Morgunblaðið - 17.04.1999, Síða 82
- * 82 LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
BOB FOSSE
LEIKSTJÓRINN, dansahöfund-
urinn, leikarinn, dansarinn og
handritshöfundurinn Bob Fosse
gefur áhorfendum óvæga innsýn
í sitt stórbrotna en heilsuspill-
andi líferni í All That Jazz, ('79).
I sjálfsævisögulegri myndinni er
fylgst með Broadwayleikstjóran-
um Gideon (Roy Scheider),
ganga hart að sér við vinnu,
drykkju og kvennafar. Gwen
Verdon leikur eiginkonu hans,
en hún var einmitt sú þriðja í
röðinni af konum Fosse. Viðhöld-
in leika Ann Reinking og Jessiea
Lange. Heilsan hjá þessum lífs-
nautnamanni, sem reykir 5
pakka á dag, er að bresta, við
verðum vitni að opinni hjartaað-
gerð á Gideon, og reyndar lifði
Fosse ekki nema í 7 ár eftir að
hann lauk við myndina.
Fosse er fæddur 1927 og hóf
barnungur afskipti af skemmt-
anaheiminum. Hann var sonur
spaugara sem tróð upp í revíum
og var stráksi orðinn sjóaður
skemmtikraftur um fermingu. Á
tímum seinna stríðs þjónaði
Fosse við afþreyingardeild sjó-
-X hersins og kom fram víða til
stríðsloka. Þá gerðist hann at-
vinnudansari ásamt fyrstu eigin-
konu sinni í New York. Nam
leiklist á daginn og sló að lokum
í gegn í verkinu Dance Me a
Song á Broadway 1950. Sá sigur
leiddi til hlutverka í tveimur
sjónvarpsþáttum og síðan samn-
ings hjá MGM, ‘53. Þar lék hann
og dansaði í nokkrum myndum,
m.a. Kiss Me Kate, (‘53). Ári síð-
ar náði Fosse því í gegn að
stjórna og semja dansa við söng-
leikinn The Pajama Game á
Broadway. Hlaut fyrir fyrsta
Tonyinn, æðstu verðlaun leik-
húsanna vestra.
Nú fór framabrautin að opn-
ast. Næstu árin beitt.i Fosse
kröftum sínum til skiptis á Broa-
dway og Hollywood og stjórnaði
að lokum Redhead, sínum fyrsta
söngleik, ‘59. Þar kom við sögu
Verdon, þriðja eiginkonan. Hægt
og bítandi sótti þessi grjótharði
en gjálífi hæfileikamaður á topp-
inn. Honum náði hann 1969 með
Broadwaysmellnum Sweet
Charity, eftir Neil Simon. Leik-
stýrði einnig Hollywoodgerð
þessa feykivinsæla söngleiks.
1972 stjórnaði Fosse Cabaret,
sinni þekktustu mynd. Sem færði
honum Óskarsverðlaunin fyrir
leikstjóraembættið. Á því sama
ári vann hann einnig til Tony-
verðlaunanna fyrir Pippin, og
Emmy, æðstu verðlaunin í sjón-
varpsgeiranum, hlaut hann fyrir
skemmtiþáttinn Liza. Fosse
fylgdi þessari ótrúlegu velgengni
eftir með Lenny, sjálfsævisögu-
legri mynd um hinn goðsagna-
kennda háðfugl og nætur-
klúbbaspaugara. Skömmu áður
en Lenny var frumsýnd, lenti
stórreykingamaðurinn og
nautnaseggurinn á gjörgæslu,
.. V þar sem hann greiddi fyrir lang-
LEIKSTJÓRINN og danshöfundurinn Bob Fosse fylgir Shirley
MacLaine gegnum dansinn í Sweet Charity árið 1969.
