Morgunblaðið - 21.04.1999, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1999 31
LISTIR
Ungur þótti
ég með söng
TÓIVLIST
S a I u r i n n
KÓRTÓNLEIKAR
Eldri félagar í Karlakór Reykjavíkur
fluttu íslensk karlakórslög, tvö rúss-
nesk þjóðlög og eitt verk eftir Verdi.
Stjómandi var Kjartan Sigurjónsson.
Einsöngvarar; Guðrún Lóa Jónsdóttir
og Magnús Ástvaldsson. Undirleikari
var Bjarni Þór Jónatansson.
Sunnudagurinn 18. apríl, 1999.
KARLASAMPÉLAGIÐ lifir góðu
lífí meðal karlakóranna í landinu og
víst er að tónlistarlíf íslendinga á
þessum söngsamfélögum margt að
þakka og á tímabili var það nær eini
vettvangurinn, þar sem íslensk tón-
skáld gátu fengið söngverk sín flutt.
Gamlir söngfélagar í Karlakór
Reykjavíkur hafa lengi haldið hóp-
inn, þó ekki hafi þeir oft haldið sjálf-
stæða tónleika. Undirritaður heyrði
þá í fyrsta sinn í Salnum, s.l. sunnu-
dag og hófust tónleikarnir á laginu
Kópavogur, eftir Jón S.Jónsson, sem
var mjög fallega sungið. Tvö ágæt
lög eftir Áma Bjömsson vom næstu
viðfangsefnin, þ.e. Rís þú unga Is-
lands merki og Nú vil ég kveða.
Jónas Tómasson eldri átti næsta lag,
Litla skáld á grænni grein, og söng
Magnús Astvaldsson einsönginn af
þokka. Þar eftir söng kórinn gamlan
og góðan félaga, Sefur sól hjá ægi,
eftir Sigfús Einarsson. Eg skal vaka,
eftir Jónas Tryggvason, er ekta al-
þýðulag, er Guðrún Lóa Jónsdóttir
söng en þar er á ferðinni efnileg
söngkona. Fyrri hluta tónleikanna
lauk með syrpu fimm laga, eftir Ama
Thorsteinsson, er Jón Þórarinsson
raddsetti. Allt þetta sungu félagarnir
Blómamyndir
í Garðyrkju-
skóla ríkisins
ELÍNRÓS Eyjólfsdóttir opnar sýn-
ingu í Garðyrkjuskóla ríkisins í Ölfusi
á morgun, sumardaginn fyrsta, í til-
efni af 60 ára afmæli Garðyrkjuskól-
ans. A sýningunni era 26 blómamynd-
ir unnar með olíu- og vatnslitum, sem
hún hefur málað á sl. tveimur áram.
Elínrós hóf nám í postulínsmálun í
Stúdíói Glee Dowling í Colorado árið
1978, stundaði nám í Myndlista og
handíðaskóla íslands, Myndlistar-
skólanum í Reykjavík, Skidmore
College í New York, Paraizia á ítal-
íu. Hér heima hefur hún haldið fimm
einkasýningar. Sýningunni í Garð-
yrkjuskólanum lýkur á sunnudag.
nokkuð vel og stundum glampaði á
þann fallega tenórhljóm, sem kórinn
hefur ávallt verið rómaður fyrir.
Seinni hluti tónleikanna hófst með
laginu Reykjavík eftir Boga Sigurðs-
son, er syngur í 1. bassa, ágætt lag, er
kórinn söng vel. Rússneska þjóðlagið,
Ökumaðurinn, er gamall kunningi,
sem auðheyrt var að karlarnir kunnu
að meta. Annað rússneskt þjóðlag,
Kvöldljóð, stóð ekki eins vel og fyrra
rússneska lagið og nokkurrar þreytu
gætti í lagi Sigfúsar Halldórssonar,
Ég vildi að ung ég væri rós. Fuglinn í
fjörunni, eftir Jón Þórarinsson, var
nokkuð vel sungið og þar lék með
Bjami Þór Jónatansson, sem hann og
gerði það sem eftir var af efnis-
skránni. Brimlending, eftir Askel
Jónsson, við texta eftir Davíð Stef-
ánsson, heyrði undin-itaður í fyrsta
sinn og var þetta ágæta lag mjög vel
flutt en í því hefur bassinn stórt hlut-
verk. Það er töluverð dramatík í
þessu lagi, sem vel mætti heyrast oft-
ar á tónleikum karlakóranna. Ein-
söngur Leonora (og kór munkanna), í
Valdi örlaganna, eftir Verdi, var
þokkalega sunginn af Guðrúnu Lóu
Jónsdóttur, sem eins og fyrr segir er
efnileg söngkona, þó enn vanti hana
töluvert til að hafa full tök á dramat-
ískri túlkun og raddmótun. Tónleik-
unum lauk með Þér landnemar, eftir
Sigurð Þórðarson og þar mátti heyra
að karlamir vora á heimavelli. í heild
vora þetta nokkuð góðir tónleikar, þó
ungir hafi þeir verið betri og þótt þá
„með söng, yndi vekja í sveina
glaumi“. Þeim var röggsamlega
stjómað af Kjartani Sigurjónssyni, er
mótaði söng þeirra af nærgætni og
oft á músikalskan máta.
Jón Ásgeirsson
—
KÆRLEIKUR, eitt olfumálverk
Elínrósar í Garðyrkjuskóla ríksins.
Njóttu lífsins og fljúgðu á stórtónleika Kristjáns Jóhannssonar með
fjölskyldu og Karlakór Akureyrar - Geysi.
Kristján Jóhannsson stórtenór hefur upp raust sfna hér á landi
í lok april og byrjun maí með Karlakór Akureyrar - Geysi og með
bræðrum sínum, þeim Svavari og Jóhanni Má. Skelltu þér til
Akureyrar eða Egilsstaða með aðstoð íslandsflugs sem býður
frábærar pakkaferðir fflug & tónleikar) til Akureyrar og
Egilsstaða í tilefni tónleikanna. Einnig koma fram systursynir
bræðranna, þeir Örn Viðar og Stefán Birgissynir.
Kristján og félagar syngja í íþróttaskemmunni á Akureyri
[30. april kl. 20:00 og 1. maíkl. 16:00) og f íþróttamiðstöðinni
á Egilsstöðum [2. maíkl. 16:00).
Forsala aðgöngumida, upplýsingar
og bókanir í síma 570 8090.
www.islandsflug.is
Upplýsingar og bókanir í síma 570 8090
^ n n
Olafur Orn Haraldsson
þingmaður Reykvfkinga
hefur tryggt aðgengi
þéttbýl isbúa
að hálendi Islands.
Ný framsókn til nýrrar
FRELSI FESTA FRAMSÓKN
w w w. framsokn. i s
a I d a r