Morgunblaðið - 21.05.1999, Síða 1
STOFNAÐ 1913
112. TBL. 87. ÁRG.
Reuters
Kosningabarátta í S-Afríku
STUÐNINGSMAÐUR Afríska þjóðarráðsins (ANC) og Thabos Mbekis,
sem er forsetaefni ANC í komandi kosningum í Suður-Afríku í stað
Neisons Mandelas, býst til að hengja auglýsingaskilti flokksins upp
beint fyrir neðan auglýsingaskilti höfuðandstæðingsins Sameinuðu
Iýðræðishreyfingarinnar (UDM). Baráttan fyrir kosningarnar, sem
fara fram 2. júní næstkomandi, er nú í hámarki en þetta verður í ann-
að skipti sem iýðræðislegar kosningar fara fram í S-Afríku eftir að
aðskilnaðarstefna hvítra manna var afnumin.
FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Bústaður svissneska sendiherrans skemmist í árásum NATO
Leit að pólitískri
lausn haldið áfram
IRENA Dinic heldur á nýfæddu bami sínu í gær
eftir að hafa verið flutt á nýtt sjúkrahús en hún
komst naumlega lífs af þegar sprengja sprakk á
sjúkrahúsi í Belgrad í fyrrindtt.
Belgrad, Mflanó, Moskvu. Reuters, AFP, AP.
HÖRÐUM loftárásum
Atlantshafsbandalagsins
(NATO) var haldið áfram
á skotmörk í Júgóslavíu í
gærkvöldi og varð bústað-
ur svissneska sendiherrans
í Belgrad fyrir skemmdum
þegar sprengjum var varp-
að á olíuhreinsistöð í ná-
grenninu. Ekki er vitað til
að neinn hafi orðið fyrir
meiðslum en veisla stóð yf-
ir í sendiherrabústaðnum
þegar atburðurinn átti sér
stað og meðal gesta var
sænski sendiherrann í
Júgóslavíu, en sænska
sendiráðið hafði orðið fyrir
skemmdum í loftárásum
NATO í fyrrakvöld.
Leitin að pólitískri lausn
í Kosovo-deilunni hélt áfram en
fundi þeirra Viktors Tsjernomyrd-
íns, sendimanni Rússa í Kosovo-
deilunni, Strobes Talbotts, aðstoð-
arutanríkisráðherra Bandaríkjanna,
og Marttis Ahtisaaris, forseta Finn-
lands, í Moskvu lauk án þess að
Rússum og vesturveldunum tækist
að leysa ágreining sinn um hvernig
binda mætti enda á átökin í Júgó-
slavíu.
Sem fyrr er það ásteytingar-
steinn hjá vesturveldunum og Rúss-
um hvemig brottflutning herliðs
Serba frá Kosovo skuli bera að,
hvenær NATO hætti loftárásum
sínum á Júgóslavíu, hvernig tryggt
sé að flóttafólk frá Kosovo geti snú-
ið óhult til síns heima og hvert hlut-
verk NATO yrði í friðargæslusveit-
um í Kosovo.
Svíar bera fram
formleg mdtmæli
Talsmenn NATO viðurkenndu á
fundi í Brussel í gærdag að ein af
sprengjum þess hefði geigað í loft-
árásum á Belgrad í fyrrakvöld en
seint í gærkvöldi hafði bandalagið
ekki enn viljað staðfesta að sprengj-
an hefði hafnað á sjúkrahúsi í
Dedinje-hverfi í Belgrad, eins og þó
allt benti til. Serbar sögðu fjóra
hafa fallið í árásinni.
Sprengjan sprakk í nágrenni
sænsku, spænsku og norsku sendi-
ráðanna og sprungu glugg-
ar í þeim öllum, auk þess
sem frekari eyðilegging
varð á sænska sendiráðinu.
Bar Göran Persson, for-
sætisráðherra Svíþjóðar,
fram formleg mótmæli
sænsku stjórnarinnar
vegna þessarar árásar.
Massimo D’Alema, for-
sætisráðherra Italíu, sagði
að stuðningur almennra
borgara við aðgerðir
NATO væri í húfi ef árásir
væru gerðar á annað en
hernaðarmannvirki. „Við
erum á þeirri skoðun að
leggja verði áherslu á að
komast hjá hörmulegum
mistökum sem verða til
þess að auka óánægju og
skilningsleysi meðal fbúa aðildar-
landa NATO,“ sagði D’Alema við
blaðamenn í Brussel.
Fregnir hermdu að íbúar Kru-
sevac í Júgóslavíu hefðu efnt til
mótmæla gegn aðgerðum serbneska
hersins í Kosovo. Jafnframt var
staðhæft að um eitt þúsund
serbneskir hermenn hefðu gerst lið-
hlaupar og snúið aftur til Krusevac
eftir að fréttist af mótmælunum
þar. Samtök íbúa í bænum Cacak
sendu aukinheldur Milosevic skrif-
lega áskorun í gær þar sem hann
var hvattur til að binda enda á
Kosovo-stríðið.
■ Allt að/26
Sex særast í skot-
árás í bandarísk-
um menntaskóla
Arásin sögð undirstrika nauðsyn
strangari byssulöggjafar
Conyers, Washington. Reuters, AFP.
Branson
hyggur á
hótelrekstur
í geimnum
London. Reuters.