■distöðujj] VI)
:rði H*“r’Tf •
FOSSEí?JSöiE”“r’®,^rÍ'’ ‘993'
Henu»gway y
vinnan ólifnað með tvísýnni að-
gerð. Hún varð síðan kveikjan að
hinni kaldhæðn-
islegu All
That Jazz,
(‘79). Síðasta
mynd þessa
umtalaða lista-
manns var St-
ar, (‘80), fírna
góð og vel leikin
af Mariel Hem-
ingway, Eric Ro-
berts, Cliff Ro-
bertson og Carrol
Baker. Sjálfsævi-
sögulegt drama
um hörmulega at-
burði sem leiddu
til skammvinnrar
frægðar og síðan
afbrýðsismorði
Playboystúlkunn-
ar Dorothy
Stratten.
Skömmu síðar
varð Fosse að
leggja árar í bát
sökum lélegs
heilsufars, sem
leiddi hann til
dauða fjórum
árum síðar. Þá
var þessi
mesti áhrifa-
maður nú-
tímasöng-
leiksins
bandaríska,
aðeins sextugur.
Sígild myndbönd
LENNY - „LENNY“, (‘74)
irkirk
Firnasterk mynd um gamanleik-
arann Lenny Bruce sem á óvenju
hreinskilinn og óvæginn hátt flettir
ofanaf margflókinni persónu. Kald-
hæðnum, bráðsnjöllum og orð-
heppnum klámkjafti sem lét allt
flakka - á sviðinu sem í einkalífmu.
Átti skamman en því umtalaðri fer-
il, í eilífum útistöðum við lögin og
konuna, Bugaður af eiturlyfja-
neyslu og sjálfseyðingarhvöt, hvarf
hann ungur á vit feðra sinna.
Dustin Hoffman er ótrúlegur, sýnir
þvílíka breidd í túlkun sinni á
_margbrotinni persónunni að sjón
‘er sögu ríkari. Valerie Perrine gef-
ur honum lítið eftir í hlutverki
nektardansmeyjarinnar, eiginkonu
hans.
KABARETT-
„CABARET", (‘72)
krkk'k
Eftirminnilegasti söngleikur sið-
ustu áratuga. sakir snilldarlegrar
dans- og leikstjórnar, leiks Joels
Grey og Lizu Minelli og frábærrai-
tónlistar. Segir frá bandarískri
söngkonu (Minelli), sem er strönduð
í Berlín millistríðsáranna, þar sem
hún syngur og dansar á „vafasöm-
um“ næturklúbbi. Endurspeglar á
sannfærandi hátt hið fræga hnign-
unarástand borgarinnar á þessum
árum, er bæði áhrifarík og eftir-
minnileg á allan hátt. Vann til
flestallra aðal-Óskarsverðlaunanna
á frumsýningarárinu, 8 talsins.
Klassík á sínu sviði.
„ALL THAT JAZZ“, (‘79)
★★★'/2
Sögufræg, sjálfsvisöguleg mynd
um Broadway-söngleikjaleikstjóra
(Roy Scheider), sem gengur fram af
sér í vinnu, óreglu og kvennamálum.
Óvægin sjálfskoðun á listamanni,
veikum íýrír lífsins lystisemdum.
Handbragð Fosse svipar til verka
Fellinis, er greinilega undir áhrifum
frá meistaranum. Söng- og dansat-
riðin eru þó mikið mun sterkari
póstar en dramað. Oftast hrífandi
fyrir augu og eyru. Með Ann Reink-
ing, Ben Vereen, Jessica Lange.
Sæbjörn Valdimarsson
ERLENDAR
Einar Falur Ingólfsson
ljósmyndari
fjallar um nýjustu plötu Tom
Waits, Mule Variations,
sem kom út í gær
Tom Waits
gengur aftur
FYRSTA stúdíóplata Tom
Waits í sex ár, Mule Vari-
ations, kom út í gær og höf-
um við aðdáendur þessa ráma og
sérstæða tónlistarmanns og sagna-
þular beðið hennar spenntir. Þetta
er líka fyrsta skífa kappans hjá
Epitaph-útgáfunni,
sem er yfirleitt
tengd hráu og
pönkkenndu rokki.
