Morgunblaðið - 21.04.1999, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 21.04.1999, Blaðsíða 56
56 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ REYNIR V. DAGBJARTSSON + Reynir V. Dag- bjartsson fædd- ist í Hafnarfirði 5. nóvember 1932. Hann lést á gjör- gæsludeild Sjúkra- húss Reykjavíkur 13. apríl síðastlið- inn. Foreldrar Reynis voru Dagbjartur Guðmundsson frá Urriðakoti, f. 6.11. 1910, d. 2.2. 1960, rafvirkjameistari og verkstjóri hjá Rafmagnsveitum ríkisins, búsettur í Hafnarfirði, og kona hans Dagbjört Brynj- ólfsdóttir, f. 6.5. 1912, d. 30.7. 1968, húsmóðir. Alsystkini Reynis eru: Birgir, f. 17.2. 1941, rafvirki í Hafnar- firði, kvæntur Hönnu Helga- dóttur bankastarfsmanni og eiga þau þrjár dætur auk þess sem hann á dóttur frá því áður, Fjóla, f. 18.7. 1945, d. 6.11. 1945; Brynjar, f. 23.11. 1947, trésmiður í Hafnarfírði, kvænt- ur Guðrúnu Kristinsdóttur bók- ara og eiga þau þrjú börn. Hálf- Elsku besti pabbi minn, ég kveð þig með söknuði. Mér finnst svo erfitt að hugsa til þess að þú veiktist svo skyndilega og ég gat ekki verið hjá þér. Þegar ég fer að hugsa aftur í tím- ann dettur mér fyrst í hug þegar þú varst að vinna á Hvaleyrarholtsvell- inum, þegar ég og Hilmar frændi vorum alltaf að koma og leika okkur í fótbolta. Einnig skemmtum við okkur vel þegar þú varst í íþrótta- húsinu við Strandgötu, í dauða tím- anum, þegar þú fórst inn í sal með okkur og stóðst í marki þegar við spörkuðum. Eg minnist líka þess þegar þú varst á sjónum og við mamma áttum það til að fá okkur göngutúr til hennar Bryndísar til að drepa tímann. Það sem mér finnst best af öllu er að það eru ekki margir sem halda með mörgum liðum í íþróttum eins og þú gerðir, það skipti ekki máli hvort það voru FH eða Haukar sem voru að keppa, þú studdir bæði liðin. Þó okkur semdi ekki alltaf vel, gleymdist það ávallt fljótt og við urð- umgóðir vinir aftur. Eg veit að hún mamma mun hugsa vel um þig og sýna þér heiminn þarna fyrir handan. Ég mun alltaf hugsa til ykkar. Takk fyrir allt í gegnum tíðina. Ég elska þig mjög mikið. Þinn sonur Heiðar. Elsku pabbi, þú fórst svo snögg- lega að það var eins og þín hefði ver- ið beðið. Daginn sem þú veiktist grunaði ekkert okkar að þú værir að yfirgefa okkur, þú varst nokkuð hress og spjallaðir um heima og geima, þar á meðal um handboltann og barnabörnin, sem voru þér svo mikils virði, því þú vildir alltaf vita um þeirra hagi. Það er sárt að hugsa til þess að þú fáir ekki að vera við- staddur þegar fyrsta barnabama- barnið kemur í heiminn, en þú vissir af því og varst mjög stoltur. Við get- um séð þig í huga okkar sem langafa, Ijómandi af gleði. Við minnumst þeirra stunda þegar strákarnir þínir stunduðu íþróttir. Alltaf varst þú til- búinn að mæta og hvetja þá. Meira að segja þegar Sverrir bjó með fjöl- skyldu sinni í Svíþjóð mættir þú á völlinn til að hvetja Reyni Andra. Við minnumst einnig heimsóknanna þinna. Það fyrsta sem þú sagðir var: ,Áttu kaffi handa mér?