Morgunblaðið - 11.05.1999, Síða 69

Morgunblaðið - 11.05.1999, Síða 69
MORGUNBLAÐIÐ PRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1999 69 . ÞJÓNUSTA/FRÉTTIR Úr dagbók lögreglu Margir í hár saman á kosninganótt NOKKURT annríki var hjá lög- reglu þessa helgi og kenndi þar margvíslegra verkefna. Fyrst má geta að margir lögreglumenn voru við ýmis störf sem tengjast framkvæmd og öryggi vegna þingkosninganna. Þá kemur fram við skoðun verkefna að mikið bar á samskiptaerfiðleik- um milli manna jafnt í heimahús- um, á götum úti sem og á veit- ingastöðum. Hvort þar hafi verið um að kenna ósætti vegna kosn- ingaúrslita skal ósagt látið en áberandi voru verkefni þar sem hjón og sambýlingar áttu ekki skap saman og neyddust til að leita til lögreglu. Rólegt í miðborginni á föstudagskvöld Rólegt var í miðborginni á föstudag og ekki nein líkams- meiðing tilkynnt til lögreglu um nóttina en eitt rúðubrot var til- kynnt. Einn karlmaður var hand- tekinn vegna málsins en hann hafði fengið skurð á handlegg sinn við framkvæmd skemmdar- verksins. Á kosningadag var mikil að- sókn að veitingastöðum í mið- bænum en ekki er þó vitað um alvarleg meiðsli á fólki. Umferðarslys varð á Bústaða- vegi að kvöldi föstudags þegar tvö ökutæki rákust saman. Tvennt var flutt á slysadeild til aðhlynningar. Lögreglumenn á eftirlitsferð veittu athygli bifreið á Hring- braut aðfaranótt laugardags þar sem þeim fannst ökumaður ung- legur. I ljós kom að bæði öku- maður og farþegi voru aðeins 15 ára og höfðu stolið ökutækinu fyrr um kvöldið. Barnarverndar- yfirvöld voru kölluð til og for- eldrum gert aðvart. Annað svipað mál kom til kasta lögreglu að morgni sunnu- dags þegar 14 ára piltur kom á lögreglustöðina í Breiðholti. Pilt- urinn sagðist hafa tekið bifreið móður sinnar án hennar heimild- ar og ekki tekist betur en svo upp við aksturinn að hann velti henni á Elliðavatnsvegi. Ekki urðu slys á fólki. Þrettán teknir ölvaðir undir stýri Þrettán ökumenn voru stöðv- aðir af lögeglu um helgina vegna gruns um ölvun við akstur. Einn þeirra reyndi að hlaupa brott frá lögreglu en hafði ekki erindi sem erfiði. Þá voru einnig þrettán ökumenn stöðvaðir vegna hraðaksturs. Höfð voru afskipti af einum ökumanni að morgni sunnudags eftir að hann hafði fest ökutæki sitt á grasi við Breiðholtskirkju. Ökumaðurinn hafði unnið talsverðar skemmdir á graslendinu með athæfi sínu. Eldur í íbúðum og sinu Talsverðar skemmdir urðu á íbúð í Sundahverfi á föstudag eftir að eldur kom .upp við matseld. Þá var tilkynnt um mik- inn reyk í stigagangi í Granda- hverfinu að kvöldi föstudags. Varð slökkvilið að brjóta sér leið inn í eina íbúðina. Þar hafði hús- ráðandi sofnað út frá matseld með fyrrgreindum afleiðingum. Viðkomandi var fluttur á slysa- deild til skoðunar. Þá var tilkynnt um sinubruna við Grafarvogskirkju að kvöldi föstudags. Að gefnu tilefni eru foreldrar beðnir að brýna fyrir börnum sínum hætturnar sem geta stafað af sinubmna en þetta er einmitt sá tími ársins þegar þeir eru al- gengastir. Landasölumaður handtekinn Ökumaður var handtekinn vegna gi-uns um að hann seldi unglingum landa. Við leit í bif- reiðinni fannst landi sem var haldlagður. Þekktir brotamenn voru stöðv- aðir á bíl í Þingholtunum að