Morgunblaðið - 11.05.1999, Qupperneq 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Verðkönnun Samkeppnisstofnunar á 135 veitingahúsum
Allt að 153% verð-
munur á írsku kaffi
ÞAÐ munaði allt að 153% á verði
einfalds írsks kaffis og allt að 150%
á 0,3 lítrum af Viking kranabjór.
Þetta kemur fram í verðkönnun
sem Samkeppnisstofnun gerði ný-
lega á 135 veitingahúsum á höfuð-
borgarsvæðinu. Mikill verðmunur
er á drykkjarföngum milli veitinga-
húsa.
Sem dæmi má nefna að ódýrast
var írskt kaffi á 340 krónur hjá
Bamboo en það kostaði 860 krónur
hjá Jónatani Livingstone Mávi. Þá
kostaði tvöfaldur vodki í gosdrykk
500 krónur á Lille Put og 930 krón-
ur á Broadway þar sem drykkurinn
var dýrastur.
Allt að 83% verðmunur
á Tuborgflösku
Allt að 83% verðmunur var á
verði 33 cl flösku af Tuborg. Flask-
an kostaði 300 krónur á Rauða ijón-
inu en 550 krónur á Broadway,
Rauðará og Sólon íslandus þar sem
flaskan var dýrust.
Allt að 71% verðmunur var á
verði 33 cl flösku af Beck’s. Flaskan
kostaði 350 krónur hjá Vitabar þar
sem hún var ódýrust en 600 krónur
á Bohem þar sem hún var dýrust.
Að sögn Kristínar Færseth,
deildarstjóra hjá Samkeppnisstofn-
un, kostar t.d. glas af „víni hússins"
300 krónur þar sem það er ódýrast
Deilsan hin
...KaiK
Osteocmz
Verðkönnun á drykkjum veitingahúsa
Vörutegund Fj. veit.- húsa Lægsta verð Hæsta verð Mis- munur Meðalv. í apr.‘99
Tvöfaldur vodki í gosi 120 500 930 86% 773
Tvöfaldurgin í gosi 120 500 930 86% 773
Bristol Cream sérrý, 6 cl 105 250 460 84% 348
Martini Bianco, 6 cl 110 250 450 80% 327
Bailey's Irish Cream, einf. 123 200 400 100% 306
Grand Marnier, einfaldur 121 300 510 70% 381
Remi Martin VSOP, einf. 108 340 680 100% 496
Irish Coffee, einf. 116 340 860 153% 641
Beck's, 33 cl flaska 55 350 600 71% 461
Heineken, 33 cl flaska 52 350 550 57% 471
Egils gull, 33 cl flaska 45 350 550 57% 460
Tuborg, 33 cl flaska 44 300 550 83% 456
Viking, 33 cl flaska 30 350 550 57% 458
Viking, kranabjór 0,3 1 37 200 500 150% 374
Viking, kranabjór 0,51 37 300 600 100% 486
Tuborg, kranabjór0,3 1 25 250 500 100% 380
Tuborg, kranabjór 0,51 22 350 595 70% 489
Carlsberg, kranabjór 0,31 24 300 500 67% 394
Carlsberg, kranabjór 0,51 24 350 600 71% 508
Ostéöcare'
CALCIUM
Verið vandlót
StíE
Hver tafla
inniheldur
400 mg. af
kalki Ca++
(einnig til í
vökvaformi)
o
VITABIOTICS
- þar sem náttúran og vísindin vinna saman
Fæst í flestum lyfjaverslunum
og 750 krónur þar sem það er dýr-
ast og er um sama magn að ræða.
Hún segir að það sé eðlilegt að
verðið sé mismunandi en nauðsyn-
legt að neytendur geri sér grein
fyrir verðlagi því það leiði m.a. til
virkrar samkeppni. Hún bendir á að
erfitt sé fyrir neytendur að bera
saman verð ef veitingahúsin fara
ekki eftir settum reglum um verð-
upplýsingar.
Helmingur með verðskrá
á áberandi stað
Samkvæmt reglum Samkeppnis-
stofnunar um verðupplýsingar veit-
ingahúsa ber þeim sem stunda veit-
ingarekstur að hafa uppi verðskrá á
áberandi stað fyrir framan inn-
göngudyr. Einungis 50% veitinga-
húsa hafa uppi slíka verðskrá. „Þá
kom einnig í ijós að einungis 36%
'T
/
%, í aj _
I
MqT
r
Leyfdu hjartanu
ad ráða!
1 Sólblóma er hátt
hlutfall fjölómett-
aðrar fitu og lítíð
af mettaðri. Með því
að velja Sólblóma á
brauðið dregur þú úr
hættu á aukinni
blóðfitu (kólesteróli).
veitingahúsanna tilgreindu magn
drykkjarfanga en samkvæmt ofan-
greindum reglum ber að gefa upp
magn á drykkjarföngum, hvort
heldur er í flösku eða glasi, auk
verðs. Það er fyrst og fremst gert
til að viðskiptavinir geti áttað sig á
og borið saman verð. Flest veitinga-
hús bjóða glas af „víni hússins“ til
sölu og það getur verið erfitt að átta
sig á verði ef magns er ekki getið. í
könnuninni var magnið frá 12-28 cl
eftir veitingahúsum.
