Morgunblaðið - 21.04.1999, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 21.04.1999, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1999 LANDIÐ VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Garðyrkjuskólinn á Reykjum 60 ára Afmælisdagskrá í fjóra daga Hveragerði - Garðyrkjuskóli rík- isins, Reykjum í Ölfusi, fagnar 60 ára afmæli sínu sumardaginn fyrsta, 22. aprfl. f tilefni af þess- um tímamótum verður haldin fjögurra daga afmælishátíð í skólanum. Hátíðinni lýkur á degi umhverfisins, 25. aprfl. Það stendur mikið til þessa daga enda hafa nemendur og starfsfólk skólans lagt nótt við dag við undirbúning afmælisins. Á sýningunni munu nemendur verða með sölubása. Námið við skólann verður kynnt og nem- endur munu ennfremur verða með blóma- og skrúðgarðyrkju- sýningu. Þá munu ýmis fyrir- tæki innan „græna geirans" kynna þjónustu sína. Yngri kyn- slóðin fær nóg við að vera því boðið verður upp á leiktæki, hestaleigu á staðnum og margt fleira. Landslagsarkitektar kynna starfsemi sína, Garð- yrkjufélag Islands verður með garðyrkjusýningu og margt fleira mun gleðja gesti skólans þessa daga. Á föstudeginum verður börn- um úr Grunnskóla Hveragerðis boðið að heimsækja skólann fyrir hádegi og munu nemendurnir taka þátt í ratleik á lóð Garð- yrkjuskólans. Eftir hádegi mun síðan hr. Ólafur Ragnar Gríms- son, forseti Islands, heimsækja skólann. Afmælishátíð Garð- yrkjuskólans verður opin frá kl. 10-18 alla dagana. Allir lands- menn eru velkomnir í afmælið og er aðgangur ókeypis. Húnavakan að hefjast HÚNAVAKAN, árlegur menning- arviðburður í Austur-Húnavatns- sýslu, hefst í kvöld, miðvikudag, á hagyrðingakvöldi og harmonikku- dansleik í félagsheimilinu á Blöndu- ósi. Á morgun, sumardaginn fyrsta, verður skátamessa, en að henni lokinni verður sumarskemmtun Grunnskólans á Blönduósi. Föstu- daginn 23. apríl verður opnuð mál- verka- og steinasýning í anddyri bíósals Félagsheimilisins og verður hún opin til 1. maí. Um kvöldið frumsýnir Leikfélag Blönduós ein- þáttunginn „Betri er þjófur í húsi en snurða á þræði“ eftir Dario Fo. Leikstjóri er Bjami Ingvarsson. Lifandi tónlist og léttar veitingar verða fyrir og eftir sýningu. Jörvagleði Dalamanna Búðardal - Jörvagleðin er haldin dagana 22.-25. apríl og er menn- ingarhátíð Dalamanna sem er hald- in annað hvert ár. Dagskráin er fjölbreytt og má þar nefna sveita- kynningu, myndlistarsýningar Birnu Norðdahl og Eggerts Krist- inssonar, sölusýningar handverks- hópanna Bolla og Össurar. Tónlistarkvöld verður með kór- söng að hætti heimamanna og eldri félaga Karlakórs Reykjavíkur, einnig þenja Nikkólínur harmonik- ur sínar. Leikklúbbur Laxdæla frumsýnir leikritið N.Ö.R.D. eftir Larry Shue í leikstjóm Harðar Torfasonar. Lúðrasveit tónlistar- skólanna leikur nokkur lög, hag- yrðingar munu spreyta sig og Rökkurkórinn heimsækir hátíðina. Hörður Torfason mun síðan kveðja með tónleikum. Halldór Ásgrímsson ræðir málin við kjósendur í Reykjavfk á kosningaskrifstofunni við Hverfisgötu 33 milli kl: 10-12 í dag. Ný framsókn til nýrrar FR6LSI FESTA FRAMSÓKN (vww. framsokn. i s a I d a r KiB Morgunblaðið/Halldór Magnús Gylfi Thorstenn, nýráðinn forstjóri leiguflugfélagsins Atlanta: Mér hefur verið falið að stjórna þessu fyrirtæki og mun þar af Ieiðandi gera þær breytingar sem ég tel nauðsynlegar á hveijum tíma til að tryggja áframhaldandi uppgang þess og arðsemi í samráði við stjórn félagsins. Nýr forsljóri ráð- inn til Atlanta Arngrímur Jóhannsson áfram stjórnarformaður félagsins MAGNÚS Gylfi Thorstenn, 41 árs lögfræðingur, hefur verið ráðinn nýr forstjóri Atlanta flugfélagsins í Mosfellsbæ. Amgrímur Jóhanns- son, stofnandi og eigandi félagsins, sem gegnt hefur stöðunni frá upp- hafi, mun láta af störfum forstjóra en verður áfram stjómarformaður Atlanta og eigandi þess ásamt eig- inkonu sinni Þóra Guðmundsdótt- ur. Arngrímur mun jafnframt áfram sinna störfum sem flugstjóri hjá félaginu. Magnús Gylfi er ekki ókunnur starfsemi Atlanta en hann hefur verið lögfræðingur flugfé- lagsins frá