Morgunblaðið - 11.05.1999, Qupperneq 75

Morgunblaðið - 11.05.1999, Qupperneq 75
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1999 75 * FÓLK í FRÉTTUM VINSÆLUSTU MYNDBÖNDIN A ISLANDI Útgefandi 1. 1. 5 There's Something About Mory Skífan Gaman 2. 2. 3 Trumun Show CIC myndbönd Gaman 3. 3. 4 Snuke Eyes Sam myndbönd Spenna 4. 4. 2 Taxi Háskólabíó Spenna 5. 9. 2 Thunderbolt Skífan Spenna 6. 6. 8 Out of Sight CIC myndbönd Gaman 7. 16. 2 Dirty Work Warner myndir Gamnn 8. 5. 6 Rush Hour Myndform Gaman 9. NÝ 1 Divordng Jack Stjörnubíó Spenna 10. 7. 3 Can't Hardly Wait Skífan Gaman Mary efst fimmtu vikuna í röð 8. n. 13. 10. 14. 12. NÝ 17. NÝ NÝ Spanish Prisoner Knock Off Reol Blonde Apt Pupil Lost Doys of Disco Dr. Dolittle My Giont The Horse Whisperer Mighty Letters From a Killer Myndform Myndform Hóskólobíó Skífon Worner myndir Skífan Warner myndir Sam myndbönd Skífan Skífan imnu EKKERT lát er á vinsældum Mary sem er í toppsæti listans fímmtu vikuna í röð. í öðru sæti er Truman-þátturinn eins og í síðustu viku og Snákaaugun í því þriðja. Fjórar nýjar myndir koma inn á listann þessa vikuna. Breska spennugrínmyndin Di- vorcing Jack fer beint í níunda sæti listans en þar ræður svart- ur húmor ríkjum. Gamanmyndin Risinn minn með Billy Crystal í aðalhlutverki fer í 17. sæt- ið. Hinn mikli, þar sem Sharon Stone fer m.a. með aðalhlutverk, fer í nítjánda sætið og spennumyndin Bréf frá morðingja með Patrick Swayze í aðalhlut verki fer í 20. sætið. Ed Harris fer með hlut- verk höfundar og leik- stjóra Truman-þáttarins í samnefndri mynd. Þegar hann er spurður hvort hann telji að sú heims- mynd sem birtist í kvik- myndinni gæti gerst í dag segir hann að hann telji hugmynd- ina alls ekki svo fjarri Iagi, því ef marka má spjallþætti og aðra vinsæla sjón- varpsafþreyingu væri öruggt að fólk myndi horfa á sambæri- legan þátt og Truman-þáttinn. „Fólk myndi þyrpast að skján- um því svo margir hafa gaman af því að fylgjast með lífí annars fólks. Eg held að margir í dag séu haldnir innri hræðslu og það er miklu auðveldara að setjast fyrir framan skjáinn og horfa á annað fólk kljást við lífið heldur en að kljást við sitt eigið h'f.“ Þrátt fyrir þessa skoðun sína telur Harris þó að hann sjálfur myndi ekki hafa áhuga á að horfa á svona þátt. „Eg vona að ég myndi hafa eitthvað betra að gera við líf mitt.“ ED Harris fer með eitt hlutverkanna í Truman- þættinum. 11. 12. 13. 14. 15. 6. 7. 18. 19. Spenna Spenna Gaman Spenna Goman Gaman Gaman Orama Goman Spenna Gæti gerst í dag Myndbandalistinn MYNDBÖND Allt fær að flakka Get varla beðið (Can’t Hardly Wait)_ Gamanmynd ★★★ Framleiðendur: Jenno Topping og Betty Thomas. Leikstjórn og handrit: Deborah Kaplan og Harry Elfont. Kvikmyndataka: Lloyd Ahern. Tón- list: David Kitay. Aðalhlutverk: Eth- an Embry, Charlie Korsmo, Lauren Ambrose, Peter Facinelli, Seth Green og Jennifer Love-Hewitt. (97 mín) Bandarisk. Skífan, apríl 1999. Öllum leýfð. Á ÚTSKRIFTARDEGI skóla er haldið partý sem allir mæta í. Flestir eru staðráðnir í að skemmta sér ær- lega og kveðja skólaárin með stæl. Það hitnar vel í kolunum og eftir því sem á kvöldið líður byrja valdahlut- fóllin sem ríkt hafa í skólanum að snúast við og jafnast út. Þessi kvik- mynd, sem lítur út fyrir að vera dæmigerð bandarísk gelgjuskóla- mynd, kemur verulega á óvart. Hún tekur þær stöðluðu týpur sem þekkja má úr kvikmyndum af þessu tagi og leikur með þær, ýkir upp og flettir svo ofan af þeim. Söguþráður- inn er bráðskemmtilegur og mein- fyndinn, handritið traust og vand- lega skipulögð atburðarásin rennur vel. Öruggt lið ungra og myndar- legra leikara sér síðan um að halda uppi