Morgunblaðið - 17.04.1999, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999 41
Sólrún Bragadóttir er fædd í
Reykjavík 1. desember 1959, dóttir
Braga Sigurþórssonar verkfræðings
og Ingu Bjarkar Sveinsdóttur kenn-
ara. Sólrún er elst fjögurra systkina.
Maður Sólrúnar er Þórarinn Stef-
ánsson píanóleikari. Þórarinn hefur
mikið unnið hjá útvarpinu, hefur
fjölmiðlapróf og hefur unnið ýmiss
konar störf hjá fjölmiðlum. Dóttir
Sólrúnar og Þórarins er Berglind
Lilja. Hún er fimm ára. Sólrún á son
frá fyrri sambúð, Braga, átján ára.
Að loknu stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Sund vorið
1979 fór Sólrún til Bandaríkjanna í
tónlistarnám og lauk BM-prófi frá
Indiana University í Bloomington
1985. Mastersprófi frá sama skóla
lauk hún 1987. Tónlistarmenntun í
Barnamúsíkskólanum, Tónlistar-
skóla Kópavogs og Tónlistarskóla
Reykjavíkur, bæði í söng og píanó-
leik. Námskeið hjá ýmsum þekktum
leiðbeinendum í ljóðasöng. Starfs-
ferill: Óperusöngkona við leikhúsið í
Kaiserslautern í Þýskalandi 1987 til
1990. Óperusöngkona við óperuna í
Hannover 1990 til 1993. Hefur hald-
ið sjálfstæða ljóðatónleika á íslandi,
í Þýskalandi og víðar. Hefur einnig
sungið mikið með Sinfóníuhljóm-
sveit Islands. Utvarps- og sjón-
varpsupptökur hérlendis og í Þýska-
landi. Aðalhlutverk í óperahúsum í
Þýskalandi, t.d. National Theater í
Múnchen, Oper an der Rhein í Dus-
seldorf, National Theater í Mann-
heim, leikhúsinu í Bremen og Gel-
senkirchen. Sólrún hefur undanfarin
ár starfað við óperuhús í Hannover í
Þýskalandi, en hefur einnig starfað
sjálfstætt og var t.d. á gestasamn-
ingi í Munchen. Þá hefur hún tekið
þátt í sýningum hjá íslensku óper-
unni t.d. árið 1997 og er að æfa hlut-
verk í óperu eftir Karólínu Eiríks-
dóttur, sem verður frumsýnd í júní-
mánuði næstkomandi.
okkar, var strax mjög efnilegur í
handknattleik og sama má segja um
Ólaf Traustason, sem nú er íþrótta-
kennari, og Hallgrím Helgason rit-
höfund og fleiri stráka. Sigurður
Dagsson markvörður í Val og með
landsliðinu hér fyrr á árum var
íþróttakennari við skólann. Eg man
að Jónína var stundum fjarverandi
og þá komu aðrir kennarar og
kenndu fyrir hana, t.d Sigurður
Dagsson, og það voru einstaklega
skemmtilegir tímar hjá Sigurði og
okkur ber líklega öllum saman um
það.
Við stelpurnar vorum í handa-
vinnu. Handavinnukennarinn hét
Helga. Það voru saumaðir handa-
vinnupokar. Tengdamóðir mín fyrr-
verandi hringdi í mig um daginn og
sagðist hafa fundið handavinnupok-
ann minn og spurði hvort ég vildi
ekki fá hann aftur. Ég held að hann
sé einmitt frá þessum árum. Það var
ýmislegt gert. Við lærðum allt
mögulegt, bæði að sauma út og
sauma í koddaver.
Þetta var glaður hópur og það var
mikið sungið. Það var söngkór í
skólanum og við vorum mörg í kórn-
um. Við vorum mjög dugleg að safna
til góðgerðarmála og ef einhver
þurfti að fara utan, t.d. á sjúkrahús
vegna veikinda, þá gengum við í hús
í hverfinu og fengum góðar undir-
tekir og söfnuðum töluverðum upp-
hæðum sem við afhentum síðan til
aðila sem stóð fyrir slíkum söfnun-
um.
