Morgunblaðið - 17.04.1999, Qupperneq 72
72 LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR Á MORGUN
ÁSKIRKJA: Barnaguösþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14 með
þátttöku ísfirðingafélagsins.
Sveinbjörn Bjarnason cand. theol
prédikar. Kór félagsins syngur.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Organisti Guðni Þ. Guðmundsson.
Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Guðsþjónusta kl.
11. Prestur sr. Hjalti Guðmunds-
son. Organleikari Marteinn H. Frið-
riksson, sem stjórnar söng Dóm-
kórsins. Fermingarmessa kl. 14.
Altarisganga. Prestar sr. Jakob Á.
Hjálmarsson og sr. Hjalti Guð-
mundsson. Organleikari Marteinn
H. Friðriksson, sem stjórnar söng
Dómkórsins. Æðruleysismessa kl.
21. Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir
prédikar. Síðustu athafnir í kirkj-
unni áður en henni verður lokað
fram til hausts vegna viðgerða og
endurbóta.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa kl.
14. Prestur sr. Tómas Guðmunds-
son. Organisti Kjartan Ólafsson.
Félagar úr Húnakórnum syngja.
Ragnhildur Björnsdóttir syngur
stólvers. Félag fyrrverandi sóknar-
presta.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl.
11. Munið kirkjubílinn! Messa kl.
11. Altarisganga. Kirkjukór Grens-
áskirkju syngur. Organisti Árni Ar-
inbjarnarson. Sr. Ólafur Jóhanns-
son.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og
bamastarf kl. 11. Organisti Hörður
Áskelsson. Hópur úr Mótettukór
syngur. Sr. Sigurður Pálsson. Opn-
un sýningar á vegum Listvinafé-
lags Hallgrímskirkju á verkum
Bjargar Þorsteinsdóttur strax að
lokinni messu. Aðalsafnaðarfundur
Hallgrímssóknar kl. 12.30.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Bragi Skúlason.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Helga Soffía
Konráðsdóttir og Bryndís Val-
björnsdóttir. Messa kl. 14.
Organisti Jakob Hallgrímsson. Sr.
Tómas Sveinsson. Aðalsafnaðar-
fundur eftir messu. Venjuleg aðal-
fundarstörf. Kosning til sóknar-
nefndar skv. nýjum lögum. Önnur
mál. Kynnið ykkur störf og málefni
safnaðarins. Allt þjóðkirkjufólk í
Háteigssókn hefur atkvæðisrétt.
Verið velkomin.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Messa kl. 11. Kór
Langholtskirkju syngur. Prestur sr.
Jón Helgi Þórarinsson. Organisti
Jón Stefánsson. Barnastarf í safn-
aðarheimili kl. 11. Umsjón Lena
Rós Matthíasdóttir.
LAUGARNESKIRKJA: Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Kór Laugar-
neskirkju syngur. Organisti Gunnar
Gunnarsson. Prestur sr. María
Ágústsdóttir. Kyrrðarstund kl. 13 í
Hátúni fyrir íbúa Hátúns 10 og 12.
Prestur sr. María Ágústsdóttir.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl.
11. Starf fyrir 8-9 ára á sama tíma.
Opið hús frá kl. 10. Guðsþjónusta
kl. 14. Sr. Frank M. Halldórsson.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Fermingarmessa kl. 10.30 og kl.
13.30. Kór Seltjarnarneskirkju
Fríkirkjan
í Reykjavík
Guðsþjónusta kl. 14.00
Prestur: Sr. María Ágústsdóttir.
Organisti: Guömundur Sigurösson.
Allir hjartanlega velkomnir.
Aöalsafnaðarfundur Fríkirkjunnar
verður haldinn fimmtudaginn 29.
apríl kl. 20.00.
Fundurinn hefst í kirkjunni með
helgistund, en færist síðan yfir i sal
Safnaðarheimilisins.
Á dagskrá verða venjuleg
aðalfundarstörf og
lagabreytingar.
ii i
Guðspjall dagsins:
Eg er góði hirðirinn.
(Jóh. 20.)
syngur. Organisti Sigrún Stein-
grímsdóttir. Prestar sr. Guðný
Hallgrímsdóttir og sr. Sigurður
Grétar Helgason.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Guðs-
þjónusta kl. 14. Prestur sr. María
Ágústsdóttir. Organisti Guðmundur
Sigurðsson. Allir hjartanlega vel-
komnir.
