Morgunblaðið - 21.05.1999, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRi
Forseti Islands í opinberri heimsókn til Eyjafjarðar
■ ■
■
■ S' = witSs.ífr'-'" -
s. ~ . ».
• -
Morgunblaðið/Þorkell
FORSETINN geymdi glæsibifreið embættisins og tók sér far með Sveini Jónssyni ekli þegar förinni var heit-
ið til Dalbæjar, dvalarheimiiis aldraðra á Dalvík, enda var veðrið til þess.
Forsetanum vel
tekið á viðkomu-
stöðum sínum
SELMA Leifsdóttir dúkaði borð ásamt skólafélögum sínum í Þela-
merkurskóla er forsetanum var boðið til hádegisverðar þar í gær.
ÞÓTT hávaxinn sé, fór ekki mikið fyrir forsetanum er hann settist í
stól Jóhanns Svarfdælings í Jóhannsstofu á Byggðasafni Dalvíkur.
FORSETI íslands, hr. Ólafur
Ragnar Grímssoni ásamt
fylgdarliði hóf daginn eftir
móttöku í Hlíðarbæ.
Skoðaði forseti gamla húsið að
Skipalóni í fylgd með Hjörleifi Stef-
ánssyni, minjastjóra Þjóðminjasafns-
ins, og hélt því næst til Möðruvalla í
Hörgárdal og fræddist um sögu stað-
arins með aðstoð séra Torfa Hjaltalín
Stefánssonar. Meðal gersema sem
þar gaf að líta var Guðbrandsbiblía,
frá árinu 1584, ein fárra slíkra á land-
inu.
Eitt margra tónlistaratriða dags-
ins var flutt til heiðurs forseta í
kirkjunni undir stórn Jósavins Ara-
sonar sem stjórnaði svonefndum
Munkakór við undirleik Birgis
Helgasonar organleikara.
Lá leið forseta næst til Hjalteyrar
þar sem Ólafur Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskeldis Eyjafjarðar
hf., tók á móti forsetanum og kynnti
starfsemina fyrir honum.
í Fiskeldi Eyjafjarðar hf. á Hjalt-
eyri er stundað lúðuklak og seiða-
framleiðsla en eldi seiðanna fer fram
á vegum fyrirtækisins í Þorlákshöfn.
Fyrirtækið hefur verið starfandi síð-
an árið 1987 og fram á síðari ár hefur
einkum verið stundað rannsóknar-
og þróunarstarf, sem að sögn Ólafs
Halldórssonar, er farið að skila um-
talsverðum árangri.
Stærsti seiðafram-
leiðandi í heimi
„Seiðaframleiðslan fór að aukast
upp úr 1996 og í fyrra framleiddum
við 200 þúsund seiði og vorum stærsti
seiðaframleiðandi í heimi,“ sagði Ólaf-
ur í samtali við Morgunblaðið. Ásamt
öðru tiltók hann aukna reynslu starfs-
manna fyrirtækisins, sem forsendu
fyrir vaxandi gengi fyrirtækisins og
sagðist vonast til þess að fyrirtækinu
tækist að tvöfalda seiðaframleiðslu
síðasta árs á þessu ári. Hann sagði
það vera markmið fyrirtækisins að
halda sig í fremstu röð á sínu sviði.
*
Forseti Islands hélt
áfram ferð sinni um
Eyjafjörð í gær á öðr-
um degi opinberrar
heimsóknar sinnar til
Eyjafjarðar. Örlygur
Sigurjónsson og
Þorkell Þorkelsson
voru með í för.
„Það skiptir höfuðmáli að við séum
með þeim fremstu og að við séum að
setja góða vöru á markað og höfum
eitthvað að segja um þróun lúðueldis
í landinu í dag,“ sagði hann.
Fiskeldi Eyjafjarðar hf. hefur
kynnt vöru sína m.a. í Þýskalandi,
Bretlandi og í Boston og nágrenni
hennar, sem Ólafur kveður vera lík-
lega einn stærsta lúðumarkað í
heimi. „Eins hafa aðilar í Japan sýnt
þessari framleiðslu mikinn áhuga.