Kristín segir að uppgefið verð sé
hámarksverð en nokkur veitingahús
eru með tilboðsverð fyrri hluta
kvölds og á virkum dögum. Hún
segir að vissir erfiðleikar fylgi því
að bera saman verðlagningu veit-
ingahúsa því þjónustan sé mismun-
andi og einnig innréttingar og um-
hverfi. „Þessi atriði geta haft áhrif á
verðlagninguna en í könnuninni er
ekki lagt mat á þau heldur er ein-
göngu um að ræða samanburð á
verðlagi veitingahúsa."
E-vítamín eflir
varnir líkamans
Uhellsuhúsið
Skólavöröustíg, Kringlunni, Smáratorgi
og Skipagötu 6, Akureyri
Hjálmurinn er nauðsyn-
legasti hluti hlífðarbúnað-
Með engar
olnbogahlífar
ertu í vondum
málum.
Án úlnliðahlífa
áttu frekar á
hættu að úlnliðs-
brjóta þig eða fá
slæm sár.
Án hnéhlífa hefur
fólk lítið að gera á
hjólabretti eða línu-
skautum. Ef hnéskel-
in brotnar líður lang-
ur tími uns hægt er
að „leika sér“ á ný.
Skórnir mega ekki vera
of lágir því þeir þurfa
að verja ökkla.
Olnboga-
hlífar.
Úlnliðahlífar.
Hnéhlífar.
Mjúkur, háir skór
með flötum og óslitn-
um gúmmisóla eru
æskilegir þegar verið
er á hjólabretti.
Hjólabretti og línuskautar
Nauðsynlegt að nota
hlífðarbúnaðinn
MEÐ hækkandi sól sjást krakkar í
auknum mæli þjóta um á hjólabrett-
um og línuskautum. Herdís
Storgaard hjá verkefnisstjórn um
Slysavamir bama segir að með
aukinni notkun aukist slysatíðnin og
ekki er óalgengt að böm olnboga-
brjóti sig, úlnliðsbrotni eða hnéskel-
in fari illa. Hún segir því afar mikil-
vægt að forráðamenn bama sjái til
þess að börnin noti nauðsynlegan
hlífðarbúnað. „Foreldrar þurfa í
raun að reikna þennan kostnað með
í upphafi þegar fjárfest er í línu-
skautum eða hjólabretti."
Hægt að nota reiðhjólahjálma
Herdís segir að til séu sérstakir
hjálmar íyrir hjólabretti en hún
bendir á að við hönnun nýjustu reið-
hjólahjálma hafi verið tekið tillit til
notkunar hjólabretta og línuskauta.
En það er ekki nóg að vera með
hjálm, böm og unglingar þurfa að
nota úlnliðahlífar og þær verða að
vera með CE-merkingu til að upp-
fylla allar kröfur sem gerðar em til
þessa búnaðar. „Það er algengt að
þegar krakkar em búnir að finna
jafnvægispunktinn þá detti þeir og
lendi á úlnliðunum og brjóti sig.
Þá eru olnbogahlífar einnig nauð-
synlegur hlífðarbúnaður og Herdís
segir að þetta eigi sérstaklega við
krakka á aldrinum 5-13 ára en á því
aldursskeiði em þau með mjög við-
kvæma olnboga. „A þessu vaxtar-
skeiði geta bömin hlotið alvarlegt
olnbogabrot. „
Slysatíðnin jöfn hjá byrjendum
og lengra komnum
Herdís segir að þegar börnin séu
að byrja á línuskautum og brettum
missi þau oft jafnvægið og falli aftur
fyrir sig. „Þau lenda þá gjarnan á
olnbogunum eða höfðinu." Herdís
segir að hættan sé ekki liðin hjá þó
krakkamir séu orðnir leiknir á
brettum og línuskautum. „Þegar
þeir em famir að leika sér í tröpp-
um og hoppa og stökkva af mikilli
list þarf ekki mikið að fara úrskeiðis
til að höggin geti orðið slæm. Slysa-
tíðnin er svipuð hjá þeim sem em
orðnir mjög leiknir og hjá þeim sem
em að byrja.“ Herdís segir að allir
þurfi að nota hnéhlífar sem koma í
veg fyrir ljót sár og ekki síst geta
vamað því að krakkar brjóti á sér
hnéskeljarnar.
Sinna þarf viðhaldi
Það er ekki nóg að kaupa hlífðar-
búnað og halda að allt sé í lagi því
það er líka mjög mikilvæg forvörn
að sinna viðhaldi. Endurnýja þarf
með reglulegu millibili sandpappírs-
plötur á hjólabrettum og hreinsa
hjólabúnaðinn vel. Það á líka við um
línuskautana að hjólabúnaði þarf að
vera haldið við. Herdís segir að
Norðmenn hafi kannað mjög ítar-
lega slys af völdum hjólabretta- og
línuskautanotkunar og komið hafi á
daginn að töluverður hluti þessara
slysa verður vegna lélegs viðhalds
búnaðarins.
Nýtt
■ JB ' •
GÓLFEFNABÚÐIN
Borgartúni 33
íjpæða flísar
^rilaparke,
ffpoú verð
i^jyóð þjónusta
Svalakex
KEXVERKSMIÐJAN Frón hefur
hafið framleiðslu og sölu á Svala-
kexi, sem er vanillukex með appel-
sínukremi. Fyrirmyndin er ávaxta-
drykkurinn Svali frá Sól-Víking hf.
Fimm mismundandi Svala-fígúrur
prýða kökumar, sem verður til sölu
í öllum helstu matvöraverslunum á
landinu.