ÁRBÆJARKIRKJA: Fermingar-
guðsþjónusta kl. 11 árdegis. Altar-
isganga Organleikari Pavel Smid.
Barnaguðsþjónusta kl. 13. Foreldr-
ar og aðrir vandamenn hjartanlega
velkomnir með börnum sínum. St.
Georgsdagurinn. Helgistund kl. 14.
Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11 með þátttöku
Leikmannastefnu Þjóðkirkjunnar.
Þórdís K. Ágústsdóttir, formaður
KFUK, prédikar og barnakórinn
syngur. Léttar veitingar eftir
messu. Organisti Daníel Jónasson.
Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Kl. 11. Messa
og sunnudagaskóli á sama tíma í
umsjá Þórunnar Arnarsdóttur. Pré-
dikari sr. Torbjorn Lied aðalfram-
kvæmdastjóri Santalmisjonen í
Noregi. Torbjorn hefur verið kristni-
boði í Bangladesh í 12 ár. Sóknar-
presturinn sr. Gunnar Sigurjónsson
þjónar ásamt sr. Kjartani Jónssyni
kristniboða sem þýðir prédikun sr.
Torbjorns á íslensku. Organisti
Kjartan Sigurjónsson. Kl. 20.30.
Hjónakvöld. Samvera í kirkjunni,
göngutúr og fl. Léttar veitingar eftir
messu.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Umsjón
Ragnar Schram og sr. Guðmundur
Karl Ágústsson. 5 ára böm fá bók-
ina „Kata og Óli fara í kirkju“.
Organisti. Lenka Mátéová. Prest-
amir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Sameig-
inleg barnaguðsþjónusta Grafar-
vogskirkju og Engjaskóla í Grafar-
vogskirkju kl. 11. Prestur sr. Vigfús
Þór Árnason og sr. Anna Sigríður
Pálsdóttir. Umsjón: Hjörtur, Rúna,
Ágúst og Signý. Barnakór kirkjunn-
ar syngur. Fermingarmessa kl.
13.30. Prestar sr. Vigfús Þór Árna-
son og sr. Anna Sigríður Pálsdóttir.
Organisti Hörður Bragason. Kór
Grafarvogskirkju syngur. Prestarn-
ir.
HJALLAKIRKJA: Fermingar-
messa kl. 10.30. Prestur sr. íris
Kristjánsdóttir. Kór kirkjunnar
syngur. Organisti Jón Ólafur Sig-
urðsson. Barnaguðsþjónusta kl.
13. Við minnum á bæna- og kyrrð-
arstund á þriðjudag kl. 18. Prest-
arnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf
kl. 11 í safnaðarheimilinu Borgum.
Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Sigurjón
Árni Eyjólfsson prédikar og þjónar
fyrir altari. Organisti Sigrún Þór-
steinsdóttir. Sr. Ægir Fr. Sigur-
geirsson.
SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14 Sr. Ágúst Einarsson prédikar.
Organisti er Gróa Hreinsdóttir.
Sóknarprestur.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN:
Morgunguðsþjónusta að Bílds-
höfða 10, 2. hæð, kl. 11. Öll fjöl-
skyldan kemur saman um orð
Drottins. Fræðsla fyrir börn og full-
orðna. Samkoma kl. 20. Mikil lof-
gjörð og fyrirbænir. Friðrik Schram
prédikar. Allir velkomnir.
KROSSINN: Almenn samkoma að
Hlíðasmára 5 kl. 16.30. Allir vel-
komnir.
FÍLADELFÍA: Brauðsbrotning kl.
11. Ræðumaður Erling Magnús-
son. Almenn samkoma kl. 16.30.
Lofgjörðarhópurinn syngur. Ræðu-
maður Sheila Fitzgerald. Allir hjart-
anlega velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Laugar-
dag kl. 13: Laugardagsskóli fyrir
krakka. Sunnudag kl. 19 bæna-
stund. Kl. 20 vitnisburðarsamkoma
í umsjón Birgaders Ingibjargar
Jónsdóttur. Mánudag kl. 15: Heim-
ilasarnband fyrir konur.
KFUM og KFUK v/Holtaveg:
Samkoma kl. 17. Jónas Þórisson
kynnir hjálparstarf kirkjunnar.
Helga Vilborg Sigurjónsdóttir
syngur einsöng. Gyða Karlsdóttir
flytur hugvekju. Barnastarf á með-
an á samkomu stendur. Létt mál-
tíð seld að samkomu lokinni. Allir
velkomnir.