morgni sunnudags. í bifreiðinni sem þeir gátu ekki gert grein fyrir fundust ætluð fíkniefni og þýfi. Femt var handtekið og flutt á lögreglustöð. Fjórir tíu ára piltar voru tekn- ir vegna gruns um umtalsverð skemmdaiverk og innbrot í sum- arhús við Úlfarsfell um helgina. Málið verður afgreitt af barna- verndaryfirvöldum. íbúi í Hlíðahverfi vaknaði við mannamál í íbúð sinni snemma á laugardagsmorgun. Tveir menn forðuðu sér út úr íbúðinni er þeir urðu varir við húsráðanda. Mennirnir eru ófundnir en þeir tóku á brott með sér veski. Þá var tilkynnt um innbrot í bygg- ingavöruverslun í Skeifunni á sunnudag. Af öðrum störfum lögreglunn- ar má nefna að á laugardags- morgun veittu lögreglumenn tollayfirvöldum aðstoð við að hindra brottfór erlends skips vegna ölvunarástands skipstjóra þess. Siggubær, Kirkjuvegi 10, lokað í vetur. Skrifstofur safns- ins verða opnar alla virka daga kl. 9-17._____ BYGGÐASAFNIÐ ( GÖRÐUM, AKRANESI: Opið kl. 13.30- 16.30 virka dajja. Slmi 431-11255._____ FJARSKIPTASAFN LANDSSÍMANS, Loftskeytastöðinni v/Suðurgötu: Opið á þriöjud., fimmtud. og sunnud. frá kl. 13-17. Tekið er á mðti hópum á öðrum tímum eftir samkomulagi.___________________________________ FRÆÐASETRIÐ í SANDGERÐI, Garövegi 1, Sandgeröi, sími 423-7551, bréfsími 423-7809. Opið alla daga ld. 13- 17 og eftir samkomulagi.______________________ GOETHE-ZENTRUM: Lindargötu 46, ReyKjavík. Opið þriðjud. og miðvikud. kl. 15-19, fimmtud. kl. 17-21, föstud. og laugard. kl. 15-18. Sími 551-6061. Fax: 552-7570. HAFNARBORG, menningar og listastofnun HafnarQarðar opin alla daga nema þriðjud. frá kl. 12-18.___ KJARVALSSTAÐIR: Opið daglega frá kl. 10-18. Safna- leiðsögn kl. 16 á sunnudögum._________________ LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS _ HÁSKÓLABÓKASAFN: Opið mán.-fimmtud. kl. 8.15-22, fóst. kl. 8.15-19. Laugd. 9-17. Sunnud. kl. 11-17. Handritadeild er lokuð á laug- ard. og sunnud. S: 525-5600, bréfs: 525-5615._ USTASAFN ÁRNESINGA, Tryggvagötu 28, Selfossl: Opið eftir samkomulagi. S. 482-2703.___________ USTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Höggmyndagarður- inn er opinn alla daga. Safnið er opið laugardaga og sunnudaga frá kl. 14-17.___________________ USTASAFN ÍSLANDS, Frlklrkjuvegl. Sýningarsalir, kaffistofa og safnbúð: Opið daglega kl. 11-17, lokað mánudaga. Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leið- sögn: Opið alla virka daga kl. 8-16. Bókasafn: Opið þriðjud.-föstud. kl. 13-16. Aðgangur er ókeypis á mið- vikudögum. Uppl. um dagskrá á internetinu: http//www.natgall.is____________________ LISTASAFN KÓPAVOGS - GERÐARSAFN: Opið daglega kl. 12-18 nema mánud._________________________ LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er opið laugardaga og sunnudaga milli kl. 14 og 17. Tekið á móti gestum skv. samkomulagi. Upplýsingar í síma 653- 2906._________________________________________ LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Borgartúni 1. Opið _ alla daga frá kl. 13-16. Sími 563-2530.________ LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnarnesi. í sumar verður opið á sunnud., þriðjud., fimmtud. og laugard. milli kl. 13 og 17.