“ og síðan var sest og spjallað. Öll fengum við að fara í ævintýraferð með þér, siglingu þegar þú varst á togaranum Maí. Svo varstu svo duglegur að ferðast um landið okkar, hér áður fyrr gjarnan með tjald eða húsvagn, en nú seinni árin í orlofsbústað, og þá oftar en ekki með þinni góðu vinkonu Möggu. Og ættarmótin urðu nokkur, systir Reynis, sam- feðra, er Bergþóra, f. 10.8. 1938, húsinóðir í Hafnarfirði, gift Ell- ert Svavarssyni leigubflsijóra og eiga þau fjögur börn. Hinn 31. des. 1956 kvæntist Reynir Ástu Valdimarsdóttur, f. 19. október 1937, d. 6. mars 1991, hús- móður og baðverði. Hún var dóttir Valdi- mars Lúðvíkssonar, starfsmanns Skipa- smíðastöðvarinnar Stálvíkur, sem var búsettur í Hafnarfirði, og konu hans, Guð- laugar Sveinbjörnsdóttur hús- móður. Þau eru bæði látin. Börn Reynis og Ástu eru 1) Fjóla, f. 28.3. 1955, sjúkraliði í Hafnar- firði, var í sambúð með Erlendi Ingvaldssyni, og eiga þau tvo syni, Hilmar Orn og Ingvald Ben. 2) Guðlaug, f. 9.7. 1956, sjúkraliði í Bandaríkjunum, var gift Gunnari Gunnarssyni, en þau skildu, og eiga þau tvö börn, Davíð Kane og Elínu Margréti. Hún giftist aftur Michael Cox nú síðast á Álfaskeiði í fyrrasumar. Og þú ferðaðist líka til útlanda. Það er gott að minnast þess að þú fórst til Guðlaugar systur í Kaliforníu í desember og áttir hjá henni sjö ynd- islegar vikur, varst viðstaddur brúð- kaup hennar í desember og hittir barnabörnin. Efst í huga okkar þessa dagana eru orð spámannsins, þegar hann talar um sorg og gleði: „Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ Elsku pabbi, við enim viss um að mamma tók vel á móti þér og að ykk- ur líður vel. Guð geymi ykkur. Þökk fyrir allt. Fjóla, Guðlaug, Bryndís og Sverrir. Ég vil minnast tengdaföður míns, Reynis V. Dagbjartssonar, með þessu ljóði eftir Hannes Hafstein: Er sólin hnígur hægt í djúpan sæ og höfuð sitt til næturhvíldár byrgir á svalri grund í golu, þýðum blæ er gott að hvíla þeim er vini syrgir. I hinstu geislum hljótt þeir nálgast þá að huga þínum veita mjúkum svala hver sælustund er þú þeim hafðir hjá í hjarta þínu byrjar ljúft að tala. Og tárin sem þá væta vanga þinn er vökvan send frá lífsins æðsta brunni. Þau h'ða eins og elskuð hönd um kinn og eins og koss þau brenna ljúft á munni. Þá líður nóttin pfum draumum í svo ljúft að kuldagust þú finnur eigi og fyrr en veistu röðull rís á ný og roðinn lýsir yfir nýjum degi. Þín tengdadóttir Soffía Matthíasdóttir. Elsku afi, við kveðjum þig í dag með sorg og söknuð í hjarta. Þau ár sem við höfum átt þig að eru okkur mjög kærkomin og eftirminnileg og margar eru stundimar hlýjar og broslegar. Við hlið Drottins og í faðmi ömmu á ný vitum við að þér líður vel. Þegar tími og ár líða koma góðu minning- arnar í stað sorgarinnar. Megi Drottinn Guð halda ykkur þétt í faðmi sínum og blessa ykkur að eilífu. Þín bamabörn Ásta og Rannveig. Elsku afi. Nú ertu farinn frá okk- ur. Það er erfitt að sætta sig við að þú varst tekinn frá okkur án nokkurs aðdraganda, en við vitum að nú ertu hjá Ástu ömmu og hún hefur tekið á móti þér opnum örmum. Við minn- 1998. 3) Dagbjört Bryndís, f. 25.12. 