Morgunblaðið - 21.05.1999, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 1999 11
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Kristinn
ÞAÐ VAR glatt á hjalla við undirritunina. Samninginn undirrituðu Ingibjörg S. Gísladóttir, borgarstjóri, Jó-
hann H. Harðarson, framkvæmdastjóri Framtíðarbarna, Gerður G. Óskarsdóttir, fræðslustjóri Reykjavíkur-
borgar, Ellert Borgar Garðarsson, skólastjóri Ártúnsskóla, Svanhildur Ólafsdóttir, skólastjóri Korpuskóla og
Kristín G. Andrésdóttir, skólastjóri Vesturbæjarskóla.
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur og Framtíðarbörn semja
Breyttir starfshættir
samhliða tækniþróun
GERÐUR hefur verið tilrauna-
samningur um samstarf Fræðslu-
miðstöðvar Reykjavíkur og tölvu-
skólans Framtíðarbarna ehf. við
tölvufræðikennslu í þremur grunn-
skólum borgarinnar. Samningur-
inn, sem gerður er til eins árs, var
undirritaður í Ártúnsskóla í gær,
en auk hans taka Korpuskóli og
Vesturbæjarskóli þátt í verkefn-
inu.
Að sögn Gerðar G. Óskarsdótt-
ur, fræðslustjóra Reykjavíkur-
borgar, er fyrst og fremst verið að
kaupa kennslu, en Framtíðarbörn
bjóða upp á eina heildstæða
kennsluefnið sem hentar til
kennslu í öllum bekkjum grunn-
skólans. Kennsluefnið hefur beina
skírskotun í námsgreinar grunn-
skólans og lögð er áhersla á að
nemendur læri að nýta sér tölvuna
sem verkfæri við úrlausn ólíkra
verkefna. Efnið verður kennt í 1. til
10. bekk skólanna þriggja, auk
þess sem Framtíðarböm taka að
sér þjálfun eins til tveggja kennara
úr hverjum skólanna.
Vísar til framtíðar
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
borgarstjóri, telur að með samn-
ingnum sé stigið stórt skref í átt að
lokamarkmiði nýrrar aðalnámskrár
grunnskóla, sem tekur gildi l.júní.
Hún segir grunnskólana vera að
feta sig inn í ákveðnar breytingar á
vinnulagi í takt við tækniþróun í
samfélaginu. „Samningurinn vísar
til framtíðar, hann miðar að því að
gera nemendur færari að nýta
tölvutæknina í sína þágu,“ sagði
borgarstjóri.
FÓLK
Islendingur
gestapró-
fessor í Kína
•DR. BALDUR Elíasson hefur
verið skipaður gestaprófessor við
efnaverkfræðideild háskólans í Ti-
anjin í Kína. Hann stjórnar þar til-
raunum til að
breyta koltvíildi
og metani í fljót-
andi eldsneyti.
Rannsóknar-
verkefnið er
unnið á vegum
ABB, en Baldur
er sérfræðingur
stórfyrirtækisins
í umhverfismál-
um.
Rektor háskólans í Tianjin skip-
aði Baldur gestaprófessor til fjög-
urra ára við hátíðlega athöfn.
Baldur mun halda nokkra fyrir-
lestra við háskólann á ári en verð-
ur áfram búsettur í Baden í Sviss.
Tianjin er 9 milljón manna borg
suð-austan við Peking.
Kínverjar nota mikið kol sem
orkugjafa og hleypa gífurlegu
magni koltvíildis út í andrúmsloft-
ið. Það getur leitt til gróðurhúsaá-
hrifa. Baldur stjómar nú fimm
ólíkum rannsóknarverkefnum í
Kína á vegum ABB sem tengjast
gróðurhúsaáhrifum, auk verkefnis-
ins í Tianjin. „Við erum að gera
þar svipaða hluti og ég hef lengi
lagt til að íslendingar ættu að
gera“ sagði Baldur. „Við vinnum
koltvíildi úr andrúmsloftinu og
blöndum því saman við metan svo
að úr verður fljótandi eldsneyti.
Islendingar ættu að nota heimatil-
búið vetni í stað metansins sem við
notum og búa til metanól. Þeir
gætu notað það sem eldsneyti í
bíla og sldp.“
Stærsta verkefnið sem Baldur
stjórnar í Kína er sameiginlegt
verkefni ABB, fjögurra vestrænna
háskóla og fjögurra stofnana og
háskóla í Kína um umhverfisáhrif
rafmagnsframleiðslu og -dreifingar
í Shandong héraði. Shandong hér-
aðið, sem liggur á austurströnd
Kína, hefur 90 milljónir íbúa og er
helmingi stærra en ísland að flat-
armáli.
Isskápur
olli stór-
bruna
RANNSÓKN á orsökum
bi-una í húsi Raunvísinda-
stofnunar HÍ við Suðurgötu,
bendir til að eldurinn hafi
komið upp í ísskáp í tilrauna-
stofu hússins og að um
sjálfsíkveikju hafi verið að
ræða.
Miklar skemmdir hlutust af
brunanum í tilraunastofunni
sem varð 23. júlí í fyrra.
Lögreglan í Reykjavík lauk
rannsókninni fyrir skömmu.
Samkvæmt upplýsingum frá
henni eru íkveikjur í ísskápum
algeng orsök bruna á efna-
fræðitilraunastofnum erlend-
is. Allar líkur þykja benda til
að orsök brunans í húsi Raun-
vísindastofnunar sé hin sama,
þ.e. sjálfsíkveikja.
Baldur
Elíasson.
Nýjar vörur!
i Radiúbúilinni Skipholti 19 tieldur úfram
í siðustu viku gergu púsundir íslendinga ævintýraleg
Nú höfum við tpoðfyllt útsöluna af nýjum vörum
toppmerki í skóm fyrir alla fjölskylduna á verði frá kr : KyÁUriNN I I /n /n Tískufatnaður cn nno/
Ef\f\ KDKO BOUTIQUE 50-90%
ouu 5FicgcfI afsláttur
opið alla daga ( eirmig sunnudaga ) frá 12.00 - 19.00 Lokað Hvítasunnu