___________________________ MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum 1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mánudaga kl. 11- 17 til 1. september. Alla sunnudaga frá kl. 14-17 má reyna sig við gamalt handbragð í tóvinnu undir leiðsögn eldri borgara. Safnbúð með minjagripum og handverks- munum. Kaffi, kandís og kleinur. Sími 471-1412, net- fang minaust@eldhorn.is.______________________ MINJASAFN RAFMAGNSVEITU Reykjavíkur v/rafstöð- ina v/Elliðaár. Opið sunnudaga kl. 15-17 eða eftir sam- komulagi. S. 567-9009.________________________ MINJASAFN SLYSAVARNARFÉLAGS ÍSLANDS Þor- steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið á laugardögum og sunnudögum frá kl. 13-16. Hægt er að panta á öðrum tímum i síma 422-7253.________________________ MINJASAFNIÐ Á AKUREYRI: Aðalstræti 58 er lokað í vetur vegna uppsetningar nýrrar sýningar sem opnuð verður sumarið 1999. S. 462-4162, bréfs: 461-2562. IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI verður opið framvegis á sunnudögum kl. 14-16 í vetur. Að auki geta gestahóp- ar og bekkjardeildir skóla haft samband við safnvörð í síma 462-3550, sem opnar þá fúslega samkvæmt nánara umtali._______________________________________ MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein- holti 4, sími 569-9964. Opið virka daga kl. 9-17 og á öðr- um tíma eftir samkomulagi.____________________ NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi 12. Opið miðtikud. og laugd. 18-18. S. 654-0630.__ NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsaiir Hverfisgötu 116 eru opnir sunnud. þriðjud. fimmtud. og laugard. kl. 13.30- 16.____________________________________ NESSTOFUSAFN, Yfir vetrartímann er safniö einungis opið samkvæmt samkomulagi.____________________ NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið. 13-18, sunnud. 14-17. Kaffistofan 9-18, mánud. - laugard. 12-18 sunnud. Sýn- ingarsalir: 14—18 þriðjud.-sunnud. Lokað mánud. PÓST' OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hatnar- ffrði. Opið þriðjudaga og sunnudaga 15-18. Sími 656- 4321. ______________________________ SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s. 651-3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum. Stendur til marsloka. Opin laugardaga og sunnudaga kl. 13.30- 16.____________________________________ SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vcsturgötu 8, Hafnarfirðl, er opið laugardaga og sunnudaga frá ki. 13-17 og eftir sam- komulagi fyrir skóianema og aðra hópa. S: 565-4242, bréfs. 565-4251.______________________________ SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKSSONAR, Súðarvogi 4. Opið þriðjud. - laugard. frá kl. 13-17. S. 581-4677.______________ SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv. samkl. Uppl. i s: 483-1165,483-1443.__________________ STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR: Handritasýning opin þriðjudaga, miðvikudaga og flmmtudaga frá ki. 14-16 til 14, mai. __________ STEINARÍKI ÍSLANDS A AKRANESI: Opið alla daga kl. 13- 18 nema mánudaga. Simi 431-5666.__________ SÖGU- OG MINJASAFN Slysavarnafclags fslands, Garðlnmn: Opið um helgar frá kl. 13-16._______ ÍJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Opið alia daga nema mánudagakl. 