1958, ræstitæknir í Hafnarfírði, gift Eiríki Har- aldssyni, pípulagningamanni, og eiga þau eina dóttur, Rann- veigu Lovísu, auk þess sem Bryndís á dóttur frá því áður, Ástu Lárusdóttur. 4) Sverrir, f. 22.10. 1962, símsmiður, búsett- ur í Hafnarfirði, kvæntur Soff- íu Matthíasdóttur, starfsmanni hjá Skífunni, og eiga þau þrjá syni, Reyni Andra, Björn Daní- el og Stefan Mickael. 5) Guð- bjartur Heiðar, f. 25.10. 1971, símsmiður sem býr í föðurhús- um. Reynir ólst upp í foreldrahús- um í Hafnarfirði. Hann lauk fullnaðarprófi í Hafnarfirði en veiktist af berklum um ferming- araldur og var nímfastur af þeirra völdum fram yfir tvítugt. Reynir var til sjós í eitt ár en var síðan línumaður hjá Raf- magnsveitum ríkisins til 1960. Þá fór hann til sjós og var lengst af vélstjóri og smyrjari á bv. Maí, eða þar til skipinu var lagt 1972. Einnig var hann kokkur á Sandey II í u.þ.b. eitt ár, og hefur lengst af síðan ver- ið starfsmaður Hafnarfjarðar- bæjar. Reynir verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag og hefst athöfnin klukkan 15. umst þess allir þrír þegar þú komst að horfa á okkur spila fótbolta. Þú lést það ekki á þig fá þótt það væri rok og rigning, nei, afi mætti með skinnhúfuna og kaffibrúsann og hvatti sína stráka, enda hafðir þú gaman af fótbolta. Þú spilaðir sjálfur fótbolta þegar þú varst ungur, þá stóðstu í marki. Þú varst einstakur afi, grófst allt upp, bílana og bæk- umar hans pabba og spilin hans Heiðars frænda. Eitt atvik er okkur ofarlega í huga þegar við hugsum um afa. Það var í desember fyrir tveimur árum að afi kom í heimsókn og var voðalega dul- arfullur á að sjá. Hann bað mömmu og pabba að fara með litlu strákana inn í eldhús og laumaðist svo inn í herbergi til þeirra og setti lítið jóla- tré í gluggann, svo kom hann og sagði: „Ég sá jólasvein hérna fyrir utan gluggann hjá ykkur áðan.“ Það varð mikil gleði þegai- þeir sáu hvað sveinki hafði skilið eftir og það fengu allir að vita það að jólasveinninn hefði komið með jólatréð og þessu hafði afi gaman af. Þegar afi kom í heimsókn kíkti hann inn í herbergin og ef enginn var þar var spurningin alltaf: „Hvar era strákarnir?" Við munum sakna þín, elsku afi, og við munum ætíð minnast þín eins og þú varst, einstakur afi. Þín barnabörn Reynir Andri, Björn Daníel og Stefan Mickael. Sá sem hefur barist veit hvað sig- urinn er góður. Og sá sem hefur upplifað sorgina veit hvað gleðin er dýrmæt. Reynir barðist frá unga aldri við veikindi, og sigraði. Hann upplifði líka sorgina og fann gleðina á ný. Hann verður alltaf sérstakur í minningu okkar, sem mikill sigur- vegari og góður frændi. Elsku Fjóla, Guðlaug, Sverair, Bryndís, Heiðar og fjölskyldm-. Hug- ur okkar er hjá ykkur. Kveðja. Dagbjört og Þorleifur. Mér sortnaði fyrir augum þegar ég fékk fréttina um að Reynir frændi væri allur. Hann sem alltaf hafði ver- ið til staðar. Þegar ég bjó í Svíþjóð tóku hann og Ásta á móti mér inn á sitt heimili, labbakút frá Svíaríki, og þar átti ég mitt heimili í heilt sumar. Svo komu Reynir, Ásta og Heiðar í heimsókn til okkar