Morgunblaðið - 21.04.1999, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
I-
UMRÆÐAN
Aðgangur
bannaður
Á ÖLDINNI sem er
að líða hafa menn lifað
tímana tvenna á Is-
landi. Fram undir hana
miðja hokraði hér fá-
tæk þjóð, sem átti
fárra góðra kosta völ.
Á síðari hluta aldar-
innar hafa stakka-
skiptin orðið mikil svo
ótrúlegt má teljast.
Þjóðin hefír risið úr
örbirgð til bjargálna
sem fá dæmi munu
vera til um í veröld-
inni.
Margt hefir lagzt á
eitt um hinar öru
framfarir. Á enga at-
vinnugrein er þó hallað, þótt fullyrt
sé, að sjávarútvegurinn hefir átt
þar langstærstan hlut að máli.
Kvóti
Þessu oki verður
íslenzk sjómanna-
stétt, segir Sverrir
Hermannsson, að
velta af sér strax.
Raunar má segja að velmegunin
hafi að mestu verið úr sjó dregin,
enda eru íslenzk fiskimið dýr-
mætasta eign, sem þjóð hefir verið
gefin.
Þess vegna voru það íslenzk-
ir sjómenn, sem fleyttu þjóð
sinni á skipum sín-
um upp úr öldudal
örbirgðar til þeirrar
velmegunar, sem við
búum við. Það voru
framtaksmenn og
aflamenn, studdir af
harðsnúnum sjó-
sóknurum, sem
drýgstan þátt áttu í
framfarasókninni.
Nú er öldin önnur.
Nú hafa pólitískir of-
ríkismenn, studdir
nýjum lénsherrum,
búið svo um hnútana,
að í íslenzka útvegs-
mannastétt fá ungir
menn ekki aðgang.
Engin endurnýjun mun þar verða
og atvinnugreinin bera af því óbæt-
anlegan skaða.
Mönnum er bannað að sækja
sinn eigin sjó. Hin dýrmæta auð-
lind er mulin undir örfáa útvalda.
Svívirðilegri eignatilfærsla fer þar
fram en nokkru sinni hefir áður
þekkzt.
Þessu oki verður íslenzk sjó-
mannastétt að velta af sér strax.
Foringjar kvótaflokkanna tala
tungum um þjóðarsátt. Það tal er
til þess eins að slá ryki í augu kjós-
enda.
Þess vegna þurfa sjómenn að
senda þeim skýr skilaboð í kosn-
ingunum 8. maí nk. Með því að
kjósa Frjálslynda flokkinn eru
kvótaflokkunum send skilaboð,
sem ekki verða misskilin.
Höfundur er formaður Ftjálslynda
flokksins.
Sverrir
Hermannsson
skóverslun
Kringlan, s. 553 2888
TILVAUÐ TIL SUMARGJAFA
Sumir velja gæði. En þu?
Hringdu
Stanislas Bohic • Landslagsarkitekt • C 898 4332
MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1999 45
Opið sunnudaga frá 12-17
ETT
Alltofvon d góöu!