Morgunblaðið - 21.04.1999, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 21.04.1999, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR A Halldór Asgrímsson utanríkisráðherra segir að landhernaður í Serbíu myndi kosta mörg mannslíf Ottast að reynt verði að blanda Ungverjum í átökin HALLDÓR Ásgrímsson utanrík- isráðherra sagði á stjómmála- fundi sem Framsóknarflokkurinn hélt í Reykjavík í gær að meðal þess sem NATO óttaðist í sam- bandi við átökin í Kosavo værí að Milosevic, leiðtogi Serbíu, reyndi að blanda Ungverjalandi í átökin með því að reka um 300 þúsund íbúa Serbíu af ungverskum upp- runa frá heimilum sínum og til Ungverjalands. Halldór fer til Washington í dag á fund sem haldinn er í tilefni 50 ára afmælis Serbíu. Hann sagði að ákveðið hefði verið að kasta hátíðarbúningi þessa fund- ar og stór hluti hans færi í að ræða þá alvarlegu atburði sem nú eiga sér stað í Kosovo. Halldór var spurður hvemig það væri fyrir hann persónulega að taka þátt í ákvörðun um að varpa sprengjum á Júgóslavíu. Hann sagði að það væri vissulega erfitt, en hann sagðist gera sér grein fyrir því að hann yrði að taka afstöðu. Að taka ekki af- stöðu fæli í sér afstöðu í sjálfu sér. A þetta hefði utanríkisráð- herra Þýskalands lagt áherslu, en hann hefði setið undir harðri gagnrýni frá eigin flokksmönnum í flokki Græningja vegna þessa máls. „Við munum að þegar Hitler var að hefja útrýmingarherferð sína gegn gyðingum kusu sum af þeim ríkjum sem nú eru í NATO að loka augunum. Við verðum því að taka afstöðu með mannrétt- indum og með lýðræði og með frelsinu. Eg hef komið tvisvar til Bosníu sem er mikil lífsreynsla. Að sjá Morgunblaðið/Þorkell FRÁ stjórnmálafundi Framsóknarflokksins í Iðnó í gær. kirkjur sem hafa verið eyði- lagðar og moskur sem hafa verið brenndai' til granna; að sjá staði þar sem konum hefur verið safnað saman til að nauðga þeim og staði þar sem karlmönnum hefur verið safnað saman til að pynta þá er ótrúlegt. Eg óttast að svipaðir hlutir séu nú að gerast í Kosovo og við get- um ekki setið hjá,“ sagði Halldór. Aðspurður sagðist Halldór telja að á einhverju stigi þessara átaka yrði alþjóðlegt lið að fara inn í Kosovo. Það væri hins vegar mat NATO að á þessu stigi myndi land- hemaður kalla á gífurlegar blóðsúthelling- ar hjá báðum aðilum og þess vegna hefði verið lögð áhersla á að lama eins og hægt væri hernaðarmátt Serba. Atvinnumálin mikilvæg þó áhugi á þeim sé minni núna A fundinum var Halldór spurð- ur út í stóriðjustefnu flokksins. Hann sagði að þessi kosninga- barátta væri ólík síðustu kosn- ingabaráttu að því leyti að nú væri ekki sami áhugi á atvinnu- málurn og þá enda hefði tekist að eyða að mestu atvinnuleysi og út- lit væri fyrir að á síðustu 5 árum þessarar aldar yrðu til 13-14.000 störf, en Framsóknarflokkurinn lofaði 12.000 nýjum störfum í síð- ustu kosningum. Hann sagði að Finnur Ingólfs- son iðnaðarráðherra hefði staðið sig vel í þessum málum. AJlir iðn- aðarráðherrar á síðustu áratug- um hefðu unnið að því að fá ný stóriðjufyrirtæki til landsins. Hjörleifur Guttormsson hefði unnið að því að koma á kísil- málmiðju á Reyðarfirði. Það hefði ekki gengið eftir og Sverrir Hermannsson hefði tekið við þessari vinnu án þess að ná ár- angri. „Sverrir hét því að éta gler- augun sín ef kísilmálmbræðsla yrði ekki reist á Reyðai-fírði. Mér vitanlega hafa þau gleraugu ekki enn verið étin. Sverrir er núna kominn í framboð með gleraugun á nefinu.