Morgunblaðið - 17.04.1999, Síða 52

Morgunblaðið - 17.04.1999, Síða 52
52 LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ „FJÖLSKYLDAN er hornsteinn samfé- lagsins" er Kklega það orðasamband sem einna oftast hefur heyrst í pólitískri um- ræðu á undanfömum ámm. Stjómmálamenn hafa notað þessa setn- ingu í flestum sínum ræðum og sett hana í allar sínar stefnuskrái-, en án þess að meina mikið með því. Orðum þurfa að fylgja athafn- ir. Þar sem það er vissulega rétt að fjöl- skyldan er hornsteinn samfélagsins er það enn alvarlegra en ella hvernig að henni hefur verið vegið. Sú upplausn fjölskyldunnar sem átt hefur sér stað á undanfömum ámm vegur að samfélaginu sjálfu vegna þess að mikilvægur hluti samfélags okkar verður til hjá fjöl- skyldunni sjálfri. Þar fer fram upp- eldi bama og þar verða til mörg af lífsgildum hvers einstaklings. Upp- lausn fjölskyldunnar þýðir að börn- in okkar koma verr undirbúin út í lífið en æskilegt er. Þegar grandvöll ein- staklingsins skortir skapast rótleysi, óör- yggi og vanlíðan sem leitt getur til niður- brots einstaklingsins, fjölskyldu hans og samfélagsins í heild. Ekkert okkar getur horft framhjá þeirri staðreynd að hjóna- skilnaðir verða æ tíð- ari, notkun geðdeyfð- arlyfja hefur margfald- ast, skuldir og greiðsluerfiðleikar heimila hafa aukist jafnt og þétt. Vinnu- tími allt of margra er allt of langur sem leiðir til þess að samverastund- ir fjölskyldna era að verða að fátíð- um munaði. Stjómmálamenn sem meina eitthvað þegar þeir segja að fjölskyldan sé hornsteinn samfé- lagsins reyna að sjá til þess að fjöl- skyldan geti sinnt skyldum sínum. Stjómmálamenn geta með ákvörð- unum sínum breytt þessari þróun, hún er ekki sjálfgefm, hún er sjálf- sprottin. Hornsteinninn Upplausn fjölskyldunn- ar þýðir, segir Guðrún ---n--------------------- Ogmundsdóttir, að börnin okkar koma verr undirbúin út í lífið en æskilegt er. Það góðæri sem nú ríkir nær ekki inn í líf okkar allra, og góðæri má ekki bara skilgreina sem efna- hagslegt því það er margt sem bendir til þess að góðærið sé minna þegar mæld eru önnur verð- mæti en efnahagsleg. Lág laun ís- lendinga, sérstaklega kvenna, valda því að yfirleitt þurfa báðir foreldrar að vinna utan heimilis til að afia heimilinu tekna. Þessi fjar- vera foreldra frá heimili veldur því að samvera með börnum er minni en flestir vildu hafa og veldur því svo augljóslega að tengsl foreldra og barna verða veikari svo ekki sé minnst á það að erfitt er að ala upp börn þegar maður er ekki hjá þeim. Skattakerfið bætir svo enn um betur því þegar foreldrar reyna að vinna sig út úr erfiðleikunum með dugnaði er þeim refsað með lægri barnabótum og ýmsum öðrum jað- aráhrifum í skattkefinu sem valda því að það er engin útleið. Bama- bætur era réttur barna og þess vegna er fráleitt að þær séu tengdar tekjum foreldra. í skattkerfinu þarf að taka tillit til þeirra sem eru að koma sér upp fjölskyldu og húsnæði og era að greiða námslán um leið. Þessi hópur fólks á sér vart við- reisnar von í dag. Þessi aðstaða sem fjölskyldum er sköpuð er helsti valdur þess að upp- lausn verður, fólk