Morgunblaðið - 11.05.1999, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Náttúran innra sem ytra
JYIYNDUST
Lislasatn íslainls
MÁLARA- og HÖGGMYNDALIST
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá kl.
11-18. Aðgangur kr. 300. Ókeypis á
miðvikudögum.
STYRKUR íslendingsins og
veikleiki felst í nánum tenglum
hans við náttúruna. Óvíða eru áhrif
náttúrunnar á evrópska menningu
eins afgerandi og einmitt hjá okk-
ur. Þau lama okkur og smætta en
fylla okkur um leið ómældu stolti.
Við teljum okkur góða að hafa kom-
ist af í jafnóblíðu umhverfi í allar
þær aldir sem liðnar eru frá því við
settumst hér að, en um leið viður-
kennum við fullkominn vanmátt
okkar gagnvart landinu. Þegar við
tökum móti erlendum gestum ger-
um við eins mikið úr náttúru þess
og sérstæðri fegurð en höldum
sjálfum okkur til hlés sem lítils-
verðum og uppburðarlitlum ábú-
endum forkunnarfagurrar para-
dísareyjar.
Landið er allt, en við ekkert, líkt
og læðist aftan að okkur sem ónota-
legur grunur þegar við hlýðum á
lofsönginn sem við tókum okkur
íyrir þjóðsöng eftir að við fengum
stjómarskrána. Við reynum að vísu
að bera okkur vel; tíunda bók-
menntir okkar og ást á bókmennt-
um - ekki hvað síst fombókmennt-
unum - en allt slíkt vill fara fyrir
ofan garð og neðan hjá gestum okk-
ar vegna þess að bókmenntir okkar
em ekki skrifaðar á útbreiddri
tungu og glæsileiki þeirra og
gullöld tilheyra löngu liðnum tíma.
„Gott og vel með þennan Gunnar
ykkar á Hlíðarenda," segja gestir
okkar, „en hingað eram við komnir
til að kynnast ykkur og ykkar
menningu; ekki einhverri þúsund
ára gamalli lygasögu um misvitra
óhappakappa."
En við eram ekki vanir samræð-
um, hvað þá að tjá okkur hispurs-
laust við aðra menn. Sýningin
„Náttúrahrif ‘ sýnir betur en marg-
ISLANDSLAG,
frá 1944, eftir
Svavar Guðna-
son, er ein af
fjölmörgum
meistaraverkum
á sýningunni
„Náttúruhrif‘, í
Listasafni fs-
lands.
ar ritgerðir að okkur líður best á
eintali við náttúrana. Hamravegg-
urinn og gljúfrabúinn er í senn
A R Ð U R I
B L A Ð A U K I
N N
, l,
Auglýsendur!
Laugardaginn fyrir hvítasunnu
mun Morgunblaðið gefa út
blaðauka sem heitir
Garðurinn og verður gefinn
út í miðformsstærð.
Meðal efnis:
• Skipulag garðsins
• Sólpallar og verandir
• Tré, runnar, blóm og matjurtir
• Sáning, umhirða og klipping
• Leiðir til að halda illgresi
[ skefjum
• Vinnuaðstaða garðáhuga-
mannsins
• Lýsing í garði
• Sólstofur
• Viðhald garðhúsgagna
• Vistvæn garðyrkja
• Hellulagnir
• O.fl.
Allar nánari upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar á augýsingadeild
ísíma 569 1111.
Skilafrestur auglýsingapantana er til kl. 16 föstudaginn 14. maí.
AUGLYSINGADEILD
Sími 569 1111 • Bréfasími 569 1110 • Netfang: augl@mbi.is
grátmúr okkar og bergmál feg-
urstu ástarjátninga. Það þarf ekki
annað en bera saman sýningarnar í
3. og 4. sal Listasafnsins til að sjá
hvað einræðan við náttúrana skipt-
ir okkur miklu meira máli en sam-
ræðan við meðbræður okkar.
Tökum sem dæmi litlu og lát-
lausu verkamannaþrykkin eftir
Guðmund Armann eða Sigurð Þóri.
Við hlið ástarjátninga Svavars
Guðnasonar - af hverjum Islands-
lag, frá 1944, er eflaust þekktasta
dæmið - eða dramatískra fossa og
pensilflóða Nínu Tryggvadóttur og
Kristjáns Davíðssonar, hljóma fé-
lagsraunsæisfrímerki félaganna
beggja eins og blóðlaus svik við
málstaðinn. Ljósmyndarar Mogg-
ans era greinilega mun tilfinninga-
ríkari í skotum sínum fyrir auka-
blaðið 1. maí, en þeir eitt sinn yfir-
lýstu rauðliðar vora á hátindi bar-
áttulistar sinnar á öndverðum 8.
áratugnum.
Öll verkin á sýningunni sanna að
í hjörtum okkar býr bóndi en ekki
verkamaður. Það er líka eftirtekt-
arvert hve yfirbragð flestra verk-
anna er gegnheilt, jafnvel þeirra
sem máluð era af hvað mestum fít-
onskrafti. Ef náttúralýsingarnar á
sýningunni í Listasafninu era born-
ar saman við landslagsmyndir
skyldra listamanna, svo sem norska
málarans Edvards Munchs, verður
ljóst hve tíminn í verkum íslenskra
málara er miklu meiri og lengri að
líða en tími flestra erlendra starfs-
félaga þeirra. Svo augljóst er þetta
að Asgerður Búadóttir sker sig í
engu úr hópnum hvað yfirlegu
varðar þótt að öðram kosti bjóði
tækni hennar og efniviður upp á
miklu lengra sköpunarferli en
gengur og gerist meðal listmálara.
Þegar öll kurl koma til grafar
stendur sú spurning eftir og krefur
okkur um miklu lengra svar en
nemur einum svona pistli: „Eru
náttúrahrifin utan við okkur eða
búa þau hið innra með Islendingn-
um?“
Eftir að hafa skoðað þetta ágæta
upphengi hlýtur maður að hallast
að því að ofurstærð íslenskrar nátt-
úra hafi miklu meiri áhrif á menn-
ingu okkar en ætlað verður í fljótu
bragði. Ef til vill hitti bandaríski
gagnrýnandinn Donald P. Kuspit
naglann á höfuðið þegar hann taldi
að í íslenskri náttúruabstraksjón -
og var þá að fjalla um höggmyndir
Jóhanns Eyfells, sem flestir hljóta
að sakna þegar þeir gaumgæfa
„Náttúrahrif1 - fælist djúpstæð
vantrú okkar á menningu og varan-
leik mannlegra athafna. Er það
ekki einmitt þessi vantrú sem við
grátum í einrúmi í fjallasalnum
frjálsa? Dæmi nú hver fyrir sig
með því að gera sér ferð í 4. sal
Listasafns Islands.
Halldór Björn Runólfsson
r
Ferðatöskubönd
með nafninu þínu!
&ögn
\J*mú
úla 17a - sími 588 1980
J