árinu 1992. Amgrímur segir breytingamar eiga sér nokkurn aðdraganda og telur þær eiga eftir að styrkja reksturinn enn frekar í framtíð- inni. „Við eram einfaldlega að taka inn ungan og hæfan mann sem þekkir vel til allra þátta starfsem- innar. Magnús Gylfi er búinn að vera lögfræðingur okkar síðastliðin sjö ár. Hann hefur góða þekkingu og yfirsýn yfir rekstur félagsins og því lítið mál fyrir hann að taka við stöðunni. Okkur fannst tímabært að gera þessa breytingu og eram þakklát fyrir að fá inn traustan að- ila sem við höfum mikla trú á að geti styrkt félagið enn frekar í sessi. Sjálfur verð ég áfram starf- andi stjórnarformaður en kem ekki að daglegum rekstri líkt og áður.“ Allur flugrekstur háður breytingum Magnús Gylfi Thorstenn hefur verið búsettur í Bandaríkjunum undanfarin fimmtán ár, þar sem hann rekur eigin lögfræðistofu í New York ásamt eiginkonu sinni, Susan E. Thorstenn. Magnús Gylfi segist takast á við nýja starfið full- ur tilhlökkunar enda um mjog spennandi verkefni að ræða. „Eg tel það mikinn heiður og traust í minn garð frá Arngrími og Þóra að þau hafi boðið mér starfið og von- ast til að geta haldið áfram í þeim anda sem þau hjón hafa skapað á liðnum áram og er einstæður á Is- landi." Aðspurður segist Magnús Gylfi ekki sjá fram á neinar breytingar í rekstrinum til skemmri tíma litið, en bendir jafnframt á að allur flugrekstur sé háður breytingum. „Mér hefur verið falið að stjórna þessu fyrirtæki og mun þ.a.l. gera þær breytingar sem ég tel nauð- synlegar á hverjum tíma til að tryggja áframhaldandi uppgang þess og arðsemi í samráði við stjórn félagsins." Varðandi framtíð fyrirtækis síns í Bandarfkjunum vill Magnús Gylfi lítið tjá sig en segist munu gera þær breytingar í rekstrinum sem hann telur nauðsynlegar. Yfírlit Vinnumálastofnunar um atvinnuástand Atvinnuleysið í marsmánuði 2,5% TÆPLEGA 71 þúsund atvinnu- leysisdagar vora skráðir á landinu öllu í marsmánuði síðastliðnum, þar af ríflega 29 þúsund dagar hjá körlum og ríflega 41 þúsund dagar hjá konum. Skráðum atvinnuleysis- dögum fjölgaði um ríflega fimm þúsund frá mánuðinum á undan, en hins vegar fækkaði þeim um ríf- lega 40 þúsund frá marsmánuði 1998. Að því er fram kemur í yfir- liti Vinnumálastofnunar um at- vinnuástandið er mannafli á vinnu- markaði í mars áætlaður 133.193 manns. Atvinnuleysisdagar í mars síð- astliðnum jafngilda því að 3.268 manns hafi að meðaltali verið á at- vinnuleysisskrá í mánuðinum. Þar af era 1.353 karlar og 1.910 konur. Þessar tölur jafngilda 2,5% af áætl- uðum mannafla á vinnumarkaði samkvæmt spá Þjóðhagsstofnunar, eða 1,8% hjá körlum og 3,3% hjá konum. Síðasta virkan dag mars- mánaðar vora 3.572 manns á at- vinnuleysisskrá á landinu öllu, en það era 233 færri en í lok febrúar- mánaðar. Síðastliðna 12 mánuði voru um 3.350 manns að meðaltali atvinnulausir, eða 2,4%, en árið 1998 vora um 3.788 manns að með- altali atvinnulausir, eða 2,8%. Hlutfallslega mest aukning á Vestfjörðum og á Austurlandi Fram kemur í yfirliti Vinnu- málastofnunar að atvinnulausum hefur fjölgað í heild að meðaltali um 7,9% frá febrúarmánuði en fækkaði um 32,1% miðað við mars í fyrra. Undanfarin 10 ár hefur at- vinnuleysi aukist um 4% að meðal- tali frá febrúar til mars, og er því árstíðarsveiflan nú milli mánað- anna heldur meiri en í meðalári, en þó innan eðlilegra marka. Atvinnuástandið hefur versnað lítillega á öllum atvinnusvæðum nema á Suðurnesjum og á Norður- landi eystra þar sem er lítilsháttar bati. Atvinnuleysið eykst hlutfalls- lega mest á Vestfjörðum og á Aust- urlandi, en atvinnulausum fjölgar mest á höfuðborgarsvæðinu og á Norðurlandi vestra. Atvinnuleysi er enn hlutfallslega mest á Norður- landi vestra og á Vestfjörðum, en atvinnuleysið er nú talsvert minna en í mars í fyrra á öllum atvinnu- svæðum. Að jafnaði batnar atvinnuástand- ið í apríl miðað við mars og í yfirliti Vinnumálastofnunar segir að búist sé við að atvinnuleysið í apríl geti orðið á bilinu 2,1% til 2,4%.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.