fjörinu. Heiða Jóhannsdóttir TOIVLIST Geisladiskur Geisladiskur Sigga Björns, Roads. Siggi Bjöms: Söngur, gítar, blús- munnharpa, Esben Laursen: Bassi, mandólín, rennigítar, Keith Hopcroft: Gítar, Cenquiz Cevik: Saz og slag- verk, Him Shing: Trommur. Tekið upp í Villa Alma Studeo í Árhus, apr- fl 1998. Lengd: um 45 mín. SIGGI Björns hefur gert víðreist undanfarin ár og fengið til liðs við sig fjölda fólks hvaðanæva úr heiminum til að spila með sér tón- listina sína. Þetta gefur tónlistinni óhjákvæmilega ákveðin sumar- leyfaáhrif sem skína mjög vel í gegn á nýjustu afurð hans, Roads. Roads er vegaplata, einkennd reynslu og vönduðum en frekar ópersónulegum hljóðfæraleik. Allt andrúmsloft á Roads er líðandi og mjúkt, reyndar oft það áreynslu- laust að mann fer að þyrsta í eitt- hvað leiftur, smá hristing eða nýj- an afleggjara. Áhrif plötunnar í heild eru mest eins og sunnudags- rúntur til Hveragerðis. Ekkert of spennandi eða viðburðaríkur en þægilegur án þess að vera leiðin- legur rúntur. Það er ýmislegt sjarmerandi á Roads-rúntinum með Sigga. Rödd hans er notalega hrjúf og einhvem veginn fullkomlega heima hjá sér innan um hljóðfærasláttinn fjöl- þjóðlega. í laginu Having a Wond- erful Time, sem er eitt fallegasta lag Roads, nýtur viskíröddin sín ágætlega innan um angurvært rennistál Esben Laursen. Reyndar hefði mátt bera meira á rennistál- inu á allri plötunni. Það sem heill- aði hvað helst þess fyiir utan voru SIGGI Björns með samstarfsmönnum sfnum. blúsuðu gítarsólóin og brotnu hljómarnir sem þau leystust upp í eins og í laginu When the angels sing. Einhver gamalkunn og heim- ilisleg sveitastemmning þar á ferð, stælalaus og heiðarleg. Einnig kom harmónikkuleikur nokkuð sterkur inn í lögum eins og One Gentle Touch og fór með stemmninguna í allt aðra átt en ella. Slagverksleik- arinn Cenquiz Cevik er að sama skapi duglegur við að hrista fram karíbskar stemmningar og gerir það einna best í salsaslagaranum Aripeeka Bay sem er stuðlag plöt- unnar og má vel smella fingrum við með góðum vilja. Annars er mest um gamlar fréttir á Roads. Það dregur ekki mikið til tíðinda og lítið um stór- sigra þótt skálað sé í hanastélum á veðruðum bermúdabuxum í text- um Sigga. En það kemur ekki að sök, enda ætlunin líklega aldrei önnur en að rúnta með hlustand- ann dálítinn spöl um kunnuglegar slóðir. Kristín Björk Kristjánsdóttir Mjúkur rúntur Morgunblaðið/Jón Svavarsson PÁLMI Sigurhjartarson, Sigurður Sigurðsson, Jón Magnússon „Jojo“ og Tómas Tómasson upptökustjóri í Hljóðveri alþýðunnar. Lag til styrktar flóttafólki UM SÍÐUSTU helgi komu nokkr- ir íslenskir tónlistarmenn saman og tóku upp lag fyrir Hjálpar- stofnun kirkjunnar. Laginu er ætlað að vekja athygli á söfnun sem Hjálparstofnunin stendur nú fyrir til styrktar flóttafólki í Kosovo. Lagið heitir Alltaf ljósið lýsir og verður því dreift á allar útvarpsstöðvar í vikunni. Jón Magnússon „Jojo“ samdi lag og texta og syngur en til liðs við sig fékk hann Pálma Sigurhjartarson píanóleikara, Guðmund Stein- grímsson trommuleikara, Sigurð Gröndal gítarleikara, Sigurð Sig- urðsson munnhörpuleikara, Eyjólf Gunnlaugsson úr Stikk og Olaf Þórðarson úr Ríó Tríói sem allir gáfu vinnu sína. Frjálst fall ►EF ÞÚ ert adrenalínfíkill ætt- irðu að prófa það sem Japanir eru að ærast yfir um þessar mundir. Unga stúlkan á mynd- inni öskraði af öllum kröftum er hún lét sig falla í frjálsu falli án öryggislínu rúmlega 30 in á nýj- um dýfingarstað við Biwako turn í vestur Japan. Fallið tekur um tvær sekúndur og stökkvarar lenda nyúklega á neti sem er átta metrar í þvermál. •A Yf.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.