Morgunblaðið - 11.05.1999, Qupperneq 60
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1999
UMRÆÐAN
Stöðvum tóbakssölu til
barna og unglinga
í MORGUNBLAÐINU 27. aprfl
sl. birtist grein um könnun á vegum
íþrótta- og tómstundaráðs Reykja-
víkur á sölu tóbaks til 14 og 15 ára
unglinga í Reykjavík. Könnunin
leiddi í ljós að 85 verslanir af 125
seldu unglingum tóbak.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
slík könnun er gerð. Æskulýðs- og
tómstundaráð Hafnarfj arðarbæj ar
stóð fyrir könnun árið 1996 og kom
þá í Ijós að 95% verslana þar seldu
unglingum tóbak. Síðan hafa verið
gerðar einar 5-6 kannanir í Hafn-
arfjarðarbæ. Hlutfall þeirra sem
selja unglingum þar tóbak er komið
niður fyrir 60% en í lok hverrar
könnunar er birtur listi yfir brot-
legar verslanir.
Bannað er með lþgum að selja
unglingum tóbak. A meðan ung-
lingar geta keypt tóbak í flestum
verslunum á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu er til lítils fyrir skóla og
aðra sem láta sig málið varða að
vinna að forvömum. Tæplega 8%
unglinga á aldrinum 12-16 ára
T*"reykja daglega. Núna reykja
drengir í fyrsta skipti meira en
stúlkur. Ekki virðist heldur hafa
dregið úr reykingum þrátt fyrir að
miklum peningum sé
varið í forvarnir. I
fyrrnefndri frétt segir
Þorgrímur Þráinsson,
framkvæmdastjóri tó-
baksvamarnefndar, að
Ijóst sé að eftirlit með
lögunum sé í molum og
því sé erfitt að reka
forvarnir.
Unglingar em mjög
áhrifagjamir og það er
skylda fullorðinna að
koma í veg fyrir að
þeir byrji að reykja.
Reykingar fylgja því
unga fólki sem ánetj-
ast tóbaki oftast alla
ævi og kosta þjóðfélag-
ið stórfé.
I sjónvarpsviðtali 23. aprfl sl.
sagði Þorsteinn Blöndal lungnasér-
fræðingur að nýlegar bandarískar
kannanir sýndu að því fyrr sem
unglingar byrji að reykja þeim mun
meiri hætta sé á heilsutjóni síðar á
ævinni. Einnig kom fram í viðtalinu
að laskað erfðaefni sé í mun meira
magni í fólki sem hefur bytjað
snemma að reykja og sé það sjálf-
stæður áhættuþáttur.
Greinilegt er að
mörgum verslunareig-
endum er ekki
treystandi fyrir því að
selja tóbak. Vandinn er
einnig sá að í fjölda
verslana vinna ung-
lingar með námi við
það að selja öðmm
unglingum tóbak.
Það verður að úti-
loka aðgengi unglinga
að tóbaki. Einn mögu-
leikinn er sá að gefin
verði út tóbakssölu-
leyfi. Þær verslanir
sem staðnar verða að
því að selja unglingum
tóbak ættu að missa
leyfið eða sæta háum fjársektum.
Núverandi yfirmaður Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar, Gro
Harlem Brundtland, leggur til að
einungis eigi að selja tóbak í lyfja-
verslunum.
Allir vilja stöðva reykingar
unglinga
Læknafélag íslands hefur mikl-
ar áhyggjur af tóbaksreykingum.
Foreldrar vilja ekki að börn þeirra
Pétur Orri
Þórðarson
Toppi til táar~rrátfiskeið, framhald af TTl eða fyrir þær
sem þurfa að léjttast minna.
FUNDIR
MÆLING MATARÆÐI
Skráning fiafin í síma 581 3730
Staðfesta þaitf pantanir fyrir 20. maí.
jsb -góður staður fyrir konur
r |
SiTT •
*
.") 11 rruiT
J ___L j
31. maí
5 vikur hefðbundið Toppi til táar námsskeið
I og II, að auki 8 vikna sumarkort sem gildir
allt sumarið. Má leggja inn.
