Morgunblaðið - 21.04.1999, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 21.04.1999, Blaðsíða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ JltagtiiiMfliMfe STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. ENDURFÆÐING BERLÍNAR ÞAÐ VAR táknræn stund er þýska þingið kom saman á ný í Reichstag, þinghúsinu í Berlín, á mánudag. Þinghúsið tengist erfiðum stundum í sögu Þýskalands á þessari öld. Það var tákn um vald hinna prússnesku keisara og aðsetur hins gæfulausa þings Weimar-lýðveldisins sem nasistar kollvörpuðu með íkveikju í þing- húsinu. Það var í Reiehstag sem nasistastjórnin hélt sýningu árið 1938 er bar nafnið hinn „eilífi gyðingur" og það var jafnframt tákn um ósigur þriðja ríkisins, er sovéskir hermenn drógu sovéska fán- ann að húni á þaki þinghússins árið 1945. Mörk hernámssvæða Breta og Sovétmanna í Berlín voru dregin í gegnum húsið og það var árum saman rústir einar, yfirgefin eyðibygging í skugga múrs- ins. Húsið var endurbyggt á sjöunda áratugnum en þó ekki með það í huga að það yrði aðsetur þings Þýskalands að nýju. Þvert á móti var reynt að draga úr mikilfengleik byggingarinnar og mikil- vægi. Með falli múrsins og sameiningu Þýskalands var ákveðið að Berlín yrði höfuðborg Þýskalands að nýju og að þing og ríkis- stjórn skyldu hafa þar aðsetur. I kjölfarið var tekin ákvörðun um að endurbyggja þinghúsið og haldin alþjóðleg samkeppni um hönnunina er Bretinn Norman Foster sigraði í. Honum hefur tek- ist að gæða þinghúsið nýju lífi, að varðveita söguna en jafnframt að undirstrika þá breytingu er orðið hefur á þýskum stjórnmálum frá hinum myrku stundum fyrr á þessari öld. „Berlínarlýðveldið", sem Gerhard Sehröder kanslari sagði við vígslu hússins að nú væri gengið í garð markar nýtt upphaf þýskra stjórnmála. Sagan end- urtekur sig ekki, líkt og einn dálkahöfunda þýska tímaritsins Die Zeit ritaði í síðustu viku, en hún snýr stundum aftur til fyrri heim- kynna. Berlín er nú á ný að rísa upp sem ein af höfuðborgum Evrópu. A millistríðsárunum var Berlín iðandi af lífi og miðstöð menningar og lista í Evrópu ekki síður en París. Því hlutverki lauk með valda- töku nasista. Borgin varð að tákni þriðja ríkisins þar sem arki- tektinn Albert Speer átti að reisa höfuðstað í anda hinna sjúku hugsjóna valdhafanna. I stríðslok var Berlín rjúkandi rúst er skipt var á milli hernámsveldanna fjögurra. Skipting borgarinnar tók máttinn úr Berlín og múrinn, sem reistur var árið 1961, undir- strikaði enn frekar niðurlægingu borgarinnar. En jafnvel á árun- um eftir stríð varð Berlín tákn andstöðunnar við kommúnismann. Þegar Sovétmenn ætluðu að svelta borgina með því að einangra Vestur-Berlín byggðu Vestui’veldin upp loftbrú þangað. Fyrstu vísbendingar um óróa í leppríkjum Sovétríkjanna komu fram í Austur-Berlín 17. júní árið 1953, þegar sovézkir skriðdrekar voru notaðir til þess að berja niður uppreisn fólksins. Og það var í Berlín, sem John F. Kennedy mælti hin fleygu orð: Ég er Berlín- arbúi (Ich bin ein Berliner). Sérhver frjáls maður er borgari Berlínar. I huga og hjarta nýrrar kynslóðar þeirra tíma var Berlín í senn tákn og hvatning til þess að láta hvergi undan síga í barátt- unni við kommúnismann. Undanfarinn áratug hefur Berlín einna helst