Morgunblaðið - 21.04.1999, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 21.04.1999, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ 64 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1999 Brekkuskóli sigrar á Islands- móti grunn- skólasveita SKÁK Skáksamband í s 1 a n d s ÍSLANDSMÓT GRUNNSKÓLASVEITA 1999 16.-18. aprfl ÍSLANDSMÓT grunnskóla- sveita 1999 var haldið 16.-18. apríl. Skáksveit Brekkuskóla á Akureyri sigraði á mótinu og hlaut 2614 vinning af 36. í öðru sæti varð skáksveit Digi'anes- skóla, Kópavogi, með 26 vinn- inga og í þriðja sæti varð skák- sveit Hagaskóla með 24% vinn- ing. I sigursveit Brekkuskóla voru: 1. Stefán Bergsson ........Wk v. 2. Halldór B. Halldórsson..l'kv. 3. Egill Örn Jónsson ......6V4 v. 4. Agúst Bragi Björnsson ..7% v. Öflugt unglingastarf Akureyr- inga hefur skilað sér á sannfær- andi hátt í þessum ánægjulega árangri. Gunnar Björnsson sigrar á fullorðinsmóti Fjórða fullorðinsmót Hellis, fyrir skákmenn 2ö ára og eldri, var haldið mánudaginn 19. aprfl. Þeir Gunnar Björnsson og Stef- án Arnalds urðu jafnir og efstir á mótinu með sex vinninga af sjö. Gunnar var hins vegar hærri á stigum. Úrslit urðu sem hér seg- ir: 1. Gunnar Björnsson ............6 v. 2. Stefán Arnalds ..............6 v. 3. Benedikt Egilsson ...........5 v. 4. Þorvarður F. Ólafsson ......4Vé v. 5. -6. Finnur Kr. Finnsson og Þórður Ingólfsson................4 v. 7.-9. Andrés Kolbeinsson, Gunnar Nikulásson og Vigfús Jónsson .. .3% v. 10.—11. Valdimar Leifsson og Andrés Karl Sigurðsson ........3 v. o.s.frv. Skákstjóri var Gunnar Björns- son. Næsta fullorðinsmót Hellis verður haldið mánudaginn 17. maí kl. 20. Skák í hreinu lofti á morgun Eitt glæsilegasta barna- og unglingaskákmót ársins verður haldið á morgun, sumardaginn fyrsta. Verðlaun í mótinu eru aldursflokkaskipt og afar vegleg, m.a. ferðir í Disney-garðinn í París. Bæði eru veitt drengja- og stúlknaverðlaun. Þá er stefnt að því að sigurvegararnir í elsta flokki tefli einvígi í beinni út- sendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. Auk verðlauna fá allir þátttak- endur bol með sérstakri áletrun. Einnig verður happdrætti með fjölmörgum vinningum frá aðil- um á borð við Vöku-Helgafell og SAM-bíóin. Kynnir mótsins verður hinn kunni útvarps- og sjónvarpsmaður Hermann Gunnarsson. íslenska útvarpsfélagið og VISA-ísland eru aðalstyrktar- aðilar mótsins. Tóbaksvarna- nefnd, Vaka-Helgafell, SAM- bíóin og fjölmargir aðrir stuðn- ingsaðilar koma að mótinu með einum eða öðrum hætti. Mótið fer fram sumardaginn fyrsta í húsnæði Taflfélagsins Hellis að Þönglabakka 1 í Mjódd. Það hefst kl. 12:45 og er áætlað að það standi til kl. 18 eða þar um bil. Þátttökurétt hafa allir þeir sem fæddir eru 1983 og síðar. Æskilegt væri að þátttaka yrði tilkynnt sem fyrst í síma 568 9141 eða 568 0410 sem verða opnir fyrir skráningu í dag og einnig er hægt að skrá sig á net- fangi skólans og Skáksambands- ins (siksÉitn.is). Skákmót á næstunni 23.4. Héllir. Klúbbakeppni 25.4. Hellir. Kvennamót 26.4. Hellir. Voratskákmót Daði Orn Jónsson Hannes Hlífar Stefánsson BRIDS linsjóu Arnðr G. Ragnarsson Bridsfélag Kópavogs Meistaramóti Kópavogs í einmenn- ingi lauk s.l. fimmtudag. Meistari varð Eggert Bergsson. Lokastaða