í Svíþjóð með for- láta tjaldvagn, og við lögðum í viku- langt ferðalag um Danmörku og Þýskaland, eitt stórt ævintýri. Eftir að fjölskylda min fluttist heim til Islands aftur styrktust vin- áttubönd okkar Heiðars, við störfum saman í Hjálparsveitinni og höfum alla tíð verið heimagangai- hvor hjá öðrum. Alltaf tók Reynir jafn vel á móti mér, og þegar farið var í útileg- ur með tjaldvagninn var ég alltaf HUGLJÚF JÓNSDÓTTIR + Hugljúf Jóns- dóttir fæddist í Ólafsfirði 12. maí 1927. Hún lést á Vífílsstaðaspítala 12. aprfl síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Jón Björnsson útgerðar- maður og Dana Jó- hannesdóttir hús- móðir frá Ólafsfirði. Systkini Hugljúf- ar voru Rannveig Júlíana, sem nú er látin, Freyja Sigríð- ur, sem er búsett á Akureyri, og Kristján Hilmar, búsettur í Reykjavík. Hinn 8. júní 1947 giftist Hugljúf Jóhanni Indriðasyni járnsmið, f. 1. júní 1926, d. 24. júlí 1998. Foreldrar hans voru Indriði Helgason bóndi í Eyja- firði og Helga Hannesdóttir húsmóðir. Börn Hugljúfar og Jóhanns eru: 1) Dana Kristín, f. 21. aprfl 1946, maki hennar er Lárus Þór Pálmason. 2) Óskírð- ur drengur, f. 8. febrúar 1948, Nú kveð ég Hugljúfu Jónsdóttur frá Sæborg, Ólafsfirði, eða Hullu Diddu eins og ég var vön að kalla hana. Þar sem ég var svo mikið hjá afa og ömmu þá leit ég á móður- systkinin mín sem stóru systkini. Elsku Didda, það er svo margs að minnast og ég þakka þér fyrir allt gegnum tíðina, ég átti vísan stað hjá ykkur Jóa þegar ég fór fyrst að heiman sem unglingur og það var ekki svo lítill styrkur sem ég fékk frá ykkur Freyju Diddu á Akureyri meðan þið bjugguð þar. Alla tíð d. 16. aprfl sama ár. 3) Örn, f. 3. júlí 1949, maki hans er Karen Sigurðar- dóttir. Barnabörn Hugljúfar og Jó- hanns urðu sjö og er eitt látið, barna- barnabörnin eru sjö. ^ Hugljúf ólst upp í Ólafsfirði hjá for- eldrum sinum, eftir barnaskóla stundaði hún nám í Reyk- holtsskóla í Borgar- firði og húsmæðra- skólanum á Hall- ormsstað. Hugljúf þótti liðtæk- ur harmonikuleikari á yngri ár- um og lék m.a. fyrir dansi. Hún var mikill dýravinur og bar hag Dýraspítalans í Víðidal mjög fyrir brjósti. Hugljúf var verk- stjóri hjá Júpiter og Mars um langt árabil og síðar hjá sæl- gætisgerðinni Öpal. Útför Hugljúfar fer fram frá Neskirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 15. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði. varstu svo dugleg og sterk í gegn- um þín langvarandi veikindi, það var alveg ótrúlegt, ég sagði oft við þig að kötturinn hefði níu líf en þú að minnsta kosti 19 því alltaf reist þú upp með þínum viljastyrk og dugnaði og alltaf stóð Jói þinn eins og klettur við hlið þér, enda varst þú eins og vængbrotinn fugl þegar hann fórst af slysförum fyrir aðeins tæpu ári. Ég man hvað ég var montin af þér þegar ég var unglingur, þegar þú sast uppi á senu í gömlu Tjara- aufúsugestur og þá var gjarnan veiðistöngin tekin með. Eitt er víst, af Reyni lærði ég margt, meðal ann- ars það að þolinmæði þrauth- vinnur allar. Reynir bar fötlun sína af stakri þolinmæði og