minnt á risavaxna byggingalóð, endalausar raðir af háreistum krönum, hálfkláraðar byggingar og jarðrask er það sem helst hefur sett svip á borgina. Að undanförnu hafa kranarnir og byggingapallarnir smám saman verið að hverfa og hin nýja Berlín birst umheiminum líkt og eins konar Oskubuska sem skyndilega geislar af glæsileik. Reichstag og aðrar stjórnsýslubyggingar eru að fyllast af lífi og það sama má segja um hina sögulegu miðborg Berlínar, Mitte í kringum Friedrichstrasse, þar sem glæsilegar byggingar hafa leyst hryll- ingshús kommúnistastjórnarinnar af hólmi. Þingið er þegar flutt til Berlínar, ráðuneyti eru óðum að flytja þangað starfsemi sína og það sama má segja um erlend sendiráð, þar á meðal sendiráð Is- lands. Eitt af einkennum hinnar nýju Berlínar er þorið og áræðið er einkennir byggingarlistina. Það má sjá í glerhvelfingunni á þaki Reichstag, er á að vera tákn um gegnsæi þýskra stjórnmála, en einnig t.d. á Potsdamer Platz, sem nú er að nýju að verða einn af miðpunktum Berlínar. Berlín er greinilega að endurheimta sess sinn í Evrópu, sem ein af mikilvægustu borgum álfunnar, menningarlega jafnt sem póli- tískt. Þýsk stjórnmál einkennast af meira sjálfsöryggi en áður og það er ljóst að Þýskaland mun verða eitt helsta forysturíki Evrópu á næstu áratugum, pólitískt ekki síður en efnahagslega. Ekki síst eiga Þjóðverjar eftir að gegna lykilhlutverki við að aðstoða ríkin í Mið- og Austur-Evrópu við að aðlagast ríkjum í vesturhluta álf- unnar. Berlín er ekki lengur jaðarborg, útvörður í austri, heldur miðpunktur. Lengi vel óttuðust nágrannaríki Þjóðverja þessa sýn og raunar má segja að sams konar áhyggjur hafi verið áberandi í þýskri samfélagsumræðu. Þjóðverjar hafa hins vegar sýnt það og sannað á undanförnum áratugum að lýðræði þeirra hefur fest sig ræki- lega í sessi, dafnað og þroskað. Hverjum dettur í hug lengur að Þjóðverjar eigi eftir að ógna öðrum ríkjum? Með þátttöku sinni í aðgerðum NATO í Kosovo og flutningi stjórnsýslunnar til Berlín- ar má segja að Þýskaland sé loks að taka síðustu skrefin í átt að eðlilegu ástandi eftir síðari heimsstyrjöldina. Með flutningnum til Berlínar er endanlega verið að sameina Þýskaland og með þátt- töku í NATO-aðgerðunum eru Þjóðverjar að axla ábyrgð í sam- ræmi við styrk sinn og stærð. Fyrsta sértæka könnunin á bóklestri fullorðinna Islendinga Ekki sjálfgefíð að bókaþjóðin lesi bækur Þeim íslendingum fer fjölgandi sem ekki lesa neinar bækur í frístundum sínum og fækkað hefur í liði afkastamikilla bókaorma á síðastliðnum ellefu árum. Kemur þetta fram í niðurstöðum lestrarkönnunar sem 7 Bókasamband Islands lét gera í mars. Sigurbjörg Þrastardóttir kynnti sér könnunina og leitaði viðbragða. ÞRÖSTUR Helgason gerir grein fyrir niðurstöðum lestrarkönnunarinnar. Karl Sigurðsson frá Félagsvísindastofnun situr við borðsendann. MEIRIHLUTI Ís- lendinga les ein- göngu íslenskar bækur og skáldsög- ur eru sá flokkur bókmennta sem mest er lesinn hér á landi. Þessar niðurstöður koma kannski fáum á óvart en það gerir hins vegar sitthvað annað sem fram kemur í niðurstöðum könnunarinnar Bóklestur ís- lendinga sem Bókasamband ís- lands kynnti í gær. í könnuninni vai' spurt sím- leiðis hversu margar bækur fólk las á síðustu þremur