Morgunblaðið - 21.04.1999, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
- Ráðherrar iðrast
gjörða sinna
EINS og lands-
mönnum ætti nú að
vera kunnugt þá hef-
ur ríkisstjóm Sjálf-
stæðisflokks og
F ramsóknarflokks
haft rúmlega 2 milij-
arða af bamafólki á
kjörtímabilinu með
þvf að tekjutengja
bamabætur að fuUu.
SVONA, svona labbakúturinn minn, ég skal lofa því að þú skalt ekki verða
með rauðan bossa næsta kjörtímabil.
Tvöföldun Hringvegar frá Nesvegi til Víkurvegar
Háfell og Eykt með
lægsta tilboðið
NÝLEGA voru opnuð tilboð í tvö-
fóldun Hringvegar frá Nesbraut
norður fyrir Víkurveg ásamt bygg-
ingu undirganga. Alls bárust níu til-
boð og stóð valið milli þess að mal-
bika eða steypa slitlag Hringvegar-
ins.
Tvö lægstu tilboðin hljóða upp á
malbikun vegarins, það lægsta kem-
ur frá Háfelli ehf. og Eykt ehf. í
Reykjavík að upphæð 207.000.000
króna. Völur hf. í Reykjavik á næst-
lægsta tilboðið og hljóðar það upp á
214.894.290 kr.
Lægsta tilboðið í steypt slitlag
vegarins kemur frá ísafli að upphæð
238.711.000 kr.
Malbik ódýrara
en steypt slitlag
Sigursteinn Hjartarson, umdæm-
istæknifræðingur hjá Vegagerðinni,
segir að tilboðin verði nú skoðið nán-
ar og metinn munur á steyptu slit-
lagi og malbikuðu. „Of snemmt er að
fullyrða hvort verður ofan á, en að
svo komnu máli tel ég líklegra að
malbikun verði fyrir valinu þar sem
töluverðu munar í verði.“
Byggingafyrirtækin Háfell ehf. og
Eykt ehf. í Reykjavík hafa áður unn-
ið stór verk fyrir Vegagerðina til að
mynda við Suðurlandsveg og Gullin-
brú.
Fyrsta áfanga
lýkur í júlí
Verkið verður unnið í þremur
áföngum en um er að ræða 1.400
metra langan kafla Hringvegarins
og breikkun hans í fjórar akreinar.
I fyrsta áfanga sem áætlað er að
ljúka fyrir 26. júlí verður unnið að
nýjum gatnamótum við Víkurveg
auk þess sem Hringvegurinn verður
tvöfaldaður á 750 metra kafla.
I öðrum áfanga verða gerð undir-
göng við Grafarholt en áætlað er að
ljúka þeim framkvæmdum fyrir 10.
september en verkinu öllu fyrir 15.
júní árið 2000.
Fjárveiting til framkvæmdanna
nemur alls um 330 milljónum kr.
----------------
Nýr fram-
kvæmda-
stjóri Neyðar-
línunnar
PÓRHALLUR Ólafsson, aðstoðar-
maður Þorsteins Pálssonar, dóms-
og kirkjumálaráðherra, hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri Neyðar-
línunnar. Ellefu sóttu um starfíð,
að sögn Haraldar Johannessen,
ríkislögreglustjóra, sem er stjórn-
arformaður Neyðarlínunnar.
Eiríkur Þorbjörnsson var fram-
kvæmdastjóri Neyðarlínunnar en
lét af störfum fyrir nokkrum vik-
um, að sögn Haraldar. Bergsveinn
Alfonsson hefur gegnt starfi fram-
kvæmdastjóra síðan. Þórhallur
tekur við nýja starfínu 1. maí.
Skólastjóri
ráðinn að
Korpuskóla
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt tillögu Fræðslumið-
stöðvar Reykjavíkur um að
mæla með ráðningu Svanhild-
ar M. Ólafsdóttur í stöðu
skólastjóra Korpuskóla.
Stjórn fræðsluráðs sam-
þykkti samhljóða að mæla
með ráðningu Svanhildar.
fást í
sportvöruverslunum
um allt land
eqaeaAe.
DREIFINGARAÐIU
Í.GUÐMUNDSSONehf.
Sími: 533-1999, Fax: 533-1995
Handverk og ferðaþjónusta
Fj ölbreytileiki
einkennir ís-
lenskt handverk
Guðrún Hannele
Henttinen
HANDVERK og
ferðaþjónusta er
yfirskriftin á sýn-
ingu sem hefst á morgun,
22. apríl og stendur fram
til 25. apríl. Sýningin verð-
ur í Laugardalshöll og
Guðrún Hannele
Henttinen er í sýningar-
stjórn.
„Sýningin er samstarfs-
verkefni Handsverks &
hönnunar og Ferðaþjón-
ustu Akureyrar. Hand-
verk & hönnun er verkefni
sem er rekið af opinberum
aðilum til að vinna að
framförum í handverki á
Islandi.