11-17. ______________________ ÁMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mánudaga til föstu- daga kl. 10-19. Laugard. 10-15.________________ HSTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið atla daga frá kl. 14- 18. Lokað mánudaga.___________________ NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ Á AKUREYRI: Lokað i vetur nema eftir samkomulagi. Simi 462-2983. _______ NORSKA HÚSIÐ f STYKKISHÓLMI: Opið daglcga i sum- arfráki. 11-17.__________________________ ORÐ DAGSINS Reykjavfk sími 551-0000._______________~ Akureyri s. 462-1840. SUNPSTAÐIR ______________________________________ SUNDSTAÐIR í REYKJAVÍK: Sundhöllin er opin v.d. kl. 6.30- 21.30, helgar kl. 8-19. Opið í bað og heita potta alla daga. Vesturbæjarlaug er opin v.d. 6.30-21.30, helgar 8- 19. Laugardalslaug er opin v.d. 6.60-21.30, helgar 8-19. Breiðholtslaug er opin v.d. kl. 6.50-22, helgar kl. 8-20. Grafarvogslaug er opin v.d. kl. 6.50-22.30, helgar kl. 8- 20.30. Árbæjarlaug er opin v.d. kl. 6.50-22.30, helgar kl. 8-22. Kjalarneslaug opin mán. og fimmt. kl. 11-15. þri., _ mið. ogföstud. kl. 17-21.______________________ SUNDLAUG KÓPAVOGS: Opin mád.-fóst. 7-21. Laugd. og _ sud. 8-18, Sölu hætt hálftíma fyrir lokun._____ GARÐABÆR: Sundlaugin opin mád.-föst. 7-20.30. Laugd. og sud. 8-17. Sölu hætt hálftima fyrir lokun._ HAFNARFJÖRÐUR. Suðurbæjarlaug: Mád.-föst. 7-21. Laugd. 8-18. Sud. 8-17. Sundhöll Hafnarflarðar: Mád.- föst. 7-21. Laugd. 8-12. Sud. 9-12.___________ VARMÁRLAUG f MOSFELLSBÆ: Opið virka daga kl. 6.30- 7.45 og kl. 16-21. Um helgar kl. 9-18.__ SUNDLAUGIN f GRINDAVÍK:Opið alla virka daga ki. 7- 21 og kl. 11-15 um helgar. Sími 426-7555._____ SUNDLAUG KJALANESS: Opin v.d. 6.45-8.30 og 14-22, helgar 11-18._________________________________ SUNDMIÐSTÖÐ KEFLAVfKUR: Opin mánud.-Iöstud. kl. 7-21. Laugard. kl.8-17. Sunnud. kl. 9-16._____ SUNDLAUGIN í GARÐI: Opin mán.-föst. kl. 7-9 og 15.30- 21. Laugardaga og sunnudaga. kl. 10-17. S: 422-7300. SUNDLAUG AKUREYRAR er opin v.d. kl. 7-21. Laugard. og sunnud. kl. 8-18. Sími 461-2532.___________ SUNDLAUG SELTJARNARNESS: Opin mád.-föst. 7- 20.30. Laugard. og sunnud. kl. 8-17.30._______ JAÐARSBAKKALAUG, AKRANESl: Opin mád.-föst. 7- 21, laugd. og sud. 9-18. S: 431-2643._________ BLÁA LÓNIÐ: Opið v.d. kl. 11-20, heigar kl. 10-21. ÚTIVISTARSVÆÐI FJOLSKYLDU- OG HÚSDÝRAGARÐURINN er opinn alla daga kl. 10-17, lokað á miðvikudögum. Kaffihúslð opið á sama tíma. Sími 5757-800._____________________ SORPA SKRIFSTOFA SORPU er opin kl. 8.20-16.16. Endur- vinnslustöðvar eru opnar a.d. kl. 12.30-19.30 en lokaöar á stórhátíðum. Að auki verða Ánanaust, Garðabær og Sæv- arhöfði opnar kl. 8-19.30 virka daga. Úppl.sími 520-2205. Staða Frakk- lands í al- þjóðastjórn- málum FYRIRLESTUR um stöðu Frakk- lands í alþjóðastjórnmálum að loknu kalda stríðinu verður haldinn mið- vikudaginn 12. maí. Fyrirlesturinn verður haldinn í húsakynnum Alli- ance Frangaise við Ingólfstorg og hefst hann kl. 20.30. Fyrirlesarar eru Tómas Ingi 01- rich sem menntaður er í Frakklandi og Friðrik Páll Jónsson, yfirmaður erlendra frétta á fréttastofu Ríkisút- varpsins. Fyrirlestrinum sem haldinn verð- ur bæði á íslensku og frönsku stýrir Árni Snævarr, yfirmaður erlendra frétta á Stöð 