Morgunblaðið - 21.04.1999, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Rikisstjórnin heimilar stofnun matvælaseturs við Háskólann á Akureyri
Styrkir kennslu
og eflir rann-
sóknarstarf
M I I I
1 , i U...I
ey tn itr r i3urtrrrtrr tJ;T rRiatnfl
X=DIl
rffflnnffl
t byggð á ■amkoppnltgögnum
MATVÆLASETUR Háskölans á Akureyri verður í framtíðinni í
rannsóknarhúsi þess sem væntanlega verður tilbúið árið 2001, en
hér má sjá teikningu af húsinu.
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á
fundi sínum í gær tillögu starfs-
hóps sem sjávarútvegsráðherra
skipaði í lok síðasta árs um að
stofna matvælasetur í tengslum
við Háskólann á Akureyri.
Starfshópurinn gerði tillögu
um að stofnað verði rekstrarfé-
lag, Matvælasetur Háskólans á
Akureyri, um starfsemi þeirra
rannsóknarstofnana atvinnuveg-
anna sem staðsettar eru á Akur-
eyri, en það eru Rannsókna-
stofnun fískiðnaðarins, Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins og
Iðntæknistofnun Islands en
þessar stofnanir auk Háskólans
á Akureyri verða aðilar að mat-
vælasetrinu. Öðram stofnunum,
fyrirtækjum og eða samtökum
þeiraa verður einnig gefínn kost-
ur á að vera með í stofnun rek-
starfélagsins samkvæmt ákvörð-
un stjórnar félagsins á hverjum
tíma.
Þorsteinn Gunnarsson, rektor
Háskólans á Akureyri, sagði að
búið væri að tryggja 10 milljóna
króna fjárveitingu til matvæla-
setursins á þessu ári og 15 millj-
ónir á því næsta, en þeir pening-
ar myndu duga til kaupa á stofn-
búnaði og breytingum á húsnæði
auk launa framkvæmdastjóra .
Aætlanir gera ráð fyrir að 10
til 15 sérfræðingar muni starfa
við matvælasetrið. Þorsteinn
sagði að gert væri ráð fyrir að
starfsemin yrði komin í fullan
gang í byrjun næsta árs, en í
upphafi verður setrið til húsa við
Glerárgötu 36. Þegar rannsókn-
arhús Háskólans á Akureyri
verður tilbúið árið 2001 verður
stai'fsemin flutt þangað.
Eflir rannsóknarstarf
í matvælaiðnaði
Rektor sagði markmiðið með
stofnun matvælasetursins að
styrkja kennslu við Háskólann á
Akureyri, að efla rannsóknar-
starf í matvælagreinum á svæð-
inu og að stuðla að tækniyfir-
færslu milli matvælagreina.
Uppbygging matvælasetursins
myndi bæta mjög starfsumhverfi
rannsóknarfólks. Þá nefndi Þor-
steinn að umhverfismál yi’ðu æ
mikilvægari í íslenskum mat-
vælaiðnaði og gæti matvælasetr-
ið orðið í fararbroddi á þeim
vettvangi. Loks nefndi rektor að
stefna háskólans væri að efla
nám og rannsóknir á sviði mark-
aðsmála, einkum á sviði mark-
aðssetningar sjávarafurða og
mun matvælasetrið styrkja þann
þátt í starfsemi háskólans.
„Stofnun matvælasetursins er
jákvætt skref í uppbyggingu há-
skólans og starfsemi rannsókn-
arstofnana atvinnuveganna hér
en ekki síst mun setrið hafa já-
kvæð áhrif á fyrirtæki og starfs-
fólk í matvælaiðnaði," sagði Þor-
steinn. „Eg er þess fullviss að
stofnun matvælasetursins mun
efla mjög nýsköpun í matvæla-
fyrirtækjum á Eyjafjarðarsvæð-
inu og um allt land. Þá trái ég því
að matvælasetrið muni taka þátt
í alþjóðlegu samstarfi og leggja
þannig sitt af mörkum til að efla
matvælaiðnaðinn bæði hér á
landi og á alþjóðavettvangi."
Skrúðganga
og skáta-
messa
SKATAR á Akureyri munu að venju
ganga fylktu liði og fagna sumri með
skrúðgöngu og skátamessu á morg-
un, sumardaginn fyrsta.
Að þessu sinni verður gengið til
Glerárkirkju frá verslunarmiðstöð-
inni Sunnuhlíð. Lagt verður af stað
kl. 10.30, en messan hefst kl. 11. Að
messu lokinni býður skátafélagið
kn-kjugestum upp á súpu og brauð í
safnaðarsal kirkjunnar.
Kirkjustarf
LAUGALANDSPRESTAKALL: Á
morgun, sumardaginn íyrsta, verður
fenningarguðsþjónusta í Hólakirkju
og hefst athöfnin kl. 11. Fermd
verða Haraldur Þór Óskarsson,
Grænuhlíð og Helga Ösp Jónsdóttir,
Skarðshlíð 16d, Akureyri.
Tónlist á Græna
hattinum
HLJÓMSVEITIN ÍRÍS, írsk-ís-
lensk, leikur á veitingastaðnum
Græna hattinum í kvöld, miðviku-
dagskvöld, en í henni er m.a. Eist-
lendingurinn Velmai- Válljáots,
skólastjóri Tónlistarskólans í
Reykjadal.
Lúðrasveit Akureyrar blæs inn
sumarið í kaffitímanum á morgun,
sumardaginn fyi-sta. Um helgina
leikur hljómsveitin Mannakorn.