gefst upp og get- ur ekki meir og þegar svo er komið verður öryggisnet samfélagsins skyndilega götótt og Ktt megnugt til að sinna hlutverki sínu. Hjón sem aldrei geta átt samverastundir án þess að rætt sé um yfírvofandi greiðsluerfiðleika geta ekki ræktað samband sitt eða við börn sín. Tengslaleysi, óöryggi og vanKðan valda svo skyndiákvörðunum sem hafa gríðarleg áhrif á allt umhverf- ið. Hjónaskilnaður er ekki bara lög- fræðileg aðgerð heldur tilfinninga- legt uppgjör fólks sem bundist hef- ur sterkum böndum um langt skeið. Jafnvel þótt hjónaskilnaðir séu algengir er ekki þar með sagt að það eitt valdi því að börn upplifi þá sem minna vandamál. Böm upplifa hjónaskilnaði undantekningarlaust sem áfall sem þeim gengur mjög misvel að vinna sig út úr. Vegna þessara alvarlegu afleiðinga sem óréttlæti samfélagsins hefur á líf svo margra er það á ábyrgð stjóm- málamanna að breyta þessu slæma ástandi. Davíð Oddsson talar um góðæri á sama tíma og notkun geðdeyfðar- lyfja hefur tífaldast, getur verið að hér sé maðkur í mysunni? Við meg- um aldrei gleyma því að við mótum þjóðfélagið sjálf og þess vegna eig- um við að hafa metnað til þess að skapa þjóðfélag sem fer vel með þegna sína, skapar þeim öryggi og festu til þess að takast á við verk- efni Kfsins. Samfylkingin er samansett úr stjómmálaflokkum sem hver á sinn hátt hefur barist fyrir réttlæti og jafnrétti. Það sem sameinar þessi öfl öðra fremur er virðingin fyiir manneskjunni og velferð hennar. Samfylkingin er að bjóða fram til þess að byggja upp nýtt velferðar- þjóðfélag þar sem fólk upplifir ör- yggi og velKðan. Fjölskyldan er homsteinn samfé- lagsins og ef hún er látin grotna niður er vegið að samfélaginu sjálfu, siðferði okkar og framtíðarvon. Þetta er grunntónninn sjálfur, Sjálfstæðisflokkurinn og Fram- sóknarflokkurinn hafa sýnt að þeir meina ekkert þegar þeir tala um velferð, þess vegna á að gefa þeim frí. Höfundur er félagsráðgjafi og skip- ar 4. sæti á framboðslista Samfylk- ingarinnar í Reykjavík. _________________UMRÆÐAN Góðærið og upplausn fj ölsky ldunnar Guðrún Ogmundsdóttir Ríkisstjórniii og fatlaðir lífeyrisþegar - verkin tala NÚ í kosningabar- áttunni er ríkisstjóm- arflokkunum tíðrætt um ágæti sitt og hvem- ig árangur góðs efna- hagslífs hafi skilað sér tii aUra, nú skuh verkin tala. Kjósendur skuK nú meta þá af störfum þeirra. En hvemig hafa verk ríkisstjóm- arinnar talað gagnvart lífeyrisþegum, fötluð- um og öryrkjum sem ekki geta komist leiðar sinnar án þess að hafa aðgang að bifreið? Tryggingastofnun hef- ur getað stutt þennan hóp til bifreiðakaupa á tvennan hátt, með styrkjum tíl kaupanna sem afgreiddir eru einu sinni á ári og með lánum til bifreiðakaupa sem afgreidd eru reglulega allt árið. Styrkjum fækkað um helming Þessi stuðningur hefur verið fjölmörgum efhahtlum hreyfihöml- uðum lífeyrisþegum ómetanfegur, rofið einangrun þeirra og gert þeim kleift að taka þátt í samfélag- inu. í góðærinu undanfarið sá rík- isstjómin engu að síður ástæðu til að klípa af þessum hópi verulega. Það hefur haft alvarlegar afleið- ingar hjá mörgum hreyfihömluð- um