KRISTSKIRKJA, Landakoti:
Messur sunnudaga kl. 10.30, 14.
Messa kl. 18 á ensku. Laugardaga
og virka daga messur kl. 8 og 18.
MARÍUKIRKJA, Raufarseli 8:
Messa sunnudag kl. 11. Messa
laugardag og virka daga kl. 18.30.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa sunnudag kl. 10.30. Messa
virka daga og laugardaga kl. 18.
KARMELKLAUSTUR, Hafnar-
firði: Messa sunnudaga kl. 8.30.
Messa laugardaga og virka daga
kl. 8.
BARBÖRUKAPELLA, Keflavík:
Skólavegi 38. Messa sunnudag
kl. 14.
STYKKISHÓLMUR, Austurgötu
7: Messa sunnudag kl. 10. Messa
laugardag og virka daga kl. 18.30.
RIFTÚN, Ölfusi. Messa sunnudag
kl. 17.
FÆREYSKA
SJÓMANNAHEIMILIÐ: Samkoma
kl. 14.
MOSFELLSKIRKJA: Fermingar-
guðsþjónusta kl. 13.30. Barnastarf
í Lágafellskirkju kl. 11. Kirkjan
skoðuð. Rútan fer venjulegan
hring og frá safnaðarheimilinu kl.
10.50.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Fermingarmessa kl. 10.30.
Organisti Natalía Chow. Prestar sr.
Gunnþór Ingason og sr. Þórhildur
Ólafs.
FRÍKIRKJAN i Hafnarfirði:
Barnasamkoma kl. 11. Guðsþjón-
usta kl. 14. Barnakór kirkjunnar
undir stjórn Sigríðar Ásu Sigurðar-
dóttur leiðir almennan safnaðar-
söng og syngur nokkur lög sem
þau hafa sérstaklega æft. Kirkju-
kaffi í safnaðarheimilinu eftir guðs-
þjónustuna. Einar Eyjólfsson.
VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Kór kirkjunnar leiðir almenn-
an safnaðarsöng. Organisti Jó-
hann Baldvinsson. Sr. Þórey Guð-
mundsdóttir þjónar við athöfnina.
Sóknarprestur.
BESSAST AÐAKIRKJA: Bæna-
stund kl. 20.30. Sóknarprestur.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Messa kl.
14. Prestur sr. Jóna Kristín Þor-
valdsdóttir. Sóknarnefndin.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Sunnu-
dagaskólanum slitið með formleg-
um hætti. Grillaðar pylsur á eftir.
Baldur Rafn Sigurðsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11 árd. 5
ára börnum boðið til kirkju. Prestur
sr. Sigfús Baldvin Ingvason. Kór
Keflavíkurkirkju leiðir söng.
Organisti Einar Örn Einarsson. Að-
alsafnaðarfundur í Kirkjulundi eftir
guðsþjónustu.
SELFOSSKIRKJA: Fermingar-
messur kl. 10.30 og kl. 14. Hádeg-
isbænir þriðjudaga til föstudags kl.
12.10. Sóknarnefndin.
KOLTSTRANDARKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 14.
HVERAGERÐISKIRKJA: Tónleik-
ar/tónlistarguðsþjónusta kl. 20.
Kirkjukór Hveragerðis- og Kot-
strandarsókna og Kór Fjölbrauta-
skóla Suðurlands syngja. Jón
Ragnarsson.
ÞYKKVABÆJARKIRKJA: Ferm-
ingarmessa kl. 13.30. Fermd verð-
ur Kristín Björk Emilsdóttir, Sól-
bakka. Munið síðustu samveru
kirkjuskólans í vetur laugardaginn
17. apríl kl. 11. Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSKIRKJA: Messa
sunnudag kl. 11. Sóknarprestur.
TORFASTAÐAKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta sunnudag kl. 14.
Mikill söngur, fræðsla, sögur,
bænir, samfélag. Sóknarprestur.
LEIRÁRKIRKJA: Messa kl. 11. í
messunni verður fermd Hafdís
Þóra Hafþórsdóttir, Lyngholti.
INNRA-HÓLMSKIRKJA: Messa
kl. 11. í messunni verða fermdar:
Margrét Hallgrímsdóttir, Innra-
Hólmi, Sigríður Jónsdóttir, Hnjúki
og Sigurást Aðalheiður Árnadóttir,
Hagamel 7.
