Morgunblaðið - 11.05.1999, Blaðsíða 58
—58 ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1999
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Sj ávarút vegu r í ógöngum
SÍÐUSTU þrjú ár
stækkaði þorskstofninn
hérlendis langt umfram
spár ráðgjafa. Þannig
var stærð hrygningar-
stofnsins 1998 560 þús-
und tonn en ekki 280
þúsund tonn eins og
skýrslan frá 1995 gerði
ráð fyrir. Þannig
„rigndi“ óvænt 280 þús-
und tonnum af kyn-
þroska þorski á þessu
Jfc-tímabili. Skýringin er
að öllum líkindum
óvænt uppsveifla sjáv-
arskilyrða. Sjávarút-
vegsráðherra og ráð-
gjafar hans sýndu þjóð-
inni hins vegar þá einstöku hóg-
værð, að eigna sjálfum sér þessa
óvæntu uppsveiflu sem „árangur" af
eigin fagþekkingu og stjómkænsku,
þótt þeirra eigin skýrslur og yfirlýs-
ingar staðfesti allt aðra skoðun
þeirra 1995. Ráðherrann hefur samt
þrjóskast við að veiða ekki, „árang-
urinn“ sem leitt hefur til gífurlegrar
spennu í stjórnkerfí fískveiða. Stað-
reyndir um litla fagþekkingu þorsk-
veiðiráðgjafa eru hrollvekja. Þorsk-
--^stofnar við Kanada og Grænland
hrundu í kjölfar friðunar, eftir að
ráðgjafar fengu að ráða öllu. Hér-
lendis kom niðursveifla í vaxtar-
hraða 1980-1983 strax í kjölfar auk-
innar stjómunar með friðun. (Út-
færslu landhelgi, skrapdagakerfi,
möskvastækkun, svæðalokunum
o.fl.) Sama sagan endurtók sig hér-
lendis 1989-1993 í kjöl-
far vaxandi friðunar.
Náttúran mótmælti
alltaf þvingaðri „upp-
byggingu" þorskstofha
á sinn hljóða hátt. Ráð-
gjafar hafa hafnað
svöram náttúrannar.
Túlka fallandi vaxtar-
hraða þorsks við friðun
og þvingaða uppbygg-
ingu sem „ofveiði“
vegna villu í reiknilík-
ani. í dag er afrakstur
þorskstofna í N-Atl-
antshafi (Kanada-
Græniand-ísland-Fær-
eyjar-Noregur-
Barentshaf) samtals Vt
af því sem hann var meðan veiðar
vora frjálsar.
Hérlendis era síðustu fréttir m.a.
eftirfarandi:
1.) 500 þúsund tonna þorskkökk-
ur við Vestfirði (sem ekki mátti við-
urkennna stærðina á) virðist hafa
tvístrað sér norður fyrir land frá
ágúst í fyrra og étið upp rækju-
stofninn. Ráðherra og ráðgjafar
hans hafa reynt að krafsa sig frá
uppákomu þessari með því að „hafa
jafnvel átt von á þessu“! Af hveiju
úthlutuðu þeir þá 60 þúsund tonn-
um af rækju 1. sept. (til viðbótar 15
þúsund óveiddum rækjutonnum) -
ef þeir vissu að rækjan yrði étin?
Vissu líka að samkvæmt 50% veiði-
skyldu í lögum tapa útgerðimar öll-
um kvótanum sínum ef 50% veiðast
ekki. Var þetta bara hrekkur?
2. ) Samkvæmt upplýsingum í fjöl-
miðlum, frá ráðgöfum, fór afli
þorsks á togtíma fallandi fyrir
Norðurlandi í nýafstöðnu togar-
aralli, en eitthvað vaxandi í rallinu
fyrir Suðurlandi. Ráðgjafar upp-
lýstu að þorskárgangurinn frá 1993
hefði nú farið til hrygningar sex
ára. (Ari á undan venju). Kjm-
þroskaaldur hefur fallið áður hér-
lendis við þvingaða „uppbyggingu"
og lofar ekki góðu. Lækkaður kyn-
þroskaaldur, fallandi vaxtarhraði,
hækkuð dánartíðni og aukið sjálfát,
hefur einmitt reynst afleiðing frið-
unarstefnu.
3. ) Netarall Hafrannsóknastofn-
unar kemur nú neikvætt út. f fjöl-
miðlum tala skipstjórar um allt að
helmings minnkun veiða í netaralli.