FRÁ TOPPITIL TÁAR I
Toppi til táar námskeið fyrir þær sem eru að byija. Eitt
viðurkenndasta námskeið sinnar tegundar fyrir þær sem
þurfa að léttast um 15 kg. og
Reykingar
Unglingar ná of
auðveldlega 1 tóbak,
segir Pétur Orri Þórð-
arson, og meðan svo
er verður ekki breyt-
ing til batnaðar.
reyki. Félagsmálaráðuneytið, heil-
brigðis- og tryggingamálaráðu-
neytið, Reykjavíkurborg og
Reykjavíkurdeild Rauða kross Is-
lands standa saman að forvarnar-
verkefni í grunnskólum Reykjavík-
urborgar gegn vímuefnaneyslu
nemenda undir slagorðinu Island
án eiturlyfja árið 2002. Krabba-
meinsfélagið eyðir stórfé í forvarn-
ir á hverju ári bæði í námsefni og
fyrirlestra. Það sem vantar er að
ráðist sé að rótum vandans. Ung-
lingar ná of auðveldlega í tóbak og
meðan svo er verður ekki breyting
til batnaðar.
Ráðamenn þjóðarinnar verða að
taka á málinu tafarlaust og sjá til
þess að ungt fólk undir 18 ára aldri
geti ekki keypt tóbak. Þannig forða
þeir mörgum unglingnum frá því að
byrja að reykja og neyta annarra
vímuefna. Kannanir sýna að miklar
líkur eru á að unglingar sem reykja
leiðist út í notkun sterkari vímu-
gjafa.
Ef við viljum að Island verði án
eiturlyfja árið 2002 þarf að byrja á
því að útiloka aðgang unglinga að
tóbaki og áfengi. Sinnuleysi í þess-
um málum er okkur öllum til
skammar og ótrúlegt að þetta
ástand sé látið viðgangast þegar
upplýsingar um skaðsemi tóbaks á
mannslíkamann eru öllum kunnar.
Höfundur er skólastjóri
í Hvassaleitisskóla.
Senn rennur
17. júní upp
ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGINN n.k.
verða 55 ár liðin frá stofnun lýð-
veldis á Islandi. Þá var kjörinn
fyrsti Forseti Islands,
eitt hejsta sjálfstæðis-
tákn Islendinga. Þrí-
skiptu valdi, löggjafar-
, dóms- og fram-
kvæmdavaldi var falið
að standa vörð um lýð-
ræðið í landinu f.h.
þjóðarinnar, ásamt
Forseta Islands.
Lýðræðið og hvern-
ig því skuli háttað hef-
ur mikið verið til um-
ræðu í þjóðfélaginu og
hefur magnast veru-
lega eftir samþykkt
laga um gagnagrunn á
heflbrigðissviði. Sið-
fræðistofnun Háskóla
Islands hefur m.a. ákveðið að gang-
ast íyrir borgarafundum í mars og
aprfl um lýðræðið og opinbera um-
ræðu á Islandi þar sem ætlunin er
Gagnagrunnur
Lögin eru mesta atlag-
an að lýðræðinu frá
lýðveldisstofnun, segir
Bjarki Már Magnús-
son, sem hvetur til úr-
sagna úr gagnagrunn-
inum fyrir 17. júní.
að ræða um einkenni ákvarðana-
töku hér á landi.