BORG ARPREST AKALL: Barna-
guðsþjónusta verður í Borgarnes-
kirkju kl. 11.15. Guðsþjónusta í
Borgarneskirkju kl. 14. Sr. Þor-
björn Hlynur Árnason.
BREIÐABÓLSSTAÐARKIRKJA í
Vesturhópi: Fermingarguðsþjón-
usta kl. 14. Fermd verður Ingveld-
ur Ása Konráðsdóttir frá Böðvars-
hólum.
Dos Hermanas 1999
Spánn 5.-18. apríl
Nr. Nafn Stiq 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Vinn. Röð
1 lllescas Cordoba 2585 \A 1 'A 0 1 'A 'A 4 3.-5.
2 Boris Gelfand 2691 'A 'A 'A 'A 'A 1 'A 4 3.-5.
3 Judit Polqar 2677 0 'A 0 'A 1 0 0 2 10.
4 Michael Adams 2716 '/2 'A 1 'A 1 'A 1 a 5/2/8 1.
5 Vladimir Kramnik 2751 1 'A 'A 'A 'A 1 'A 4/2 2.
6 Anatolv Karpov 2710 0 'A 'A 'A 1 'A 'A 'A 4/8 6.
7 Peter Svidler. 2713 'A 0, :.'A 0 'A 'A 'A Z'A 8.-9.
8 Viswanathan Anand 2781 0 'A 0 'A '/2 'A 'A 2 'A 8.-9.
9 Viktor Korchnoi 2673 0 1 0 14 'A 'A A\ 3 7
10 Veselin Topalov 2700 'A '/2 1 'A % 'A '/2 ! 4 3.-5.
Sigurður Páll
skólaskákmeist-
ari Reykjavíkur
SKAK
Taflfélag Reykjavfknr
EINSTAKLINGSKEPPNI í
SKÓLASKÁK í REYKJAVÍK
12.-14. aprfl
EINSTAKLINGSKEPPNI í
skólaskák í Reykjavík fór fram
12.-14. apríl. Tefldar voru níu um-
ferðir í yngri og eldri flokki. Sigurð-
ur Páll Steindórsson sigraði í eldri
flokki, en röð efstu manna varð
þessi:
1. Sigurðui' P. Steindórss. 8'A v.
2. Guðni Stefán Pétursson 8 v.
3. Guðjón H. Valgarðsson 7 v.
4. Aldís Rún Lárusdóttir 5 v.
5. Olafur Kjartansson 4 v.
6. -7. Óiafur Gauti Ólafsson Z'/i v.
6.-7. Gústaf S. Bjömsson 3Ví v.
í yngri flokki sigraði Guðmundur
Kjartansson örugglega og vann all-
ar níu skákirnar:
1. Guðmundur Kjartansson 9 v.
2. Dagur Amgrímsson l'A v.
3. Hilmar Porsteinsson 6 v.
4. Hjörtur I. Jóhannsson 5lA v.
5. Amljótur Sigurðsson 5'A v.
6. Benedikt Öm Bjarnason 5 v.
7. Viðar Berndsen 5 v.
8. Garðar Sveinbjörnsson 5 v.
9. Anna Lilja Gísladóttir 4‘/z v.
10. Ámi Jakob Ólafsson 4'A v.
11. Aron Ingi Óskarsson 4'A v.
Fjórir efstu keppendumir í hvor-
um flokki unnu sér sæti á Lands-
móti í skólaskák sem fram fer um
næstu mánaðamót.
Keppnin fór fram í félagsheimili
Taflfélags Reykjavíkur og var skák-
stjórn í höndum Ólafs H. Ólafssonar
og Ríkharðs Sveinssonar.
Adams og Karpov gera jafntefli
Frídagur var á skákmótinu í Dos
Hermanas á fimmtudag. Daginn
notuðu þeir Michael Adams og
Anatoly Karpov hins vegar til að
tefla skák sem annars tilheyrði síð-
ustu umferð mótsins. Skákinni lauk
með jafntefli. Adams er þvf með
vinningsforystu á Kramnik, en þær
mættust í áttundu umferð. Það
verður síðasta skák Adams á mót-
inu, en Kramnik mætir hins vegar
Topalov í síðustu umferð. Mótinu
lýkur laugardaginn 17. aprfl.