Við erum að vinna að markaðsmálum
með sérfræðingum á því sviði og
gerum ráð fyrir að fara slátra lúðu
jöfnum höndum um eða upp úr
næstu áramótum og á næsta ári
verði framleiðslan orðin 150 tonn.“
Hlutafé í Fiskeldi Eyjafjarðar hf.
er 410 milljónir króna og alls eru 92
hluthafar í fyrirtækinu en þeirra
stærstur er Hafrannsóknastofnun.
Hafa hluthafar frá upphafi greitt um
helmings alls rekstrar- og fjárfest-
ingarkostnaðar íyrirtækisins.
Þannig tók fyrirtækið aldrei lán
fyrstu ellefu árin og sagði Ólafur það
hafa verið forsendu fyrir því rann-
sóknar- og þróunarstarfi sem nauð-
synlegt var. „En núna, þegar við sjá-
um þennan árangur, þá breytist það
og við reiknum með að við getum
farið að fjármagna þessa starfsemi
rétt eins og önnur fyrirtæki gera.“
í Þelamerkurskóla, sem forsetinn
heimsótti að lokinni heimsókn sinni í
Fiskeldi Eyjafjarðar hf., tók næsti
gestgjafi forsetans, Karl Erlendsson
skólastjóri, á móti forsetanum og
fræddi hann um starfsemi skólans.
Höfðinglegar móttökur
í Þelamerkurskóla
Að skólanum, sem í eru um 100
nemendur, standa fjögur sveitarfé-
lög, Arnarnes-, Glæsibæjar-, Skriðu-
, og Öxnadalshreppur, en um 600
manns búa í sveitarfélögunum sam-
anlagt. Að venju tóku nemendur for-
seta sínum vel er hann gekk á milli
stofa og gluggaði í námsbækur
þeirra og spjallaði við þá.
Nemendur 10. bekkjar höfðu, und-
ir handleiðslu Höllu Sigurðardóttur,
dúkað veisluborð, sem beið forsetans
við lok heimsóknar hans og þjónuðu
gestunum rösklega til borðs.
Við borðhaldið fluttu Hannes Guð-
rúnarson gítarleikari og Petra Björk
Pálsdóttir, söngnemi í Tónlistarskóla
Eyjafjarðar, tvö verk auk fimm
stúlkna frá sama skóla, sem fluttu
flautukvintett eftir Garðar Karlsson,
kennara við Tónlistarskóla Eyja-
fjarðar.
A Dalvík, sem var síðasti viðkomu-
staður forsetans heimsótti forsetinn
Sæplast hf. og hlýddi á söng Karla-
kórs Dalvíkur undir stjórn Jóhanns
Ólafssonar. Þaðan lá leiðin til Byggða-
safns Dalvíkur, Hvols, þar sem sem
Amheiður Karlsdóttir forstöðumaður
leiddi forsetann m.a. inn í Jóhanns-
stofu og bauð honum sæti í sérhönn-
uðum stól stærsta Islendingsins.
Forsetinn tók sér síðan far með
Sveini Jónssyni á hestakerru til Dal-
bæjar, dvalarheimilis aldraðra, heils-
aði upp á vistmenn og fékk trausta
veðurspá hjá Veðurklúbbnum fyrir
Grímseyjarferð sína sem farin verð-
ur í dag. Húsabakkakórinn Góðir
hálsar, undfr stjórn Rósu Kristínar
Baldursdóttur, söng síðan fyrir for-
setann áður en hann kvaddi, eftir að
hafa skipst á gjöfum við vistmenn,
og hélt til næsta viðkomustaðar.
FORSETINN fékk trausta veðurspá fyrir för sína til Grímseyjar hjá
Veðurklúbbnum í Dalbæ.
EITT margra tónlistaratriða gærdagsins var flautukvintettinn
Vorkliður eftir Garðar Karlsson sem nemendur úr Tónlistarskóla
Eyjafjarðar fluttu fyrir forsetann.