Morgunblaðið - 17.04.1999, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999 47
i í málefnum Kosovo
/ •
nyj a
kaga
Reuters
nndaiikjanna um hemaðaraðgerðim-
■rra, William Cohen, varnarmálaráð-
ry aðmíráll, Thomas Wilson, aðmíráll
fi Þjóðaröryggisráðsins í málefnum
•ick, hershöfðingi og aðstoðarráðgjafi
þjóðaröryggismálum, John Podesta,
r herforingjaráðs Bandaríkjanna.
að við getum ekki stutt þær raddir sem
boðað hafa sjálfstæði Svartfjallalands."
Atökin á Balkanskaga, sem oft hefur
verið lýst sem púðurtunnu, eru að
mörgu leyti djúpstæð samfélagsleg
átök, sem leysast e.t.v. ekki þrátt fyrir
stjórnarskipti í Belgrad. Er ekki rétt
að spyrja í þessu samhengi; hvernig þú
sérð fyrir þér að varanlegum friði verði
komið á í héraðinu; gætu Vesturlönd
e.t.v. setið uppi með landsvæði á
Balkanskaga þar sem staðsettar yrðu
hersveitir til iangframa? Einnig mætti
spyrja í framhaldi af ræðu Bill Clint-
ons, Bandaríkjaforseta á fimmtudag,
þar sem hann sagðist sjá fyrir sér
Balkanskaga framtíðarinnar þai- sem
ólík þjóðarbrot gætu lifað í sátt og sam-
lyndi, við lýðræðislega stjórnarhætti -
hvort ekki sé líklegt að um leið og stríð-
ið er að baki, verði Júgóslavía ríki
gremjufullra, niðurlægðra og
óstöðugra þjóðarbrota sem væru alger-
lega andsnúin Vesturlöndum?
„Að mínu viti, er stefnu næstu ára
best lýst í fyrrnefndri ræðu Clintons.
Þar ræðir hann um framtíðarsýn
Balkanskaga fyrir næstu fimm til tíu
árin og lýsir því að þar, líkt og í ger-
vallri Evrópu, muni landamæri opnast
og traust skapast milli ólíkra þjóða og
ríkja.
Astæðan fyrir því að við styðjum
ekki sjálfstæði Kosovo-héraðs eða
Svartfjallalands, er sú að við kærum
okkur ekki um að sjá Balkanskagann
springa í loft upp. Ef ríkin á svæðinu
myndu tvístrast í smærri sjálfstæðar
einingar þýddi það ekki eingöngu
ósjálfbæran efnahag þeirra ríkja, held-
ur einnig að óstöðugleiki myndi ríkja á
þessu svæði sem svo oft hefur - rétti-
lega - verið kennt við púðurtunnu.
Við verðum að skapa nýja sýn fyrir
allt svæðið í heild sinni - sýn sem felur í
sér að Serbar myndu færast í átt að
Evrópu á ný. Þetta krefst stjórnar-
skipta í Belgrad. Og hefur það mál
vissulega torveldast nú. Enn eru lýð-
ræðisleg öfl fyrir hendi í Serbíu, þrátt
___________ fyrir að Milosevic reyni allt
Sam- hvað hann geti til að þagga
.. , niður í þeim röddum. Sýn
ír aKat- 0kkar ý „evrópska Serbíu"
ikilvæg er eitthvað sem við verðum
“ að vinna að um leið og þess-
um átökum slotar.
Schulte vildi að lokum koma þakk-
læti Bandaríkjastjórnar til íslenskra
stjórnvalda á framfæri og sagði að
NATO-ríkin mætu mikils stuðninginn
sem ríkisstjórnin hafi veitt aðgerðun-
um. „Aðgerðirnar eru bandalaginu
mjög erfiðar og tel ég að eining sé því
ákaflega mikilvæg. Jafnframt metum
við mikils hve skjótt var brugðist við
þegar varð að flytja flóttamenn frá
átakasvæðunum. Slík viðleitni fámenns
lands eins og íslands, er ákaflega mikil-
, væg“.
Alltaf reynt að
kenna Serbum um
í stríði þarf tvo til og til eru tvær hliðar á öllum málum, ef ekki fleiri.
Morgunblaðið ræddi við þrjá Serba búsetta hérlendis og eru þeir sammála
um að þeirra málstaður varðandi ástandið á Balkanskaga komi nánast ekki
fram. Samúð umheimsins sé með albönskum flóttamönnum frá Kosovo, en
fáir gefí ástandinu sem hlotist hefur af sprengingum NATO gaum.
