —\ D — '■* fK l*!*1 2* '"'fr >' C; '■*■ '*S
■ ■Jsl’C.I a ■ • ** 4 •■■<--.. • "-■■ ■* ■■■■
r\ a lí
Ljósm. Mats Wibe Lund
SIEMENS
TIL HAMINGJU
Cisco Stshms
í mars síðastliðnum var stofnað á Raufarhöfn
dótturfyrirtæki íslenskrar miðlunar ehf. með
þátttöku Raufarhafnarhrepps.
Starfsmenn íslenskrar miðlunar ehf. á Raufar-
höfn, 13 talsins, taka fullan þátt í þjónustu-
starfsemi fyrirtækisins með fullkomnum Cisco
tölvu- og víðnetsbúnaði frá Tæknivali hf. ásamt
Siemens símbúnaði frá Smith & Norland hf.
Víðnetslausnin byggist m.a. annars á því að tengja saman tvo eða fleiri vinnustaði og
láta þá starfa saman óháða fjarlægðum og vegalengdum. Víðnetið gerir nú fyrirtækjum
kleift að flytja hljóð, myndir og gögn á milli staða þannig að starfsmenn (slenskrar
miðlunar á Raufarhöfn og Reykjavík geta starfað saman sem ein heild.
Núttma síma- og tölvutækni skapar fjölbreyttari atvinnumöguleika fyrir dreifbýlið og
sýnir að samskiptatækni nútímans getur hæglega skapað fjölda nýrra starfa á
landsbyggðinni.
(SLENSK MIÐLUN EHF.
* 4 SMITH &
V NORLAND
TTW^B.dr inSmjMftl
ICCriml II W dl