Hvar er „árangurinn" af veiðispam-
aðinum síðustu ár? Hvar era stóra
þorskarnir sem áttu að koma aftur
„uppbyggðir"? Verður næsta skýr-
ing „ofveiði", eða „við höfðum of-
metið stofninn", „við áttum von á
þessu“ eða ný útgáfa af hugarflugi,
rökstutt með hálfsannleika?
Við höfum verð að missa af hund-
raðum þúsunda tonna af þorski
sem búið er að henda eða verður of
seint að veiða vegna allt of lítils
þorskkvóta. Verðmætið skiptir tug-
um milijarða. Vaxandi upplausn
hefur verið að skapast kringum
stjórnkerfi fiskveiða af þessum
ástæðum. Uppsprengt markaðs-
verð þorsks á 110 kr. óveitt kíló
endurspeglar örvæntingu að-
þrengdustu aðila í sjávarútvegi. Ef
Kvóti
Við höfum verið að
missa af hundruðum
þúsunda tonna af
þorski sem búið er að
henda eða verður of
seint að veiða, segir
Kristinn Pétursson,
vegna alltof lítils
þorskkvóta.
byggingaverktaki myndi þurfa að
byrja á því að kaupa sér steypu-
réttindin fyrir 90% af bygginga-
verði húsnæðis og steypuréttindin
yrðu svo notuð til að komast yfir
annað byggingarefni, hvaða ímynd
myndi þá skapast af „bygginga-
braski"? Hvað myndi Samkeppnis-
stofnun segja? Almenningur fær
eðlilega ranghugmyndir um
„gróða“ útgerða vegna þess upp-
spennta ástands sem hefur skapast
og sjávarútvegsráðherra er ábyrg-
ur fyrir öðram fremur. Staðreyndin
er svo sú að hagnaður útgerða 1997
var í reynd aðeins 1% af veltu fyrir
breytilegar tekjur! (Ræða forstjóra
Þjóðhagsstofnunar á aðalfundi LÍÚ
1998.) Það var nú allur gróðinn.
Ranghugmyndir um gífurlegan
hagnað útgerða hafa því orðið til
Kristinn
Pétursson
vegna þeirrar verðlagningar sem
spenna í stjómkerfi fiskveiða hefur
framkallað. Skýring á háu verði er
m.a. örvænting fiskimanna sem era
að kaupa sig frá sekt vegna þorsks
sem ekki átti að veiða, eða kaupa
sér aðgöngumiða að öðram fiskteg-
undum sem illa gengur að veiða en
aflaheimildir era fyrir og enginn
kemst að fyrir þorski. Verðlagning
á hlutabréfum í sjávarútvegi sem
miðast við verðspennu kvótaleigu
virðist mér afskaplega hæpin spila-
borg. Háskólamenn og fleiri vilja
svo leggja á auðlindaskatt til að ná
tökum á gróðanum. Hvað á sá
skattur að vera stór hluti af 1%
hagnaði útgerðarinnar 1997?
I kosninagbaráttunni hafa sumir
stjómmálamenn talað um sérstaka
skattlagningu á kvótasölugróða.
Hefði þeim ekki verið nær að reyna
fyrst að skilgreina efnislega hvað
það er sem veldur óraunhæfri verð-
lagningu á veiðiheimildum og reyna
að gera ráðstafanir til að draga úr
spennunni frekar en að fara á hug-
arflug um að skattleggja afleiðing-
amar af ástandinu? Landvinnsla í
bolfiski hefur tapað milljörðum síð-
ustu ár og það hefur nánast verið
látið afskiptalaust. Mér finnst það
dæmalaus óskammfeilni þegar sjáv-
arútvegsráðherra hefur verið að
hreykja sér af „árangri“ sínum.
Mörg smærri fyrirtæki í sjávarút-
vegi engjast um í pattstöðu alls kon-
ar vandræða. Nokkram stærri fyr-
irtækjum hefur gengið vel og geng-
ur vonandi vel áfram. Auðvitað má
tína til ýmislegt jákvætt. Það já-
kvæðasta í dag er að sjávarútvegs-
ráðherrann skuli vera að láta af
störfum.
Höfundur er framkvæmdastjóri.
Lokahnykkurinn getur skipt öUu og þarf
ekki að kosta nema eitt símtal
Stanislas Bohic • Landslagsarkitekt
Hringdu
»(898 4332
INTERSPORT
Bíldshöfða 20 • 112 Reykjavlk • slml 510 8020 • www.intersport.is
^o.830
990
Predator Accelerator Traxion
)90
Quantro 2 Traxion TPU
m.
*^.490
Quantro 2 Traxion TPU Jr.
Spectral Traxion TPU.