og tólf mánuðum, hvers konar efni fólk las og hve mikið af því var á íslensku. Þriðjungur kvaðst hafa lesið l^ bækur síðastliðna tólf mán- uði, rúm 18% lásu 5-9 bækur og annar þriðjungur las 10 bækur eða fleiri. Um 15% svar- enda höfðu hins vegar ekki les- ið neina bók. Hlutfall þein'a sem ekki lesa bækur í frístund- um sínum hefur samkvæmt þessu rúmlega tvöfaldast á ell- efu árum en á sama tíma hefur þeim fækkað úr helmingi í þriðjung sem lesa tíu bækur eða fleiri. Sundurgreining svara eftir stéttum sýnir að yfir fjórðungur iðnaðar- manna las enga bók og yfir 20% sjó- manna, bænda og verkafólks. Hins vegar lásu yfir 90% sérfræðinga og skrifstofufólks einhverja bók eða bækur og í þeim stéttum var jafn- framt að finna afkastamestu lesend- urna. Yfir tveir af hverjum fímm í hópi sérfræðinga og skrifstofufólks höfðu lesið tíu bækur eða fleiri á tólf mánaða tímabili. Bókasambandið lét einnig kanna lestrarmynstur á þriggja mánðaða tímabili, frá því í vikunni fyrir jól og til 18.-24 mars sl. Kom í ljós að fjórð- ungur hafði lesið meira en eitt rit á mánuði en tæp 28% opnuðu ekki bók þrátt fyrir umfangsmikið jólabóka- flóð. Aðrir lásu að meðaltali tvær bækur á tímabilinu. Skáldsagan í heiðurssæti En hvers konar bókmenntir eru lesnar á íslandi á tímum alþjóðavæð- ingar og afþreyingariðnaðai'? Skáldsagan er efst á blaði, lesin af yfir 63% þeirra sem eitthvað lásu. Mun fleiri konur en karlar lesa skáldsögur og spennu- eða ástarsögur, en karlar hafa yfirhöndina þegar kemur að fræðiritum og fagtímaritum. Um sjö- undi hver lesandi les ljóð og fer ljóða- lestur vaxandi eftir því sem ofar dreg- ur í aldri. Sama aldursdreifíng er uppi á teningnum í flokki ævisagna sem er næstvinsælasti bókaflokkurinn á eftir skáldsögunum. í borginni lásu 15% svarenda fleiri bækur á erlendum málum en móður- málinu, en það er helmingi hærra hlut- fall en á landsbyggðinni. Þar héldu 72% sig við íslenskt lesefni eingöngu, en hið sama gerði ríflega helmingur borgarbúa. Háskólamenntað fólk les helst bækur á erlendum tungumálum, svo og þeir sem yngri eru. Félagsvísindastofnun gerði könn- unina fyrir Bókasamband íslands dagana 18.-24. mars sl. Nettósvörun var 69%, en stuðst var við 1500 manna slembiúrtak úr þjóðskrá sem náði til einstaklinga 18 ára og eldri. Nauðsynlegt að bregðast, við Niðurstöður könnunarinnar voru kynntar á blaðamannafundi Bókasam- bands íslands í gær. Þröstur Helga- son, formaður sambandsins, sagði nið- urstöðurnar sláandi og full þörf væri á að bregðast við. „Minnkandi lestur getur leitt til miður góðra breytinga á samfélagi okkar og ekki síður samfé- lagsmyndinni, eins og vísbendingar um að lestur sé stéttskiptur benda til,“ sagði Þröstur og undirstrikaði að menningarlegar rætur þjóðarinnar lægju í bókmenntum. Meðal atriða sem Bókasamband íslands hefur mælt fyrir í því augnamiði að auka bóklestur eru afnám bókaskatts, efl- ing bókmenntakennslu í skólum og aukin umfjöllun fjölmiðla um bók- menntir auk þess sem sambandið hef- ur hvatt til þess að lesið verði meira fyrir börn. Bóklestur íslendinga er fyrsta könnunin sem sérstaklega hefur verið gerð á lestri fullorðinna íslendinga. Sigurður Svavarsson, formaður Fé- lags íslenskra bókaútgefenda, sagði mjög mikilvægt að haldið