Aukakeppni í áskorendaflokki
Aukakeppni um efstu tvö sætin í
áskorendaflokki á Skákþingin Is-
lands er nú hafin. Þeir Davíð Kjart-
ansson, Bergsteinn Einarsson og
Jóhann H. Ragnarsson urðu jafnir
og efstir í áskorendaflokki og þurftu
því að tefla um tvö sæti í landsliðs-
flokki. Bergsteinn Einarsson sigi'-
aði Jóhann H. Ragnarsson í fyrstu
skák aukakeppninnar. Tefld verður
tvöföld umferð. Keppninni lýkur 19.
aprfl.
Hampstead-skákhátíðin
Sævar Bjamason endaði í 4. sæti
á Hampstead-skákmótinu. í síðustu
umferð gerði Sævar jafntefli við
Norðmanninn Kjell Arne Mork
(2.336). Lokaúrslitin á mótinu urðu:
1. Brian Kelly 2.423 6'A v.
2. Simon Williams 2.371 6/2 v.
3. Jovanka Houska 2.286 6 v.
4. Sævar Bjamason 2.295 5'A v.
5. Simon Knott 2.367 5 v.
6. Kjell Arne Mork 2.336 5 v.
7. John Richardson 2.318 5 v.
8. Alistair Compton 2.035 3 v.
9. Bertrand Barlow 2.110 2 v.
10. Denis Philippe 2.045 'A v.
Klúbbakeppni
í næstu viku
Klúbbakeppni Hellis verður hald-
in í þriðja sinn föstudaginn 23. apríl
klukkan 20. Keppt verður í fjögurra
manna sveitum. Tefldar verða 9
umferðir með 7 mínútna umhugsun-
artíma.
Skákiðkun íslendinga er síður en
svo bundin við opinber skákmót, því
mikill fjöldi skákmanna teflir ein-
ungis í heimahúsum. Fjöldinn allur
af óformlegum skákklúbbum er
starfræktur og menn hittast reglu-
lega yfir vetrartímann til að tefla.
Klúbbakeppni Hellis var hleypt af
stokkunum í þeim tilgangi að gefa
þessum klúbbum tækifæri til að
eiga saman skemmtilegt kvöld, tefla
og ekki síður til að hittast og ræða
málin.
Klúbbakeppnin var haldin í fyrsta
sinn fyrir tveimur árum og fór þátt-
takan þá fram úr björtustu vonum,
en 23 klúbbar með yfir 100 manns
innanborðs tóku þátt í keppninni.
Þátttakan í fyrra var svipuð, en þá
sigraði Skákklúbbur Framtíðarinn-
ar eftir mjög jafna og skemmtilega
keppni.
Tekið er á móti skráningum í möt-
ið í símum 5812552 (Gunnar) og
557 7805 (Daði). Einnig er hægt að
skrá sig með tölvupósti: hellir@sim-
net.is
Skákmót á næstunni
19.4. Hellir. Fullorðinsmót kl. 20.
22.4. Skákskólinn. Skák í hreinu lofti.
25.4. Hellir. Kvennamót.
26.4. Hellir. Voratskákmót.
Daði Örn Jónsson
Hannes Hlífar Stefánsson
BRIPS
Umsjón Arnór («.
Ragnarsson
Tvímenningur á Húsavík
Lokastaða efstu para í aðaltví-
menningi Bridsíélags Húsavíkur er
þannig:
Sveinn - Guðmundur 143
Þórólfur-Einar 108
Björgvin-Guðmundur 74
Gunnar - Hermann 60
Óli - Hlynur 45
Frá og með næstkomandi mánu-
dagskvöldi verða spilaðir eins
kvölds tvímenningar eitthvað fram
á vorið.
Hver vill sjá um sumarbrids?
Eins og mörg undanfarin ár verð-
ur óskað eftir tilboðum í sumar-
brids. Útboðsgögn liggja frammi á
skrifstofunni.
Skriflegum tilboðum skal skilað á
skrifstofu BSÍ í síðasta lagi þriðju-
daginn 4. maí kl. 16.00.
Tii félagsmanna í BR
Þeir sem greiða félagsgjöld hjá
Bridsfélagi Reykjavíkur fyi'ir 15.
maí 1999 fá bókina „Ferðalag með
Forquet“ sem Þórður Sigfússon
hefur þýtt úr ítölsku, en Guðmund-
ur Páll Amarson ritstýrði og annað-
ist uppsetningu. Bókin verður af-
hent á aðalfundi BR sem haldinn
verður 9. júní nk. kl. 20 í húsnæði
BSÍ.
Þeir sem ekki sjá sér fært að
mæta á aðalfund, munu fá bókina
senda heim.