efstu manna: Eggert Bergsson..................218 Daníel Már Sigurðsson............207 Gísli Tryggvason.................207 Armann J. Lárusson...............206 Guðmundur Gunnlaugsson...........206 Bestum árangri síðara kvöldið náðu: A-riðill Eggert Bergsson .................120 ■I’órður Björnsson...............117 Guðmundur Baldursson.............105 Jón St. Ingólfsson ...............97 B-riðill Hjálmar S. Pálsson ..............109 Ragnar Bjömsson .................109 Gísli Tryggvason ................108 Magnús Aspelund..................104 Fimmtudaginn 22. apríl, sumar- daginn fyi'sta, hefst þriggja kvölda Vortvímenningur. Spilamennska hefst kl. 19:45. Spilað er í Þinghóli, Hamraborg 11, Kópavogi. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágr. Mánudaginn 12. apríl 1999 spil- uðu 22 pör Mitchell-tvímenning. Úrslit urðu þessi: N.S.: Ingibjörg Kristjánsdóttir - Porsteinn Erlingsson..................281 Viggó Nordquist - Tómas Jóhannsson......................253 j teorsteinn Laufdal - Magnús Halldórsson ...................250 A.V.: Ingibjörg Stefánsdóttir - Þorsteinn Davíðsson .................255 Júlíus Guðmundsson - Rafn Kristjánsson ...................248 Þorleifur Þórarinsson - Tómas Siguijónsson...................240 Fimmtudaginn 15. apríl spiluðu 24 pör Mitchell. Úrslit urðu þessi: N.S.: Sigurleifur Guðjónsson - Oliver Kristófersson.............265 Þórólfur Meyvantsson - Viggó Nordquist..................257 Albert Þorsteinsson - Auðunn Guðmundsson...............238 A.V.: Þorsteinn Laufdal - Magnús Halldórsson ..............266 Haukur Guðmundsson - Oddur Halldórsson................263 Þórarinn Amason - Fróði B. Páisson.................247 Meðalskor 216 íslandsmót í paratvímenningi 1999 íslandsmót í paratvímenningi var spilað um helgina. Alls tóku 45 pör þátt í mótinu sem tókst í alla staði vel undir styrkri stjóm Hermanns Lárassonar keppnisstjóra og Trausta Harðarsonar reiknimeist- ara. íslandsmeistarar eru Bryndís Þorsteinsdóttir og Ómar Olgeirs- son, sem leiddu mótið lengst af og unnu með fádæma yfirburðum. Bryndís Þorsteinsdóttir - Ómar Olgeirsson .......................379 Sigríður Hrönn Elíasdóttir - Óskar Elíasson ........................250 Hrafnhildur Skúladóttir - Jörundur Þórðarson ....................215 Björk Jónsdóttir - Jón Sigurbjörnsson ....................191 Arngunnur Jónsdóttir - Jakob Kristinsson .....................161 í DAG Holtarar - vantar myndir Á BALLINU 3. maí 1997 tóku einhverjir myndir. Nú ætlum við að endur- taka ballið 15. maí og vant- ar myndir til að sýna sem fyrst á því balli. Ef þú vilt lána okkur þínar hafðu þá samband við Þuru í síma 554 4947 eða Ollý í síma 554 4588 eða Þórleif í síma 552 9293. Góð þjónusta ÉG VIL þakka fyrir ein- staklega lipra og góða þjónustu í versluninni Betra bak. Katrín. VELVAKAJVDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Tapað/fundið GSM-sími týndist í Mosfellsbæ GSM-SÍMI, Simens, blár, týndist við gagnfræðaskól- ann í MosfeUsbæ. Skilvís flnnandi hafi samband í síma 566 8574. Dýrahald Steingrátt fress týnd- ist í Hafnarfirði STEINGRÁR köttur, fress, með hvítar loppur, týndist 10. apríl frá Hring- braut 63 í Hafnarfirði. Þeir sem hafa orðið hans varir hafi samband í síma 555 1491, 893 4774 eða 555 4850. Hryssu saknað ÞESSI brúnsokkótta hryssa, 11 vetra, hvarf úr heima- haga í Skagafirði í byrjun þessa mánaðar. Viti einhver um afdrif hennar eru ábendingar vel þegnar. Vinsamlega hafið samband við Magnús eða Margréti í síma 566 6848. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Víkverji skrifar... KENNARAR eru að mati Yík- verja ekki beinlínis flinkir sjálfsímyndarsmiðir. Víkverji held- ur að það sé frekar regla en undan- tekning, að þegar kennarar eru í kjarabaráttu, þá nái þeir þeim sér- kennilega árangri að verða á mjög skömmum tíma afar óvinsæl stétt, sem virðist njóta mjög takmarkaðr- ar samúðar í þjóðfélaginu. Þetta virðist vera andstætt því sem tíðkast með svo margar aðrar stétt- ir, sem eiga oft ríka samúð almenn- ings, þegar þær standa í kjarabar- áttu. XXX ANNIG var það t.d. í síðustu viku að kennarar í grunnskólum Reykjavíkur sendu börain á mið- vikudegi heim með miða til foreldra, þar sem greint var frá því að þeir ætluðu að fella niður kennslu næsta dag, frá kl. 11 fyrir hádegi, þar sem þeir hugðust efna til fjöldafundar kennara í Bíóborginni. Síðdegis þennan miðvikudag fengu foreldr- arair sem sagt þennan béfmiða með ofangreindum skilaboðum. Auðvitað lenti fjöldi heimila í miklum bobba vegna þessarar ákvörðunar kennar- anna, þar sem þeir felldu niður kennslu einmitt á þeim tíma sem flestir yngstu nemendurnir, sex, sjö og átta ára, eru í skólanum. For- eldrar bama á þessum aldri miða eigin störf oft eftir megni við skóla- tíma bama sinna, en skyndilega stóðu hundruð heimila í Reykjavík frammi fyiir þeirri staðreynd, að barn þeirra yrði eftirlits-, kennslu- og gæslulaust frá kl. 11 á fimmtú- daginn var. Ekki beinlínis til vin- sælda fallið eða hvað? xxx ANNAÐ sem Víkverji varð var við í kringum kennaraátökin í liðinni viku, sem hann telur einnig, að muni ekki auka á vinsældir kenn- ara í þjóðfélaginu, né samúð með þeim, var sú staðreynd að kennarar hafa í liðinni viku augljóslega notað kennslustundimar, a.m.k. sumir hverjir, til þess að afla kjarabaráttu sinni samúðar nemendanna. Þessa varð Víkverji var með áþreifanleg- um hætti og hann hefur fengið frá- sagnir annarra foreldra í sömu veru. Nú er það svo, að kennarar eru örugglega ekki of sælir af kjör- um sínum og því miður eru þeir allt of fáir, sem gera sér grein fyrir því, hversu þýðingarmikið það er, að vel menntaðir og hæfir kennarar annist kennslu barna okkar. Góð menntun og hæfni kostar peninga, og þeim mun meiri og betri sem menntunin og hæfnin er, þeim mun meira hlýt- ur hvort tveggja að kosta - einfalt lögmál markaðarins, ekki satt? XXX EN ÞAÐ er ekki þar með sagt að kennarar geti leyft sér að nota hvaða aðferðir sem er í kjarabar- áttu sinni, eins og t.d. þá að beita innrætingu við böm og unglinga á mótunarstigi, til þess að afla sér samúðar. Raunar telur Víkverji slíkar aðferðir bera vott um siðferð- isbrest og dómgreindarskort, því auðvitað tala nemendur um það á eigin heimilum þegar slíkt gerist. Það væri mikil bernska af kennur- um, ef þeir héldu að foreldrum bær- ust ekki til eyma frásagnir sem þær sem Víkverji og aðrir foreldrar fengu úr skólum borgarinnar í lið- inni viku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.