yrði áfram að fylgjast með þróuninni til þess að geta brugðist við. „Það er auðvitað al- gjörlega óviðunandi fyrir alla sem hér eru að 15% landsmanna lesi engar bækur,“ sagði Sigurður í samtali við Morgunblaðið eftir að niðurstöður könnunarinnar voru kynntar. „Þótt bóklestur kunni að vera hér meiri en í nágrannalöndunum er hættulegt að taka því sem sjálfgefnu. Markmið okkar er að auka bóklestur og það gerum við til að mynda með viku bók- arinnar sem nú er haldin í fyrsta sinn í tengslum við dag bókarinnar. Fyi-stu Hlutfall sem lásu enga bók og sem lásu 10 bækur eða fleiri Kyn Kariar Konur Aldur 18-29ára 30-49 ára 50-66 ára 67-100 ára 50% Stétt Stjórn./æðstu emb. Sérfræðingar Skrifstofufólk Þjónustu-/gæslust. Iðnaðarmenn Sjómenn/Bændur Verkafólk Ekki útivinnandi Starfsvettvangur Hjá hinu opinbera Launþ. á einkamark. Sjáfstætt starfandi Sambúðarform Sambúð án barna Sambúð með börn Einhl. án bama Einhl. með börn 0% 10% 20% 30% 40% 50% Lestur einstakra tegunda bókmennta, greint eftir aldri 0% 10% 20% 30% 40% 50% 60% 70% 80% Hversu margar bækur, ef einhverjar, hefur þú lesið í frístundum þínum á sl. 12 mánuðum, svona um það bil, hlutfall þeirra sem svöruðu. Samanburður við lífskjarakönnun frá 1988, og neyslu- og lífsstílskannanir á árunum 1994-1997 10 bækur eða fleiri 5-9 bækur 1-4 bækur Enga bók 1988 1994 1995 1996 1997 1999 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1999 39 Lestur einstakra tegunda bókmennta, greint eftir kyní Skáld- Spenna/ Fræði- sögur ástars. rit viðbrögð við henni benda til þess að hún geti orðið árviss viðburður, en til- gangui-inn er að bækur berist fólki á fleiri tímum en um jólaleytið." Sigurður benti einnig á að börn lærðu það sem fyrir þeim væri haft, og því væri mikilvægt að lestrarmynstur fullorðinna væri ungu kynslóðinni hvatning. „Hver sá lesandi sem glatast á unga aldri kann að vera að eilífu glataður." Harðnandi samkeppni við aðra miðla Björn Bjarnason menntamálaráð- herra fagnaði því að könnun sem þessi væri gerð því aldrei mætti sofna á verð- inum. ,Auðvitað er áhyggjuefni f'yi'ir okkm' sem bókaþjóð að bóklestur drag- ist saman, en mér virðist samdráttur- inn þó ekki átakanlegur miðað við aukna samkeppni af hálfu annan'a miðla um frítíma fólks. Hér er aðsókn að kvikmyndahúsum, útleiga mynd- banda, aðgengi að Netinu og framboð af leiklist meiri en í öðrum löndum, svo dæmi séu nefnd. í ljósi mikillar neyslu annaira miðla er ekki annað að sjá en að bókin standi sig vel. Svo má ekki gleyma því að dagblöð og tímarit hafa stækkað og breyst og kalla á aukinn lestur. Netið gerir einnig kröfu um lesskilning og ekki síður skriftai'kunn- áttu því það er gagnvirkur miðill. í nýj- um námsski'ám í skólakerfinu er höfuð- áhersla einmitt lögð á að börn þjálfíst í því að tala, lesa og skrifa til þess að geta notið sín i nútímasamfélagi.