lífeyrisþegum. Bifreiðakaupa- styrkjunum var fækkað á kjör- tímabilinu, lægri styrkjunum úr 600 í 335 og reglur þrengdar. Þannig geta menn t.d. ekki sótt um styrkinn eftir að þeir hafa náð 70 ára aldri, og lengra verður að líða milli styrkveitinga en áður. Hærri styrkirnir fengu Fréttir á Netinu v§>mbl.is _ALCTA/= e!TTH\SA£> IMÝTT að halda sér, sem betur fer, enda að- eins 50 talsins árlega og aðeins fyrir þá sem bundnir eru við hjólastóla. Klórað í bakkann Nú berast þær fréttir að ráðherra heilbrigðismála iðrist gjörða sinna gagnvart þessu fólki og hyggist fjölga styrlqunum. Hún iðrast þó ekki meira en svo að hún fjölgar styrkjunum um nokkra tugi eftir að hafa fækkað þeim um á þriðja hundrað snemma á kjörtímabilinu. Þó að heilbrigðis- ráðherra grípi til hinna dæmigerðu vinnubragða ríkisstjómarinnar. þessa dagana og klóri í bakkann, hlaupi til nú, þrem vikum fyrir kosningar, og fjölgi styrkjunum aftur Ktillega, dugar það hvergi til að bæta það ófremdarástand sem skapast hefur vegna niðurskurðar- ins á kjörtímabilinu. Vextir á bifreiðalánum hækkaðir Lífeyrisþegar geta fengið lán til kaupa á bifreið, en skilyrði fyrir lánveitingu er að brýn nauðsyn sé fyrir bifreið vegna hreyfihömlun- ar. Lánin til bifreiðakaupa voru mjög hagstæð enda báru þau að- eins 1% vexti. Um áramótin breyttu stjómvöld þessum hag- stæðu lánakjörum og frá 1. janúar sl. hafa þau borið kjörvexti óverð- tryggðra skuldabréfalána, sem eru nú um 9,1%. Það munar vissulega um þessa hækkun vaxta hjá svo tekjulágum hópi. Fá ekki bensínstyrk Ef hreyfihamlaður lífeyrisþegi getur ekki eignast bifreið hefur það ýmsar aðrar félagslegar og fjárhagslegar afleiðingar fyrir hann. Hann fær ekki stuðning frá velferðarkerfinu vegna ferða t.d. í leigubifreiðum og hann fær ekki bensínstyrkinn, sem á að koma til móts við kostnaðinn af rekstri bif- reiðarinnar eins og nafnið ber með sér. Þessar breytingar og niður- skurður á stuðningi við þennan hóp fatlaðra hefur skapað ófremd- arástand hjá mörgum hreyfihöml- uðum Kfeyrisþegum. Mjög margir öryrkjar og aldraðir þurfa að framfleyta sér nánast eingöngu á greiðslum almannatrygginga. Kaupmáttur þeirra hefur ekki fylgt launaþróuninni í landinu, auk þess sem tekjutenging var aukin Velferð Þó að heilbrígðisráð- herra grípi til dæmi- gerðra vinnubragða ríkisstjórnarinnar og klóri í bakkann, segir Asta R. Jóhannes- dóttir, dugar það hvergi til að bæta það ófremdarástand sem skapast hefur vegna niðurskurðarins á kjörtímabilinu. hjá öldraðum á kjörtímabiKnu og aðrar skerðingar komu til. Réttlátt kerfí - breytum rétt Allir sem þekkja til þessara mála og reyna verk ríkisstjómar- innar á eigin skinni vita að þetta er ekki hægt að flokka sem árangur fyrir alla. Lífeyrisþegar, aldraðir og öryrkjar hafa ekki fengið sinn skerf, hvað þá þeir sem búa við fötlun sem gerir þá háða bifreið til að komast leiðar sinnar. Þessu vilj- um við í Samfylkingunni breyta. Við viljum öflugt, réttlátt og ein- falt velferðarkerfi. Til þess þurfum við öflugan stuðning í kosningun- um 8. maí. Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík. Ásta R. Jóhannesdóttir Hvers vegna að kjósa Samfylkinguna? ÞAÐ ER ástæða til þess að kjósendur skoði hug sinn vand- lega um hvar þeir setja x-ið sitt í komandi kosningum. Hvemig þjóðfélag vilt þú sem átt völina milK póK- tískra framboða? Vilj- um við þá góðæris- skiptingu sem ríkis- stjóm Sjálfstæðis- flokks og Framsóknar- flokks hefur viðhaft eða viljum við sanngjamari skiptingu á því sem til ráðstöfunar er? Hverjir era það sem hafa notið þess að betur hefur árað og að árangur varð af stöðug- leikasamningum verkalýðshreyf- ingarinnar? Eru það þeir sem búa við lökust kjör? Era það bamafjöl- Breytingar Það er engin spurning, segir Gísli S. Einars- hyggju, vill jöfnuð í stað misréttis og frjálsa samkeppni í stað fákeppni og ein- okunar. Við viljum nýjar lausnir sem byggjast á menntun og menningu, jöfnuði og jafnrétti og ábyrgri fjármálastjóm. Nýta þarf auðlindir lands- manna af skynsemi og leyfa þjóðinni að njóta þeirra með því að tek- ið verði sanngjamt gjald til að standa undir kostnaði vegna nýtingar þeirra og af- raksturinn skiptist réttlátlega milli þjóðarinnar sem á þær samkvæmt stjómarskrá. Síð- ast en ekki síst stefnum við að virku lýðræði þannig að einstak- lingamir hafi möguleika á að hafa áhrif á samfélag sitt með því að veita stjómvöldum eðlilegt aðhald. Tryggður verði réttur kjósenda til að kalla fram þjóðaratkvæða- greiðslu um mikilvæg mál. Gísli S. Einarsson son, að meiríhluti þjóð- arínnar vill breytingar í samræmi við stefnumál Samfylkingarínnar. skyldumar sem voru sviptar bama- bótum sem nemur þremur milljörð- um eins og Framsóknarflokkurinn hefur nýlega viðurkennt? Eru það öryrkjar og aldraðir sem era 1.820 milljónum króna á eftír í launabót- um samtals miðað við lægstu samn- ingsbundin laun? Ef menn eru ánægðir með aðgerðir núverandi ríkisstjómar á valdatíð hennar þá skil ég ekki þjóðarsálina. Kjósum Samfylkinguna Kjósum Samfylkinguna vegna þess að: Samfylkingin leitar eftir umboði þjóðarinnar til að koma frá ríkisstjórn sérhagsmuna. Samfylk- ingin vill byggja á samningum frjálsra manna sem viðurkenna ábyrgð sína hvers á öðrum gagn- vart náttúra, samfélaginu og kom- andi kynslóðum. Samfylkingin set- ur félagshyggju framar auð- Vesturland I sveitarstjómarkosningunum hér á Vesturlandi á síðastliðnu vori hlaut sameiginlegt framboð sam- fylkingarfólks gott fylgi. Það sýnir að viljinn er fyrir hendi og þeir sem nutu þess verða að sanna að þeir séu traustsins verðir með að- gerðum og framkvæmdum í takt við framsettar stefnuskrár. Sama á við um Samfylkinguna. Hún verður að sanna tilverarétt sinn á komandi kjörtímabili ef draumur- inn um öfluga stefnu í jafnréttis-, félagshyggju- og kvenfrelsismál- um á að verða staðreynd. Það er engin spurning að stærsti hluti þjóðarinnar vill breytingar í þá átt sem Samfylk- ingin hefur gert að sínum málum og varðar heill og hag landsmanna. Til þess að þau megi komast í framkvæmd þurfum við þinn styrk, þitt atkvæði. Breytum rétt og setjum x við S-Usta Samfylking- arinnar. Þá eiga íslendingar bjarta framtíð. Höfundur er þingmaður Samfylk- ingarinnar á Vesturlandi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.