Reuters
EYÐILEGGING af völdum loftárása NATO í Júgóslaviu er mikil og
spyija Serbar sig af hveiju fréttir af slíku berist sjaldan eða seint til
Vesturlanda.
Morgunblaðið/RAX
GORAN Kristófer Micic segir að
NATO hafi brugðist rangt við
með loftárásum og hann hræðist
að átökin breiðist út.
Goran Kristófer Micic
NATO valdi
verstu
leiðina
„ÉG HEF orðið fyrir miklum vonbrigð-
um með aðgerðir NATO. Það voru stór
mistök hjá þeim að hefja loftárásir á
Júgóslavíu. Þeir völdu verstu leiðina og
fyrir það líður saklaust fólk. Loftárásir
eru einnig slæmar fyrir NATO að því
leyti að serbneska þjóðin sameinast að
baki Milosevic. Með aðgerðunum hefui-
NATO reitt serbnesku þjóðina til
reiði,“ segir Serbinn Goran Kristófer
Micic, sem búsettur hefur verið hér á
landi í tíu ár.
„Þeir hefðu getað vahð aðrar leiðir
en með því að blanda sér í deiluna með
loftárásum gerðu þeir einungis illt
verra. Með þessu sýndu þeir að þeir
hafa engan pólitískan styrk. Serbar
munu aldrei gefast upp og munu aldrei
gefa Kosovo eftir. Þetta er stolt þjóð og
hún er reið bandalaginu fyrir það sem
það hefur gert. NATO er að blanda sér
í deilu sem þeir þekkja ekki og þeir
hafa ekld hugmynd um hverju þeir hafa
komið af stað. Ég hef áhyggjur af því
að þetta geti orðið stærra og önnur
lönd blandist inn í það sem er að ger-
ast,“ segir Goran Kristófer.
Sögur af grimmdarverkum
Serba áróður NATO
Hann hefur áhyggjur af fjölskyldu
sinni sem er í borginni Nis. Fyrsta
verk hans á hverjum morgni er að at-
huga hvort skyldfólk sitt í Júgóslavíu
sé heilt á húfi. Hann hringir í þau eða
hefur samband við þau í gegnum Net-
ið.
Goran Kristófer segir að margt af
því sem komi fram í fjölmiðlum um
ástandið í Kosovo séu lygar. „Það sem
er satt er að allir þurfa að fara úr hús-
um sínum. En margar af hryllingssög-
unum sem við heyrum um verknaði
Serba eru ekki sannar. Ég er Serbi og
venjulegt fólk myndi ekki gera svona
hluti eins og verið er að tala um, nauðg-
anir og slíkt. Ég held að þessar sögur
séu áróður og afsökun fyrir aðgerðir
NATO. Þeir vita að þeir brugðust rangt
við og þurfa að skella skuldinni á aðra.“
Dana Garovich
„Vil að sann-
leikurinn
komi fram“
DANA Garovich kom til íslands fyrir
tíu árum sem ferðamaður en hefur
verið búsett hér ásamt fjölskyldu sinni
síðan þá. Hún er reið út í Atlantshafs-
bandalagið fyrir aðgerðir þess og segir
þær bitna á óbreyttum borgurum Jú-
Morgunblaðið/Golli
DANA Garovich segir sannleik-
ann vandfundinn í umfjöllun vest-
rænna Qölmiðla um Kosovo-deil-
una og eins í yfirlýsingum NATO.
góslavíu, þar með talið íbúum Kosovo
en sérstaklega íbúum Serbíu. „NATO
ræðst á sjálfstætt land og vesturveldin
halda uppi stöðugum áróðri gegn Ser-
bum. Umheimurinn veit ekki hvað er
að gerast í Serbíu og hvað NATO er að
gera þar og í Júgóslavíu, vegna þess að
athyglin beinist öll að flóttamönnum
frá Kosovo,“ segir Dana.
„Ég er ekki að verja neina hlið, eða
málstað eins eða neins. En ég veit að
það sem ég er að segja er satt. Ég vil
að sannleikurinn komi fram og það
sem við heyrum núna eru lygar.
NATO lýgur til þess að skella skuld-
inni á serbnesku þjóðina og stjórnvöld
í Júgóslavíu. Þeir segjast vera að verja
Albana í Kosovo en ég spyr: Hvernig
er NATO að verja Kosovo-Albana?