“ Björn minnti á að stjórnvöld sýndu gildi ritstarfa viðurkenningu með margvíslegum hætti. „ Við höfum hér starfslaun rithöfunda, dag ís- lenskrar tungu, menningarsjóð og bókasafnssjóð auk þess sem í undir- búningi er sjóður til stuðnings höfund- um fræðirita. Hins vegar myndi bóka- útgófa hér fljótt deyja ef hún byggði alfarið á opinberum fjárframlögum. Við höfum sem betur fer öflug útgáfu- fyrirtæki sem eru í mikilli samkeppni og metnaður þein'a ræður miklu um stöðuna." Björn kvað ekki síður mikilvægt að rækta virðingu fyrir bókum meðal barna og unglinga og er ánægðm' með vaxandi áhuga á upplestrarkeppni grunnskólanna. „En auðvitað ræðst bóklestur einnig af því hvað er í boði á hverjum tíma og hversu mikil umræða er um bókmenntir. Það er ekki fast lög- mál að bókaþjóðin lesi alltaf bækur.“ Hægrimenn lesa fæstar bækur Menntamálaráðherra hafði gaman af því er blaðamenn bentu honum á ólíkt lestrarmynstur fólks eftir því hvaða stjórnmálastefnur það aðhyllist, en hægi'imenn virðast almennt lesa minna en aðrir. A meðan 40,8% vinstrimanna lásu tíu bækur eða fleiri á einu ári, lásu tæp 28% hægrimanna og 37,4% miðju- manna álíka mikið. 15% hægrimanna líta ekki í bók og heldur ekki 14,3% miðjumanna, en einungis rúm 8% vinstrimanna segjast hafa látið hjá líða að líta í bók undangengna tólf mánuði. Munurinn milli fólks með ólíkar stjórnmálaskoðanir er mestur þegai' kemur að ljóðum. Tæp 23% vinstri- manna kváðust hafa lesið ljóð síðustu tólf mánuði á móti tæpum 11% hægri- manna, en 15% miðjumanna eru ljóðaunnendur. „Þetta eru vissulega forvitnilegar niðurstöður en ég tek þær þó mátu- lega hátíðlega," sagði ráðherra. „Sjálf- ur hef ég frekar litið á mig sem bóka- mann og kann ekki skýringar á því hvers vegna hægrimenn virðast lesa minna en hinir. Ég les einnig ljóð og hef gaman af, en játa þó að fræðirit mynda meirihluta þeirra bóka sem ég les,“ sagði hann. Úr skýrslu Auðlindanefndar Þjóðhagsstofnun um núverandi fiskveiðistjórnimarkerfi Nær þeim tilgangi að hámarka arð þjóðarbúsins Á síðustu tveimur áratugum hafa ekki aðeins verið gerðar breytingar á stjórn fískveiða heldur hefur rekstrarumhverfí allra fyrir- tækja í landinu gerbreyst. Því er mjög erfítt að skilja þá þætti sem hafa valdið breytingum í sjávarútvegi frá þeim þáttum sem hafa haft áhrif á efnahagslífíð almennt, að mati Þjóðhagsstofnunar. SAMKVÆMT áliti Þjóðhags- stofnunar nær núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi með skynsamlegri ákvörðun heildaraflamarks og frjálsu framsali aflaheimilda þeim tilgangi í meginat- riðum að hámarka arð þjóðarbúsins af fiskveiðum. Stofnunin segii' að álagning auðlindagjalds sé að mestu óskylt mál sem hafi ekki áhrif á þetta álit á fyrirkomulagi fiskveiði- stjórnunar. Þetta er meðal annars að finna í skýrslu Þjóðhagsstofnunar Próun sjávarútvegs, kvótakerfíð, auðlinda- gjald og almenn hagstjórn, en skýrslan er unnin fyrir Auðlinda- nefnd og birt í skýrslu hennar sem kom út í síðasta mánuði. Þjóðhags- stofnun bendir á í skýrslunni að á síðustu tveimur ái'atugum hafi ekki einvörðungu verið gerðar breytingar á stjórn fiskveiða heldur hafi rekstr- arumhverfi allra fyrirtækja í landinu gerbreyst. Því sé mjög erfitt að skilja þá þætti sem hafi valdið breyt- ingum í sjávarútvegi frá þeim þátt- um sem hafi haft áhrif á efnahagslíf- ið almennt og eru í því sambandi nefnd atriði eins og opnun fjár- magnsmarkaða, hjöðnun verðbólgu, gengisstefnan og þróun hlutabréfa- markaða. Framleiðni jókst niikið í meginatriðum ei-u niðurstöður Þjóðhagsstofnunar þær að fram- leiðni í fiskveiðum hafi aukist mikið eftir að aflamarkskerfið var tekið upp árið 1984. „Bæði