Þá hefur rektor Háskóla Islands
frá því í október boðað tfl málþinga
um þjóðfélagsmál. I inngangsorð-
um sínum að nýafstöðnu málþingi
sagði rektor að málefnanleg og
uppbyggileg gagnrýni sé lífæð vís-
inda og fræða og líka kjölfestan í
lýðræðisþjóðfélagi þar sem virðing-
in fyrir hinu sanna og rétta er lögð
til grundvallar og tillit tekið til
ólíkra sjónarmiða og hagsmuna. Þá
sagði hann að án málefnanlegrar og
gagnrýninnar umræðu sé tómt mál
að tala um lýðræði. Þá ríki sérhags-
munabarátta sem miðar að því að
kveða aðra í kútinn - án þess að
hugað sé að skynsamlegum rökum.
Eg fylgdist grannt með umræð-
um um frumvarp til laga um
gagnagrunn á heilbrigðissviði á
liðnu ári. Meirihluti heilbrigðis-
nefndar Alþingis neitaði þar m.a.
hagsmunasamtökum um að funda
með nefndinni um frumvarpið og
hafnaði óskum minnihlutans um að
fá álit erlendra sérfræðinga um
frumvarpið svo dæmi séu tekin.
Það var greinilegt að rök máttu sín
lítils og lýðræðisleg umfjöllun
mátti lúta í lægra haldi fyrir und-
arlegum hvötum um að ljúka um-
ræðum og atkvæðagreiðslu um
frumvarpið áður en
jólaleyfí þingmanna
hæfist.
Síðan þá hefur verið
fjallað um þessi ein-
stöku lög um allan
heim. Stærstu fjölmiðl-
ar heims, Evrópuráðið,
Norræni heilbrigðishá-
skólinn, Norræna
læknaráðið, Alþjóða-
samtök lækna, svo ein-
hverjir séu nefndir,
hafa undrast hvemig
gengið hefur verið á
persónufrelsi einstak-
lingsins hér á landi
með lagasetningunni
og það fyrir erlent
hlutafélag, hlutafélag sem enginn
fær eða má vita hver á.
Forseti Islands hafði reyndar
varað Alþingi við að fara of geyst í
lagasetningu um gagnagrunninn.
Sú áminning Forsetans varð þó
ekki til að auka gæði vinnubragð-
anna, því miður.
Lögin um gagnagrunn á heil-
brigðissviði og hvernig að sam-
þykkt þeirra var staðið er að mínu
mati mesta atlagan að lýðræðinu í
landinu frá stofnun lýðveldis á Is-
landi og er ég ekki einn um þá
skoðun. Þannig hafa fjölmargir
læknar ákveðið að freista þess að
standa vörð um gögn sín og koma í
veg fyrir að þau fari í gagnagrunn
Islenskrar erfðagreiningar ehf.
enda telja þeir sig ekki hafa leyfí til
að afhenda óviðkomandi aðila þær
trúnaðarupplýsingar sem þeir hafa
aflað vegna starfa sinna.
Þá þykir mér rétt að minna á að
fyrrv. Forseti Islands, frú Vigdís
Finnbogadóttir sem situr í nefnd á
vegum UNESCO er fjallar um sið-
fræði í vísindum og tækni ákvað nú
um áramótin að ganga úr stjórn
fyrirtækisins íslenskrar erfða-
greiningar ehf.
Frá og með 17. júní n.k., 6 mán-
uðum eftir samþykkt frumvarpsins,
hefur íslensk erfðagreining ehf.
heimild Alþingis Islendinga til að
setja sjúkragögn um alla, sem ekki
hafa þá hafnað aðild sinni skriflega,
í gagnagrunn fyrirtækisins. Þau
gögn munu aldrei verða þaðan tek-
in aftur þó Landlæknisembættið
hafi lýst því yfir að slíkt sé mögu-
legt.
Þjóðin verður að hafna þeim
vinnubrögðum sem viðhöfð hafa
verið í ofangreindu máli. Slíkt verð-
ur aðeins gert með því að hafna
þátttöku í gagnagrunni Islenskrar
erfðagreiningar ehf. og það áður en
þjóðhátíðardagurinn rennur upp.
Höfundur er nemi og féiagi
í Mannvernd.
Bjarki Már
Magnússon