“ Halldór sagði að í tíð Finns hefði hins vegar tekist að semja um stækkun álversins í Straums- vík, byggingu álvers á Grandar- tanga og stækkun Járnblendi- verksmiðjunnar á Grandartanga. Ahugi kjósenda á atvinnumálum og fjölbreyttara atvinnulífí ætti eftir að aukast aftur þegar þensl- an í atvinnulífínu minnkaði og það væri mikilvægt að stjórn- málamenn héldu áfram að vinna að atvinnumálum þó áhugi kjós- enda á þessum málum breyttist frá einu ári til annars. DAGBOK Félag ungs Samfylkingarfólks Stofnfundur á Suðurlandi • Stofnfundur Félags ungs Sam- fylkingarfólks á Suðurlandi verður haldinn í dag, miðvikudaginn 21. apríl. Fundurinn verður haidinn kl. 18 á HIVI kaffi á Selfossi. í fréttatilkynningu segir að ung- liðar allstaðar að af landinu mæti á fundinn, Vakningarfólk á Norður- landi vestra fjölmenni og hópferð verði úr Reykjavík. Margrét Frímannsdóttir og Lúð- vík Bergvinsson ávarpa fundinn, Össur Skarphéðinsson og Vilhjálm- ur H. Vilhjálmsson fara á kostum og ýmislegt fleira verður til skemmtunar, segir í tilkynning- unni. Um kvöldið býður Samfylking- in ungu fólki upp í dans á Inghóli þar sem hljómsveitin Á móti sól leikur fyrir dansi og Sveinn Waage skemmtir. Sumarkaffi Samfylkingar í Hafnarfirði • Samfylkingin í Hafnarfirði býður í sumarkaffi á sumardaginn fyrsta á kosningaskrifstofunni í Alþýðuhús- inu. Frambjóðendur líta við og eru allir velkomnir. Kosningaskrifstof- an í Alþýðuhúsinu er opin alla daga frá kl. 10-22 og i Skálanum er opið kl. 14-22. Sighvatur á Reykhólum • Sighvatur Björgvinsson, efsti maður á lista Samfylkingarinnar í Vestfjarðakjördæmi, mun ásamt Jónu Valgerði Kristjánsdóttur fara yfir stefnumál Samfylkingarinnar í félagsheimilinu Reykhólum kl. 21 í kvöld, miðvikudagskvöld. Auk þess munu þau svara fyrirspurnum. Áhugahópur um auðlindir í almannaþágu Kappræðufundur um fiskveiðistj órnun ÁHUGAHÓPUR um auðlindir í al- mannaþágu gengst fyrir kapp- ræðufundi um fiskveiðistjómun í sal 3 í Háskólabíói í kvöld kl. 20.30. Fulltrúar þeirra stjómmálaflokka og samtaka sem bjóða fram til Al- þingis í vor hafa verið boðaðir á fundinn og greina frá afstöðu sinna stjórnmálaafla til breytinga á nú- verandi fískveiðistjórnunarkeríí, að sögn Dagfínns Sveinbjömsson- ar, sem starfað hefur fyrir Áhuga- hóginn. Ágúst Einarsson verður fulltrái Samfylkingarinnar, Magnús Stef- ánsson fulltrúi Framsóknarflokks- ins, Steingrímur J. Sigfússon full- trái Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, Óskar Þór Hall- dórsson fulltrái Frjálslynda flokks- ins og Vilhjálmur Egilsson fulltrái Sjálfstæðisflokksins. Að lokinni stuttri kynningu hvers frambjóðanda mun hann sitja fyrir svöram, en formlegar fyrirspumir verða á hendi Þor- steins Vilhjálmssonar, fulltráa Áhugahópsins, Eddu Rósar Karls- dóttur, hagfræðings Alþýðusam- bands Islands, Haraldar Sumar- liðasonar, formanns Samtaka iðn- aðarins, og Sævars Gunnarssonar, formanns Sjómannasambands Is- lands. Einnig verða leyfðar spurn- Þessu mikla máli má ekki drepa á dreif ingar úr sal. Fundarstjóri verður Margrét S. Björnsdóttir. „Segja má að tilgangur og mark- mið fundarins séu nákvæmlega þau sömu og tilgangur og markmið Áhugahópsins," segir Dagfinnur aðspurður í samtali við Morgun- blaðið. „Mönnum fannst illt að sitja undir