fræðileg rök og einstaka tölulegar upplýsingar benda til þess að aflamarkskerfið hafi stuðlað að framleiðniaukningu í sjávarútvegi. En þegar á heildina er litið og tekið tillit til margvíslegi’a annarra breytinga í umhverfí út- gerðarfyrirtækja er ekki hægt að benda á marktækar töl- fræðilegar vísbendingar um að aflamarkskerfið hafi haft þessi áhrif,“ segir í skýrslunni. í öðru lagi segir Þjóð- hagsstofnun að afkomubatinn sem hafi orðið í sjávarútveginum á áran- um 1989-1995 hafi sennilega mest ráðist af almennum breytingum sem hafi orðið á þessum ánim í efna- hagsumhverfi fyrirtækjanna. „Það er þó ekki hægt að útiloka að afla- markskeifíð hafi haft þarna nokkur áhrif, t.d. í gegnum áhrif á fram- leiðni í fiskveiðum sem hafi komið í veg fyrir að sú lægð í þorskstofnin- um sem varð á fyrri hluta þessa ára- tugar hafi leitt til taprekstrar í sjáv- arútvegi." í skýrslunni segir ennfremur að ekki sé hægt að sýna fram á veruleg- ar breytingar á dreifingu afla á teg- undir skipa eða landshluta vegna kvótakerfisins. Samt sem áður séu verulegir flutningar á aflahlutdeild milli svæða sem bendi til aukinnar áhættudreifíngar og hagræðingar. Stærstu fyrirtækin hafi nokkuð auk- ið aflahlutdeild sína en langt sé frá að nokkurt fyrirtæki hafí yfírburða- stöðu. Þá segir Þjóðhagsstofnun að um- fang kvótaviðskipta sé sennilega ein- hver besti mælikvarðinn á hag- kvæmni þess að hafa frjálst framsal. Viðskipti með aflamark, þ.e. skamm- tímakvóta, hafi verið veruleg á und- anförnum áram og hafi numið 10 milljörðum króna á síðasta fiskveiði- ári. Markaður fyrir aflahlutdeildir, þ.e. varanlegan kvóta, hafi verið mun minni. Þó hafi viðskiptin aukist á síð- asta fískveiðiári. Fram kemur að verðmæti fluttra aflahlutdeilda alls var um 20 millj- arðar króna fiskveiðiárin 1995/96 og 1996/97, en jókst í rúmlega 51 millj- arð króna á síðasta fiskveiðiári 1997/98. Þarna er um að ræða áætl- að verðmæti flutnings aflahlutdeilda milli skipa í heild, en ekki eingöngu þeirra aflahlutdeilda sem skiptu um eigendur. Verulegur hluti þeirra aflahlutdeilda sem fluttar voru milli skipa skipti ekki um eigendur að sögn Þjóðhagsstofnunar. Segir stofnunin þessa mikla aukningu eft- irtektarverða, en þar komi væntan- lega fram viðbrögð útgerðanna við þeim lögum sem sett voru í fyrravor, ji.e. lögum um Kvótaþing, 50% veiði- skyldu og afnám réttar til að af- skrifa verðmæti keyptra aflahlut- deilda. I skýrslunni er einnig fjallað um verðþróun á aflamarki og aflahlut- deild á undanförnum árum. Varð- andi verð á aflahlutdeildunum kem- ur fram svo dæmi sé tekið að verðið fyrir kílóið af slægðum þorski var 186 kr. á fiskveiðiárinu 1991/92, en var 733 kr. á síðasta físk- veiðiári eða næstum fjór- falt hærra. Ef hins vegar miðað er við verð á afla- hlutdeildum miðað við hundraðshluta kemur fram í skýrslunni að verð á hverju prósenti af þorski var 372 milljónir króna fiskveiðiárið 1991/92. Það lækkaði síðan næstu tvö fiskveiðiár og endurspeglast þar samdráttur veiðiheimilda í þorski á þessum ár- um, en hækkaði síðan og nam rúm- um 1.100 milljónum króna á síðasta fiskveiðiári. Verð á aflamarki í þorski var rúm- ar 36 kr. miðað við kílóið af slægðu fiskveiðárið 1992/93, en var 82 kr. á síðasta fiskveiðiári. Segir