Morgunblaðið - 11.05.1999, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1999 67
HESTAR
Geymslu-/lagerhúsnæði
óskast keypt
U.þ.b. 200—400 fm. Æskileg staðsetning miðbær
eða vesturbær. Aðrir staðir koma til greina.
Staðgreiðsla í boði.
Eignarhaldsfélagið Kirkjuhvoli ehf.,
sími 892 0160.
SYLVÍA Sigurbjörnsdóttir er komin með athyglis-
verðan hest, Garp frá Krossi, og unnu þau bæði tölt
og Qórgang.
SARA Sigurbjörnsdóttir hefur hlotið fyrsta titil
sinn sjö ára gömui og er eftir því sem næst verður
komist yngsti Reykjavíkurmeistarinn.
Hrafnhildur Þorsteinsdóttir, sem
keppti á Ægi frá Svínhaga og höfn-
uðu þau í þriðja sæti. Frammistaða
þeirra er gott dæmi um þá miklu
breidd sem orðin er í keppninni og
má ætla að margir „nýir“ keppend-
m- eigi eftir að láta að sér kveða á
þessu ári.
Sylvía Sigurbjörnssdóttir sigraði
í bæði tölti og fjórgangi unglinga á
Garpi frá Krossi, mjög athyglis-
verðum hesti, og fimmganginn tók
hún einnig með trompi á Lykli frá
Engimýi-i. Systir hennar Sara vann
einnig það fágæta afrek að verða
Reykjavíkurmeistari í fjórgangi að-
eins sjö ára gömul á hesti móður
sinnar, Hirti frá Hjarðarhaga. Er
hún að öllum líkindum yngsti
Reykjavíkurmeistarinn í hestaí-
þróttum. Móðirin, Fríða H. Stein-
arsdóttir, var einnig í eldlínunni er
hún varð í fjórða sæti í tölti 1. flokks
á Djákna frá Dunhaga. Góður dagur
hjá Oddhólsfjölskyldunni.
Reykjavíkurmeistaramótið var að
þessu sinni opið og má segja að með
þessu séu Fáksmenn að gefa tóninn.
Lengi hefur verið um það talað að
opna eigi öll íþróttamót og sýna
Fáksmenn gott frumkvæði í þeim
efnum. Annað sem vekur athygli er
góð þátttaka í öðrum flokki, en sam-
kvæmt reglum eru þi-ir styrkleika-
flokkar í hestaíþróttum, að auki
fyrsti og meistaraflokkur. Þessi
flokkaskipting þarfnast endurskoð-
unar við því undarlegt má telja að
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur
aldrei náðst þátttaka í meistaraflokk
hjá Fáki, stærsta og sterkasta félag-
inu. Það virðist erfitt að finna góðan
farveg fyrir styrkleikaflokkana
þannig að frístundafólkið fái þann
vettvang sem þarf til að örva það til
þátttöku í keppni. En þátttaka frí-
stundafólksins var góð hjá Fáki að
þessu sinni. Einnig var talsverð
þátttaka úr öðrum félögum og má
ætla að þetta mót verði öðrum félög-
um hvatning til að opna sín mót.
Þátttakan í mótinu var góð og fór
það ágætlega fram þótt eitthvað
hafi verið að framkvæmd skeiðsins
fundið. Þá þóttu skráningargjöld í
hærri kantinum og vekur það undr-
un margra hvers vegna það sé dýr-
ara fyrir Fák að halda mót en önnur
félög. Veðrið lék við starfsmenn og
keppendur og má ætla að þetta mót
teljist með eftirminnilegri mótum
fyrir margra hluta sakir.
Mótið var að vissu leyti fyrsta vís-
bending um hverjir munu blancla
sér í slaginn um sæti í HM-liði ís-
lands. Þó vantaði einn sterkan í
hópinn, Reyk frá Hoftúni, sem
Sveinn Ragnarsson mun stefna
með. Sagðist Sveinn vera að spara
þann móálótta og mætti því með
Brynjar að þessu sinni.
Valdimar Kristinsson
f boði Ford og Hewlett Packard.
á sportbílasýninguna í Laugardalshöll helgina 15. og 16. maí. fei!s»yr»ír»a.com
taktu þátt
upplýsingar. Dregið í beinni útsendingu frá Formúlunni í Sjónvarpinu 16. maí.
<§>mbl.ÍS
-Aí.í.354^ en-TH\SJ\Ð A/Ý7-7—
G0TT FÚIK • SfA