því að andstæðingar breyt- inga kæmust einlægt upp með það að drepa þessu mikla máli á dreif með yfirborðskenndu stagli, til dæmis með vísan til þess að engar tillögur hafi komið fram og að menn hafi enga hugmynd um hvemig breytingum gæti verið háttað." En hefur áhugahópurinn trá á því að fundurinn og umræðuefnið veki áhuga almennings? „í fyrsta lagi era kappræðufundir nær út- dauðir á íslandi svo að fundarform- ið ætti að vekja áhuga einhverra,“ segir Dagfinnur og heldur áfram: „En ef umræðuefnið vekur ekki áhuga almennings þá er eitthvað mjög mikið að. Eg segi þetta vegna þess að þetta snýst á endanum um það að bæta kjör almennings í þessu landi. Það er raunalegt að ýmsir hafa lagt sig fram um það að spilla umræðu um þetta mál og drepa henni á dreif. Kjarni málsins er vitanlega sá að íslenska þjóðin hefur verið svikin. Þetta er afar einfalt mál sem ætti að vera hverju mannsbarni auðskilið.“ Skömmtun aldrei hagkvæm Dagfinnur telur höfuðmeinsemd núverandi fiskveiðistjómunarkerfis þá að markaðslögmálum sé ekki ætlað það hlutverk sem vera ber í nútímalegu lýðræðisþjóðfélagi. „Meginregla markaðsbúskapar er sú að verð skuli ráða notkun fram- leiðsluafla. Og meðan svo er ekki þá næst ekki fram hámarkshag- kvæmni. Skömmtun er aldrei hag- kvæm. Allur atvinnurekstur, einnig sjávarátvegur, á að vera í höndum þeirra sem hagnýta framleiðsluöfl- in best. Það verður ekki tryggt, nema á það sé látið reyna hverjir séu reiðubúnir til þess að greiða hæst verð fyrir framleiðsluöflin, þ.e. fyrir aflaheimildir. Stefnan sem áhugahópurinn hefur sett fram helgast af þessu einfalda atriði. Eins og sakir standa er það svo að árlega eru milljarðar króna af Morgunblaðið/Golli DAGFINNUR Sveinbjörnsson starfar á vegum áhugahóps um auðlind- ir í almannaþágu sem gengst fyrir kappræðufundi um fiskveiði- stjórnun í kvöld. sameign þjóðarinnar gefnir fá- mennum hópi manna. Þessi verð- mæti era þannig til komin að lög- gjafarsamkoman hefur skapað ein- okunaraðstöðu fyrir takmarkaðan veiðiílota. Hlutur kvótans í afla- verðmætinu er hreinn einokunar- gróði, skapaður af ríkisvaldinu. Og þessi gróði rennur íyrst og fremst til þeirra fáu sem nýta ókeypis tak- markaðan veiðirétt innan fiskveiði- lögsögunnar." Dagfinnur segir ennfremur að fulltráar þjóðarinnar hafi því bragðist siðferðisskyldum sínum við íslenskt samfélag. „Ollum rétt- sýnum mönnum er ljóst að núver- andi fiskveiðistjórnunarkerfi hefur stuðlað að hróplegu þjóðfélags- ranglæti. Forvígismenn stjórnar- flokkanna, sem alltaf hafa talað eins og kvótaeigendur, hafa nú við- urkennt þetta og boða sátt. Þar með hafa þeir í raun og veru viður- kennt að sú stefna sem þeir hafa fylgt fram að þessu hafi verið ótæk. En þeir eru ekki nægilega hugaðir til þess að standa á henni í kosningabaráttu. Og það sem meira er; það er fullkomlega óljóst í hverju þessi sátt skal felast eða hvort þeir meini yfirleitt eitthvað með þessum fögra fyrirheitum. En það er kannski ekki von. Kosninga- barátta á Islandi er keppni í því að komast sem best frá því að segja sem minnst. Markmiðið er hins vegar að spoma við þessu. Stjóm- málamenn munu knúðir til þess að segja hreint út hvað þeir meina. Almenningur hlýtur að vilja svör við því hverju þeir vilja breyta og í hverju þessi sátt eigi að felast,“ segir hann að síðustu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.