Þjóðhags- stofnun að meginástæðan fyrir þessu háa verði á aflamarki sé að verðið ráðist af þeim jaðarhagnaði sem fyrirtækin hafi af því að bæta við sig kvóta. Núverandi verð á afla- marki endurspegli skammtíma jað- arhagnað fyrirtækjanna og sé langt umfram það verð sem heildararð- semi í íslenskum sjávarútvegi gefi tilefni til. Auðlindagjald gerir miklar kröfur til hagstjórnarinnar í síðustu tveimur köflum skýrslu Þjóðhagsstofnunar er fjallað um hugsanlega gjaldtöku af fiskveiðum vegna afnota af sameiginlegri auðlind landsmanna. Segir meðal annars að ef gengi og laun ákvarðist í samræmi við ytri skilyrði þjóðarbúsins, þ.e.a.s. þannig að jafnvægi sé á viðskiptun- um við útlönd þegar litið sé til nokD- urra ára í senn þá skipti ráðstöfun auðlindarentunnar litlu fyrir stig raungengis. „Þetta þýðir að ef fjár- magnsmarkaður og vinnumarkaður era án mikilla bresta skiptir ákvörð- un um auðlindagjald fyrst og fremst máli þegar litið er til tekju- og eigna- dreifingai'. í þessu tilviki snúast rök- in fyrir inngripum hins opinbera ekki um að ná fram efnahagslegri hag- kvæmni heldur að ná fram sáttum í samfélaginu með jafnari skiptingu auðlindarentunnar. Mikilvægt er að slík inngrip skaði ekki verðmæta- sköpun í sjávarútvegi.“ Þjóðhagsstofnun segir ennfremm' að líkt og aðrar atvinnugi'einar muni sjávarútvegur hafa áhrif á raun- gengið. „Ef það verður niðurstaðan að þessi áhrif séu þess eðlis að mikil hætta sé á að raungengið verði það hátt að það hindri þróun annarra at- vinnugreina þá kemur auðlindagjald til álita sem hagstjórnartæki til að afstýi'a þessari hættu. Æskilegt væri að álagning slíks gjalds væri sem mest á markaðslegum forsendum, t.d. með uppboði á aflamarki og afla- hlutdeildum," segir Þjóðhagsstofn- un. Hún segir jafnframt að ef auÖ- lindagjaldtaka eða uppboð veiði- heimilda verði ákveðið sé mikilvægt að taka það upp í áföngum á nægj- anlega löngum tíma til þess að greininni gefíst tími til þess að að- lagast breytingunum og nauðsyn- legt sé að verð heimildanna endur- spegli allan útgerðarkostnaðinn, bæði breytilegan og fastan. Þá segir að álagning auðlindagjalds muni gera miklar kröfur til hagstjórnar- innar og ekki sé auðvelt að fínna þær hlutlægu viðmiðanir sem hægt sé að byggja á til að ákvarða „hóf- legt“ raungengi. Þjóðhagsstofnun segir loks að þegar á heildina sé litið sé enginn hagnaður af reglulegri starfsemi í sjávarútvegi umfram það sem sé í öðram atvinnugreinum, en búist sé við að bætt veiðistjórnun leiði til mikils hagnaðar í framtíðinni og þá sérstaklega í þorskveiðum. Verð á aflamarki endurspegli ekki fastan kostnað vegna þeirra miklu fjár- muna sem bundnir séu í fískveiðum og hugsanleg gjaldtaka yrði því mun lægri en þetta verð gæfi til kynna. „Þegar til lengin tíma er litið er eðli- legt að verð á aflamarki leiti í átt að jafnvægi þar sem tekið er tillit tö alls kostnaðar við veiðarnar. Þetta hefur ekki gerst á þeim 15 árum sem núverandi kerfi hefur verið við lýði og er þetta háa verð veruleg hindrun í vegi nýliðunar í útgerð. Það er því ástæða til að kanna hvort til séu markaðslegar leiðir til að lækka verð á aflamarki,“ segir í skýrslunni. Hátt verð hindrun í vegi nýliðunar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.