Sýningin í Laugardals-
höllinni er eitt af okkar
stóru verkefnum. Hún á
að gefa almenningi kost á
að sjá hvað er að gerast
hjá íslensku handverksfólki og þá
á handverksfólk líka að fá tæki-
færi til að koma sér og sinni
framleiðslu á framfæri.“
Guðrún segir að þetta sé önnur
handverkssýningin sem staðið sé
íyrir í Laugardalshöll í Reykja-
vík og hún segir það yfirlýst
markmið að stefna að því að þessi
sýning verði árviss viðburður og
endurspegli það sem ber hæst á
hverjum tíma í íslensku hand-
verki.
- Hvað er mest áberandi á
sýningunni nú í ár?
„Það má segja að fjölbreyti-
leiki einkenni íslenskt handverk í
dag og fólk er að vinna með
margskonar efnivið. Ýmsir eru
að vinna með íslenska ull, horn,
bein, skinn og tré og hinsvegar
eru aðrir sem velja nýstárlegri
efni eins og smíðajárn og
roðskinn.
Guðrún segir að fata- og skart-
gripahönnun sé hluti af íslensku
handverki og á því sviði sé margt
spennandi að gerast. Þá bendir
hún á að íslensk hönnun sé mjög
framsækin og meðal sýningar-
gripa séu margir mjög nýstárleg-
ir nytjahlutir. Á þessa sýningu
höfum við boðið nokkrum erlend-
um gestum og sýnt verður hand-
verk frá Danmörku og Finnlandi,
Færeyjum og Grænlandi."
-Hversu margir sýna hand-
verk að þessu sinni?
„Það eru um 140 aðilar sem
taka þátt í sýningunni í Laugar-
dalshöll sem er líka sölusýning.
Þetta eru bæði einstaklingar,
fyrirtæki og hópar sem koma
víða að af landinu.
Stór bás verður merktur
Reykjavíkurborg og þar verður
sýnt úrval af listhandverki úr
Reykjavík. Þá er stór
hópur úr Mosfellsbæ
og annar af Reykja-
nesi og margir af
Norðurlandi og fleiri
stöðum á landinu."
Guðríin segir að bi-yddað sé
upp á þeirri nýjung að bjóða upp
á vinnusýningar þar sem sýnd
verða gömul og ný vinnubrögð.
„Þá verður barnasmiðja í and-
dyrinu og munu þrír hand-
menntakennarar sjá um hana.
Þar verður börnum gefinn kostur
á að taka þátt í að skapa sjálf í
höndunum og lögð áhersla á
textíl. Þau fá að kynnast íslenskri
ullarvinnu, mega taka þátt í að
sauma út refil og prjóna Lagar-
fliótsorminn svo dæmi séu tek-
in.“
-Hvernig tengist ferðaþjón-
usta sýningunni?
► Guðrún Hannele Henttinen
er fædd í Reykjavík árið 1956.
Hún lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Tjörnina
árið 1976 og kennaraprófi frá
Kennaraháskóla íslands árið
1985.
Guðrún nam kennslufræði
textflmennta við Háskólann í
Helsinki og lauk námi 1 út-
flutnings- og markaðsfræði frá
endurmenntunardeild Háskóla
íslands árið 1997. Hún hefur
starfað sem verkefnisstjóri
Hönnunar & handverks frá ár-
inu 1994.
Hún er auk þess í meistara-
námi í uppeldis og menntunar-
fræði við Háskóla Islands.
Eiginmaður hennar er Karl
Alvarsson, flugumferðarstjóri
og lögfræðingur, og eiga þau
Qögur börn.
„Sýningin er samstarfsverk-
efni Ferðaþjónustu Akureyrar og
Handverks & hönnunar. Okkur
hefur fundist þessar tvær at-
vinnugreinar eiga samleið og
þær skarast með ýmsum hætti,
sérstaklega úti á landi.
Á sýningunni í Laugardalshöll
er nokkuð um að þátttakendur
utan af landi taki sig saman og
sýni. Þeirra á meðal er þá einnig
ferðamálafulltrúi viðkomandi
svæðis og síðan handverkshóp-
ur.“ Guðrún segir að sem dæmi
um samvinnu af þessu tagi megi
nefna að í Skagafirði var sérstakt
hús byggt í þessum tilgangi,
Handverkshús og Upplýsinga-
miðstöð ferðamála undir sama
þaki.
„Innlendir og erlendir ferða-
menn sem leita sér upplýsinga
um dægradvöl frá
upplýsingamiðstöð
svæðis eru oft einnig
að leita að minjagrip-
um frá staðnum."
- Hvert er mark-
miðið með að halda sýningu sem
þessa?
„Markmiðið er fyrst og fremst
að endurspegla það besta í ís-
lensku handverki á hverjum
tíma. Við viljum efla gæði hand-
bragðs á íslandi og það er okkar
von að sýningin þróist út í að
vera sýning á úrvals list- og
gæðahandverki á Islandi."
- Var sýningin í fyrra vel sótt?
„Það er óhætt að segja það þvi
þá sóttu um 14.000 manns sýn-
inguna heim. Við viljum þvi ein-
dregið hvetja gesti til að koma
snemma og dreifa þannig álaginu
yfir daginn.“
Margir ný-
stárlegir
nytjahlutir