Þeir gátu búið í Kosovo þangað tO loft-
árásir NATO hófust, þá fóru þeir að
streyma burt. Hvers vegna voru
Kosovo-Albanar ekki löngu fluttir frá
Kosovo fyrst Serbar eru svona hættu-
legir? Sannleikurinn er að almennt er
fólkið ekki hrætt við Serba, og það má
sjá á því að þúsundir Kosovo-Albana
flýja til annarra hluta Serbíu og Svart-
fjallalands. Það er hrætt við loftárásir
NATO og Frelsisher Kosovo sem
hrekur það burt.“
Sannleikurinn er vandfundinn í frá-
sögnum fjölmiðla að mati Dönu. Og
þegai- hann heyrist er farið lágt með
hann og fáir taka eftir honum:
„Reynsla okkar úr stríðinu í Bosníu
sýnir að sannleikuiánn kemur sjaldan
fram. Þegar hátt í 800.000 Serbar voru
fluttir frá Rrajina á einum degi var
sýnt örstutt frá því í vestrænum fjöl-
miðlum. Og þegar múslimar drápu eig-
ið fólk var skuldinni skellt á Serba.
Síðar kom í ljós að þeir gerðu það
sjálfir en þá fór lítið fyrir þeim frétta-
flutningi og fólk tekur almennt ekki
eftir slíkum leiðréttingum.“
Sannleikurinn kemur
of seint fram
„Sannleikurinn kemur oft fram allt of
seint. Nú heyrum við í fréttum að Ser-
bar nauðgi konum í Kosovo. Hvemig
vita þeir að það eru Serbar? Kona sem
Morgunblaðið/RAX
DRAGOSLAV Stojanovic telur að
NATO hafi ekki átt að blanda sér í
deiluna í Júgóslavíu. Það þekki
ekki söguna, sem sé löng og flókin.
tekið var viðtal við sagði að maður með
grímu hefði nauðgað sér. Hún sagði
ekki að það hefði verið Serbi, og hvem-
ig hefði hún átt að vita það?“ segir
Dana og bendir á atburði vikunnar máli
sínu til stuðnings. NATO hafi þá viður-
kennt að hafa sprengt bílalest í Kosovo
þar sem 70 óbreyttir borgarar biðu
bana, áður hafi þeir reynt að skella
skuldinni á her Júgóslavíu. „Þeir reyna
alltaf að kenna Serbum fyrst um og við-
urkenna verknaðinn síðar,“ segir Dana.
Dana segir að Albanar hafi lengi
haft uppi áætlanir um sjálfstæði
Kosovo. I gegnum árin hafi skæraliða-
hreyfing Kosovo-Albana ógnað
serbneskum íbúum Kosovo og framið
grimmdarverk og staðið fyrir þjóðern-
ishreinsunum. „Þess vegna búa svo fá-
ir Serbar í Kosovo, vegna þess að þeir
voru hraktir á brott. Albanar lögðu á
sama tíma kapp á að fjölga sér í
Kosovo til þess að verða í meirihluta. I
Kosovo starfaði og starfar enn Frelsis-
her Kosovo (UCK) og er fjölgun lög-
reglumanna í héraðinu í kjölfar auk-
inna umsvifa hans. Lögreglan var að
reyna að halda friðinn í héraðinu og
reyndi að verja alla íbúa þess, hvort
sem þeir voru serbneskir, albanskir
eða annars þjóðemis.“
Serbum fyrst kennt um
Dana segir að fyrir tíu árum hafi
hún lesið grein í tímariti að bandaríska
leyniþjónustan (CIA) hafi lagt á ráðin
um að sundra Júgóslavíu og þeim hafi
þegar tekist það. í áformunum sé
einnig að gera Serbíu eins litla og
hægt sé. „Astæðan er að NATO vill
stjóma heiminum og með aðgerðum
sínum er bandalagið að sækjast eftir
auknum völdum. Þeir vita hvað þeir
eru að gera, þetta er allt samkvæmt
þeirra plönum. Það er alls ekki óvart
þegar NATO sprengir sjúkrahús,
skóla, hótel, leikskóla, kirkjugarða,
lestir, brýr, aðrar opinberar byggingar
og fleira í Serbíu. Nú þegar hafa meira
en 500 manns látið lífið vegna árása
NATO og meira en 4.000 særst. Þeir
segja að þetta sé ekki stríð en hvað er
þetta ástand annað en það? NATO
ætlar að halda sig við sín áform en vill-
ir fyrir umheiminum með því að segj-
ast vera að hjálpa Kosovo-Albönum,“
segir Dana.
Dana segist vera stolt af sínu fólki
og þjóðin hafi aldrei verið jafn sam-
stæð og nú. Fólkið hennar beri sig vel
þótt það þurfi að dvelja allan sólar-
hringinn í loftvarnarbyrgi. „Fólkið
mitt veit að það á þetta ekki skilið og
það mun aldrei gefast upp. Kosovo er í
Serbíu og það er engin Serbía án
Kosovo,“ segir Dana að lokum.