Sjávarútvegss|óSur Islands
AÐALFUNDUR
1999
Aðalfundur Sjávarútvegssjóðs íslands hf. verður haldinn á
Foss-Hótel KEA miðvikudaginn 28. apríl nk. og hefst kl. 16.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkv. 11. grein samþykkta
félagsins.
2. Önnur mál löglega fram borin.
Ársreíkningur, tillögur og endanleg dagskrá mun liggja
frammi á skrifstofu Kaupþings Norðurlands hf. frá og með
21. aprfl nœstkomandi.
Stjórn Sjávarútvegssjóðs íslands hf.
ST J ÓRNARKJ ÖR
Eining-Iðja auglýsir hér með eftir listum eða tillögum um menn í
stjómarsæti varðandi kjör stjómar og trúnaðarráðs fyrir starfsárið
1999/2000 að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu.*
Ber samkvæmt því að skila lista skipuðum formanni, varafor-
manni, ritara og gjaldkera ásamt 65 manns í tránaðarráð, tveimur
skoðunarmönnum og einum til vara eða tillögur um menn í eitt-
hvert, einhver eða öll stjómarsætin, sem kjósa skal til. Hverjum
framboðslista eða tillögu skulu fylgja meðmæli minnst 80 full-
gildra félagsmanna.
Listum eða tillögum ber að skila á skrifstofu félagsins Skipagötu
14, eigi síðar en kl. 12.00 á hádegi miðvikudaginn 28. apríl 1999.
Akureyri 19. apríl 1999.
Stjórnir Verkalýðsfélagsins
Einingar og Iðju félags verksmiðjufólks.
* Samkvæmt lögum hins sameinaða félags.
Skuldir KEA verða lækkaðar um þrjá milljarða á árinu
Sameining þriggja afurða-
stöðva mun skila hagnaði
SKULDIR Kaupfélags Eyfirðinga
hafa lækkað um tæpa tvo milljarða
króna frá síðustu áramótum. Fyrst
og fremst hefur tekist að lækka
skuldir félagsins með eignasölu og
þá aðallega með því að selja hluta
af starfsemi Snæfells í Dalvíkur-
byggð.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson,
foiTnaður stjórnar KEA, sagði að
stefnt væri að því að lækka skuldir
félagsins um einn milljarð króna til
viðbótar á árinu en við það myndu
skuldirnar verða viðunandi. Félag-
ið skuldaði samtals tæplega 6 millj-
arða króna um síðustu áramót, en
ef fram fer sem horfir verða þeir
um 3 milljarðar við næstu áramót.
„Það er ekkert sem bendir til ann-
ars en að okkur takist þetta mark-
mið,“ sagði Jóhannes Geir, en með-
al þess sem til greina kemur er að
selja hlutabréf í Snæfelli og þá á
félagið hlutabréf í fleiri félögum
sem einnig væri hægt að selja.
Fram kom á fundinum að félags-
menn hafa nokkrar áhyggjur af af-
komunni, en félagið tapaði rúm-
lega hálfum milljarði króna á síð-
asta ári. Þar af var tap Snæfells
tæplega 400 milljónir króna. Jó-
hannes Geir sagði að samkvæmt 6
mánaða uppgjöri sem fyrir liggur
hjá Snæfelli mætti gera ráð fyrir
að reksturinn yrði nálægt núllinu á
þessu ári og fjármunamyndun í
rekstri um 300 milljónir króna.
„Sex mánaða uppgjörið sýnir að
þessar áætlanir munu standast og
það er mikill léttir," sagði Jóhann-
es Geir.
Unnið er að sameiningu afurða-
stöðva KEA, Sölufélags Austur-
Húnvetninga og Kaupfélags Þing-
eyinga og verður ákvörðun þar um
tekin innan tíðar. Áætlanir gera
ráð fyrir að ef af sameiningu verð-
ur, bæði hvað varðar kjötvinnslu
og mjólkurframleiðslu, muni hagn-
aður hlaupa á hundraðum milljóna
króna. Stærsta verkið sem
framundan er á þeim vettvangi
snýr að aðkomu framleiðenda,
einkum mjólkurframleiðenda að
nýju fyrirtæki.
Jóhannes Geir sagði menn sam-
mála um að tryggja þurfi framleið-
endum beina eignaraðild að nýju
fyrirtæki en eftir ætti að útfæra
nánar með hvaða hætti það yrði.
Fram hafa komið hugmyndir um
að nýju afurðastöðvarnar geri við-
skiptasamninga við félög framleið-
enda og þeir síðan metnir til verðs.
Bændur myndu þannig fá samn-
inginn metinn sem eign í hinum
nýju félögum. Þessar hugmyndir
hafa verið mótaðar í samvinnu við
fulltrúa framleiðenda á svæðinu.
/ /
AÐALFUNDUR
1999
Aöalfundur Hlutabréfasjóðs Norðurlands hf. verður haldinn á
Foss-Hótel KEA miðvikudaginn 28. apríl nk. og hefst kl. 16.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkv. 12. grein samþykkta
félagsins.
2. Önnur mál löglega fram borin.
Ársreikningur, tillögur og endanleg dagskrá mun liggja frammi
á skrifstofu Kaupþings Norðurlands hf. frá og með 21. apríl
1999.
Stjóm Hlutabréfasjóðs Norðurlands hf.
einn & sjötíu
Fimmtudags- og
föstudagskvöld
Gildrumezz með
Creedence
Clearwater
Laugardagskvöld
PKK
Gleðilegt sumar
POLLINN