En Waits þótti
samstarfið spenn-
andi og sagði að
starfsfólk útgáf-
unnar ynni fyrir
listamennina, væri
framsýnt og hann
kynni að meta
smekk þeirra á
„tónlist, giállmat og
bílum“.
Á meðan á upp-
tökum laganna stóð á
síðasta ári, á hænsna-
búgarði í Norður-Kali-
fomíu, sagði Waits að
aðdáendur mættu búast
við „drullueinföldum"
laglínum, fullum af
bandarískum þemum eins
og járnbrautalestum,
rigningu, fyrirgefningu,
húsdýrum, skordýrum og
furðufuglum.
Mule Variations er vissulega
verk með 16 einfóldum lagiínum
hrærðum saman við amerískar
smásögur eins og Waits er einum
lagið. Og þetta er ákaflega heild-
stæð plata og áhrifarík, þótt hún
komi ekki á óvart tónlistarlega.
Waits, og samhöfundur hans að
flestum laganna, eiginkonan Kat-
hleen Brennan, feta sömu stíga og
þau hafa verið að gera allt frá
meistaraverkinu Rain Dogs með
viðkomu á hátindi ferils Waits,
Frank’s Wild Years. Þau byggja á
einfóldum laglínum úr blús og
rokki, útsetja þær á frumlegan
hátt með fáum hljóðfærum; bassi
dregur línuna áfram og svo er
hrært í með gítar, fótstigið orgel
grætur og bein eru slegin. Síðan
raular Waits ýmist kvæði sín,
hvæsir þau eða grætur. Vettvang-
ur textahöfundarins eru litbrigði
mannlífsins. Eins og áður segir
hann af fólki; ást og harmi, tor-
tryggni og hatri; tilfinningar
snjallra textanna speglast í hljómi
laganna og allt vinnur saman á
frumlegan hátt sem er svo fátítt að
heyra í dægurlögum.
Við upptökmmar lagði Waits
mikið uppúr óvenjulegum hljóðum,
meðvituðu suði og undarlegum að-
stæðum. Mikið af söngnum var
tekið upp utandyra, með gömlum
hljóðnema og það heyrist. Tónlist-
armennirnir eru æði blandaður
hópur. Bassaleikararnir í flestum
laganna eiu gamalkunnir Waits-
menn, Larry Ta-
ylor og Greg Cohen. Þá leikur
Marc Ribot á gítar, annar kunningi
frá mörgum plötum Waits, og
nefna má blúsmennina John
Hammond og Charlie Mus-
selwhite. Prógrammari og plötu-
snúður koma við sögu í nokkrum
laganna. Sjálfur leikur Tom Waits
á gítar, píanó og orgel, auk ýmis-
legs annars smálegs.
Á Mule Variations má segja að
Waits haldi sig einkum við ballöður
og tregasöngva, og gerir það ákaf-
lega vel. Viskýlegin röddin nýtur
sín í lögum eins og Hold on, Black
Market Baby og Picture in a
Frame. Hraðinn er aukinn og meiri
bamingur í Big in Japan og Filip-
ino Box Spring Hog. Chocolate
Jesus og Georgia Lee eru litlar
perlur úr hænsnaskítshaugnum
sem skífan varð til í.
Við fyrstu hlustun virðast sum
lögin á Mule Variations kunnug-
leg, minna á lög af fyrri skífum
Waits. En þau sækja verulega á
og fyrst og fremst er þetta ein-
staklega heildstætt verk og ein af
allra bestu plötum Tom Waits;
nauðsynleg í safn aðdáenda gamla
ráms.
Einar Falur Ingólfsson
desember 1998, Sif Heiða Guð-
mundsdóttir, Silja. Hanna Guð-
mundsdóttir og Guðmundur
Einarsson.
5 ættliðir
og 88 ára
afmælis-
barn
f TILEFNI 88 ára af-
mælis Lydíu Pálsdótt-
ur, ekkju Guðmundar
Einarssonar frá Miðdal, komu
saman fímm ættliðir. Frá
vinstri: Einar Guðmundsson,
Lydía Pálsdóttir, Jakob Z.S.
Baldvinsson sem fæddist 8.