í veikindum síðustu ára hef ég dáðst að honum fyrh- alla þá þrautseigju og ósérhlífni sem hann sýndi. Kæru frændsystkin, Guð gefi ykk- ur styrk í sorginni. Ég kveð góðan frænda, sem nú getur ferðast óhindrað á betri stað. Þökk fyrir allt. Dagbjartur. Dimmir að því dauðinn kallar dags er lokið þungri brýnu. Þreyttur maður höfði hallar herra Guð að brjósti þínu. Megi sál hans friðinn finna, fagna sínum vin og maka sólarbirtu saman tvinna sína gleði endurtaka. Vertu, faðir, gesti góður, gefðu af þinni náðarhendi, miskunna vorum minnsta bróður, mættu þeim er bænir sendir. Blessaðu líka barnabörnin, bættu úr þeirra raun og harmi, þín sé, Drottinn, þekkust vörnin, þerraðu tár af votum hvarmi. Fiskimaður fékk að reyna fangbrögð lífs í orrahríðum. Hér skal ekki glöggt frá greina gleði hans né sálarstríðum. Ungur varð þá byrði að bera berjast hart við dauðann hvíta. Karlmaður hann vildi vera vopnin kynnu þó að bíta. Víst er dauðinn enginn endir okkar ferð er skólaganga. Himnafaðir blítt oss bendir, blundar ró um fólan vanga. Sárin gróa, sæl er stundin, svipt er burtu dauðatjaldi. Astvinur er endurfundinn allt er hér í Drottins valdi. (Ing. Þórarinsson.) Kæri bróðir og mágur, kærar þakkir fyrir allt og allt. Við biðjum góðan Guð að styrkja börnin þín, tengdabörn og bamabörn og sefa sorg þeh’ra. Brynjar og Guðrún. arborg og spilaðir á harmonikuna þína fyrir dansi. Það var ekki svo al- gengt þá að konur spiluðu á dans- leilgum en þú varst svo tónelsk, enda hafðir þú svo næma sál, það sýndi best hvað þú lést þér annt um heimilið þitt og Jóa sem alla tíð var svo fallegt. Og stolt varstu af böm- unum þínum tveim sem upp komust, en alltaf saknaðir þú litla drengsins þíns sem þið misstuð nokkurra mánaða. Þegar ég hugsa um þig, elsku Didda, þá sé ég þig ekki fyrir mér öðruvísi en með litlu hundana þína sem þú sýndir svo mikið ástríki og þeir veittu þér svo mikinn félags- skap þegar þú varst veik heima og Jói var að vinna og börnin farin að heiman. Oft talaðir þú um það við mig hvað það gladdi þig þegar barnabörnin fóra að koma til þín og hvað þú varst stolt þegar þú varðst langamma. Svo kom reiðarslagið þegar þau hörmulegu tíðindi bárust að Sigurð- ur sonarsonur ykkar hefði látist af slysförum á besta aldri. Þú sagðir mér oft frá því hvað var gaman þeg- ar Siggi var að koma og þið spiluðuð saman, því tónlistin tengdi ykkur saman. Það er svo margt sem rennur í gegnum hugann þegar komið er að kveðjustund, elsku vina. Alltaf komst þú í fjörðinn þinn hvenær sem tækifærí gafst og oft talaðir þú um að flytja hingað. Svo voru rætur þínar sterkar til æskustöðvanna. Nú er veikindastríði þínu lokið, vina, og ég veit að Jói þinn, foreldr- ar og systir, hún mamma mín, taka vel á móti þér og örugglega allur hundaskarinn líka. Elsku Dædí, Össi og fjölskyldur, við hjónin sendum ykkur samúðar- kveðjur okkar. Þið eruð búin að missa svo mikið á stuttum tíma. Guð veri með ykkur. Elsku Didda, þakka þér fyrir allt og allt. Guð blessi þig. Kolbrún.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.