2. Vinstrihreyfingin - grænt framboð Fundur um umhverfísmál FUNDUR verður í Grænu smiðj- unni, Suðurgötu 7, þriðjudaginn 11. maí kl. 20.30, undir yfii-skriftinni Umhverfismálin: Hvert stefnir að loknum kosningum? Á fundinum munu þau Kristín Halldórsdóttir, Hjörleifur Guttorms- son og Kolbrún Halldórsdóttir ræða málið og svara fyrirspurnum. Allir velkomnir. Námsstefna um lausnar- miðuð með- ferðarstörf FÉLAG fagfólks í fjölskyldumeð- ferð, FFF, stendur fyrir náms- stefnu um lausnarmiðuð meðferðar- störf. Fyrirlesari verður finnski geðlæknirinn Ben Furman. Náms- stefnan verður haldin í Norræna húsinu kl. 9-16 báða dagana. í fréttatilkynningu segir: „Fjallað verður um skammtímameðferð og hvað það merkir að vinna á lausnar- miðaðan hátt. Hvernig er unnt að breyta viðhorfum skjólstæðinga frá því að einblína á vanda í að leita að lausnum? Hvernig er unnið með fjölskyldum og stofnunum á árang- ursríkan hátt? Hvernig finnast bjargráð þegar erfitt er að koma auga á þau? Þá mun verða sýnt fram á hvernig nota má þessa að- ferð við tiltekin vandamál bama og fullorðinna svo og þegar unnið er með persónulega þróun og vöxt. Ben Furman er geðlæknir og við- urkenndur handleiðari af AAMFT (American Association of Marital and Family Therapy). Hann hefur skrifað margar bækur og sú nýjasta „It’s Never too late to Have Happy Childhood" hefur orðið metsölubók í Finnlandi. Ben Furman er mörg- um Islendingum kunnur enda þaul- vanur fyrirlesari og hefur orð á sér fyrir að vera bæði skemmtilegur og áheyrilegur. Námsstefnugjald er 14.000 kr. í gjaldinu er innifalið kaffi og léttur hádegisverður. ■ HÚSMÆÐRAORLOF Gull- bringu- og Kjósarsýslu fer í ferð til Hornafjarðar, á Vatnajökul og í sigl- ingu á Jökulsárlóni 11.-13. júní. Far- ið verður til Djúpuvíkur á Ströndum, ekið til Gjögurs, Trékyllisvíkur og Norðurfjarðar 18.-20. júní. Upplýs- ingar veitir Svanhvít Jónsdóttir. LEIÐRÉTT Tónleikar í Logalandi TÓNLEIKAR Kvennakórsins Yms, Freyjukórsins og Kvennakórs Hafn- arfjarðar verða í Logalandi í Borgar- firði, fimmtudaginn 13. maí kl. 16. Tímasetning var röng í blaðinu á sunnudag. Dagbók Háskóla fslands Þriðjudagur 11. maí: Hópur sagnfræðinga mun kynna fyrirhugaða rannsókn á sögu ís- lenskrar utanríkisverslunar í boði Sagnfræðingafélags íslands. Sagn- fræðingarnir sex sem standa að verkefninu munu kynna hugmyndir sínar og kalla eftir viðbrögðum fundarmanna við rannsóknaráætl- un hópsins. Þau sem eru í forsvari fyrir verkefninu eru Anna Agnars- dóttir, Gísli Gunnarsson, Guð- mundur Jónsson, Helgi Þorláks- son, Halldór Bjarnason og Þorleif- ur Óskarsson. Hópurinn hugsar sér að bjóða upp á ritgerðar- og rannsóknarverkefni og er til við- ræðu við stúdenta eða aðra sagn- fræðinga um slíka þátttöku. At- hygli skal vakin á að fundarmenn geta fengið sér matarbita í veit- ingasölu Þjóðarbókhlöðunnar og neytt hans meðan á fundinum stendur. Fundurinn verður haldinn í Þjóðarbókhlöðu á 2. hæð í hádeg- inu (12:05-13). Vísinda- og félagsfræðingurinn dr. Hilary Rose flytur opinberan fyririestur í boði Rannsóknastofu í kvennafræðum. Fyi-irlesturinnn nefnir hún „Feminismar og ný erfðavísindi". Erfðafræði og mann- kynbætur (eugenics) eiga sér rætur í 19. öldinni og hafa verið miðlægar í