BRESKI athafnamaðurinn og
auðkýfingurinn Richard Bran-
son hyggst byggja hótel úti í
Igeimnum og hefur nú þegar
stofnað fyrírtæki, sem hann
kallar „Virgin-vetrarbrautar-
flugfélagið“, í því skyni að
ferja viðskiptavini sína út í
geim.
„Við erum að skoða ýmsar
leiðir til þess að geta flogið
með fólk út í geim fyrir við-
ráðanlegt verð,“ sagði Bran-
son á umræðufundi á Netinu á
miðvikudagskvöld. Bætti hann
því að hann myndi byggja hót-
el einhvers staðar úti í geimi.
„Ég vona að á næstu fimm
árum muni hafa tekist að
smíða geimflaug sem farið
getur í fjölda geimferða, og
sem getur flutt allt að tíu
manns í senn til gistingar á
Virgin-hóteli í tvær vikm-. Ég
er afar spenntur yfir þessari
hugmynd og vona að mér
muni takast að hrinda þessum
draumi í framkvæmd," sagði
Branson.
SEX særðust þegar unglingspiltur
hóf skothríð í menntaskóla í bænum
Conyers í Georgíu-ríki í Bandaríkj-
unum í gær, og vakti árásin þegar
minningar um atburðina í Littleton
í Colorado íyrir mánuði, þar sem
tveir menntaskólanemar myrtu
þrettán og réðu sjálfum sér bana að
því loknu. Sagði Bill Clinton Banda-
ríkjaforseti árásina í gær undir-
strika enn frekar nauðsyn þess að
sett yrðu lög sem hömluðu byssu-
eign í Bandaríkjunum.
Að sögn lækna hlaut eitt fórnar-
lamba byssumannsins í gær skotsár
á baki og kviðarholi en áverkar ann-
arra fórnarlamba árásarinnar voru
minniháttar og er gert ráð fyrir að
þau nái sér að fullu.
Skotárásin í Conyers, sem er um
fjörutíu kílómetra frá Atlanta, átti
sér stað á samkomustað nemenda í
hádeginu og sögðu vitni að pilturinn
hefði skotið handahófskennt á hóp
nemenda með riffli og skammbyssu
áður en hann lagði vopn sín frá sér
og brast í grát. Öryggismenn skól-
ans gripu piltinn þá höndum og af-
hentu lögreglu þegar hún kom á
staðinn.
Ódæðismaðurinn var fimmtán
ára nýnemi og sögðu skólayfirvöld
að hann hefði verið afar rólegur
piltur. Einn skólabræðra hans sagði
að hann hefði verið afar leiður þeg-
ar slitnaði upp úr sambandi hans og
kærustu hans en lögregla vildi ekki
staðfesta þessar upplýsingar og
sagði tilefni árásarinnar óþekkt.
Clinton heimsækir
Littleton
Bill Clinton var að undirbúa
heimsókn sína til Littleton í gær,
þar sem hann hugðist ræða við
nemendur og fjölskyldur fórnar-
lamba árásarinnar fýrir mánuði,
þegar tíðindi bárust af skotárásinni
í Georgíu. „Þessi atburður ætti að
undirstrika enn frekar hversu mik-
AP
LÖGREGLUMENN leiða byssu-
manninn unga inn í dómshúsið í
Conyers í Georgíu í gær.
ilvægt það er fyrir alla Bandaríkja-
menn að sameinast um það að verja
börn okkar fyrir ofbeldi," sagði
Clinton.
Bæði Clinton og Janet Reno,
dómsmálaráðherra Bandaríkjanna,
sögðu atburðinn í Georgíu ítreka
nauðsyn þess að herða lög um eign
skotvopna en síðustu dagana hefur
öldungadeild Bandaríkjaþings
einmitt haft td umræðu þess háttar
lagafrumvarp sem Clinton lagði
fram eftir atburðina í Littleton.
Sljórnarmyndun
Stepashíns
Snurða
hlaupin á
þráðinn
Moskvu. Reuters.
SERGEJ Stepashín, nýi forsætisráð-
herrann í Rússlandi, hófst í gær
handa við að mynda nýja ríkisstjóm
en snurða hljóp strax á þráðinn þar
sem hagffæðingurinn Alexander
Zhukov, formaður fjárlaganefndar
dúmunnar, hafnaði tilboði um að
verða aðstoðarforsætisráðherra.
Frjálslyndi flokkurinn Jabloko neit-
aði einnig að ganga í stjómina.
Zhukov kvaðst ekki ætla að taka
sæti í stjóminni nema hann fengi
embætti fyrsta aðstoðarforsætisráð-
herra, sem er mun áhrifameira en sú
staða sem honum var boðin. Hann
setti einnig það skilyrði að tryggt
yrði að eining ríkti í stjórninni.
Búist er við að Míkhaíl Zadomov,
sem er félagi í Jabloko, verði áffarn
fjármálaráðherra. Leiðtogi Jabloko,
Grígorí Javlínskí, tók þó fram að
flokkurinn í heild hygðist ekki ganga
í stjórnina.
Rússnesk dagblöð spáðu því að
Stepashín yrði fyrir vonbrigðum með
samstarfið við Borís Jeltsín og sögðu
forsetann vilja takmarka sjálfstæði
forsætisráðherrans.
■ Sáu sér akk í að bíða/37