Dragoslav Stojanovic
Ekki greint
frá ástandinu
í Júgóslavíu
„í MÍNUM augum er NATO á rangri
leið. Aðgerðir þeirra eru ekki góðar
fyrir neinn, hvorki fyrir Serba,
Kosovo-Albana né aðra sem búa í Jú-
góslavíu. Það er aldrei gott að byrja á
að berjast og ég held að þeir hefðu átt
að reyna betur að ná lausn áður en
hernaðaraðgerðir voru hafnar. Þótt
þeir hefðu þurft að ræða saman í
mánuð til viðbótar eða lengri tíma
hefðu þeir átt að gera það,“ segir hinn
29 ára gamli Dragoslav Stojanovic
sem búsettur hefur verið hérlendis í
fjögur ár.
Dragoslav segir að með því að
blanda sér í deiluna um Kosovo hafi
bandalagið gert innanríkismál Jú-
góslava að alþjóðlegu vandamáli.
Fjöldi fólks hafi þurft að flytja frá
heimkynnum sínum vegna loft-
árásanna og búið sé að skemma híbýli
fólks út um alla Júgóslavíu.
Innanríkisvandamál gert
að alþjóðlegu vandamáli
„Núna er þetta orðið vandamál allra.
Ekki bara Serba og Albana heldur
íbúa Júgóslavíu af öllum kynþáttum,
en rúmlega 20 þjóðarbrot búa í land-
inu,“ segir Dragoslav Kosovo-Albanar
og Júgóslavar hefðu þurft að leysa
vandamálið sín á milli. Vesturveldin
þekki ekki vandamál Júgóslava hefðu
ekki þurft að blanda sér í málið.
Fjölskylda Dragoslavs býr í borg-
inni Nis í suðaustur Júgóslavíu. Hann
segir að búið sé að sprengja mikið í
borginni, og mun meira en komið hafi
fram í vestrænum fjölmiðlum. Að hans
sögn er búið að sprengja svo margt
sem ekki getur fallið undir að séu skot-
mörk sem gegna hemaðarlegum
markmiðum. Til dæmis hafi sígarettu-
verksmiðja, sem í hafi verið fjölda
manns, verið sprengd, skólar, hús og
híbýli saklauss fólks.
„Ég er ekki reiður út í neinn, ég
held ég sé fremur reiður út í ástandið.
Það er mjög erfitt fyrir umheiminn að
skilja ástandið, það er flókið og á sér
langan aðdraganda. Það má einna
helst reyna að líkja því við ef á Islandi
væru mörg þjóðarbrot og allt í einu
vildi eitt þeirra eitthvað allt annað.“
Milosevic ekki uppspretta
vandamálanna
Dragoslav er hissa á því hve einhliða
fréttaflutningur vestrænna fjölmiðla er
frá ástandinu í Júgóslavíu. Þar beinist
öll athyglin að flóttafólki Kosovo-Al-
bana en lítið eða ekkert sé greint frá
ástandinu í Júgóslavíu. „Það er ekki
það sama að horfa á júgóslavneskt sjón-
varp og vestrænar stöðvar. A júgóslav-
neskum stöðvum era hka sýndar afleið-
ingamar af loftárásum NATO en það er
ekki gert á til dæmis CNN og Sky. Af
hverju sýnir umheimurinn ekki öllum í
Júgóslavíu samúð. Það er mikil samúð
með flóttafólkinu en það er aldrei sagt
af hverju það er að flytja. Það er út af
sprengingum NATO, ekld út af Ser-
bum.“ Dragoslav segist eklá trúa þeim
sögum sem heyrast um grimmdarverk
Serba. Hann telur þær vera áróður
gegn Serbum en segist ekki viss um
hvers vegna þetta sé að gerast.
Aðspurður segist Dragoslav ekki líta
á Milosevic sem uppsprettu vandamál-
anna. Kosovo er hjarta Júgóslavíu, þar
era trúarbrögð okkar upprannin og það
hefur svipaðan sess í hugum okkar og
Jerúsalem fyrir ísraela. „Það hugsa all-
ir að forseti Júgóslavíu sé að skapa
þetta vandamál. En svo er ekki, þetta
er vandamál allra Júgóslava og þeir
hafa sýnt að þeir vilja ekki tapa Kosovo.
Það vilja hins vegar allir lifa í sátt og
samlyndi, það era allir miður sín yfir
ástandinu. Ég vona að þetta stríð
klárist strax. Þá geta allir farið heim til
sín og byijað venjulegt líf aftur.“