vísindum, menningu og samfélags- pólitík 20. aldar. Frá seinna stríði hafa mannkynbætur verið litnar hornauga vegna tengsla við nasis- mann en nú er breyting að verða þar á. Nýjar útgáfur erfðafræði og mannkynbóta hafa séð dagsins ljós. Fyrirlesturinn verður í haldinn á 2. hæð í Þjóðarbókhlöðu og hefst kl. 17. Miðvikudagur 12. maí: Kynningarfundur á vegum við- skipta- og hagfræðideildar á námi við deildina í stofu 101 í Odda kl. 17.30. Sérstök áhersla verður lögð á nám til diplóm-prófs en boðið verður upp á það í fyrsta sinn í haust. Einnig verður fjallað um nám til BA-, BS-, cand.oecon,- og MS- prófs. Föstudagur 14. maí: Nemendur í lyfjafræði kynna lokaverkefni sín með fyrirlestrum. Fyrh-lestrarnh’ standa yfir frá kl. 8:30-16 í stofu 104 í Haga við Hofs- vallagötu. Nánari upplýsingar um tímasetningu^ má fá hjá Skrifstofu lyfjafræði HÍ í síma 525 4353, opið f.h. Bjarni Bærings Bjarnason: „LDL Analog Drug Carriers. Preparation and Characterization". Björn Ágústsson: „Áhrif Kítósans á ónæmiskerfið". Friðþjófur Már Sig- urðsson: „Breytt meðferð eftir inn- lögn á sjúkrahús. Könnun á tíðni inn- lagna af völdum lyfja“. Guðrún Finn- borg Guðmundsdóttir: „Efni úr dfla- skóf, Peltigera leucophlebia, með hamlandi virkni gegn bakrita HIV in vitro“. Guðrún Jónsdóttir: „Umbrotsefni benzódíazepínsambanda í þvagi“. Hákon Hrafn Sigurðsson: „Stærð- fræðilegt líkan sem lýsir áhrifum sýklódextrína á frásog gegnum himnur“. Jón Valgeirsson: „Efna- smíð og æxlishemjandi eiginleikar bicyclo(3.3.1)nónan-3-óna“. Jónas Þór Birgisson: „Áhrif taugalyfja á boðleiðir innan ónæmiskerfisins“. Jónína Þorbjörg Guðmundsdóttir: „Lípoxygenasahindrandi efni úr geitanafla. (Umbilicaria Pro- boscidea)“. Kristín Loftsdóttir. „Mjúk sótthreinsandi efni. Fjórgild ammóníum sambönd". Sigrún Sig- ríður Óttarsdóttir: „Upphreinsun og ákvörðun á byggingum fjölsykra í • fléttunni Parmalia saxatilis". Þóra Jónsdóttir: „Breytingar á insúlínþörf sykursjúkra kvenna á meðgöngu". Námskeið á vegum Endurmennt- unarstofnunar HI 7.-13. maí: 12. maí kl. 16-20. Notkun Excel 7.0 við fjármál og rekstur I. Kenn- ari: Guðmundur Ólafsson hagfr., lektor við HÍ. 14. maí kl. 9-16 og 15. maí 9-13. Gæðastjómun í símenntunarfyrir- tækjum og -deildum. Kennari: Állan Ahrensberg, aðstoðarframkvæmda- stjóri DIEU. 14. maí kl. 9-16. Samskipti á kvennavinnustað. Kennari: Þórkatla Aðalsteinsdóttir sálfræðingur. Sýningar Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði við Suðurgötu. Frá 1. september til 14. maí er handrita- sýning opin þriðjudaga, miðviku- daga og fímmtudaga kl. 14-16. Unnt er að panta sýningu utan reglulegs sýningartíma sé það gert með dags fyrirvara. Orðabankar og gagnasöfn Öllum er heimill aðgangur að eft- irtöldum orðabönkum og gagnasöfn- um á vegum HI og stofnana hans. Islensk málstöð. Orðabanki. Hef- ur að geyma fjölmörg orðasöfn í sér- greinum: http://www.ismal.hi.is/ob/ *"■ Landsbókasafn Islands - Há- skólabókasafn. Gegnir og Greinir. http://www.bok.hi.is/gegnir.html Gagnasafn Orðabókar Háskólans: http://www.lexis.hi.is Rannsóknagagnasafn íslands. Hægt að líta á rannsóknarverkefni og niðurstöður rannsókna- og þró- fy unarstarfs: http://www.ris.is 1
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.