Þessi hópur eða hluti af þessum
hóp hittist af og til og nú síðast fyrir
fimm árum í heimahúsi. Þá komu
allar sögurnar og við rifjum upp
margar skemmtilegar stundir frá
skólaárunum í Álftamýrarskóla.“
Sólrún vill láta þess getið að um
miðjan maímánuð næstkomandi
ætla bekkjarfélagarnir að hittast
heima hjá Soffíu Auði, og að þeir
SÓLRÚN Bragadóttir rifjar
«PP minningar „r Áiftamýrarskóia
muni frétta nánar af því síðar. Sól-
rún skorar á bekkjarfélagana að
fjölmenna.
Sólrún Bragadóttir horfir yfir
bekkjarmyndina og lítur yfir hóp-
inn.
„Hér í efstu röð, þriðji frá vinstri,
er Axel Sigurðsson læknir. Við hlið
hans er Eggert Kristjánsson vél-
fræðingur. Hann er yfirmaður
tæknideildar hjá Vífilfelli. Þá er Kri-
stján Már Unnarsson hér við hlið
Eggerts. Kristján er fréttamaður á
Stöð 2. Fyrir miðri mynd og við hlið
Kristjáns er Valdimar Örn
Flygenring leikari. Þá kemur hér
Ami Einarsson, sem er verslunar-
stjóri hjá Máli og menningu og við
hlið hans er Guðmundur Guðfinns-
son bakari í Grímsbæjarbakaríi.
Hér þriðji frá hægri í efstu röð er
Atli Hilmarsson. Hann þjálfar
meistaflokk KA í handbolta á Akur-
eyri. Lengst til hægri er Amundi
Bi’ynjólfsson verkfræðingur.
I miðröð er Jónína kennari hér
lengst til vinstri og við hlið hennar
er Þóra Björg Þórhallsdóttir. Þóra
er hjúkrunarfræðingur og hefur
unnið mikið hjá Karitas-samtökun-
um. Fjórða frá vinstri í miðröð er
María Guðfinnsdóttir, systir Guð-
mundar bakara. María er kerfis-
fræðingur hjá Flugleiðum. Ljós-
hærða stúlkan með síða hárið, sem
er hér við hlið Maríu, er Sigrún Guð-
mundsdóttir. Sigrún rekur ásamt
Júlíusi manni sínum Skinngallerí á
Laugaveginum. Hér þriðji frá hægri
í miðröð er Hallgrímur Helgason
rithöfundur og myndlistarmaður.
Lengst til hægri er Óskar Sigurðs-
son heimspekingur. Hann vinnur
veturi„„m“ið/Án,iSæber8
hjá Námsgagnastofnun í dag.
I fremstu röð lengst til vinstri er
Unnur Dís Skaptadóttir. Unnur er
doktor í mannfræði og lektor við
Háskóla íslands. Þriðja frá vinstri í
fremstu röð er Jónína Sigurbjörns-
dóttir. Jónína er fyrsti kvenskósmið-
urinn á Islandi og rekur ásamt eig-
inmanni sínum skóvinnustofu í
verslunarmiðstöðinni í Austurveri í
Reykjavík. Hér fyrir miðri mynd í
fremstu röð er Sigríður Hjartar-
dóttir líffræðingur. Við hlið hennar
er Soffía Auður Birgisdóttir bók-
menntafræðingur og leiklistargagn-
rýnandi. Ég er hér önnur frá hægri í
fremstu röð og lengst til hægri er
Ólöf Garðarsdóttir, sem er sagn-
fræðingur og er í doktorsnámi í Sví-
þjóð.
7ilUMúty*1
Kauptu þér eitt
Ljomasmjörl ikL^p^'
og þú fœrð anngi^ #r
í kaupbœtiCir” Z,—■
kukkaií tíu!
Kauptigþér einn
Magic orkudrykk
og þú ffcerð annan
í kaupbœti!